Morgunblaðið - 23.04.2009, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 23.04.2009, Blaðsíða 45
Minningar 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2009 Magnús Magnússon ✝ Magnús Magn-ússon fæddist í Stavanger í Noregi 21. september 1989. Magnús lést í hörmu- legu bílslysi að kvöldi 7. mars sl. Útför hans var gerð hinn 16. mars frá heimabæ hans og fjölskyldu hans í Lye Bryne. Foreldrar hans eru hjónin Sissel Sör- dal Magnússon, fædd 4. maí 1962, og Magnús Heimdal Magnússon, fæddur 17. júní 1962. Börn þeirra hjóna voru þrjú. Elst er Elísabeth Sördal Magn- úsdóttir, fædd 31. ágúst 1985, Magnús Magnússon, fæddur 21. september 1989, og Kristian Heimdal Magnússon, fæddur 12. júní 1991. Meira: mbl.is/minningar Guðrún Álfgeirsdóttir ✝ Guðrún Álfgeirs-dóttir fæddist í Reykjavík 14. nóv- ember 1939. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Foss- vogi 14. mars 2009. Útför Guðrúnar fór fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstu- daginn 20. mars sl. Meira: mbl.is/minningar Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Dýrahald Papillonhvolpar til sölu Af þessari yndislegu tegund, heilsu- farsskoðaðir og ættbókarfærðir hjá HRFÍ. Uppl. í síma 663 2828 og á www.aiminghigh.is. Ferðalög Ferðaþjónustan Lónkoti sími 453 7432 eða 553 6775 www.lonkot.com Ferðaþjónustan Bakkaflöt Skagafirði sími 453 8245 www.bakkaflot.com www.riverrafting.is Gisting Sumarhús til leigu miðsvæðis á Akureyri Þrjú svefnherbergi (78 fm). Rúm fyrir sjö. Verönd og heitur pottur. Glæsilegt útsýni yfir Pollinn. Frítt net- samband. Uppl. á www.saeluhus.is eða í 618 2800. Heimili í borginni - www.eyjasolibudir.is Til leigu 3ja herb. fallegar íbúðir í Rvík. Austurbæ. Fjölskyldugisting fyrir 4-6 í 2 daga eða fl. Allt til alls. Frítt net. eyjasol@internet.is, s. 898 6033. VELKOMIN. Heilsa Léttist um 22 kg á aðeins 6 mánuðum. LR-heilsukúrinn er ótrúlega einfaldur og öflugur. Engin örvandi efni, glútenfrír og án laktósa. Matarprógram sniðið að þínum þörfum. Dóra 869-2024. www. dietkur.is Langar þig að léttast um 5-10 kg? Crash diet eru töflur sem þú lifir á í 10 daga. Í þessu eru öll næringarefni sem líkaminn þarf á að halda og er þetta hreinlega byltingarkennd vara! Venjulega er maður að missa 7-14 kg á 10 dögum jafnvel meira, fer allt eft- ir stærð einstaklings. Engin örvandi efni. Uppl. í síma 845-2558 eða senda fyrirspurn á zera@hotmail.com Hljóðfæri Til sölu Yamaha trompet verð 50.000 kr. Sópran saxafónn verð 100.000 kr. og Konsertína verð 25.000 kr. Uppl. í síma 438-6791 eftir kl. 19.00. Dúndurtilboð Kassagítarar: 1/4 stærð kr. 10.900 pakkinn með poka, strengjasetti og stilliflautu. 1/2 stærð kr. 7.900. Full stærð kr. 12.900. 3/4 kr. 10.900. 4/4 kr. 12.900. Rafmagnsgítarpakkar frá kr. 29.900. Hljómborð frá kr. 17.900. Trommusett kr. 49.900 með öllu. Gítarinn, Stórhöfða 27, sími 552 2125. www.gitarinn.is Húsnæði í boði Til leigu í Hafnarfirði 4 herb. íbúð á Eskivöllum í Hfj.106 fm, jarðhæð með verönd. Bílastæði í kj. Verðhugm.120.000 á mán. með öllu. Laus strax. Uppl. í s. 692-8664. Húsnæði óskast Íbúð óskast Fyrirtæki óskar eftir 1-2ja herb. íbúð á höfuðborgarsvæðinu. Ábyrgur aðili. Uppl. í síma 663 2130. Til sölu Til sölu 