Morgunblaðið - 23.04.2009, Qupperneq 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2009
KOSNINGARNAR á laugardag
kunna að verða þær mikilvægustu í
sögu íslenska lýðveldisins, að mati
Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar,
formanns Framsóknarflokksins. Þær
ráði ekki einungis því hvernig við
vinnum okkur út úr kreppunni heldur
einnig samfélagsgerðinni í framhald-
inu.
Sigmundur kynnti tillögu um 20%
leiðréttingu lána á morgunverðar-
fundi Framsóknarflokksins á Grand
Hóteli Reykjavík í gær. Tillagan var unnin í samráði við
innlenda og erlenda hagfræðinga. Sigmundur sagði að
hingað til hefðu ekki komið fram neinar aðrar raunhæfar
tillögur um lausn á vandanum.
Hann gagnrýndi m.a. svonefnda greiðsluaðlögunarleið
og sagði hana bæði óraunhæfa og „eitthvað ómanneskju-
legt“ við hana. Hún gengi út á að senda skuldsett fólk fyr-
ir héraðsdómara og skipa því tilsjónarmann til að sýna
fram á að framtíðarmöguleikar fólksins væru sem allra
minnstir. Sigmundur sagði áætlanir gera ráð fyrir að ein-
ungis 100-200 manns mundu nýta sér þessa einu leið sem
er í boði til að fá skuldajöfnun. Hann taldi þetta annað
hvort til marks um að ríkisstjórnin gerði sér enga grein
fyrir raunverulegu ástandi mála eða væri vísvitandi að
blekkja fólk. Hann sagði að nú sæktu um 400 manns um
frystingu lána hjá Íbúðalánasjóði í hverjum mánuði. Áð-
ur sóttu venjulega um 100 manns um frystingu lána á
heilu ári. Haldi áfram sem horfir muni hátt í fimm þús-
und sækja um frystingu lána á einu ári.
Lausn Framsóknarflokksins byggist á því að afskriftir
lána til bankanna, sem þegar hafa farið fram, verði látnar
ganga áfram til skuldara. Sigmundur sagði að það væri
rangt að þessi leið yrði ríkinu eða skattgreiðendum dýr.
Erlendar kröfur, skuldabréf kröfuhafa í bönkunum,
gengju nú kaupum og sölum á eitt eða tvö prósent af upp-
runalegu verði. Verið er að flytja lánin úr gömlu bönk-
unum yfir í þá nýju með a.m.k. 50% afföllum, að sögn Sig-
mundar. Hann sagði að skýrsla um það hefði átt að vera
komin fram, en birting hennar hefði af einhverjum orsök-
um tafist. „Maður veltir því fyrir sér hvort það kunni ekki
að hafa eitthvað með það að gera að skýrslurnar stað-
festa það að ástand íslenskra lántakenda er miklu alvar-
legra en látið hefur verið í veðri vaka og þær aðferðir sem
nefndar hafa verið duga ekki til.“ gudni@mbl.is
Skuldalækkun er brýn
Sigmundur Davíð
Gunnarsson
Formaður Framsóknarflokksins telur greiðsluaðlögunar-
leiðina vera óraunhæfa og ómanneskjulega fyrir heimilin
ÁLFTIN Svandís hefur hreiðrað
um sig á Bakkatjörn á Seltjarnar-
nesi eins og hún hefur gert síðast-
liðin 14 ár. Þótt heimavön sé er
Svandís vör um sig. Álftir koma
yfirleitt til landsins í lok apríl, en
Svandís, maki hennar og afkom-
endur eru hér allt árið um kring.
Morgunblaðið/Ómar
Álft á fornum slóðum
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
SAMFYLKINGIN tapar nokkru
fylgi samkvæmt skoðanakönnun
Capacent Gallup sem birt var í gær.
Breytingar á fylgi annarra flokka
frá könnun sem birt var í fyrradag
eru innan skekkjumarka. Samfylk-
ingin er með lítið eitt meira fylgi en
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
og Sjálfstæðisflokkurinn er 4% þar
að baki. Borgarahreyfingin fær þrjá
þingmenn, samkvæmt könnuninni.
