Morgunblaðið - 23.04.2009, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 23.04.2009, Blaðsíða 41
Minningar 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2009 Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn, og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem) Elsku hjartans pabbi minn, nú er þinni miklu þraut lokið og þú kominn til mömmu á ný eins og þú þráðir. Mér brá mikið þegar Solla systir hringdi og tilkynnti mér að þú værir látinn. Mamma nýfarin og nú þú líka. Ég er samt svo þakklát fyrir að þú fékkst hvíld frá þessu lífi, eins og þú þráðir, því þegar mamma dó þá dó þín lífsgleði líka. Þið mamma voruð búin að vera saman í 59 ár, sem er langur tími. Ég sakna ykkar beggja mjög mikið, og nú er búið að höggva stórt skarð í mína fjölskyldu, því við vorum öll ætíð svo náin. Þó eru minningarnar svo margar og góðar því saman upplifðum við bæði mikla gleði en líka sorg. Sú vika sem við áttum saman nú síðast í kringum útför mömmu var yndisleg. Þú varst svo góður og hlýr við mig og skildir svo vel hvað ég sakna mömmu mikið, faðmlag þitt þegar þú kvaddir mig þegar við vorum að fara aftur austur fylgir mér alla tíð. Það var svo mikil ást og hlýja í því. Ég veit elsku pabbi minn að þér þótti vænt um okkur Þór og drengina okkar, sem og Karenu. Þótt við værum ekki alltaf sam- mála í lífinu þá vorum við búin að fyr- irgefa hvort öðru fyrir löngu, því þegar maður elskar einhvern þá er svo auðvelt að fyrirgefa þótt okkur verði á. Að alast upp hjá ykkur mömmu var góður tími, og þótt ég flytti snemma að heiman, þá héldum við ávallt mjög nánu sambandi. Því miður fækkaði stundunum okkar saman eftir að þið mamma fluttuð í Garðabæinn, en við notuðum símann mikið og töluðumst við á hverjum degi ef við gátum. Þau eru ekki mörg aðfangadagskvöldin sem við eyddum ekki saman, þar af vorum við tvenn jól hjá ykkur fyrir sunnan. Það var ósk ykkar beggja að ég yrði heima hjá mér á síðustu jólum, og gerði ég það, en jafnframt græt ég það nú að hafa ekki átt tíma með ykkur. Nú kemur aldrei meir fram á númera- birtinum orðið mamma þegar síminn hringir, en það kom alltaf upp þegar þið hringduð. En góðu minningarnar lifa, eins og öll ferðalögin okkar saman, sum- arbústaðaferðirnar, fermingar, brúðkaupsdagurinn minn, afmæli, öll jólin og áramótin, sem og fjöldi ann- arra góðra stunda. Þú elskaðir Þór manninn minn og drengina okkar óendanlega mikið, og mikið voruð þið Þór búnir að vinna saman á Karlsstöðum, eins hjálpaðir þú okkur Þór að byggja húsið okkar. Það besta sem ég gat gefið þér í jólagjöf síðustu árin voru grínbækur eins og 101 vestfirsk þjóðsaga og aðrar álíka bækur, og varstu þá fljót- ur að leyfa mér að heyra þegar þú last góðan brandara eða góða sögu. Elsku pabbi minn, Guð geymi þig og varðveiti, og mikið verður yndis- legt að hitta ykkur mömmu og Adda bróður á nýjum stað seinna. Hjart- ans þakkir fyrir að vera pabbi minn, ég bið að heilsa mömmu og Adda. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Hvíldu í friði og Guð veiti þér sálarró og frið. Þín dóttir, Jóna Kristín Sigurðardóttir. Það var gott að eiga þig að, Sig- urður, hvort sem tengdaföður eða Sigurður Þorleifsson ✝ Sigurður Þorleifs-son fæddist 18. nóvember 1930 í Fossgerði í Berunes- hreppi og lést hinn 5. apríl sl. á heimili sínu, Boðahlein 22 í Garða- bæ. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. Meira: mbl.is/minningar sem vin, alltaf tilbúinn að hjálpa og kenna og taka þátt í öllu sem maður var að brasa við. Allt frá okkar fyrstu kynnum höfum við átt með öllu átaka- laus samskipti og bor- ið gagnkvæma virð- ingu hvor fyrir öðrum. Þegar ég sem ungur maður fór að eltast við litlu stelpuna þína, hana Jónu, þá var minn maður svolítið kvíðinn viðbrögðum þínum, en að ástæðulausu, því alla tíð hef ég verið meira en velkominn á heimili ykkar hjóna og verið sem sonur og notið þess að vera undir verndarvæng ykkar og nánast of- dekraður af umhyggju og ást. Þá var gott að geta skilið stressið eftir og skutlast fyrir fjörðinn til að slappa af í sveitinni við leik eða störf sem fyrir lágu, og mikið varst þú alltaf þakk- látur ef ég gat aðstoðað þig við eitt- hvað sem ég hafði lag á. Þegar heilsan þín fór að gefa sig var notalegt að finna að það væri treyst á að ég gæti reddað því sem þú réðst ekki við, en ekki var það tekið sem sjálfsagt, heldur var það ávallt launað á einn eða annan hátt, og ekki við annað komið. Þær eru margar bækurnar sem þú varst búinn að lauma með öðru í bílinn þegar farið var heim eftir veru í sveitinni. Eftir að þið fluttuð suður breyttist margt, ekki bara hjá ykkur heldur líka hjá okkur heima á Djúpavogi, við höfðum ekki lengur það athvarf sem Karlsstaðir voru okkur Jónu og drengjunum, sem nutu þess allt frá fæðingu að vera hjá ykkur í sveitinni og þurfti stundum að hafa fyrir að fá þá heim aftur. Eins var það oft með mann sjálfan, því mikið leið mér vel hjá ykkur í sveitinni, alltaf nóg af öllu, og með mínum áhuga á nátt- úrunni, þá var allt þar til staðar sem hún bauð. En nú kveð ég þig, sem áttir stór- an part í mér og minni litlu fjöl- skyldu, alveg eins og við áttum örugglega í þér, því ekki varstu að leyna þeim hug sem þú barst til mín sem og okkar allra, og verð ég ætíð þakklátur fyrir það. Fáir þú að hvíl- ast í náð og friði, elsku vinurinn minn. Þór Jónsson. Elsku besti afi. Við kveðjum þig nú með miklum söknuði en þrátt fyrir allt með miklu þakklæti fyrir að hafa átt þig að. Þú varst ávallt svo góður við okkur barnabörnin og okkur leiddist það sannarlega ekki að vera gimsteinarnir í þínum augum. Þú áttir mjög auðvelt með að stytta okk- ur bræðrum stundir, hvort sem það var við að aðstoða þig á Karlsstöðum eða skreppa með þér í ferðir í næstu byggðir. Alltaf gerðuð þið amma ykkar besta við að stjana við okkur bræður, og munum við aldrei gleyma Macintosh-dósunum góðu sem þú varst óþrjótandi að deila með okkur af alla tíð. Alla tíð hafðirðu gaman af bókum, sögum og vísum, og sérstakt dálæti hafðirðu á gamanvísum og sögum, og hélst þar mest upp á 101 vestfirska þjóðsögu meðan þær komu út. Þú varst ávallt svo fróður og fróðleiks- fús, og var bókasafnið þitt ekki langt frá því að nálgast 10 þúsund bækur. Einnig hafðirðu gaman af því að rök- ræða um stjórnmál og tókst á tíma- bili þátt í störfum á þeim vettvangi og áttir marga kunningja í gegnum það. Þú hafðir nógan starfa í gegnum tíðina, fyrir utan bústörfin tókstu að þér m.a. störf í sjómennsku, brúar- smíði, vegagerð, síldarvinnslu, skóla- akstri, vitavörslu, og síðast en ekki síst í hreppsnefnd gamla Berunes- hrepps sem oddviti og í fyrstu sveit- arstjórn nýja Djúpavogshrepps. Þá tókstu líka að þér að aðstoða lang- ömmu við búskapinn í Fossgerði í tæp 20 ár eftir að Þorleifur langafi dó. Í þau 55 ár sem þið amma bjugg- uð á Karlsstöðum byggðuð þið býlið upp: ræktuðuð um 20 ha lands, keyptuð góð tæki til bústarfanna, byggðuð við gamla íbúðarhúsið og reistuð mun síðar það nýja, byggðuð tvenn fjárhús og hlöður, og síðast reistuð þið nýrra fjósið. Þegar best lét fyrir rúmum tveimur áratugum bjugguð þið með stóran og mikinn fjárbúskap, um 10 kýr og nokkuð af hænum. Vel af sér vikið hjá ykkur! En þegar líða fór að aldamótunum fóru hlutirnir að síga á verri hliðina fyrir ykkur. Þú fékkst heilablóðfall sem þú náðir þér aldrei alveg af og amma veiktist alvarlega upp úr alda- mótunum. Eftir því sem veikindi ömmu ágerðust kom að því að þið þurftuð að taka mjög sársaukafulla ákvörðun, sem var að bregða búi eft- ir 55 ára búskap á Karlsstöðum og flytja suður á höfuðborgarsvæðið, til að amma gæti leitað sér aðstoðar. Greinilegt var þó að þið söknuðuð ávallt sveitarinnar og bústarfanna meðan þið voruð fyrir