Morgunblaðið - 23.04.2009, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 23.04.2009, Blaðsíða 37
Minningar 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2009 Hreinn Jónsson, mágur minn, var fæddur að Sæbóli í Aðalvík 3. október 1930. Þann stað elskaði hann mest, þar átti hann sumarbústaðinn Borg og undi sér með allri sinni stóru fjölskyldu. Hann svaf þar í efri koju í litlu kamesi. Út um gluggann mátti sjá í átt að kirkj- unni umluktri gulum sóleyjum og loðnu grasi. Í þessari kirkju, að Stað í Aðalvík, þjónaði afi hans, séra Magnús Jónsson, frá 1905 til 1934. Sól að hafi hnígur hamra gyllir tind, með söngvum svanur flýgur, sunnan móti þýðum vind. Króna hægt á blómum bærist, brosa þau svo unaðsrík. Kvölds þá yfir friður færist, fegurst er í Aðalvík. (Jón Pétursson.) Á unglingsárum flytur Hreinn til Ísafjarðar og sest á skólabekk í gagnfræðaskólanum. Það er svo nokkrum árum síðar sem hann er allt í einu kominn í mína fjölskyldu. Ég var 12 eða 13 ára þegar þessi stóri myndarlegi ungi maður kom inn í líf okkar í Túngötu 5. Hann varð kærasti stóru systur og strax eins og besti bróðir okkar systkina og góður sonur tengdaforeldranna svo aldr- ei bar þar skugga á. Hreinn var stríðinn og hló hátt þegar stelpan sem var að verða unglingur roðn- aði ef hann yrti á hana. Nokkrum árum síðar fylgjast þau að úr há- degismat heilan vetur, unglings- stelpan og ungi maðurinn sem þá var orðinn faðir. Stelpan fór í gagnfræðaskólann að taka lands- próf en hann í Raf að læra raf- virkjun. Á leiðinni var oft slegið á létta strengi og stríðnin ekki langt undan. Oft var það þannig að stelpan hét því að fylgja honum aldrei aftur úr mat. Hreinn var með ákveðnar skoð- anir á mönnum og málefnum og lét þær óspart í ljós. Hann kom til dyranna eins og hann var klædd- ur. Hreinn hafði yndi af söng og var heiðursfélagi í Karlakórnum Erni. Snemma byggði hann hús yf- ir fjölskyldu sína og foreldra. Hann var stoltur af börnum sínum og hugsunarsamur við sitt fólk, án allrar tilgerðar. Hreinn gekkst undir erfiðar hjarta- og höfuðað- gerðir sem höfðu mikil áhrif á allt hans líf. Það var systir mín sem studdi hann í blíðu og stríðu og var honum allt. Síðustu árin hafði hann mesta ánægju af barnabörn- unum og litlu langafabörnunum, þau veittu honum margar ánægju- stundir. Mín fjölskylda kallaði hann Ladda. Það nafn gaf sonur okkar honum ungur að árum. Enginn kallaði hann Ladda nema við. Við kveðjum Ladda með sorg í hjarta, hann var góður maður með við- kvæma lund, það fyllir enginn hans skarð í okkar huga. Við Bragi og börnin okkar send- um systur minni og allri fjölskyld- unni innilegar samúðarkveðjur og biðjum þeim guðs blessunar á erf- iðum tíma. Bára Einarsdóttir. Tíminn skilar okkur öllum til án- ingarstaða og að síðustu til leið- arloka. Enginn ræður hvenær hann hverfur úr þessum heimi yfir á lendur óendanleikans. Vinur minn og nágranni í hálfa öld, Hreinn Þ. Jónsson, hefir nú kvatt og er horfinn okkur. Það þurfti Hreinn Þórir Jónsson ✝ Hreinn Þórir Jóns-son fæddist á Stað í Aðalvík í N- Ísafjarðarsýslu 3. október 1930. