Morgunblaðið - 23.04.2009, Síða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
segðu
smápestum
stríð á hendur!
Fæst í apótekum og
heilsubúðum um land allt.
Vísað til veiðiheimilda
Vikið er að fiskveiðiréttindum í bréfi Evrópumálaráðherra bresku stjórnarinnar
til Indefence-hópsins Styðja niðurfellingu á gjöldum á íslenskan fisk innan ESB
Eftir Baldur Arnarsson
baldur@mbl.is
MINNT er á að Evrópusambandsríki geti fengið
heimildir til veiða í íslenskri lögsögu á nokkrum
stofnum í bréfi Caroline Flint, Evrópumálaráð-
herra í bresku ríkisstjórninni, til Austins Mitch-
ells, formanns Íslandstengslanefndar breska
þingsins, hinn 19. mars síðastliðinn, en eins og
komið hefur fram í Fréttablaðinu var bréfið liður í
undirbúningi Mitchells fyrir fundinn með Inde-
fence-hópnum svokallaða, sem ræddi Icesave-
deiluna við fulltrúa bresku stjórnarinnar.
Í bréfinu segir að bresk stjórnvöld myndu ein-
dregið styðja umsókn Íslands að ESB, enda sé Ís-
land bæði gamall og náinn bandamaður Breta. Því
næst er vikið að nokkrum „útistandandi málefn-
um sem myndu krefjast lausnar í umsóknarferl-
inu“.
Einni málsgrein síðar segir að nokkur málefna-
svið séu fyrir hendi sem líklegt sé að verði sýndur
sérstakur áhugi. Aðgengi að fiskimiðum sé eitt af
þessum sviðum, meðal annars vegna þeirrar stað-
reyndar að samkvæmt núgildandi tvíhliða samn-
ingum hafi Evrópusambandið aðeins heimild til
veiða á litlu magni af karfa í íslenskri lögsögu.
Á móti er bent á að flökkustofna karfa í Irm-
ingerhafi sé einnig að finna á nærliggjandi veiði-
svæðum, þar með talið íslenskri lögsögu. Einnig
sé síld að finna bæði innan lögsögu aðildarríkja
Evrópusambandsins og í íslenskri lögsögu.
Í báðum tilvikum sé um að ræða stofna sem
Evrópusambandsríkin muni hugsanlega öðlast
rétt til veiða á í íslenskri lögsögu. Með líku lagi
geti Íslendingar öðlast rétt til veiða á umræddum
stofnum og er þá væntanlega átt við veiðar í lög-
sögu Evrópusambandsríkja.
Þá er rakið hvernig Íslendingar hafi heimild til
veiða á makríl úr flokkustofnum, sem sama máli
kunni að gegna um.
Flint kveðst hafa fullan skilning á mikilvægi
fiskútflutnings fyrir Íslendinga, um leið og hún
minnir á að sem aðili að EES-svæðinu geti Íslend-
ingar flutt út lítið magn fisks til Evrópusam-
bandsins tollfrjálst. Með inngöngu Íslands í Evr-
ópusambandið gæti sambandið fellt niður öll gjöld
á íslenskan fisk sem fluttur er til ríkja sambands-
ins. Þetta séu gjöld sem Íslendingar hafi um ára-
bil lagt áherslu á að felld verði niður.
Í HNOTSKURN
»Bréf Caroline Flint er dagsett 19. mars2009.
»Bréfið er svar við fyrirspurn AustinsMitchells til breska utanríkisráðuneyt-
isins um tengsl Íslands við ESB.
JÓN M. Guðmundsson, bóndi á Reykjum í
Mosfellssveit, lést í gær á 89. aldursári.
Jón fluttist um fimm ára aldur að Reykj-
um ásamt fjölskyldu sinni og bjó þar alla tíð
síðan. Hann dvaldist á Hjúkrunarheimilinu
Eir síðustu æviárin.
Jón var bóndi á Reykjum alla sína starfs-
ævi og frumkvöðull í alifuglarækt á Íslandi.
Hann var oddviti Mosfellshrepps frá 1962 til
1981, hreppstjóri og lét mjög til sín taka í
málefnum sveitarfélagsins. Hann var kjör-
inn heiðursborgari Mosfellsbæjar árið 2000.
Jón tók virkan þátt í félagsmálum af ýmsu
tagi, m.a. í Ungmennafélaginu Aftureldingu
og Ungmennasambandi Kjalarnesþings, og
keppti í íþróttum fyrir þessi félög á yngri ár-
um. Hann var áhugamaður um hesta-
mennsku og var félagi í Hestamannafélag-
inu Herði, einnig stofnfélagi Lionsklúbbs
Kjalarnesþings og Karlakórsins Stefnis.
