Morgunblaðið - 28.05.2009, Page 13

Morgunblaðið - 28.05.2009, Page 13
Fréttir 13INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2009 Hér stoltir við stöndum... Við segjum frá því með stolti og bros á vör að Fiskidagur- inn mikli verður haldinn laugardaginn 8. ágúst með sama krafti og áður. Undirbúningur er í fullum gangi og ýmislegt spennandi að gerast. Við eigum von á fjölda góðra gesta að venju, enda er búist við aukningu á ferðalögum innan- lands. Því höfum við ákveðið að bæta við einum styrktaraðila í okkar góða hóp. Ert þú eða þitt fyrirtæki þessi áhugasami aðili sem við leitum að? Hafðu samband strax í dag við Júlíus í síma 897 9748 eða julli@julli.is og fáðu að vita hvað styrktarsamningur felur í sér fyrir þig eða þitt fyrirtæki. Hlökkum til að heyra frá þér. Fiskidagurinn mikli Stærsta matar- og fjölskylduhátíð landsins Hátíð allra landsmanna Hér stoltir við stöndum, með sjávarfanginu spriklandi. Fiskvinnslan fer öll úr böndum,- því Fiskiþjóðin er stiklandi. Því nú verður boðið til borðhalds, öllum sem að búa á Íslandinu. Úr texta Gunars Þórissonar við lag Fiskidagsins mikla. Ert þú þessi áhugasami aðili sem við erum að leita að? FRÉTTASKÝRING Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is MEÐAL þeirra hugmynda sem stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðar- ins hafa rætt í viðræðum um nýja þjóðarsátt, eða svonefndan stöð- ugleikasáttmála, er að festa gengi krónunnar. Hefur verið miðað við að gengisvísitalan, sem nú er í um 227 stigum, fari niður í 160-170 stig, og evran gæti farið úr 177 krónum í um 125. Yrði það á svipuðu róli og geng- isvísitalan var mánuðina fyrir bankahrunið í haust. Hugmyndinni um fast gengi er ætlað að koma til móts við fyrirtæki og heimili sem skulda stórar fjár- hæðir í erlendri mynt. Sömuleiðis að auðvelda bönkunum að bregðast við gengisáhættu sem er á milli eigna þeirra og skulda, líkt og fram kom í fréttaskýringu á fréttavef Morg- unblaðsins í fyrradag. Kostir og gallar Kostirnir við fastgengisstefnu eru taldir þeir helstir að auka megi verð- stöðugleikann, draga úr geng- isáhættu og greiða fyrir viðskiptum á milli landa. Gallarnir geta verið þeir að ef peningastefna viðkomandi ríkis er ótrúverðug, er hætta á spá- kaupmennsku fjárfesta og árásum þeirra á gjaldmiðilinn. Gerð var tilraun til að festa gengið eftir bankahrunið. Gengi krónunnar hafði þá verið fljótandi frá árinu 2001, þegar ný lög voru sett um Seðlabankann. Í kjölfar neyðarlag- anna tilkynnti bankinn þann 7. októ- ber sl. að bankinn myndi hefja við- skipti með krónur á millibanka- markaði á gengi sem miðaði við vísitölu upp á 175 stig. Fljótlega kom í ljós að þetta hélt ekki, tvöfalt gengi myndaðist þar sem mikill munur var á gengi krónunnar í viðskiptum á heimamarkaði og erlendis. Sama dag hætti bankinn við þessa tilraun. Fastgengi með fellingum Haft var eftir Sigurði Snævarr hagfræðingi í Morgunblaðinu í októ- ber sl., sem ritaði bókina Hagsaga Íslands, að lengst af í hagsögu Ís- lendinga hefði það ekki verið vand- kvæðum bundið fyrir stjórnvöld að fastsetja gengið. Á árunum 1960 til 1990 voru fjármagnsviðskipti við út- lönd alfarið á vegum ríkisins, skammtímalán bönnuð, langtímalán