Morgunblaðið - 16.02.2009, Qupperneq 22
22 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2009
Sudoku
Frumstig
9 2 7 1
2 7 9
4 8 9
5 6 3 8 1
9 4 3 5 2 7
6 3 8 2 9
7 2 4
7 2 5
8 6 3 9
2 3 1 5
3 1 9
1 9 6 3
3 9
3 9 6 8 5 1
7 2
3 9 7 5
4 3 6
5 7 2 9
7 8 3
6 1 8 4 2
4 2 3
5 6 1
1 9 5 2 7
7 1 6
7 2 9
1 2 9 6 3
9 5 2
9 4 1 7 3 8 5 2 6
7 5 8 2 1 6 9 3 4
6 2 3 5 9 4 1 8 7
1 9 2 6 4 5 8 7 3
8 3 7 9 2 1 4 6 5
5 6 4 3 8 7 2 1 9
3 1 9 4 6 2 7 5 8
2 7 6 8 5 9 3 4 1
4 8 5 1 7 3 6 9 2
9 5 1 8 6 7 2 3 4
7 6 4 3 2 5 8 9 1
2 8 3 9 4 1 5 6 7
3 9 6 5 7 2 4 1 8
1 7 2 4 8 9 6 5 3
8 4 5 1 3 6 9 7 2
5 2 8 7 9 3 1 4 6
6 3 9 2 1 4 7 8 5
4 1 7 6 5 8 3 2 9
9 8 4 3 6 7 2 5 1
5 7 6 8 2 1 4 9 3
3 1 2 9 5 4 7 6 8
2 3 8 1 4 9 6 7 5
1 6 9 5 7 3 8 4 2
4 5 7 2 8 6 1 3 9
8 4 1 6 9 5 3 2 7
6 9 3 7 1 2 5 8 4
7 2 5 4 3 8 9 1 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 16. febrúar,
47. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Er Ísbóset sonur Sáls
frétti, að Abner væri dauður í Hebron,
féllust honum hendur, og allur Ísrael
varð óttasleginn. (II Sam. 4, 1.-2.)
Víkverji dagsins er sennilegasnobbaður, hefur til dæmis lít-
inn áhuga á popptónlist. Því miður
er hann nánast aleinn um þessi við-
horf á vinnustað sínum og verður
því stundum fyrir aðkasti, oft er
líka hlegið að honum á bak, segja
traustir heimildarmenn. Þeir segja
að honum sé líkt við geirfuglinn en
ekki sé þó ætlunin að stoppa hann
upp eftir andlátið. Það sé of dýrt.
x x x
Þetta eru dapurleg örlög. En Vík-verji gefst ekki upp. Hann er
kominn á virðulegan aldur og telur
það skyldu sína að halda uppi merki
gæða og smekkvísi, heiðra gömul
gildi og er viss um að hann á sér
þjáningarsystkin annars staðar í
samfélaginu, fólk sem finnst allt of
mikið af hoppi og híi.
x x x
En þetta er bara persónan út ávið. Auðvitað er Víkverji ekk-
ert öðruvísi en aðrir þjóðhollir Ís-
lendingar og fylgist með Söngva-
keppni Sjónvarpsins og
eftirleiknum sem nú verður í
Moskvu. Skárra væri það nú á þess-
um ömurlegu tímum! Við verðum að
standa saman um eitthvað. Víkverji
hafði reyndar lúmskt gaman af Sil-
víu Nótt á sínum tíma en er sáttur
við að leikurinn sé ekki endurtek-
inn. Líklega er Eurovision ekki
nógu góður vettvangur fyrir svona
beitt grín.
Ekki valdi Víkverji sigurlagið en
er samt mjög ánægður með nið-
urstöðuna. Lagið er alveg þokkalegt
og venst líklega vel. Söngkonan
skilar sínu ágætlega og er auk þess
bráðfalleg, það ætti að tryggja
nokkuð mörg stig.
x x x
En hvað ef við sigrum? Þá verð-um við að halda næstu keppni
hér sem gæti orðið dýrt spaug. Vík-
verji reynir nú að ímynda sé upplit-
ið á ráðamönnum Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins þegar við förum fram á
aukalán vegna útgjalda í tengslum
við Eurovision.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 lund, 4 band, 7
sessum, 8 styrkir, 9
stúlka, 11 mannsnafn, 13
vætlar, 14 stefnan, 15
brúnþörungar, 17
kropp, 20 flana, 22 var-
kár, 23 gisinn, 24 heift,
25 tek ákvörðun um.
