Morgunblaðið - 23.04.2009, Page 59
Menning 59FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2009
ÞAÐ er langt síðan maður hefur
fundið fyrir viðlíka spenningi í garð
plötu íslenskrar sveitar og þess-
arar hérna, fyrstu breiðskífu ný-
bylgjurokksveitarinnar Sudden
Weather Change. Það er eins og
sveitin hafi náð að fylla upp í
ákveðið tóm síðustu misseri með
sínum orkuríku, tilfinningaþrungnu
og nett
gáskafullu
tónleikum en
leitun er að
betri tón-
leikasveit
hérlendis.
Fólk var lík-
lega orðið
þreytt á
dramatískum sviðstilburðum allra
„alvarlegu“ hljómsveitanna sem
horfa ábúðarfullar niður á skóna
sína á meðan þær magna sinn seið.
Hér var allt í einu komin „látum
vaða í fölskvalausri gleði“-
hljómsveit sem virtist hvergi líða
betur en uppi á sviði. Hrein og
sönn gleði smitar og smátt og
smátt hefur ákveðin sena byggst
upp í kringum hljómsveitina.
En hvernig stendur hún sig svo á
plötu?
Tónlistin – ástríðuþrungið og
nett súrt nýbylgjurokk af ameríska
skólanum – skilar sér vel í eyrun.
Hljómur er býsna góður, hann er
skýr en hrár um leið einhvern veg-
inn; engin fínpússun í gangi sem
hefði átt illa við. Þegar hlustað er
leiðir maður hugann óneitanlega að
löndum meðlima í hljómsveitinni
Reykjavík! Söngvarar skiptast á að
syngja/æpa, líkt og þeir séu rífandi
hljóðnemann hver af öðrum. Þetta
svínvirkar.
Hin eðalborna Sonic Youth hefur
þá auðheyranlega fengið að tikka
nokkuð í spilastokkunum og áhrif
lo-fi-hljómsveita eins og Pavement
og Trumans Water eru tilfinn-
anleg; ef ekki í sjálfri tónlistinni þá
í allri ímyndarvinnu og umslags-
hönnun.
Ég vil svo sérstaklega nefna lag-
ið „Ampeg“ sem brýtur stemn-
inguna skemmtilega upp. Nokkurs
konar hálfbjánaleg útgáfa af tit-
illagi Footloose-myndarinnar.
Snilld og ég hefði viljað heyra
meira af svona flippi.
Allt í allt skemmtilegt og frísk-
andi nýbylgjurokk sem heldur vel
sjó út alla plötuna. Það eina sem
hægt er að setja út á, þannig séð,
er að þeir félagar verða seint sak-
aðir um að finna upp hjólið.
Ástríðan og æðið í öllum flutningi
beinir manni hins vegar frá öllu
ergelsi hvað það varðar.
Ástríðu-
rokk
Geisladiskur
Sudden Weather Change – Stop!
Handgrenade In The Name of Crib
Death ’nderstand?
bbbmn
ARNAR EGGERT
THORODDSEN
TÓNLIST
MEÐLIMIR Blur íhuga víst að taka
upp nýja plötu. Myndi það verða átt-
unda breiðskífa sveitarinnar og sú
fyrsta frá árinu 2003 þegar Think
Tank kom út. Sögulegar sættir urðu
á milli þeirra Albarns, Coxons,
James og Rowntree í fyrra þegar til-
kynnt var að þeir myndu koma fram
í Hyde Park í júlí en gestir BRIT-
verðlaunanna fengu smá forskot á
sæluna þegar þeir mættu óforvar-
andis og spiluðu nokkur lög fyrr á
þessu ári. En nú hefur Coxon sem
oft hefur verið talinn tregastur í
taumi sagt að honum líki sú hug-
mynd að halda í hljóðver á ný. Áður
en gamlir Blur-aðdáendur hoppa
hæð sína af gleði skal það tekið fram
að engin dagsetning hefur verið
ákveðin fyrir upptökurnar og svo
gæti farið að nokkur ár væru í að
slík vinna hæfist. Allir eru þeir mjög
uppteknir, hver í sínu horni og því
töluverð vinna fyrir góðan skipu-
lagsfræðing að koma þessu saman.
