Morgunblaðið - 23.04.2009, Page 22
22 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2009
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
NÁNAST öruggt er talið að Jacob
Zuma, leiðtogi Afríska þjóðarráðs-
ins (ANC), verði kjörinn næsti for-
seti Suður-Afríku á þingi landsins
eftir kosningar sem fram fóru í
gær.
Enginn vafi lék á því fyrir þing-
kosningarnar að Afríska þjóðarráð-
ið fengi öruggan þingmeirihluta
þrátt fyrir þrálátar ásakanir um að
leiðtogi flokksins hefði gerst sekur
um spillingu. Flokkurinn stefndi að
því að halda tveimur þriðju þing-
sætanna, sem myndi gera honum
kleift að breyta stjórnarskránni án
stuðnings annarra.
Stærsta spurningin var hvort Ráð
fólksins (COPE), flokkur klofnings-
hóps úr ANC, eða Lýðræðisbanda-
lagið yrði næststærsti flokkurinn á
þinginu. Báðir flokkarnir hafa léð
máls á því að mynda bandalag eftir
kosningarnar og líklegt er að sá
flokkur sem fær meira fylgi í kosn-
ingunum fari fyrir bandalaginu.
Margir af stuðningsmönnum
Thabos Mbekis, fyrrverandi forseta
Suður-Afríku, klufu sig út úr ANC
og stofnuðu COPE eftir að Mbeki
neyddist til að láta af forsetaemb-
ættinu á síðasta ári, níu mánuðum
eftir að Zuma sigraði hann í leið-
togakjöri ANC.
Zuma er 67 ára og sat í fangelsi á
Robben-eyju í tíu ár ásamt Nelson
Mandela, fyrrverandi forseta Suð-
ur-Afríku, fyrir baráttu gegn stjórn
hvíta minnihlutans. Þótt Zuma sé
umdeildur nýtur hann mikilla vin-
sælda meðal fátækra landsmanna
sem eru orðnir þreyttir á biðinni
eftir bættum lífskjörum fimmtán
árum eftir að aðskilnaðarstefnan
var afnumin. Í kosningabaráttunni
lofaði hann að bæta lífskjör fátækra
blökkumanna, skera upp herör
gegn glæpum og spillingu og bæta
opinberu þjónustuna.
Sakaður um mútuþægni
Zuma varð varaforseti Suður-Afr-
íku árið 1999 en honum var vikið úr
embættinu í júní 2005. Fjórum
mánuðum síðar var hann ákærður
fyrir spillingu.
Saksóknarar féllu frá spillingar-
ákærunni í september 2006. Zuma
var þó ákærður að nýju eftir að
hann sigraði Mbeki í leiðtogakjöri
ANC en saksóknararnir tilkynntu
fyrir hálfum mánuði að hætt hefði
verið við málshöfðunina. Þeir sögðu
að þótt þeir teldu miklar líkur á því
að Zuma hefði gerst sekur um
mútuþægni hefðu þeir ákveðið að
falla frá ákærunni vegna pólitískra
afskipta af rannsókninni.
Jacob Zuma var sýknaður í apríl
2006 af ákæru um að hafa nauðgað
konu sem greinst hafði með veiruna
sem veldur alnæmi. Zuma fullyrti
að hann hefði haft mök við konuna
með vilja hennar en hann þykir hafa
opinberað vanþekkingu sína á út-
breiðslu alnæmis þegar hann bar
fyrir réttinum að hann hefði farið í
sturtu til að smitast ekki af sjúk-
dómnum.
Zuma á leið í
forsetastólinn
ANC heldur miklum þingmeirihluta
Í HNOTSKURN
» Um 34% Suður-Afríku-manna lifa á minna en sem
svarar 260 krónum á dag.
» Dag hvern deyja nær1.000 manns af völdum
sjúkdóma sem tengjast al-
næmi. Á hverjum degi eru
framin yfir 50 morð og 150
konum er nauðgað.
Þingkosningar fóru fram í Suður-Afríku í gær í fjórða skipti frá afnámi
aðskilnaðarstefnunnar fyrir fimmtán árum. Búist er við að Afríska
þjóðarráðið, ANC, fái öruggan meirihluta á þinginu. Flokkurinn fékk tvo
þriðju þingsætanna í síðustu kosningum, nægan meirihluta til að geta
breytt stjórnarskránni.
Heimildir: Vefsíður flokkanna, CIA World Factbook, Statistics South Africa, Unicef
KOSNINGAR Í SUÐUR-AFRÍKU
Alls bjóða 28 flokkar fram í þingkosningunumHELSTU
FLOKKAR
Aðrir
flokkar
33
Afríska
þjóðar-
ráðið
297
ÞJÓÐÞINGIÐ
Frá sept. 2007, eftir breyt. á þingflokkum
Lýðræðis-
bandalagið
47
Inkatha-
frelsis-
flokkurinn
23
400 alls
Í HNOTSKURN
Þjóðernishópar:
Afrískir 79%
Hvítir 9%
Blandaðir 9%
Indv./asískir 3%
* áætlað 2007 ** áætlað 2008
N
A
M
IB
ÍA BOT-
SWANA
Pretoría
SUÐUR-
AFRÍKA
AFRÍSKA
ÞJÓÐAR-
RÁÐIÐ
LEIÐTOGI
Jacob Zuma
Var varaforseti
í sex ár til ársins
2005
Spillingarákærur á hendur
honum voru felldar niður
nýlega eftir margra ára deilur
ANC hefur verið við völd
síðan Nelson Mandela
varð forseti eftir afnám
aðskilnaðarstefnunnar 1994
RÁÐ
FÓLKSINS
LEIÐTOGI
Mvume
Dandala biskup
Nýtur virðingar
fyrir að beita sér
LÝÐRÆÐIS-
BANDALAGIÐ
LEIÐTOGI
Helen Zille
Fór fyrir banda-
lagi er komst til
Atvinnuleysi
21,7%**
Meðal-
lífslíkur:
50 ár
Íbúafjöldi:
49,05 millj.
