Morgunblaðið - 23.04.2009, Síða 23
Fréttir 23ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2009
MIKIÐ var um að vera þegar starfsmönnum kjörstaða í
borginni Allahabad á Indlandi voru úthlutuð nauðsyn-
leg einkenni en í dag hefst annar áfangi af fimm í þing-
kosningunum í landinu. Í honum greiða um 200 millj-
ónir manna atkvæði en kjósendur á kjörskrá eru alls
714 milljónir. Standa kosningarnar í mánuð. Ekki er
búist við, að neinn einn flokkur fari nálægt því að fá
meirihluta.
AP
714 milljónir að kjörborðinu
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
TVEIR háttsettir menn í skæruliða-
hreyfingu Tamíl-tígra, LTTE, á Sri
Lanka gáfust í gær upp fyrir stjórn-
arhermönnum, sem sækja nú að síð-
asta yfirráðasvæði tígranna. Óttast
er, að þar séu enn innikróaðir tugir
þúsunda óbreyttra borgara.
Velayudam Dayanidi, talsmaður
Tamíl-tígra síðustu ár, gaf sig á vald
stjórnarhermönnum ásamt fyrrver-
andi aðstoðarmanni yfirmanns
stjórnmálaarms tígranna, S.P.
Thamiselvean, en hann er látinn.
Fréttaritarar segja, að verði upp-
gjöf þessara tveggja manna staðfest,
sé hún mikið áfall fyrir tígrana en
leiðtogar þeirra höfðu skipað liðs-
mönnum sínum að taka inn eitur,
blásýru, fremur en að gefast upp.
Milli steins og sleggju
Talsmaður stjórnarhersins á Sri
Lanka sagði í gær, að rúmlega
80.000 óbreyttum borgurum hefði
tekist að flýja frá yfirráðasvæði tígr-
anna en þeir hafa verið sakaðir um
að nota fólkið sem eins konar skjöld í
átökunum við stjórnarhermenn.
„Ástandið er vægast sagt skelfi-
legt,“ sagði Pierre Krähenbühl, einn
af yfirmönnum alþjóðaráðs Rauða
krossins. „Átökin eiga sér stað á
mjög litlu svæði, sem er yfirfullt af
fólki, sem þangað hafði flúið.“
Bandaríkjastjórn, aðrar ríkis-
stjórnir á Vesturlöndum og Sam-
einuðu þjóðirnar hafa skorað á
stjórnarherinn og skæruliða að hlífa
óbreyttum borgurum en talsmaður
SÞ í Colombo, höfuðborg Sri Lanka,
telur víst, að nokkrar þúsundir
þeirra hafi þegar fallið.
Hefur þetta ástand valdið miklum
hugaræsingi meðal Tamíla, sem sest
hafa að á Vesturlöndum, og hafa þeir
meðal annars efnt til mótmæla í
Ottawa, London, París, Ósló og víð-
ar.
Skjót endalok
Tamíl-tígrar voru fyrir skömmu
taldir vera einhver harðsnúnasta
skæruliðahreyfing í heimi. Réðu þeir
þá um þriðjungi lands á Sri Lanka og
stýrðu því í raun sem eigin ríki.
Hefur það því komið ýmsum á óvart
hve mótstaða þeirra reyndist lítil.
AP
Flóttafólk HlutiTamílanna, sem
tókst að flýja átakasvæðið.
Háttsettir menn í liði
Tígranna gefast upp
Meira en 80.000 óbreyttra borgara hefur tekist að flýja átaka-
svæðið en enn er óttast um afdrif tugþúsunda manna
Fimmtudaginn 23. apríl kl. 14:00 til 18:00
verða Skógarmenn með kaffisölu til styrktar
starfinu í Vatnaskógi.
KAFFISALA SKÓGARMANNA
Sumardaginn fyrsta
Boðið verður upp á glæsilegt kaffihlaðborð,
myndir frá starfinu verða sýndar og leiktæki fyrir börnin.
Skráning sumarbúðirnar í fullum gangi - þökkum frábærar viðtökur.
Kaffisalan verður í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg 28.
Skógarmenn fjölmennum og styrkjum starfið í Vatnaskógi.
www.kfum.is
hö
nn
un
//
Bj
ar
ni
Kj
ar
ta
ns
so
n /
FIT
N Ý T T F R Á L I N D B E R G
L I N D B E R G 8 0 8 / 7 4 B a s E 8 – K ú p T G L E R
sjóNmæLINGaR
Tímapantanir:
smáralind 528 8500
Keflavík 421 3811
CONDOLEEZZA Rice, þáverandi
þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkj-
anna, og John D. Ashcroft, þáver-
andi dómsmálaráðherra, heimiluðu
um sumarið 2002, ásamt að minnsta
kosti tíu öðrum háttsettum fulltrú-
um ríkisstjórnar George W. Bush,
bandarísku leyniþjónustunni, CIA,
að beita óvenjulegum aðferðum við
yfirheyrslur í leynifangelsum.
Heimildin náði til vatnspyntinga,
aðferðar sem Eric H. Holder, núver-
andi dómsmálaráðherra, hefur lýst
yfir að sé ólögleg pyntingaraðferð.
Þetta kemur fram í gögnum sem
Holder afhenti nefnd sem fer með
leyniþjónustumál í öldungadeild
Bandaríkjaþings, en þar segir að
Rice hafi tveimur mánuðum fyrir
samþykkt aðferðanna hinn 17. júlí
2002 hlýtt, ásamt fjórum öðrum
fulltrúum stjórnarinnar, á tillögur
um pyntingaraðferðir, þ.m.t. vatns-
pyntingar, þar sem líkt er eftir
drukknun.
Í júlí 2003 sátu
Rice, Dick Che-
ney, þáverandi
varaforseti, og
fleiri háttsettir
aðilar í stjórninni
svo fund þar sem
niðurstaðan var
sú að aðferðir
CIA væru í sam-
ræmi við lög.
Árið 2004 kom hins vegar fram í
áliti CIA að ekki væri ljóst að að-
ferðirnar væru löglegar. Í júlí sama
ár sendi dómsmálaráðuneytið, að
frumkvæði Ashcrofts, bréf til CIA
þar sem sagði að aðferðirnar, að
vatnspyntingum frátöldum, væru
löglegar. Ráðuneytið sendi síðan frá
sér tvö álit þar sem niðurstaðan var
sú að vatnspyntingar gætu verið lög-
legar ef þær væru framkvæmdar í
samræmi við öryggisreglur CIA.
Árið eftir lýsti Rice því svo yfir að
stjórnin heimilaði ekki pyntingar.
Aðferðirnar voru
heimilaðar 2003
Stjórn Bush sagði ósatt um pyntingar
Condoleeza Rice