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ísafirði 10. apríl síðastliðinn. Útför Hreins fór fram frá Ísafjarð- arkirkju 18. apríl sl. ekki að koma mér á óvart, þegar mér barst andlátsfrétt hans í byrjun dymb- ildaga, þar sem ég vissi, að hann var þrotinn að kröftum eftir langvarandi veikindi. Eigi að síð- ur varð mér bilt við. Ég skynjaði að einn af mínum góðu vin- um hafði kvatt og lokað hurð. Hreinn var upp- runninn í Aðalvík og þar stóð æskuheimili hans. Fljót- lega eftir fermingu fluttist hann með foreldrum sínum til Ísafjarð- ar. Settust þau að á Seljalandi og þar stóð heimili hans, þar til hann flutti á Engjaveginn árið 1957. Í Skutulsfirði eignaðist hann góða félaga, sem hann hélt tryggð við alla tíð. Leið hans lá í gagnfræða- skólann og iðnskólann. Hann lauk námi í rafvirkjun og starfaði við iðn sína í mörg ár, en síðan gerðist hann vélgæzlumaður hjá Íshús- félagi Ísfirðinga. Þar starfaði hann í þrjá átatugi, meðan heilsa og kraftar leyfðu. Hreinn var félagslyndur maður, söngvinn, ráðhollur og traustur. Honum voru því falin margvísleg trúnaðarstörf innan þeirra félaga, sem hann starfaði með. Hann gekk fljótlega í Ármann í Skutulsfirði og keppti á skíðum fyrir það félag í mörg ár. Einnig var hann far- arstjóri fyrir unglinga, sem fóru til keppni í öðrum landshlutum. Um árabil söng Hreinn með kórum á Ísafirði og var formaður Karlakórs Ísafjaðar í nokkur ár. Hann var trúr uppruna sínum og hélt alla tíð mikill tryggð við æskustöðvar sín- ar. Fyrir mörgum árum byggði hann sér sumarhús í Aðalvík, þar sem æskuheimili hans stóð. Þar dvaldi hann löngum með fjölskyldu sinni á hverju sumri. Hann var í forystu fyrir Sléttuhreppinga um langt árabil. Það munaði um Hrein Jónsson, hvar sem hann var að verki. Í daglegu fari var Hreinn glað- vær og félagslyndur, oft gáska- fullur og átti til að vera glanna- legur í tali. Á seinni árum varð þessi félagslyndi maður þó meira einfari og dróst inn í skel vegna veikinda sinna. Á góðum stundum hafði hann þó alltaf gaman af að segja sögur af skemmtilegum sam- ferðamönnum, sem hann hafði um- gengizt. Hann var góður sagna- maður, hafði góða frásagnargáfu, eins og hann átti kyn til. Afi hans, sr. Magnús, var þekktur fyrir að kunna að lyfta umhverfi sínu með skemmtilegum og skoplegum frá- sögnum sínum. Á kveðjustund vil ég og fjölskylda mín þakka Hreini margvíslegt samstarf, viðmót og vináttu í áratugi. Þeir eru margir, sem eiga Hreini Jónssyni margt að þakka. Ekki aðeins aðstandendur, heldur líka óteljandi aðrir, sem notið hafa huga hans og handa. Störf hans skilja eftir góðar minningar, blandaðar þakklæti og vinarhug. Kristínu Einarsdóttur konu hans sendum við vinir þeirra og félagar innilegar samúðarkveðjur, svo og börnum þeirra og öðrum aðstand- endum. Kiddý var stoð hans og stytta í dagsins önn, þegar allt lék í lyndi og skjöldur hans og skjól, þegar á móti blés. Jón Páll Halldórsson. Það er erfitt að vera langt að heiman og geta ekki fylgt nánum vini – fá ekki að finna nálægðina við fólkið sitt og hans á þessari stundu. Ég leit alltaf á Hrein sem vin minn þó hann væri maðurinn hennar Kiddýar móðursystur og einni kynslóð framar en ég á þroskabrautinni. Það var eitthvað eksótískt við Hrein og allt hans fólk. Þau voru svo dökk yfirlitum og skapheit og þau tjáðu sig með svo miklum tilþrifum. Þau voru líka „að norðan“ – norðan úr Að- alvík og áttu annað líf þar, líf sem var fullt af gleði og góðum minn- ingum, en líka fullt af trega. Treg- inn og söknuðurinn var alltaf til staðar fannst manni og tilfinning- arnar voru svo sterkar að þær gat ekkert sefað. Ég skynjaði þetta strax sem barn og hreifst mjög