Morgunblaðið - 23.04.2009, Síða 52

Morgunblaðið - 23.04.2009, Síða 52
52 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2009 Fólk Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is GÍTARLEIKARINN snjalli Guðmundur Pétursson hyggst heilsa sumri með tónleikum á Sódómu Reykjavík á morgun. Mun hann flytja bráðvel heppnaða sólóplötu sína, Ologies, í heild sinni en platan kom út um jólin og var lofsamlega tekið af gagnrýnendum. „Guðmundur springur út með látum sem tónsmiður á þessari annarri plötu sinni … Hugmyndum ægir saman en það er ekki svo að fram- vindan sé losaraleg eða tætinsgleg, síður en svo,“ sagði í dómi í blaði þessu m.a. Þeir Matthías Hem- stock, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson, Davíð Þór Jónsson og Róbert Reynisson aðstoða Guðmund við flutninginn á plötunni. Guðmundur segir að þeir félagar hafi einu sinni lagt í hann áður með þetta efni, og það hafi svo sem ekki verið leikur einn. On Top of a Laptop „Það er dálítið lúmskt að koma hljóðversútgáfunum áfram á tónleikum. Lausnin felst í því að allir séu sem mest að, allan tímann,“ segir gítarleikarinn hægláti og hlær. „En svo teygjum við á lögunum, opnum þau og leyfum þeim að rúlla lengur en þau gera á plötunni.“ Á tónleikunum kemur einnig fram On Top of a Laptop, sem er ný rafgjörningahljómsveit skipuð þeim Áka Ásgeirssyni og Páli Ivan Pálssyni, en þeir hafa verið virkir mjög innan félagsskaparins S.L.Á.T- .U.R. Tónleikarnir hefjast á slaginu 22.00.  Stórsöngvarinn Geir Ólafs er ekki af baki dottinn frekar en fyrri daginn og með vorinu er væntanleg ný plata frá kappanum sem nefnist því slungna nafni Meira. Þar er Geir að vísa til víðfrægs dóms Orra Harðarsonar í Morgunblaðinu um plötuna Á minn hátt sem Geir sendi frá sér árið 2001 en fyrirsögn dómsins var „Ekki meir, Geir“. Greinilegt er að Geir ætlar sér stóra hluti með nýju plötunni og hefur hann til að mynda nýlokið við tökur á myndbandi sem fyrrver- andi söngvari Rickshaw, Richard Scobie, framleiddi. Myndbandið er við lagið „Skotinn í þér“ sem er ábreiða af laginu „How sweet it is to be loved by you“ en það hefur áður verið flutt af ekki ómerkari mönnum en James Taylor og Marvin Gaye. Útsetning lagsins þykir með þeim þyngri sem Geir hefur sungið yfir hingað til og gott ef Geir er ekki hægt og rólega að fikra sig yf- ir í rokkið. Von er á plötunni í lok maí eða byrjun júní og renna 30% af hagnaði plötunnar til Mæðrastyrks- nefndar. Geir er svo sannarlega mættur með meir  Nú má loks skoða listann yfir 100 bestu plötur Íslandssögunnar á Tónlist.is en lokaáfangi kosning- arinnar hefst 4. maí þegar plöt- unum verður raðað í sæti. Við skoð- un á listanum kemur margt í ljós og meðal annars það að áratugirnir eru misgjöfulir. Íslenskar breið- skífur sem komu út á sjöunda ára- tugnum voru ekki sérlega margar en þrjár þeirra rata á listann. 24 plötur frá árunum 1971 til 1980 teljast meðal þeirra 100 bestu, 19 plötur frá níunda áratugnum (80’s) og 24 af þeim er komu út á tíma- bilinu 1991 til 2000. Ný öld hefst hins vegar afar vel og skilar flest- um plötum inn í valið eða 30 talsins. Gæði eða gullfiskaminni? 21. öldin skilar flestum plötum á listann Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „ÉG held að tími sveitaballanna sé kominn aftur og að þessi tilefnislausi hroki sem var farinn að fylgja þessu orði sé dottinn uppfyrir. Hver vill líka ekki fara á sveitaball?