Morgunblaðið - 23.04.2009, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 23.04.2009, Qupperneq 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2009 Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is Á LAUGARDAGINN ganga Íslend- ingar til sögulegra þingkosninga sem sumir hafa kallað þær mik- ilvægustu frá upphafi. Rúm 4% kjós- enda eru nýkomin með kosninga- rétt, ungmenni sem fá nú að kjósa í fyrsta skipti og það við heldur óvenjulegar kringumstæður. Blaðamaður mælti sér mót við nokkra nemendur í Mennta- skólanum í Sund til að hlera hvernig kosningarnar leggjast í þá. „Mér finnst ég svolítið vera að átta mig á því að þetta sé stærra en ég hélt, að geta gert þetta. Maður er bara svo- lítið stoltur að geta haft áhrif,“ segir Birta Sigmundsdóttir. „Ég held að það sé mikilvægt að kynna sér þetta vel, þó það séu kannski ekki margir á okkar aldri sem pæla í því,“ segir samnemandi hennar, Elva Dögg Baldvinsdóttir. Menntskælingarnir eru allir harðir á því að nota nýfenginn kosningarétt sinn á laugardag, en þau eru þó ekki viss um að það sama eigi við um alla. Kjördagurinn lítið auglýstur „Það er í raun ekki mikið rætt um þetta,“ segir Anton Birkir Sigfús- son. „Flokkarnir hafa verið að aug- lýsa sín baráttumál, en það er ekki búið að auglýsa neitt mikið kosn- ingadagsetninguna. Það er ekkert verið að hvetja mann til þess að kjósa.“ Þau eru sammála um að það skýrist eflaust að hluta til af því hversu brátt kosningarnar ber að og kosningabaráttan sé óvenju stutt. Hinsvegar megi gera meira til að ná til yngstu kjósendanna. „Það veit örugglega ekki helmingurinn af krökkum á okkar aldri hvenær verð- ur kosið. Það er eins og sumir haldi að þetta snerti okkur ekki af því við erum bara í menntaskóla,“ segir Elva og Birta bætir við: „Í bekknum mínum spurði kennarinn hverjir ætluðu að kjósa, og bara fjórir réttu upp hönd. Það er eins og margir fatti ekki að þetta er á laugardaginn.“ Í tísku að vera til vinstri? Eftir sem áður segja þau áhuga á stjórnmálum hafa aukist meðal sinna jafnaldra og fleirum finnist nú mikilvægt að fylgjast með um- ræðunni. Það geti hinsvegar verið flókið og óaðgengilegt, enda hafi þau heyrt að margir í skólanum geti ekki ákveðið sig og ætli því að skila auðu. Þau segjast ekki finna fyrir því að ungt fólk eigi sér málsvara í sér- stökum frambjóðendum eða flokk- um. Samfylkingin og VG hafi helst gert tilraun til að ná til ungra kjós- enda í auglýsingum, en Sjálfstæð- isflokkurinn minnst að þeirra mati. En eiga þau einhverja skýringu á því hversu áberandi stuðningur við VG er meðal ungs fólks í skoð- anakönnunum? „Ég held að það þyki svolítið hipp og kúl, að það sé í tísku að vera vinstrisinnaður,“ ályktar Birta. Mótmælin eru líka sennileg skýring að mati Elvu. „Það var mjög mikið gert úr þeim og ég held það hafi verið mikið af ungu fólki sem hafði áhuga og það situr svolítið í þeim. En mér finnst mjög margt vera búið að breytast síðan og stefnumál allra flokkanna í graut.“ Almennt segjast þau vera hlynnt persónukjöri því flokkamenningin höfði takmarkað til þeirra. „Mér finnst enginn flokkur í raun vera þess verðugur að vera kosinn,“ segir Elva og Birta samsinnir: „Mér finnst ég bara ekki treysta stjórn- málamönnum, ég veit ekki hvort ég á að trúa því sem kemur út úr þeim.“ Námið og krónan mikilvægust Aðspurð um kosningaloforð sem gætu ráðið úrslitum um þeirra at- kvæði eru hagsmunir námsmanna þeim efstir í huga. „Ég er eiginlega skíthrædd, því ég hef alltaf ætlað að fara út í nám en nú er ég ekki viss um hvort ég kemst eða ekki,“ segir Birta. Elva bendir á að gjaldmið- ilsmálin séu þess vegna í raun þau mikilvægustu, „því ef það eru enda- lausar sveiflur á gjaldmiðlinum þá er bara ekkert í lagi í landinu. Það þarf að koma þessu í lag, því auðvitað finnum við líka fyrir því hvað krónan er veik þó við séum námsmenn.