af Margréti móður Hreins sem var fjarræn og dreymin og Jóni föður hans sem alltaf var svo rökfastur og ákveðinn í skoðunum. Svo kom Baldur bróðir hans stundum í heimsókn og hló svo hátt að ljósa- perur brotnuðu í götunni. Hreinn var gutlandi af húmor, syngjandi músíkalskur og svo var honum mjög annt um lýðræðislega um- ræðu og pólitík. Um hana gátu svilarnir, pabbi og hann, rifist harkalega en hættu því síðustu ár- in og voru þá bara góðir hvor við annan. Það var fallegt að sjá þá saman og hlusta á þá rifja upp gömul björgunarafrek sem þeir höfðu tekið þátt í saman og kúnst- ugar uppákomur í tengslum við þau. Húmorinn var líkur þó himinn og haf væri yfirleitt á milli þeirra í pólitíkinni. Það er erfitt að kveðja fólk sem hefur verið svona mikilvægur hluti af lífi manns alla tíð. Það er erfitt að kveðja mann sem hefur verið svona sterkur til staðar í þeim hópi fólks sem maður hefur alltaf getað treyst hvað sem á dynur. Það var enginn eins og Hreinn Jónsson og við eigum svo sann- arlega eftir að sakna hans og sér- viskunnar, hlátursins og kímninn- ar. Elsku Kiddý og allur barnahópurinn. Við sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur heim til ykkar. Megi góðar vættir styðja ykkur í sorginni. Elísabet Gunnarsdóttir, Jón Kolbeinn og Einar Viðar. “Kóngur, kóngur, kóngur“; með þessum orðum heilsaði Hreinn þegar rennt var í hlað á Engjaveg- inum. Á eftir fylgdi mikill hlátur, sem bara ég og hann skildum, en fjölskyldan horfði agndofa á okk- ur. Síðan faðmaði hann alla og kyssti og skeggbroddarnir stungu alltaf jafnhressilega. Ég útskýrði svo að þegar ég, Einar, Guffý og Magga Stína vorum lítil, þá spil- uðum við á spil frá miðnætti á gamlársdag til sex á nýársdag. Það síðasta sem Hreinn mundi áð- ur en hann sofnaði var ómur frá okkur úr stofunni: „Kóngur, kóng- ur, kóngur.“ Fyrstu minni mín af Hreini eru þegar hann keyrði okkur Einar í Grána í fyrsta sinn í skólann. Seinna man ég eftir okkur á raf- magnsverkstæðinu í Raf, þar sem ljósaperum var dýft í fjóra liti af lakki. Þarna var lagður grunnur- inn að Kærleiksbandinu. Eitt af af- reksverkum sem alltaf eru rifjuð upp þegar ekið er um Seyðisfjörð, er ferðir okkar Einars inn að Eyri. Eitt sinn þurftum við að prófa ut- anborðsmótor og fengum til þess bátinn hans Dóra. Allt gekk eins og í sögu og báturinn rann út á fjörðinn. Það var líka prófað að setja hann í bakkgír og á einni svipstundu flaug mótorinn í háa- loft, en kom aftur niður rétt hjá bátnum og sökk til botns. Skrefin heim að Eyri voru þung og leiðin til Ísafjarðar helmingi lengri held- ur en inn eftir. Það hefði margt mátt segja þegar við skýrðum frá óförunum, en þá sagði Hreinn: „Þið eruð nú meiri jólasveinarnir!“ Vá, þvílíkur léttir; þetta orðatil- tæki þekktum við frá Jóni Magn- ússyni, en hann notaði það ef við höfðum gert eitthvað „óvart“. Þrátt fyrir margra ára dvöl mína erlendis var Hreinn alltaf kominn til að bjóða okkur velkom- in: „Kóngur, kóngur,“ sagði hann, en bíddu við, nú voru bara tveir kóngar! „Ertu ekki hress?“ spurði ég. „Ha, jú jú, en það er heilsan; það er allt að gefa sig. Sérðu þröstinn þarna í trénu, syngur hann ekki fallega?“ Ég jánkaði því. „Ég heyri ekkert í honum, því heyrnin er alveg farin!“ Næst þegar ég kom var Hreini mikið niðri fyrir. „Ég man bara ekkert stundinni lengur.