Hins vegar geta allir Blur-
aðdáendur glaðst yfir því að dag-
setningar fyrir upphitunar-tónleika
sveitarinnar hafa verið ákveðnar en
þær eru eftirfarandi: 21. júní –
Southend, 24. júní – Wolverhamp-
ton, 25. júní – Newcastle.
Ný Blur-plata væntanleg
að sögn gítarleikarans
Graham Coxon Getur hugsað sér að
skella sér í hljóðver með Blur.
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Bladerunner Twist 09
Stækkanlegir barnaskautar.
Tveir litir.
Verð áður 10.990 kr.
Verð nú 8.792 kr.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
45
95
2
04
/0
9
Jamis X24
20, 712 ára. Álstell, 7 gíra.
Svart/hvítt og blátt/hvítt.
Verð áður 39.990 kr.
Verð nú 31.992 kr.
Jamis Lady Bug
12, 25 ára. Bleikt.
Verð áður 19.990 kr.
Verð nú 15.992 kr.
Jamis Hot Rod
12, 25 ára. Rautt.
Verð áður 19.990 kr.
Verð nú 15.992 kr.
Jamis Laser 2.0
20, 59 ára. Álstell, fótbremsa.
Hvítt/svart og grænt/svart.
Verð áður 25.990 kr.
Verð nú 20.792 kr.
Jamis Laser 1.6
16, 36 ára. Rautt/hvítt og blátt/hvítt.
Verð áður 22.990 kr.
Verð nú 18.392 kr.
Jamis X20
20, 69 ára. Álstell, 6 gíra.
Blátt/hvítt og rautt/hvítt.
Verð áður 37.990 kr.
Verð nú 30.392 kr.
Það er hvergi slegið af gæðunum
í Jamis barnahjólunum
Öll hönnun miðar að því að öryggi
barnanna okkar sé sem mest.
Stellin eru t.d. sérstaklega lág við
sætin til að auðvelda barninu að
ná tökum á hjólinu. Og svo spillir
ekki fyrir hvað hjólin eru flott.
Rollerblade Micro 8.0
Stækkanlegir barnaskautar.
Tveir litir.
Verð áður 19.990 kr.
Verð nú 15.992 kr.
20% afsláttur
Hjóla- og línuskautadeildin er í Holtagörðum!
Gildir miðvikudag og fimmtudag
Jamis Miss Daisy
16, 36 ára. Bleikt.
Verð áður 25.990 kr.
Verð nú 20.792 kr.
af barnahjólum og barnalínuskautum
barnaskautar
Línuskautar
Útilíf er með línuskautana fyrir alla fjölskylduna!
Rollerblade er eitt þekktasta merki heims
í línuskautum. Þar gengur þú að
gæðunum vísum á góðu verði.
Mikið úrval af hjálmum og hlífum.
ÚT er kominn geisladiskurinn Heið-
anna ró með Tríói Björns Thorodd-
sen og Andreu Gylfadóttur. Heið-
anna ró er þriðji diskurinn sem þau
Andrea og Björn gera saman en áð-
ur hafa þau gefið út diskana Vor-
vinda og Vorvísur. Sumarrómantíkin
er allsráðandi á þessum nýja diski og
má þar heyra lög á borð við „Fram í
heiðanna ró“, „Réttarsamba“, „Óli
rokkari“, „Kvöldið er fagurt“, „Fyrir
handan fjöllin háu“, „Hvað er svo
glatt“, „Í grænum mó“ og „Ó fögur
er vor fósturjörð“. Hljómsveitin er,
auk Björns og Andreu, skipuð af-
bragðs hljóðfæraleikurum, þeim
Jóni Rafnssyni kontrabassaleikara
og Jóhanni Hjörleifssyni trommu-
leikara. Útgáfutónleikar verða á
Kaffi Rósenberg í Reykjavík kl. 21 í
kvöld og á Græna hattinum á Ak-
ureyri kl. 21 annað kvöld. Fram-
undan er svo spilamennska víða um
land allan maímánuð.
Heiðanna ró
Morgunblaðið/RAX
Tríó og Andrea Björn Thoroddsen,
Jón Rafnsson, Jóhann Hjörleifsson
og Andrea Gylfadóttir.