“ spyr Magni Ásgeirsson, söngvari hljóm- sveitarinnar Á móti sól, en hann og félagar hans í bandinu ætla að vera sem mest fyrir utan höfuðborg- arsvæðið í sumar. „Mér heyrist það á öðrum hljómsveitum og Íslend- ingum að það sé kominn tími á sveitaböllin aftur en þau hafa verið í lægð undanfarin ár. Það hefur verið rætt um það að hljómsveitir pari sig saman annað slagið til að koma þessu í gang, búa til stórböll, og færa líf í gömlu félagsheimilin. Við erum t.d. að spekúlera í að fá Ingó og Veð- urguðina til liðs við okkur í nokkur skipti. Í þessu ömurlega árferði sem er núna er það okkar starf sem tónlist- armenn að reyna að létta lund land- ans og efna til dansleikja.“ Magni hefur ekki áhyggjur af því að kreppan hafi áhrif á ballaðsókn. „Mér finnst eins og fólk vilji frek- ar fara á ball en að sitja inni á bar og ræða ástandið, það vill gleyma þessu um stund og skemmta sér út í sveit.“ Talar enn við Toby Spurður hvort hann fái ekki bara Rock Star-vini sína til liðs við sig til að peppa þetta upp segir Magni þá alla upptekna við að gera sína tón- list. „Eini sem ég tala ennþá við er Toby og hann er í Ástralíu, hljóm- sveitin hans var að gefa út plötu og er á fullu að spila þar. Hann er ólm- ur í að koma aftur til Íslands en það er nú meira en að segja það.“ Fyrsti sumarsmellurinn frá Á móti sól fór í spilun nýlega og er þegar orðinn eitt mest spilaða lag landsins. „Við erum búnir að vera að nostra við næstu plötu í einhver tvö ár og á hún að koma út fyrir næstu jól. „Dagarnir“ er fjórða lagið af henni sem fer í spilun og við virð- umst vera búnir að hitta á einhverja æð því öllum þessum fjórum lögum hefur gengið frábærlega,“ segir Magni og býst alveg eins við því að það komi eitt lag í viðbót frá þeim í sumar. Bræðslustjóri Magni er titlaður bræðslustjóri á tónlistarhátíðinni Bræðslunni sem fer fram í fimmta sinn á Borgarfirði eystra 24. til 26. júlí í sumar. Þar verður Þursaflokkurinn aðalnúm- erið ásamt Páli Óskari, Moniku Abendroth og strengjasveit. „Það verður sama snið á Bræðslunni nú og undanfarin ár. Bræðslan sjálf fer fram frá kl. 20 til 23 á laugardags- kvöldinu en svo verður stuð í félags- heimilinu bæði kvöldin og festival- stemning í bænum. Það er orðið eft- irsótt að spila á Bræðslunni og fæ ég orðið fyrirspurnir í hverri viku frá böndum sem vilja koma þar fram.“ Magni er á því að vinsældir tón- listarhátíða úti á landi, eins og Bræðslunnar og Aldrei fór ég suður, séu því að þakka að Íslendingar hafi stigið skref afturábak í hvernig þeir skemmta sér og hugsa um landið. „Það er orðið „inn“ að fara út fyrir sitt póstnúmer, ég fagna því. Ég varð mjög sleginn um seinustu helgi þegar við vorum að spila í Reykjavík og ég hitti mann um fertugt sem hafði aldrei komið til Akureyrar. Ég held bara að það sé fullt af Íslend- ingum sem hafa ekki farið meira en 100 km frá heimili sínu innanlands.“ Sumar sveitaballanna  Magni í Á móti sól segir tíma sveitaballanna kominn aftur  Vill létta lund landans í þessu ömurlega árferði  Undirbýr nú tónlistarhátíðina Bræðsluna Á móti sól Hljómsveitin á eflaust eftir að halda uppi miklu stuði á sveita- böllum sumarsins. Plata kemur svo frá sveitinni er líður að jólum. Hljómsveitina skipa ásamt Magna: Sævar Þór Helgason, Heimir Eyvindarson, Þórir Gunnarsson og Stefán I. Þór- hallsson. Hljómsveitin hefur gefið út sex plötur, þar af fjórar með Magna innanborðs. Fyrsta lagið sem fór að óma með þeim hét „Djöfull er ég flottur“ og sló í gegn árið 1997. Síðan þá hefur Á móti sól átt hvern smellinn á fætur öðrum og er án efa ein vinsælasta ballhljómsveit landsins. Á móti sól Hyggst opna og teygja lög á tónleikum í kvöld Sprengja Guðmundur hinn gítarfimi. Brúðuleikhúsið Mjallhvít kl. 14 og 16 Helga Arnalds Ratleikur Finnið blómin á safngripunum með aðstoð blómálfa Listasmiðja Höfuðskraut og sumarföndur Úrval sumargjafa í safnbúðinni Ókeypis aðgangur! Suðurgata 41 · 101 Reykjavík · sími 530 2200 · www.thjodminjasafn.is · Opið alla daga vikunnar nema mánudaga kl. 11–17 23. apríl kl. 14–17

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.