115 fm einbýlishús til flutnings. Upplýsingar í síma 892 7866 og 863 8185, Björn. Tilboð 265/70 R 16 MP kr. 21.900 265/70 R 16 IT kr. 17.900 235/70 R 16 It kr. 13.900 Kaldasel ehf. hjólbarðaverkstæði, Dalvegi 16 b, Kópavogi s. 544 4333. Málarar Málningarvinna Þaulvanur málari getur bætt við sig verkefnum. Inni og úti. Vönduð og öguð vinnubrögð. Sanngjarnt verð. Uppl. í síma 897 2318. Málningarvinna og múrviðgerðir. Getum bætt við okkur inni- og útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og góð umgengni. Tilboð eða tímavinna. Lítið Mál ehf. S. 896-5758. Hvert sem ég fer og hvar sem ég verð þá þarf fólk eins og þig fyrir fólk eins og mig. Þessi orð eru mér efst í huga þega ég hugsa til ömmu Gillu, þau eiga svo vel við hana. Ég þurfti fólk eins og hana fyrir fólk eins og mig í líf mitt. Ég er og verð alltaf þakklát fyrir þau 32 ár sem ég átti með henni. Amma Gilla var sú besta, hún var sú manneskja sem ég átti skjól hjá og eins hjá afa Bjarna, á þeirra heimili var ég ávallt velkomin. Það streyma yfir mig minningar, endalausar minningar, allt frá barnæsku til dagsins í dag, allt ljúfar og fallegar minningar, enda var amma ljúf og falleg kona. Hún eignaðist 3 börn, 8 barnabörn og 4 barnabarnabörn og öll vorum við henni svo kær og hún spilaði mik- ilvægt hlutverk í lífi okkar allra. Ég á eftir að sakna ömmu mikið, ég var svo náin henni. Ég hugga mig þó við það að hún er komin til himna og í fangið á afa Bjarna, hún var orðin þreytt og tilbúin að fara yfir móðuna miklu, hún var búin að eiga gott líf, með góðri fjölskyldu og vinum. Hún átti fjöldann allan af vinum enda stundaði hún hin ýmsu félagsstörf af fullum krafti og af miklum áhuga. Það var oft þétt setið í Hátúni 20, mikið af vinum og alltaf gaman, alltaf nóg til af kaffi og með því. Litla hjartagull og litla ömmugull eru orð sem ég geymi ávallt í hjarta mínu, því þetta voru orð ömmu þegar hún talaði til mín, frá því að ég var lítil og til dagsins í dag. Ég og bróðir minn Gísli áttum margar ógleymanlegar stundir með ömmu, hún gerði allt fyrir okkur og ef eitthvað bjátaði á þá kom amma því í lag, það skipti ekki málið hvað amaði að, amma gat lagað það, ann- aðhvort í verki eða með hughreyst- andi orðum. Ég á henni svo margt að þakka. Ég á eftir að sakna brossins hennar, hún var alltaf brosandi og þegar ég var lítil þá sat ég í Hátún- inu hjá ömmu og minningarnar það- an eru ómetanlegar, afi spilaði á pí- anóið, ég að greiða ömmu og punta Jóhanna Geirlaug Pálsdóttir ✝ Jóhanna GeirlaugPálsdóttir (Gilla) fæddist á Vatnsenda í Eyjafirði 19. maí 1924. Gilla lést á dval- arheimilinu Garðv- angi, Garði, föstudag- inn 3. apríl 2009 og var jarðsungin frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 16. apríl. hana eða pússa silfrið hennar, ég held fast í þessar minningar. Ég varð þess heið- urs aðnjótandi að halda í hönd ömmu þegar hún sofnaði svefninum langa, það var friður og ró yfir ömmu á þeirri stund, sátt var hún og tilbúin að kveðja þennan heim. Ég á tvö börn sem sakna langömmu sinnar mikið, 5 ára sonur minn trúir því að amma Gilla sé komin til himna og sé orðinn engill, í hvítum kjól með vængi, ég trúi því líka, því engill var hún á jörðu. Ég kveð ömmu með sorg