sunnan. En svo komu þeir dagar sem óumflýj- anlegir voru; eftir langvinn veikindi dó amma núna í janúar. Þú gekkst í gegnum mikla sálarkvöl að missa ömmu eftir rúmlega 57 ára hjóna- band, og veröldin hrundi fyrir aug- unum á þér, og aðeins tæplega þrem- ur mánuðum eftir andlát ömmu hefur þú nú kvatt okkur hinsta sinni og ert lagður af stað í ferðalag til endurfunda við ömmu. Elsku afi okkar. Við vonum inni- lega að leiðir ykkar ömmu muni liggja saman að nýju í eilífðinni og að þið munið lifa hamingjusöm saman inn í eilífðina. Við erum mjög þakk- látir fyrir þá tvo áratugi sem við fengum með ykkur hérna megin við móðuna, og við munum ávallt minn- ast ykkar með hlýhug og þökkum fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Ekki aðeins voruð þið okkur bræðrum góð, heldur einnig mömmu og pabba, sem og Karen þegar hún kom inn í fjölskylduna fyr- ir tæpum þremur árum. Karen biður að heilsa eins og ávallt. Vonandi hittumst við aftur hinum megin þegar kvölda tekur í lífi okkar. Sigurjón og Kristján Snær Þórssynir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, HELGA SIGURBJÖRNSDÓTTIR fyrrum bankafulltrúi, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli að morgni laugardagsins 18. apríl. Útför hennar verður gerð frá Áskirkju föstudaginn 24. apríl kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Kvenfélagið Hringinn. Björn Þorvaldsson, Kristbjörg Kjartansdóttir, Hrafnkell Þorvaldsson, Gréta Sigríður Haraldsdóttir, Erna Björnsdóttir, Þórarinn Bjarnason, Þorvaldur Björnsson, Elína Margrét Ingólfsdóttir, Helga Björnsdóttir, Rúnar Haukur Gunnarsson og langömmubörn. ✝ Okkar elskulega móðursystir, INGIBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR ljósmóðir, lést á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri föstudaginn 17. apríl. Útför hennar fer fram frá Glerárkirkju föstudaginn 24. apríl kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta dvalarheimilið Hlíð njóta þess. Aðalheiður Ingibjörg Mikaelsdóttir, Rósa Björg Andrésdóttir. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, amma og langamma, ARNDÍS PÁLSDÓTTIR, Áshamri 3a, Vestmannaeyjum, lést á heimili sínu mánudaginn 20. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Georg Stanley Aðalsteinsson, Páll Arnar Georgsson, Helgi Heiðar Georgsson. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGVAR BJARNASON, lést á Hrafnistu Hafnarfirði að morgni föstudagsins 10. apríl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Anna Ingvarsdóttir, Guðrún Ingvarsdóttir, Gunnar Halldórsson, Bjarni Ingvarsson, Halldóra Skaftadóttir, Lilja Ingvarsdóttir, Smári Brynjarsson, Stefán Ingvarsson, Jóhanna Benediktsdóttir, Þröstur Ingvarsson, Erla Ferdinandsdóttir, Birna Ingvarsdóttir, Snorri Halldórsson, afa- og langafabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, AUÐUR RUTH TORFADÓTTIR, Máshólum 4, lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 21. apríl. Útför hennar verður gerð frá Grafarvogskirkju mánudaginn 27. apríl kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabba- meinsfélagið. Fyrir hönd aðstandenda, Torfi Þór Fort, Siriket Maneenak, Jóna Björg Hafsteinsdóttir,Fjölnir Björgvinsson og ömmustelpur. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, HELGA JÓNSDÓTTIR, Kleppsvegi 62, lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 21. apríl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 29. apríl kl. 15.00. Aðalbjörg Sigríður Gunnarsdóttir, Björg Gunnarsdóttir, Finnbogi Sigurðsson, Ágústa Gunnarsdóttir, Þorvarður Gunnarsson, Þórlaug Ragnarsdóttir, Jón Gunnarsson, Sigríður Guðný Sverrisdóttir, Helga Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ÍSLENSKAR LÍKKISTUR Góð þjónusta - Gott verð Starmýri 2, 108 Reykjavík 553 3032 Opið 11-16 virka daga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.