Hann sat í stjórnum fjölmargra félaga og
samtaka og gegndi trúnaðarstörfum fyrir
þau, meðal annars fyrir samtök bænda og
Sjálfstæðisflokkinn.
Jón lætur eftir sig eiginkonu, Málfríði
Bjarnadóttur, og sex uppkomin börn.
Jón var fréttaritari Morgunblaðsins í ára-
tugi og var heiðursfélagi í Okkar mönnum,
félagi fréttaritaranna. Á kveðjustund þakk-
ar Morgunblaðið Jóni fyrir vel unnin störf
og sendir aðstandendum hans samúðar-
kveðjur.
Jón M. Guðmundsson á Reykjum
Andlát
„ÞEGAR þetta
hefur verið inn-
leitt í EES-
samninginn mun
þetta hafa bein
áhrif hér,“ segir
Hrafnkell V.
Gíslason, for-
stjóri Póst- og
fjarskiptastofn-
unar, um nýsam-
þykkt lög
Evrópuþingsins um hámarksgjald
fyrir smáskilaboð og niðurhal þeg-
ar hringt er úr farsímum á milli
ríkja Evrópusambandsins.
Vonir eru bundnar við að lögin
muni lækka gjöld fyrir þessa þjón-
ustu um allt að 60 af hundraði.
Byggist þetta á því að hámarks-
gjald fyrir smáskilaboð lækkar úr
um 47 krónum í 19 krónur frá og
með 1. júlí nk., á sama tíma og verð
fyrir hringingu úr farsíma utan-
lands mun stig af stigi lækka úr 78
kr. í 59 krónur fyrir júlí 2011. Með
líku lagi lækkar gjald fyrir móttek-
in símtöl utanlands úr 37 kr. í 19 kr.
Stefnt á frekari lækkanir
Að sögn Hrafnkels hefur ESB þeg-
ar samþykkt lög um lækkun há-
marksgjalds fyrir símtöl á milli
ríkja sambandsins og því um að
ræða framhald á stefnu sem þegar
hafi verið mörkuð.
Íslendingar njóti þess að fyrri
hluti þessarar löggjafar hafi þegar
tekið gildi hjá Evrópusambandinu.
„Helstu breytingarnar eru að hér
er verið að bæta við þaki á gjöld
fyrir gagnaflutninga og smáskila-
boð. Það hefur hamlað markaðnum
að notendur hafa verið hræddir við
að nota farsíma erlendis fyrir
gagnaflutning. Myndun samhæfðs
gagnaflutningsmarkaðar á án efa
eftir að verða mikil lyftistöng fyrir
markaðinn.“
Lækkar gsm-
kostnað á ferð
um Evrópu
Hrafnkell V.
Gíslason
VIÐAR Már Friðfinnsson sem rek-
ur skemmtistaðinn Strawberries í
Lækjargötu hefur stefnt blaðakon-
unni Erla Hlynsdóttur vegna um-
mæla í grein sem hún skrifaði í DV í
febrúar sl. Hún staðfesti þetta við
Morgunblaðið í gærkvöld. Greinin
bar yfirskriftina „Strípikóngar tak-
ast á“ en ummælin eru höfð innan
gæsalappa eftir Davíð Smára Hel-
enarsyni. Viðar stefnir þó hvorki
Davíð Smára né ritstjóra eða útgef-
anda DV heldur einungis blaðakon-
unni.
Nýlega var blaðakona Vikunnar
dæmd í Hæstarétti til að greiða Ás-
geiri Davíðssyni, eiganda Goldfing-
er, bætur í sambærilegu máli,
vegna ummæla sem hún hafði eftir
öðrum. ben@mbl.is
Stefnt fyrir um-
mæli annars
VEL fór á með þeim Þórunni Sveinbjarnardóttur,
þingkonu Samfylkingar, sjálfstæðismanninum
Vilhjálmi Egilssyni, framkvæmdastjóra SA, og
Kolbrúnu Halldórsdóttur umhverfisráðherra, VG,
á aðalfundi SA í gær, þrátt fyrir ólíkar skoðanir í
pólitíkinni. Fjölmenni var á fundinum sem haldinn
var á Nordica hóteli enda stutt í kosningar og að-
kallandi fyrir þjóðina að atvinnulífinu takist að
rétta úr kútnum sem fyrst.
Fólk úr öllum flokkum fjölmennti á aðalfund Samtaka atvinnulífsins í gær
Hægri með vinstri á hægri og vinstri hönd
Morgunblaðið/Árni Sæberg