„Það er spurning hvort Samfylk-
ingin er eitthvað að dala á loka-
sprettinum,“ segir Einar Mar Þórð-
arson, stjórnmálafræðingur hjá
félagsvísindadeild Háskóla Íslands.
Hann tekur fram að ekki sé hægt að
fullyrða það, sveiflur hafi verið á
milli kannana. „Mér finnst merkileg-
ast að sjá hvað fylgið hefur verið
stöðugt undanfarna daga og vikur,“
segir Einar. Hann tekur þó fram að
rannsóknir sýni að stór hópur kjós-
enda ákveði það í síðustu vikunni eða
jafnvel á kjördag hvernig hann verji
atkvæði sínu og því ekki að furða
þótt nokkrar sveiflur séu í fylgi.
Talsverð hreyfing virðist vera á
fólki milli flokkanna. Í greiningu
Capacent Gallup í síðustu viku kom
fram að þeir kjósendur Sjálfstæð-
isflokksins frá 2007 sem ekki kjósa
flokkinn nú hafi flutt sig til Samfylk-
ingarinnar og VG. Einar Mar bendir
á að nú virðist meirihluti þeirra fara
til Samfylkingarinnar en á móti sé
talsverð hreyfing frá Samfylking-
unni til VG.
!
"
!
"
!
"
!
"
!
" !
#
#
#
#
#
Samfylkingin og VG
berjast um forystuna
Fyrri kjósendur Sjálfstæðisflokks færa sig helst til Sam-
fylkingar og fyrri kjósendur Samfylkingar fara flestir til VG
!" # $ %
&'
#!" ( )*+,#$%
,+-#$%
+-#$%
-+)#$%
& '(& ) +.#
*+*#
)+#
/+ -+1#
)
/
*" +""
& '( & /+#$%
)+.#$%
.+/#$%
-"'.2!2+/01123
&4& +"!
"
einfaldlega betri kostur
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19
s: 522 4500 www.ILVA.is
Opið í dag sumardaginn fyrsta 12-18
Notalegt
sumarkvöld
Lanterne. Kertalugt.
H 20 cm. 1.290,- H 30 cm. 1.990,-
H 40 cm. 2.990,- H 50 cm. 3.990,-
Stuðningur við ríkisstjórn Jó-
hönnu Sigurðardóttur hefur
minnkað mjög að undanförnu. Nú
segjast 53,7% styðja hana en
46,3% segjast ekki styðja hana.
Nú er svo komið að stjórnin nýtur
minni stuðnings en nemur sam-
anlögðu fylgi stjórnarflokkanna
tveggja, Samfylkingarinnar og VG.
Einar Mar Þórðarson stjórnmála-
fræðingur telur líklegt að kjós-
endur Framsóknarflokksins hafi
látið af stuðningi við stjórnina í
kosningabaráttunni auk þess sem
átakapólar skerpist milli allra
flokka, líka stjórnarflokkanna.
Ríkisstjórnin undir fylgi stjórnarflokkanna
ÞÓRA Kristín
Ásgeirsdóttir,
blaðamaður á
Fréttavef Morg-
unblaðsins,
mbl.is, var kjörin
formaður Blaða-
mannafélags Ís-
lands á fundi í
gærkvöldi. Alls
greiddu 100
manns atkvæði,
Þóra fékk 65% þeirra en Kristinn
Hrafnsson 34% og einn seðill var
auður. Þóra Kristín hefur verið
varaformaður BÍ undanfarin þrjú
ár.
Fráfarandi formaður BÍ, Arna
Schram, gaf ekki kost á sér til end-
urkjörs, en hún hefur setið í stjórn
félagsins í 10 ár.
Aðrir stjórnarmenn voru endur-
kjörnir; Elva Björk Sverrisdóttir,
Sigurður Már Jónsson og Svavar
Halldórsson. Þá kemur Kristinn
Hrafnsson nýr inn í stjórnina.
Þóra Kristín
Ásgeirsdóttir
Þóra Kristín formaður BÍ