Embla - 01.01.1945, Page 29
var að hugsa um, rétt í þessu, sá rétti maður. Hann Gvendur í
Sölvabæ kom áðan og sagði henni þær fréttir, að Ólafur Jósúa
hefði röið í dag.
Arndís þrífur pottinn af eldinum. Nú verður hún að gefa sér
ú'ma til þess að tala við Ólaf Jósúa. Hún gengur svo tvö, þrjú
stór skref fram til dyra og hálf dregur Ólaf Jósúa inn á mitt
eldhúsgólfið, án þess að hann fái viðnám veitt. Svitinn bogar af
henni, hátíð fer í liönd, og „kostgangararnir“ krefjast matar, án
allra refja. En það er h'kast því, að sjórinn sé þurrausinn eða þá,
að guð líti í vanþóknun til Saltvíkurbúa. Hér á þessu vori sést
varla branda úr sjó. Fiskurinn er þó, eins og guð og menn vita,
aðalbjörgin þeirra hérna í Saltvík.
Þú einn getur hjálpað mér, Ólafur Jósúa — þú einn.
Olafur Jósúa sér mætavel, að konan er í mikilli geðshræringu.
Hann stingur höndunr í vasa og bíður með spekt og grafarró þess,
sem koma skal. Ólafur Jósúa er forviða, en jafnframt forvitinn —
og h'ka dálítið upp með sér af þeim mikla heiðri, sem honum
hlotnast nú. Það er þá engin snrærri en frúin sjálf í veitingahús-
mu í Saltvík, sem ávarpar hann svona, blessuð manneskjan. Ofaíi
Jósúa hitnar um hjartaræturnar. Hún er ekkja, hún Arndís, og
hann er engum háður. Það skyldi þó aldrei vera, að hún sé svona
bálskotin í mér, hugsar hann, og það fer eins og fiðringur um
hann allan við þá hugsun. Líklega væri það ekki svo vitlaust,
góður matur og öl daglega, og svo lritar Arndís rúmið.
Þú getur hjálpað mér um fisk, Ólafur Jósúa. Augu Arndísar eru
svört og tindrandi og hvíla. með einhverjum töfraþunga á Ólafi
Jósúa.
Þú fékkst spröku, lieldur hún áfram, þegar hann svarar engu,
stóra, feita og fallega spröku, var mér sagt. Þá sagði ég svona við
sjálfa mig. Hann Ólafur Jósúa gleymir mér ekki, svo mörg ölglös-
m hefur hann drukkið í eldhúsinu hérna, svo marga kaffibollana
hefur hann líka drukkið í „prívatinu" mínu, og eins og Ólafur
Jósúa veit, koma þangað ekki nema viídustu vinir mínir. Augu
Arndísar eru svo heit og röddin svo biðjandi áljáð, að Ólafur
Jósúa fer allur lijá sér. Hann tekur hendur úr vösum, klórar sér
1 höfðinu og tvístígur á miðju gólfi. Þetta er auðvitað ekki beint
27