“ „Ég hef aðallega verið að pæla í hvaða flokkur geti komið okkur fyrst út úr þessu, þannig að við getum komist á gott ról aftur, segir Anton. „Ég vona að það versta verði yf- irstaðið þegar við klárum háskóla.“ Ástandið hefur mikil áhrif Það liggur því beint við að spyrja hvort yngstu kjósendurnir séu reiðir yfir að þurfa að súpa seyðið af gjörð- um eldri kynslóða? „Það er kannski aðallega reiði yfir að foreldrar séu orðnir atvinnulausir,“ segir Elva. „En það hefur sýnt sig að hvort sem eitthvað er að gerast heima fyrir eða ekki hefur þetta verið erfitt skólaár fyrir mjög marga og komið niður á náminu. Þessi spenna í landinu hefur ótrúlega mikil áhrif á mann.“ Það er því skiljanlegt að þeirra mati þótt margir ungir kjósendur kjósi sama flokk og foreldrarnir. „Við erum ennþá í kjarnafjölskyld- unni, þannig að þeirra hagur er auð- vitað okkar hagur líka,“ segir Elva og Birta tekur undir. „Auðvitað vilj- um við að það sé einblínt á náms- menn, en akkúrat núna þurfum við að hugsa um að koma okkur út úr þessu sem fyrst sem þjóð.“ Ánægð með að geta haft áhrif Morgunblaðið/Heiddi Kjósendur Hafþór Óli Þorsteinsson, Anton Birkir Sigfússon, Birta Sigmundsdóttir og Elva Dögg Baldvinsdóttir styðja ólíka flokka, en ætla öll að kjósa. „Eitt atkvæði skiptir kannski ekki öllu, en ef allir hugsuðu þannig...“  Þúsundir ungmenna kjósa nú til Alþingis í fyrsta sinn  Segja marga ekki meðvitaða um kjördaginn  Finnst erfitt að treysta stjórnmálamönnum  Vilja stöðugan gjaldmiðil og greiða leið í nám Hvenær er kosið til Alþingis? Kosningar eru á laugardaginn næstkomandi, 25. apríl. Hvernig greiði ég atkvæði? 1) Þú byrjar á að finna þína kjör- deild eftir lögheimili. Mundu að taka með þér persónuskilríki með mynd (t.d. ökuskírteini). 2) Þú færð afhentan kjörseðil og ferð með hann inn í klefa þar sem þú setur kross í reit framan við bók- staf þess lista sem þú vilt kjósa. 3) Þegar þú ert búinn að merkja við brýturðu seðilinn saman þannig að letrið snúi inn. 4) Svo ferðu út úr kjörklefanum og setur seðilinn í kjörkassann án þess að kjörstjórnin sjái hvað þú kaust. Þú mátt:  Breyta röð frambjóðenda á list- anum sem þú kýst, með því að setja 1 fyrir framan nafn þess sem þú vilt hafa efstan, 2 fyrir framan þann sem þú vilt hafa annan í röðinni o.s.frv.  Hafna frambjóðanda sem þú ert ósátt(ur) við á listanum sem þú kýst með því að strika skýrt en snyrti- lega yfir nafnið. Þú mátt ekki:  Strika alla út af listanum sem þú kýst, þú verður að skilja a.m.k. eitt nafn eftir.  Breyta neinu á listum sem þú kýst ekki, hvorki strika út né breyta röð- inni, þá ógildist atkvæðið.  Skrifa, krota, teikna eða gera misvísandi merki á seðilinn. Skýr og greinilegur kross á réttan stað auk snyrtilegra útstrikana er öruggasta leiðin til að forðast ógild- ingu atkvæðisins. Og að lokum: Þótt þú krossir óvart í rangan reit eða gerir önnur mistök geturðu alltaf leiðrétt það. Þá læturðu kjör- stjórnina fá ónýta kjörseðilinn (án þess að setja hann í kassann) og færð nýjan í staðinn. Hvað má gera og hvað ekki í kjörklefanum? Morgunblaðið/Sverrir FRÁBÆRAR SUMARGJAFIR fyrir lesglaða krakka Gleðilegt sumar 9.398 nýir kjósendur síðan 2007, fæddir 13. maí 1989 og síðar. 4,1% hlutfall þeirra sem kjósa nú í fyrsta skipti til þings.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.