í hjarta en þakklát fyrir stundirnar sem ég átti með henni, ég bið guð almátt- ugan um að geyma hana, blessa og varðveita. Berglind Bjarnadóttir. Hvert sem ég fer og hvar sem ég verð þá þarf fólk eins og þig fyrir fólk eins og mig. Þessi orð eru mér efst í huga þega ég hugsa til ömmu Gillu, þau eiga svo vel við hana. Ég þurfti fólk eins og hana fyrir fólk eins og mig í líf mitt. Ég er og verð alltaf þakklát fyrir þau 32 ár sem ég átti með henni. Amma Gilla var sú besta, hún var sú manneskja sem ég átti skjól hjá og eins hjá afa Bjarna, á þeirra heimili var ég ávallt velkomin. Það streyma yfir mig minningar, endalausar minningar, allt frá barnæsku til dagsins í dag, allt ljúfar og fallegar minningar, enda var amma ljúf og falleg kona. Hún eignaðist 3 börn, 8 barnabörn og 4 barnabarnabörn og öll vorum við henni svo kær og hún spilaði mik- ilvægt hlutverk í lífi okkar allra. Ég á eftir að sakna ömmu mikið, ég var svo náin henni. Ég hugga mig þó við það að hún er komin til himna og í fangið á afa Bjarna, hún var orðin þreytt og tilbúin að fara yfir móðuna miklu, hún var búin að eiga gott líf, með góðri fjölskyldu og vinum. Hún átti fjöldann allan af vinum enda stundaði hún hin ýmsu félagsstörf af fullum krafti og af miklum áhuga. Það var oft þétt setið í Hátúni 20, mikið af vinum og alltaf gaman, alltaf nóg til af kaffi og með því. Litla hjartagull og litla ömmugull eru orð sem ég geymi ávallt í hjarta mínu, því þetta voru orð ömmu þegar hún talaði til mín, frá því að ég var lítil og til dagsins í dag. Ég og bróðir minn Gísli áttum margar ógleymanlegar stundir með ömmu, hún gerði allt fyrir okkur og ef eitthvað bjátaði á þá kom amma því í lag, það skipti ekki málið hvað amaði að, amma gat lagað það, ann- aðhvort í verki eða með hughreyst- andi orðum. Ég á henni svo margt að þakka. Ég á eftir að sakna brossins hennar, hún var alltaf brosandi og þegar ég var lítil þá sat ég í Hátún- inu hjá ömmu og minningarnar það- an eru ómetanlegar, afi spilaði á pí- anóið, ég að greiða ömmu og punta hana eða pússa silfrið hennar, ég held fast í þessar minningar. Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að halda í hönd ömmu þegar hún sofnaði svefninum langa, það var friður og ró yfir ömmu á þeirri stund, sátt var hún og tilbúin að kveðja þennan heim. Ég á tvö börn sem sakna langömmu sinnar mikið, 5 ára sonur minn trúir því að amma Gilla sé komin til himna og sé orðinn eng- ill, í hvítum Í minningunni finnst mér ég hafa þekkt Gillu, eins og hún var kölluð í vina- og kunningjahóp, frá ómunatíð. Hún og Didda systir voru mikið saman á Akureyri þegar við bjuggum þar. Eftir að ég kom suður í háskólann vann ég lítillega hjá Sigurjóni lög- reglustjóra. Einhverju sinni þegar hann var nýkomin frá Ameríku þar sem hann hafði kynnst störfum lög- reglukvenna ákvað hann að senda mig þangað til að kynna mér störf þeirra í ýmsum borgum. Þegar heim kom starfaði ég sem lögreglukona (án búnings) með að- setur á Klapparstíg. Starfið var m.a. fólgið í því að fylgjast með ungum stúlkum sem voru að lenda í eða komnar í vandræði. Má segja að þetta hafi verið meira eins og fé- lagsráðgjafar starfa nú enda náið samstarf við barnaverndarnefnd. Gilla kom til liðs