takmörkuð og gengið fellt marg- sinnis til að rétta af stöðu útflutn- ingsgreina, einkum sjávarútvegsins. Með samkomulaginu um EES, sem tók gildi árin 1991-1995, voru tekin upp frjáls viðskipti með fjármagn. Seðlabankinn ákvað gengið eftir sem áður en tók einnig að sér að verja það. Þetta gilti til 2001, þegar fljótandi gengi var komið á. Síðasta tilraun gekk ekki  Fastgengisstefna ekki raunhæf við núverandi aðstæður, segir viðskiptaráðherra  Seðlabankinn gafst síðast upp á öðrum degi með fast gengi eftir bankahrunið  Aukin hætta á spákaupmennsku Morgunblaðið/Golli Krónan Gjaldmiðillinn er kominn á endastöð, segja atvinnurekendur, og vilja bregðast við. Hugmyndin um fastgengi fær víða dræmar undirtektir. Í HNOTSKURN »Til að festa gengið þarfSeðlabankinn að fara inn á gjaldeyrismarkaðinn og kaupa krónur í miklum mæli á föstu gengi. »Gjaldeyrisforði Seðlabank-ans er nú rúmir 400 millj- arðar króna. TRYGGVI Þór Herbertsson, hagfræðingur og þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins, segir að ef gengið verði fest þá þurfi einhver að greiða lækkunina. Engir gjaldeyr- isvarasjóðir séu til staðar og því sé fastgengi ekki góð hugmynd við núverandi aðstæður. Um helmingur af 600 milljarða króna innistæðum erlendra eigenda geti farið úr landi. Bendir Tryggvi Þór á að gjaldeyrisvaraforðinn sé nú rúmir 400 milljarðar króna. „Það er ekki nokkur möguleiki á að verja þetta gengi,“ segir hann og bendir ennfremur á að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn láni ekki löndum til að fjármagna fjármagnsflótta. Tryggvi Þór segir fastgengisstefnuna margsinnis hafa verið prófaða í hagsögunni, bæði hér á landi og annars staðar, og aldrei tekist sem skyldi, sérstaklega við þær aðstæður sem Íslendingar búa við í dag. Eina lausnin sé að koma með áætlanir í ríkisfjármálum til næstu þriggja ára og ljúka endurreisn bankanna. Að því loknu sé hægt að afnema gjaldeyrishöftin og byggja upp trúverðugleika á íslensku efnahagslífi fyrir fjárfesta. Ómögulegt að verja gengið Tryggvi Þór Herbertsson GYLFI Magnússon viðskiptaráðherra segist ekki geta mælt með fastgengisstefnu sem skammtímalausn við þessar aðstæður. Með núverandi gjaldeyrisforða Seðla- bankans og lítið innstreymi gjaldeyris sé engin von til að halda genginu föstu. Hins vegar finnst honum koma til greina að skoða þetta sem framtíðarlausn. „Ef við förum í aðildarviðræður við ESB, og stefnum að því að ganga inn og taka upp evru, þá förum við í fast- gengi gagnvart evru. Mér finnst fyllilega koma til greina, ef við værum byrjuð í þessu ferli, að fá ESB og Seðlabanka Evrópu til að styðja okkur við að ná tökum á gjaldeyrismálum og aflétta gjaldeyrishöftum. Það er eitt af því sem þarf til að geta uppfyllt skuldbindingar EES,“ segir Gylfi en gjaldeyrishöftin byggjast á undanþágu frá reglum EES um frjálst flæði fjármagns. „En það er vonlaust að taka núna upp fastgengisstefnu, sér- staklega ef það á að vera á hærra gengi en verið hefur á markaði. Enginn gjaldeyrisforði er til þess. Það myndi enda með ósköpum, eins og í síðustu tilraun sem entist ekki daginn,“ segir Gylfi. Ekki lausn til skamms tíma Gylfi Magnússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.