Morgunblaðið - 16.02.2009, Blaðsíða 12
12 Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
EITT af erfiðustu vandamálunum
sem stjórn Baracks Obama þarf að
takast á við er baráttan gegn talí-
bönum í Afganistan. Sendimaður
bandaríska forsetans, Richard Hol-
brooke, hefur ferðast um svæðið og
átti í gær fund með Hamid Karzai
forseta í Kabúl. Fram kom að
fulltrúar Karzais munu taka þátt í að
endurskoða stefnu Bandaríkja-
manna. En afganski forsetinn nýtur
ekki lengur trausts í Washington.
Er Joe Biden, núverandi varafor-
seti Bandaríkjanna og þar áður for-
maður utanríkismálanefndar öld-
ungadeildarinnar, kom til Kabúl í
fyrra missti hann stjórn á skapi sínu
á fundi með Karzai. Honum fannst
forsetinn ekki svara af neinni hrein-
skilni spurningum um spillingu og
fíkniefnaviðskipti sem fara nú hratt
vaxandi í Afganistan. Biden rauk að
lokum á dyr.
Forsetakosningar verða á árinu
en ljóst er að Karzai er farinn að búa
sig undir að Bandaríkjamenn sleppi
af honum hendinni. Hann hefur haft
uppi lítt dulbúnar hótanir um að
snúa sér annað ef Bandaríkjamenn
neiti að láta afganska herinn, sem
nýtur stuðnings um 73.000 her-
manna Atlantshafsbandalagsins,
ekki hafa þann búnað sem hann fer
fram á. Nýlega sást rússneski sendi-
herrann, Zamír Kabúlov, ábúð-
armikill á göngum þingsins í Kabúl.
Bandaríkjamenn hafa nú góð sam-
skipti við Indverja sem berjast gegn
því að Pakistanar, meintir stuðn-
ingsmenn Bandaríkjamanna í stríð-
inu gegn hryðjuverkum, efli áhrif sín
í Afganistan. En jafnframt þarf
Obama við stefnumótun sína að hafa
í huga að Pakistanar, sem á sínum
tíma studdu talíbana til valda, virð-
ast nú gera ráð fyrir að Bandaríkja-
menn gefist ef til vill upp í Afganist-
an, eins og Rússar 1989. Og margir
gruna Pakistana um að styðja enn
talíbana á laun; svo gæti farið að þeir
næðu aftur völdum.
Flókið verkefni Obamas
Bandaríkjamenn endurskoða nú stefnu sína í Afganistan og
svo getur farið að Hamid Karzai forseti snúi sér að Rússum
Reuters
Sáttir Bandarískur hermaður gant-
ast við stráka í Kunar-héraði.
FELLDAR hafa verið niður ákærur
á hendur Roy Bennett, einu af að-
stoðarráðherraefnum Morgans
Tsvangirais, forsætisráðherra Sim-
babve, en hann var handtekinn á
föstudag, rétt áður en Tsvangirai
sór embættiseið. Bennett er bóndi
úr röðum hvíta minnihutans. Hann
verður nú ákærður fyrir samsæri
um að valda samfélagstruflunum
með ofbeldi.
Mannréttindasamtök segja að
fjöldi manna hafi verið handtekinn
á laugardag í borginni Bulawayo er
þeir kröfðust umbóta. Breska blað-
ið The Guardian segir að fimm
miklir áhrifamenn í valdaklíku Ro-
berts Mugabe forseta séu stað-
ráðnir í að beita öllum ráðum til að
koma í veg fyrir að samningur sem
Mugabe og Tsvangirai gerðu um að
skipta völdum milli flokka þeirra
verði að veruleika.
Áhrifamennirnir fimm stýra
landhernum, flughernum, lögregl-
unni, fangelsunum og leyniþjónust-
unni. Þeir hafa í reynd völd til að
ritskoða allt sem birtist í fjöl-
miðlum og hafa jafnvel síðasta orð-
ið þegar seðlabanki landsins tekur
ákvarðanir í peningamálum. Heim-
ildarmenn segja að nú vilji valda-
klíkan láta Tsvangirai og menn
hans vita að stjórnarseta veiti þeim
enga vörn.
kjon@mbl.is
Reuters
Vinir? Morgan Tsvangirai (t.v.) með
Emmerson Mnangagwa varnar-
málaráðherra.
Valda-
klíka sýn-
ir klærnar
Hyggjast velta
stjórn Tsvangirais
FUNDIST hefur
gamalt skjal í
sænska utanrík-
isráðuneytinu
sem varpar
óþægilegu ljósi á
samskipti Svía
við Þýskaland
Hitlers í stríðinu,
að sögn Dagens
Nyheter.