Hlutfall læsra:
88%*
VÞF á hvern
íbúa:
10,000$**
fyrir friði og félagslegu réttlæti
Klofningshópur úr ANC
stofnaði COPE
Flokkurinn vonast til þess
að fá atkvæði kjósenda
sem eruþreyttir á deilunum
um Zuma
Í stjórnarandstöðu
Er frjálslyndur og aðhyllist
markaðshyggju
Nýtur lítils stuðnings
meðal blökkumanna
valda í Cape Town,
einu borginni sem
ANC stjórnar ekki
Reuters
Kosið Kjósendur í biðröðum við kjörstað í bænum Nkandla í Suður-Afríku.
Í KÍNA er verið að taka upp þá ný-
breytni, að allir íbúar landsins skuli
hafa persónuskilríki en það þýðir
hins vegar, að 60 milljónir manna
munu neyðast til að breyta nafni
sínu.
Í persónuskilríkjunum verður
mynd og minnisflaga til að unnt sé að
skanna þau og lesa í tölvum. Í kín-
verska ritmálinu eru 55.000 tákn en
tölvukerfið er hins vegar aðeins
hannað til að lesa úr 32.252. Vegna
þess verður allur þessi fjöldi að
breyta nafni sínu og laga það að því,
sem tölvukerfið ræður við. Það er
svo annað vandamál í Kína, sem
batnar líklega ekki við þetta, að
nafnaflóran þykir einstaklega fá-
breytt. svs@mbl.is
60 millj.
skipti
um nafn
Tölvan er Kínverjum
harður húsbóndi
BORÐUM ber og
ístran tekur að
hjaðna. Sú er að
minnsta kosti nið-
urstaða banda-
rískra vísinda-
manna eftir
ítarlegar rann-
sóknir.
Fitan, sem
safnast fyrir á
maga er verri en
fita annars staðar á skrokknum og
ýtir meðal annars undir hjartasjúk-
dóma og sykursýki 2. Rannsóknir á
rottum sýndu hins vegar svart á
hvítu, að ríkulegur berjakostur vann
vel á þessari fitu jafnvel þótt þær
væru á fitandi fæðu.
Öll ber eru holl en bláberin eru
meinholl. Í þeim eru efni, sem hafa
áhrif á það hvernig líkaminn vinnur
úr sykrum, og þau draga úr hættu á
fyrrnefndum sjúkdómum og lækka
einnig kólesterólmagn í blóðinu.
svs@mbl.is
Bláber vinna
á ístrunni
Hollusta Komum,
tínum berin blá.
DAVID Kellermann, starfandi fjár-
málastjóri bandaríska íbúðalána-
sjóðsins Freddie Mac, fannst látinn
á heimili sínu um 20 km vestur af
höfuðborginni Washington í Banda-
ríkjunum í gær og telur lögregla
ummerki á vettvangi benda til að
hann hafi fallið fyrir eigin hendi.
Kellermann hafði starfað fyrir
sjóðinn í 16 ár og gegnt stöðu fjár-
málastjóra frá því í september.
Óhætt er að segja að hann hafi
tekið við erfiðu búi, sjóðurinn
skýrði í mars frá ríflega 6.533 millj-
arða króna tapi á árinu 2008, ásamt
því að gefa til kynna að hann þyrfti
4.042 milljarða kr. til viðbótar frá
Bandaríkjastjórn til bjargar fyrir-
tækinu, en hann hafði þá fengið um
1.800 milljarða króna stuðning.
Talinn hafa
svipt sig lífi
ALISTAIR Darling, fjármálaráð-
herra Bretlands, kynnti í gær þingi
og þjóð fjárlög stjórnarinnar og voru
þau að þessu sinni enginn fagnaðar-
boðskapur. Gert er ráð fyrir, að
skuldir ríkisins fari á þessu ári og því
næsta í 175 milljarða punda og tvö-
faldist næstum því frá síðasta fjár-
lagaári. Því er þó spáð, að hagvöxtur
verði aftur í Bretlandi seint á þessu
ári.
Fram kom hjá Darling, að lands-
framleiðslan myndi dragast saman
um 3,5% á þessu ári eða um miklu
meira en áður hafði verið búist við. Á
næsta ári er hins vegar gert ráð fyrir
1,25% hagvexti.
Hátekjuskattur verður hækkaður
í 50% og breska stjórnin ætlar að
fara að dæmi þeirrar þýsku og
frönsku og örva bílakaup með því að
styrkja kaupendur nýrra bíla með
2.000 pundum. Hefur það fallið í góð-
an jarðveg meðal starfsmanna í bíla-
iðnaði.
Kosningar verða í Bretlandi í síð-
asta lagi um mitt næsta ár og bendir
flest til, að Íhaldsflokkurinn muni
taka við af Verkamannaflokknum að
þeim loknum. svs@mbl.is
Skuldabyrðin tvö-
faldast á einu ári
Bresku fjárlögin lögð fram á þingi
AP
Fjárlög Darling með rauðu töskuna fyrir framan Downingstræti 11.