Lóðrétt | 1 vafasöm, 2
óhæfa, 3 sterk, 4 digur, 5
ráðvönd, 6 sér eftir, 10
kynið, 12 dæld, 13 elska,
15 talar ekki, 16 smá-
gerði, 18 hagur, 19
dreitillinn, 20 grein, 21
bára.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 ættstórir, 8 rækta, 9 ætlar, 10 ríf, 11 seint, 13
annað, 15 hatts, 18 iðjan, 21 tíð, 22 kriki, 23 ræsið, 24
lingerður.
Lóðrétt: 2 tékki, 3 svart, 4 ógæfa, 5 illan, 6 hrós, 7 bráð,
12 nyt, 14 náð, 15 hökt, 16 teiti, 17 sting, 18 iðrar, 19
jussu, 20 níði.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6 4. Be3
Bg7 5. Dd2 Rg4 6. Bg5 h6 7. Bh4 c6
8. f3 Rf6 9. 0-0-0 b5 10. Bd3 Da5 11.
e5 b4 12. exf6 bxc3 13. De3 cxb2+ 14.
Kxb2 Bf8 15. fxe7 Bg7 16. Bc4 d5 17.
Bb3 Be6 18. Re2 c5 19. Rf4 cxd4
Staðan kom upp á Skákþingi
Reykjavíkur – Skeljungsmótinu sem
lauk fyrir skömmu í húsakynnum
Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni 12.
Lenka Ptácníková (2.249) hafði hvítt
gegn Hrannari Baldurssyni (2.080).
20. Rxe6! Dc3+ svartur hefði einnig
tapað eftir 20. … dxe3+ 21. Rxg7+
Kd7 22. Hxd5+. 21. Dxc3 dxc3+ 22.
Ka3 fxe6 23. Hxd5 Rc6? 24. Ba4 g5
25. Bxc6+ Kf7 26. e8=D+ Haxe8 27.
Hd7+ Kf6 28. Bg3 Hc8 29. Hxg7
Hxc6 30. Hxa7 hvítur er nú manni yf-
ir og innbyrti vinninginn skömmu síð-
ar.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Tvær leiðir.
Norður
♠K4
♥852
♦6532
♣ÁK43
Vestur Austur
♠86 ♠G1097
♥G10974 ♥63
♦KG98 ♦104
♣92 ♣108765
Suður
♠ÁD532
♥ÁKD
♦ÁD7
♣DG
Suður spilar 6G.
Sagnhafi lagði vinnu í úrspilið, en
valdi þó verri kostinn af þeim tveimur
sem til greina koma. Útspil: hjartagosi.
Byrjum á leið sagnhafa. Hann taldi
spilið auðunnið með spaðanum 4-2, en
til að halda tígulsvíningu inni í mynd-
inni tók hann litlu hjónin í laufi og spil-
aði síðan ♠Á og spaða á kónginn.
Hugsunin var sú að nota innkomu
blinds til að svína í tígli ef spaðinn ligg-
ur mjög illa. Þegar báðir fylgdu lit í
♠K henti sagnhafi tíglum í ♣Á-K og
fór í spaðann. Var þá tilbúinn til að
gefa slag í 4-2-legunni, en reiknaði ekki
með þeim óvænta möguleika að vörnin
gæti átt slag á fimmta laufið. Leið
sagnhafa er ekki slæm, en heldur betra
er þó að taka ♣D-G og spila svo
smáum spaða frá báðum höndum. Þá
er slemman örugg ef spaðinn er ekki
5-1.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Kröfurnar frá umhverfinu virð-
ast yfirþyrmandi í dag. Hinkraðu við og
gefðu þér tíma til þess að hugsa málin.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þér finnast öll spjót standa á þér
og langar mest að draga þig í hlé.
Gleymdu því ekki hvað margt jákvætt
er í kringum þig sem má þakka fyrir.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þótt þér finnist allt vera í lagi,
skaltu hafa andvara á þér, því allt getur
gerst. Gættu þess bara að gamanið sé
græskulaust og ekki á annarra kostnað.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Hæfni þín til að heilla aðra er
með mesta móti. Ferðalög eða kostn-
aðarsamir atburðir eru inni í myndinni.
Hugsanlegt er að þú fáir hugmynd um
nýtt lífsviðurværi eða viðfangsefni.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þér finnst þú þurfa að fá sérstaka
viðurkenningu fyrir framlag þitt. Ef
þér finnst einhver hegða sér undarlega
er líklegra en ekki að eitthvað sé á
seyði.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Hlutirnir gerast hraðar í kring-
um þig en þér finnst þægilegt. Reyndu
samt að halda þínu striki hvað sem
tautar og raular.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Einhver sem vill þér allt hið besta
er að verða dálítið þreytandi. Vertu
óhræddur við breytingar því þær eru
nauðsynlegur þáttur af tilverunni.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Freistingarnar eru ekki til
þess að falla fyrir þeim; það er bara af-
sökun þeirra sem veikir eru á svellinu.