“ Ég skil- aði þá kveðju til hans frá Maju og á augabragði nefndi hann öll börn- in með nafni. „Þarna sérðu,“ sagði ég, „Þú ert með mjög gott minni miðað við marga aðra.“ Hann hló þá við og sagði: „Þú plataðir mig svakalega þegar þú sendir mér jólakort með sjö börnum. Ég varð svo hissa að ég rauk til mömmu þinnar og spurði: af hverju í ósköpunum hefur hann Halldór ekki sagt mér frá nýja barninu? Hún benti mér þá á að elsta barnið væri Maja sem hélt á því yngsta!“ Í kjölfarið hló Hreinn mikið og lengi. Þegar við komum í heimsókn nú um páskana var enginn „kóngur, kóngur“! Hreinn hafði veikst skyndilega af heilablæðingu sem áður hafði höggvið stórt skarð í lífsgæði hans og tilveru. Það var ekki búið að draga fánann úr hálfri stöng seinni part föstudagsins langa þegar hann var allur. Með þessum minningabrotum vil ég kveðja Hrein og þakka fyrir einstaka vináttu sem og heillandi glaðlyndi og yndislegt viðmót. Kiddý, fjölskyldu og ættingjum vottum við Maja og börnin okkar dýpstu samúð með þökk fyrir dýr- mæt kynni. Halldór Jónsson jr. Það er lögmál lífsins að við sem komin erum á efri ár kveðjum fleiri ættingja, vini og kunningja en þegar við vorum yngri. Í dag kveð ég vin minn, Hrein Þ. Jóns- son sem dó á föstudaginn langa. Okkar samleið var orðin löng. Við vorum saman í bekk í Gagnfræða- skólanum á Ísafirði. Þar var líka Kristín, alltaf kölluð Kiddý. Allir í skólanum vissu af hrifningu Hreins á Kiddý. Og þau giftust og áttu börn og buru. Við þrjú vorum kunningjar á þessum skólaárum en engir sérstakir vinir. En það átti eftir að breytast þegar Gunn- ar, maðurinn minn og Hreinn urðu vélstjórar í Íshúsfélagi Ísfirðinga. Seinna fluttum við á Engjaveg 23 og Hreinn og Kiddý voru á nr. 16, þar sem þau bjuggu mestallan sinn búskap. Þau voru höfðingjar heim að sækja, Hreinn var mjög skemmtilegur og góður vinur en hann gat verið dálítið þver. Vildi bara hafa allt status quo. Við tók- um stundum rimmu út af þessu, en í góðu þó. Hann var nú ekki par hrifinn af því þegar við Gunnar fluttum suð- ur fyrir rúmlega tíu árum. Hvað við værum að þvælast þetta. Þegar við bentum honum á að þau Kiddý ættu þrjú af börnum sínum á Ísa- firði, en allt okkar fólk væri farið suður, skildi hann það, en var ekki sáttur. En þegar við komum vest- ur til að „hlaða batteríin“ eins og við sögðum, var ekki annað tekið í mál en að við gistum hjá þeim og voru þær samverustundir yndis- legar. Hreinn átti við mikil veikindi að stríða um ævina. Hann var maður á besta aldri þegar hann fékk hjartaáfall. Hann fór í hjartaðað- gerð og náði sæmilegri heilsu eftir það. Fyrir níu eða tíu árum varð hann fyrir því áfalli að fá heila- blæðingu og var þá hætt kominn. Fyrst á eftir var minnið, sérstak- lega skammtímaminnið, takmark- að. Tók Hreinn þetta mjög nærri sér, en þetta lagaðist nokkuð. Hreinn og Gunnar voru bestu vinir. Þeir unnu saman í rúmlega þrjátíuogsjö ár, voru oft ósam- mála, jafnvel oft á dag, en aldrei rifust þeir. Þeir jöfnuðu allt sín á milli í góðu. Þeir voru báðir algerir æringjar og uppátæki þeirra eru enn í minnum höfð. Í fyrsta skipti sem þau hjón komu suður eftir að Gunnar dó, ætluðu þau að koma í mat til mín. Þann dag hringdi Kiddý og sagði að hún myndi koma ein, Hreinn treysti sér ekki til að koma í Gunnarslaust Vest- urtúnið. Ég bað hana að skila því að mig langaði svo mikið til að hann kæmi. Hann gerði það og þetta varð yndislegt kvöld. Þegar þau voru