Þar kemur fram að þáverandi
fjármálaráðherra, Ernst Wigforss,
samþykkti ábyrgðir á lánum til
Þjóðverja vegna skipa sem þeir
vildu fá smíðuð í Svíþjóð. Ráð-
herrann var hins vegar út á við
ávallt eindreginn andstæðingur
þess að mikið samstarf væri átt við
Þýskaland.
kjon@mbl.is
Svíar lánuðu
Þjóðverjum
Adolf Hitler
Á krepputímum finnst mörgum meiri þörf en
nokkru sinni fyrr á því að ýta undir ástina. Íbúar
Mexíkóborgar settu um helgina nýtt met sem
skráð verður í Heimsmetabók Guinness, þá
komu alls 39.897 manns saman á Valentínus-
ardeginum á Zocalo-torginu í miðborginni og
kysstust samtímis í 10 sekúndur. Áður hafði
söngkonan Susana Zavaleta komið pörunum í
réttan grír með því að syngja hið klassíska lag
Besame Mucho sem mun þýða Kysstu mig oft og
ákaft. Gamla metið áttu íbúar borgarinnar We-
ston-super-Mare í Bretlandi, það var sett 2007.
Ástin logar heitt í 10 sekúndur í Mexíkóborg
AP
Samhæfðir kossar á Zocalo
GORDON Brown, forsætisráðherra
Bretlands, á nú mjög í vök að verjast
og í nýrri skoðanakönnun blaðsins
Independent er flokkurinn aðeins
með 22% fylgi, sama og Frjálslyndir
demókratar. Íhaldsmenn fá 41%.
Brown var fjármálaráðherra í ára-
tug áður en hann tók við núverandi
embætti sínu og þakkaði sér þá mik-
inn uppgang í landinu sem m.a. staf-
aði af því að fjármálafyrirtæki þönd-
ust út. En hann er sakaður um, að
hafa vanrækt að safna í sjóði til
mögru áranna og einnig hafi hann
gefið fyrirtækjunum of lausan taum-
inn. Allt eftirlit með þeim hafi verið í
skötulíki. Segja fréttaskýrendur að
Verkamannaflokkurinn hafi viljað
sanna að hann væri gerbreyttur og
hefði ekki lengur ímugust á einka-
framtakinu.
Paul Moore, sem eitt sinn var yf-
irmaður áhættustýringar hjá hús-
næðislánabankanum HBOS, segir
Brown hafa hunsað viðvaranir um að
lánastefna bankanna væri stór-
hættuleg og Moore segist geta sann-
að það með fjölmörgum gögnum. Yf-
irmaður Moore rak hann 2005.
kjon@mbl.is
Í kröppum dansi
vegna bankahruns
Brown sagður hafa hunsað viðvaranir vegna bankanna
Í HNOTSKURN
»Við yfirheyrslur á þingihefur verið skotið fast á
Brown. Hann beitti sér fyrir
því í fyrra að HBOS var forðað
frá gjaldþroti og hann samein-
aður Lloyds TSB. Nú er ljóst
að tap HBOS 2008 var mun
meira en áætlað hafði verið
eða um 10 milljarðar punda.
Er líklegt að ríkið verði að
þjóðnýta nýja bankann.
STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum
hafa gripið til óvenjulegs ráðs til að
reyna að stemma stigu við straumi
ólöglegra innflytjenda frá Mexíkó.
Útvarpsstöðvar í norðanverðu
Mexíkó hafa fengið ókeypis plötur
með lögum þar sem í spænsku text-
unum er lýst öllum þeim skelf-
ingum sem bíða fólks sem reyni að
laumast norður yfiir landamærin.
Sagt er frá illri meðferð, nauðg-
unum og öðrum erfiðleikum. Í einu
laginu segir frá tveim frændum,
Abelardo og Rafael, þeir villast í
eyðimörkinni. Abelardo vaknar að
morgni og finnur frænda sinn við
hliðina á sér, látinn úr þorsta.
„Hann ákvað að fara aftur heim/
Og láta jarðsetja hann í borginni
þeirra.“ Síðar segist Abelardo vona
að Guð leyfi sér að deyja í heima-
landinu. Um er að ræða ballöður í
anda svonefndrar corrido-hefðar.
En fíkniefnasmyglarar á þessum
slóðum hafa samið sín eigin lög,
narcocorridos. Er þar lýst hetju-
skap þeirra sem oft endar með því
að þeir eru drepnir.
kjon@mbl.is
Fældir frá
með söng
Hver verður stefna Obama?
Hann hefur rætt um að fjölga um
30.000 manns í bandaríska herlið-
inu í Afganistan til að tryggja þar
raunverulegt öryggi. Fyrr verði ekki
hægt að fara að byggja upp lýðræði.
Hve mikilvægt er Pakistan?
Það er lykilríki á þessum slóðum.
Mönnum hrýs hugur við því að
herskáir íslamistar nái ef til vill völd-
um þar og fái þannig aðgang að
kjarnorkuvopnum.
S&S