Morgunblaðið - 28.05.2009, Page 25

Morgunblaðið - 28.05.2009, Page 25
hann undirgekkst. Hann var mjög máttfarinn og veikur en samt var það alltaf sama kærleiksríka brosið sem tók á móti manni. Þrátt fyrir að vera mjög máttfarinn og veikur í þessi skipti var hann alltaf til í að spjalla um heima og geima, Queen diskinn sem hann var að hlusta á, hvaða trommur hann langaði að fá sér og hvaða tón- leikar væru næst á dagskrá. Allir sem ég þekki, sem þekktu Simma, hafa sömu sögu að segja um hann. Hvað hann var brosmildur, yndislegur og góðhjartaður. Allir kannast jafnframt við þau áhrif sem hann hafði á fólk þar sem jákvæðni hans, bjartsýni og góðmennska smit- aðist yfir á alla sem hann umgekkst. Mig langar að láta fylgja með ljóð eft- ir Jóhönnu Kristjánsdóttur frá Kirkjubóli sem er lýsandi fyrir Simma og hversu stórt skarð hann skilur eftir sig hjá öllum sem hann þekkti og mannlíf Akranesbæjar: Góðum mönnum gefin var sú glögga eftirtekt. Að finna líka fegurð þar, sem flest er hversdagslegt. (J.K.) Að lokum langar mig að kveðja þig, elsku frændi minn og vinur. Ég mun alltaf muna eftir þér og ég mun alltaf sakna þín. Þú hafðir stórkostleg áhrif á líf mitt og ég mun búa að vinskap okkar ævilangt. Þinn vinur og frændi, Árni Freyr Árnason. Elsku Simmi. Þú komst inn í okkar líf 16 ára gamall þegar þú fórst í fram- haldsskóla og fluttir til okkar í Deild- artúnið. Þú varðst strax eins og eitt af okkar börnum. Tumi fór í leikskólann og sagði öllum að hann væri búinn að eignast bróður. Toppurinn var þegar hann fékk að prófa trommukjuðana þína á Macintoshdósinni. Stuttu síðar spurðir þú hvort þú mættir ekki bara segja mamma og pabbi líka og það var auðsótt mál. Ógleymanlegt er þegar hamsturinn dó um vetur og þið settuð hann í frystikistuna. Þegar voraði fóruð þið út í garð og jörðuðuð hann og sunguð Jesú bróðir besti. Anna varð þeirrar gæfu aðnjótandi að hitta þig á öllum bocciamótum. Alltaf komstu hlaupandi, kallaðir „fósturmamma“ og hún fékk risaknús og bjarta brosið þitt ljómaði um allt andlitið. Ófá danssporin tókuð þið og skemmtuð ykkur vel. Við hittum þig síðast í byrjun maí, þú varst svo glaður eins og þú reynd- ar varst alltaf. Þið Anna dönsuðuð lokadansinn og þú gafst henni rauða rós. Það verður tómlegt á næstu mót- um. Elsku Simmi, þakka þér fyrir allt sem þú kenndir okkur og gafst þessi ár sem við áttum saman. Anna Signý, Ingimar og Auður, við samhryggjumst ykkur innilega. Þið óluð upp yndislegan dreng sem var heppinn að eiga ykkur. Anna, Ari, Sunna og Tumi. Til er fólk sem geislar frá sér þvílíkri hlýju, þvílíkri góðvild, sem fylgir svo mikil hóglát gleði, að ekki fer hjá því að þú finnir í návist þess hvað það gerir þér gott. Þegar þetta fólk kemur inn í herbergi er eins og borinn sé inn lampi. (Henry Ward Beecher) Simmi var sannarlega einn af þeim. Hann leit oft inn hjá okkur í bókabúð- inni á leið sinni til vinnu eða í „tónó“. Hann sagði alltaf „bara fínt“, brosti og meinti það og ekkert annað. Helst vildi hann tala við Betu vinkonu en lét hinar duga ef hún var ekki við. Við hefðum vel þegið að heimsóknirnar hans til okkar yrðu fleiri. Hann gaf okkur birtu og gleði skilyrðislaust. Við sendum fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. Minningin um Simma á eftir að lýsa okkur um ókomnar stundir. Fyrir hönd stelpn- anna í Eymundsson á Akranesi, Elísabet Ósk. Þegar ég sit hér og rifja upp minn- ingar um hann Simma frænda minn rennur upp fyrir mér að ég man aldr- ei eftir sjálfum mér nema vita af Simma. Allt mitt líf hefur þessi lífs- glaða persóna gefið mér svo mikið að maður getur aldrei endurgoldið það að fullu. Hann hefur fylgt manni allar götur síðan við bjuggum fyrir vestan og alla leið hingað á Akranes. Því verður það hlé sem við munum taka á því að hittast fremur tómlegt. En þó hefur maður lært það í gegnum árin að lifa með föllnum félögum og ætt- ingjum í hjarta sér og mun nú hefjast enn á ný sá lærdómur nú þegar Simmi hefur kvatt okkur. Síðustu dagar hafa verið virkilega erfiðir og sérstaklega föstudagurinn í síðustu viku þegar ég fékk þær fréttir frá mömmu og pabba að Simmi frændi hefði kvatt. Dagurinn var virkilega erfiður en strax fóru að renna upp fyrir manni skemmtileg augnablik sem maður átti með hon- um. Helgina fyrir andlátið hitti ég Simma. Mig hefði ekki grunað að þetta yrði síðasta skiptið. Við vorum staddir í afmæli á Skrúðgarðinum. Simmi sagði mér að hann hefði sko aldeilis skemmt sér kvöldið áður með frænda sínum þar sem þeir voru að tromma og skemmta sér saman. Oft þá skein þessi geisli sólar bjartur eins og