Taktu þér tíma því að flas er ekki til
fagnaðar.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú stendur frammi fyrir
kröfum um aukna ábyrgð en ert eitt-
hvað tvístígandi. Stundum felst besta
sóknin í því að breyta áherslunum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Samtal við vin getur gert þig
óöruggan og óvissan í þinni sök. Þú
gætir komist að hneykslis- eða leynd-
armálum í dag.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Skyldurnar hvíla á þér eins
og mara og þér finnst þær íþyngjandi.
En mundu að heimurinn stendur ekki
kyrr.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það er yfir margan þröskuldinn
að fara til að ná því takmarki sem þú
hefur sett þér.
Stjörnuspá
16. febrúar 1920
Fyrsta dómþing Hæstaréttar
Íslands var háð. Þar með
höfðu Íslendingar fengið í
hendur æðsta dómsvald í eig-
in málum.
16. febrúar 1956
Gæsluflugvél stóð togara að
ólöglegum veiðum í land-
helgi í fyrsta sinn. Þetta var
Cape Cleveland frá Hull, en
hann var skammt austur af
Ingólfshöfða. „Merk-
isatburður í sögu Landhelg-
isgæslunnar,“ sagði Morg-
unblaðið.
16. febrúar 1976
Jóhannes Kristjánsson kom
opinberlega fram sem eft-
irherma í fyrsta sinn. Hann
hefur haft þetta sem að-
alstarf síðan 1982.
16. febrúar 1981
Eitt mesta ofviðri í manna
minnum hófst um kvöldið og
stóð fram á næsta dag. Mikið
tjón varð, þök fuku af hús-
um, rúður brotnuðu og bílar
tókust á loft, meðal annars í
Engihjalla í Kópavogi. Stað-
arhólskirkja í Saurbæ fauk á
félagsheimili. Vindhraði við
Þyril í Hvalfirði komst í 222
kílómetra á klukkustund (62
metra á sekúndu), sem var
það mesta sem mælst hafði.
Það met stóð í fimm ár.
16. febrúar 1995
Hornsteinn var lagður að
nýju húsi Hæstaréttar við
Lindargötu, á 75 ára afmæli
réttarins. Húsið var tekið í
notkun í september árið eft-
ir.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
SIGSTEINN Pálsson, fyrrverandi stórbóndi á
Blikastöðum í Mosfellsbæ, er elstur íslenskra
karla, 104 ára í dag. Hann segist ekki ætla að vera
með neitt tilstand en útilokar ekki að heitt verði á
könnunni og eitthvað með því ef einhver skyldi
líta inn. Sigsteinn býr í þjónustuíbúð á Hlaðhömr-
um í Mosfellsbæ og segist vera þar í góðu yfirlæti.
Þegar hann varð 100 ára kom fram í viðtali í
Morgunblaðinu að hann færi nær daglega í leik-
fimi og spilaði bridds í hverri viku, stálminnugur
og ern. „Það eru nú fjögur ár liðin síðan þetta var
en ég held samt þokkalegri heilsu,“ segir Sig-
steinn í dag og fer víst ekki alveg jafnoft í leikfimina og áður. „Ég er
orðinn hálflatur við það,“ segir hann. Í áðurnefndu viðtali fyrir fjór-
um árum sagðist hann ekki geta skýrt galdurinn á bak við háan aldur
öðruvísi en að hann hefði unnið, borðað og sofið. „Þetta hefur ekkert
breyst, bara fjögur ár bæst við,“ segir hann um þessi ummæli sín.
Sigsteinn kom frá Austfjörðum í Mosfellssveitina um miðjan fjórða
áratug síðustu aldar. Tók hann við búskap á Blikastöðum árið 1942
ásamt eiginkonu sinni, Helgu Jónínu Magnúsdóttur. Þau bjuggu á
Blikastöðum allt til ársins 1992 en Helga lést 1999. bjb@mbl.is
Sigsteinn Pálsson á Blikastöðum 104 ára
Elstur íslenskra karla
Nýirborgarar
Reykjavík Una Ingveldur
fæddist 8. desember kl.
3.43. Hún vó 4.150 g og
var 54 cm löng. Foreldrar
hennar eru Vagn Leví
Sigurðsson og Elva Dögg
Garðarsdóttir.
Selfoss Ásdís Helga Agn-
arsdóttir og Janis Leo-
novs eignuðust son 4. jan-
úar kl. 14.13. Hann vó
2.950 g og var 48 cm lang-
ur.
Reykjavík Logi Baldur
fæddist 20. október kl.
10.39. Hann vó 3.570 g og
51 cm langur. Foreldrar
hans eru Agnes Ósk Sig-
mundardóttir og Bjart-
mar Örn Arnarson.