við mig og vann með mér í nokkrurn tíma. Kom sér þá vel meðfædd prúðmennska hennar, hlýja og háttvísi. Oft kom hún með mér heim til móður minnar og dekraði þá við hana með hand- og fótsnyrtingu og öðrum notalegheitum sem Gillu voru svo eiginleg. Einhvern tímann á starfsferli hennar fórum við á lög- regluball saman og þar hitti hún Bjarna Gíslason, lögreglumann og tónskáld. Þar með voru örlög hennar ráðin. Glæsileg brúðkaupsveisla þeirra gleymist varla nokkrum gest- anna. Þau eignuðust tvo syni, Bjarna Geir og Sveinbjörn, og fyrir átti Gilla Jónu Burgess sem býr í Ameríku. Hún hefur reynst mér sama tryggðatröllið og móðir hennar. Gilla átti erfitt með að tjá sig undir það síðasta en þegar ég heimsótti hana síðast var samt ennþá sama glettnin í augunum og höndin hlý. Það hefur verið mér dýrmætt að eiga hana að vini. Blessuð sé minning hennar. Vilhelmína Þorvaldsdóttir. Jóhanna Katrín Björnsdóttir ✝ Jóhanna KatrínBjörnsdóttir fæddist í Reykjavík 6. janúar 1955. Hún lést í Sjálfsbjargarheim- ilinu, Hátúni 12, 14. apríl sl. Foreldrar hennar eru Björn Lúðvík Jónsson bifvélavirki, f. 7. apríl 1929, d. 6. febrúar 1991, og Stein- unn Lilja Jónasdóttir saumakona, f. 16. apríl 1922. Alsystkini Jóhönnu Katrínar eru Þórður Björnsson, f. 6. júní 1952, og Hrefna Birna Björnsdóttir, f. 9. júní 1962. Hálfsystkini hennar, sammæðra, eru Björn Biering Hallgrímsson, f. 6. mars 1944, og Guðný Jóna Hallgrímsdóttir, f. 16. nóvember 1945. Hinn 18. desember 1976 giftist Jó- hanna Katrín Oddi Jónasi Eggertssyni húsgagnasmið, f. 25. mars 1949. Þau eignuðust fjögur börn: 1) Geirlaug Dröfn Oddsdóttir iðjuþjálfi, f. 18. október 1975. Maður hennar er Helgi Magnússon, f. 9. janúar 1972. Börn þeirra eru Arna Dögg Helgadóttir, f. 14. maí 1997, og Helena Ýr Helgadóttir, f. 4. nóvember 2001. 2) Jón- as Þór Oddsson tölvunarfræðingur, f. 3. október 1977. Kona hans er Lilja Guð- ríður Karlsdóttir, f. 31. mars 1975. Börn þeirra eru Magni Snær Jónasson, f. 9. mars 2003, og Sunna Katrín Jónasdóttir, f. 4. júlí 2006. 3) Atli Már Oddsson myndlistarmaður, f. 7. mars 1985. Sam- býliskona hans er Maila Oen Hellesöy, f. 27. mars 1984. 4) Ari Freyr Oddsson nemi, f. 18. janúar 1990. Jóhanna Katrín vann á leikskólum í Breiðholti, í Selja- skóla og á hjúkrunardeild Seljahlíðar. Útför hennar fór fram í kyrrþey. Meira: mbl.is/minningar Sesselja Ólöf Guðmundsdóttir ✝ Sesselja ÓlöfGuðmundsdóttir fæddist í Lambhaga í Skilmannahreppi 24. apríl 1933. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 12. apríl síðastliðinn. Útför Sesselju fór fram frá Hallgrímskirkju í Saurbæ 18. apríl sl. Meira: mbl.is/minningar Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Greinar, sem berast eftir að útför hefur farið fram, eftir tiltekinn skilafrests eða ef útförin hefur verið gerð í kyrrþey, eru birtar á vefnum, www.mbl.is/ minningar. Æviágrip með þeim grein- um verður birt í blaðinu og vísað í greinar á vefnum. Lengd | Minningargreinar sem birt- ast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Engin lengdarmörk eru á grein- um sem birtast á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum. Minningargreinar Minningar á mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.