að fara þá faðmaði Hreinn mig og kyssti og sagði „Elsku Ebba mín, þetta var yndislegt kvöld, þrátt fyrir allt“. Og þrátt fyrir allt, er yndislegt að kveðja gamlan vin, með innilegu þakklæti fyrir allt. Til minnar elskulegu vinkonu, Kiddýar, og allra barnanna og barnabarnanna sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Ebba. Vinátta sem myndast á æsku- og unglingsárum er dýrmæt og endist oft ævilangt. Því vil ég minnast hér látins vin- ar og félaga, Hreins Þóris Jóns- sonar. Fyrstu kynni okkar voru 1943 þegar við vorum báðir við sund- nám í Reykjanesi við Djúp. Hreinn kom þá frá Sæbóli í Aðalvík en ég frá Ísafirði. Við vorum skólabræð- ur í Gagnfræðaskólanum á Ísa- firði, árgangi sem útskrifaðist 1948. Árið 1948 flutti fjölskylda hans frá Aðalvík að Seljalandi í Skut- ulsfirði sem er skammt frá heimili mínu sem var á Grænagarði. Tókst strax góð vinátta og samgangur milli fjölskyldna okkar. Í Skutulsfirði var á þessum tíma starfandi Íþrótta- og málfunda- félagið Ármann, við tókum þátt í starfi félagsins, þar voru haldnir málfundir, dans- leikir og íþróttir. Hreinn var strax virkur þátttak- andi í félagsstarfinu og iðkaði skíðagöngu og árið 1949 vorum við nemendur í Skíðaskólanum á Seljalandsdal. Hann tók þátt í skíðamótum og varð brátt í fremstu röð í skíðagöngu ásamt fé- lögum sínum innan héraðs og utan. Oft spunnust skemmtilegar um- ræður að lokinni keppni. Ég minnist margra góðra stunda með honum í starfi og leik, frá keppnisferðum, útilegum og útivist. Og seinna sem kórfélaga. Hreinn naut mikils trausts í leik og starfi vegna prúðmennsku og áreiðanleika Hans ljúfa og glaðlega viðmót vakti athygli hvar sem hann fór og er minnisstætt öllum sem hann þekktu. Ég minnist með söknuði góðs vinar og votta fjölskyldu hans inni- lega samúð. Blessuð sé minning hans. Oddur Pétursson Hreinn Þórir Jónsson frá Sæbóli í Aðalvík er látinn og vil ég minn- ast hans með nokkrum orðum. Ég þekkti hann sem lítinn dreng þeg- ar ég átti heima á Sæbóli. Hann var sex árum yngri en ég. Síðar kynntist ég honum betur þegar hann kom til Ísafjarðar um ferm- ingaraldur og fór Í Gagnfræða- skólann á Ísafirði. Einnig kom í skólann Jóhannes Páll bróðir minn, en þeir voru æskuvinir og fylgdust að í skólanum. Þá var ég ógiftur og þeir voru oft gestir mín- ir. Þeir voru glaðværir og góðir drengir og mikið var hlegið. Síðar lágu leiðir okkar saman þegar byrjað var að byggja aftur upp í Aðalvík um 1970. Þá vorum við báðir komnir með fjölskyldur. Við byggðum báðir sumarhús í Aðalvík og stundum vorum við bara fjögur í víkinni í 1 til 2 vikur eftir að krakkarnir voru farnir að vinna og gátu ekki verið með okkur fyrir norðan. Ekki er hægt að minnast á Hrein og Aðalvík án þess að þakka honum fyrir sitt óeigingjarna starf við að halda við Staðarhúsinu, kirkjunni og barnaskólanum í Að- alvík. Hann hafði gott lag á því að hafa menn með sér í vinnuferðir, alltaf var mikið unnið í þessum ferðum, en þótt menn væru búnir að leggja hart að sér við vinnu létu þeir sig hafa að koma saman í barnaskól- anum okkar, syngja saman og dansa, segja sögur og var Hreinn minnugur á sögur og sagði skemmtilega frá. Að endingu vil ég þakka Hreini og Kiddý fyrir vin- áttuna við Guðrúnu og mig í gegn- um árin. Vertu sæll góði vinur og hafðu þökk fyrir allt. Bæring Gunnar Jónsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.