væri Hans eftirlæti. Birtist ávallt bjartur og skær líkt og boðskap hefði fagran að færa. Sest nú að kvöldi sá geisli sólar sem gaf með sinni nærveru kærleik og ljós. Bjart var það bros sem hug okkar fyllti hlýju og birtu sem við búum nú að. Skiptin sem ég hitti hann í fótbolta inni í íþróttahúsi á Jaðarsbökkum eru mér mjög kær því þar skemmtu þeir Anton sér svo konunglega í fótbolta að svoleiðis augnablik munu halda áfram frá fyrsta degi að gefa manni svo mikið. Að lokum vil ég þakka Simma fyrir allar gleðistundirnar sem maður fékk að njóta í hans návist og ég og fjölskylda mín vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Guðmundur Böðvar Guðjónsson. „Tilvera okkar er undarlegt ferða- lag,“ segir í kvæði Tómasar, því „einir fara og aðrir koma í dag.“ Þannig endurnýjar lífið sig í sífellu og þeir sem gengið hafa götuna á enda hverfa okkur sjónum. Sú staðreynd að Simmi, þessi glaðværi og hlýi vinnu- félagi, hverfur okkur sjónum er okkur öllum mjög þung. Með sinni einstöku nærveru gerði hann vinnustað okkar, Fjöliðjuna, að betri stað. Hin ljúfa minning um vin sem hafði að geyma mikinn persónuleika hjálpar. Við fengum að njóta hæfileika hans í tón- list, leik og starfi. Næmi hans og leik- ur á trommurnar hreif okkur eins og alla þá sem á hann hlustuðu. Við störf- in í vinnunni bar tónlist oft á góma og fór ekki á milli mála að í Simma fór mikill smekkmaður í tónlist. Nauðsyn þess að viðhalda og bæta hæfileika sína sem hljóðfæraleikari var oft rædd en í starfsmannahópnum er áratuga reynsla í hljóðfæraleik. Snemma vetrar kom ánægjulegt símtal í Fjöliðjuna þar sem spurt var hvort það væri í lagi að þáttagerðar- fólk Kastljóss kæmi í heimsókn og myndaði Simma við störf sín. Ætlunin væri að fylgja honum í leik og starfi og fjalla um það að hann hafði m.a. spilað með tónlistarmanninum Mug- ison í Bíóhöllinni á Akranesi. Þjóðin fékk svo að sjá afraksturinn af þessari ánægjulegu heimsókn til Simma og fjölskyldu hans í Kastljósþætti í vet- ur. Hver dagur í vinnunni með Simma var okkur gefandi. Hvort sem það var heimsókn Kastljóss eða persónuleg samtöl hans við hvert og eitt okkar. Nærvera hans og birtan sem honum fylgdi var einstök. Í dag kveðjum við starfsmenn Fjöl- iðjunnar þennan góða vin okkar. Hans er og verður sárt saknað og sendum við fjölskyldu Simma okkar innilegustu samúðarkveðjur. F.h. samstarfsfólks í Fjöliðjunni, Guðmundur Páll Jónsson. Kveðja Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. svefnsins draumar koma fljótt. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Kæru Ingimar, Anna Signý og Auður Inga, harmur ykkar er mikill við fráfall Simma, góður drengur með stórt hjarta og bjarta ásýnd, sannur gleðigjafi. Erfitt er að færa í orð þann harm sem að manni sækir við svo ótímabært fráfall góðs drengs. Það sem kemur upp í huga mér þegar ég hugsa til baka um drenginn ykkar er bjart bros, gleði og gæska en líka hafragrautur og malt. Ég held að Simmi hafi verið sendur til okkar á jörðina til að kenna okkur að það er ekkert sjálfgefið í þessum heimi og til að meta hvað skiptir máli í lífinu og hvað ekki. Ein- lægni í framkomu og fasi sem ein- kenndi Simma er öllum til eftir- breytni. Ég vil að lokum þakka Simma fyrir þá birtu og gleði sem hann færði inn í mitt líf og minnar fjölskyldu. Guð geymi þig Simmi minn í faðmi sínum og seinna heyr- umst við og sjáumst. Kæru Ingimar, Anna Signý og Auður Inga innilegar samúðarkveðj- ur og megi góður Guð hugga ykkur og styrkja á þessum erfiðu tímamót- um. Hulda Eggertsdóttir og fjölskylda. Elsku Simmi minn. Það eru algjör forréttindi að hafa fengið að kynnast þér og djúp spor sem þú skilur eftir þig. Nærvera þín var svo ljúf og einkenndist af svo mikilli gleði, jákvæðni og hlýju. Þú varst svo ánægður með lífið og til- veruna. Einstaklega samviskusamur og góð fyrirmynd. Algjör poppari, og snilldartrommari. Þeir verða tómleg- ir dagarnir í vinnunni að hafa þig ekki, vinurinn minn. Það var svo notalegt þegar þú komst inn til mín í hverjum kaffitíma og pásum og sýnd- ir mér hvað vöðvarnir höfðu stækkað mikið frá því daginn áður eftir allan hafragrautinn sem þú varst búinn að borða og spjallaðir við mig um það sem þú varst að fara að gera hverju sinni og ljóminn í augunum leyndi sér ekki eins og þegar þú varst að fara í jeppaferðirnar með 4x4, spila með Mugison, Kastljósþátturinn með þér, og allt sem sneri að fjölskyldunni þinni, sem var þér mjög kær. Takk fyrir allt Simmi minn. Guð gefi fjöl- skyldu þinni og öðrum ástvinum þín- um styrk á erfiðum tímum. Þín vin- kona Selma Sigurðardóttir.  Fleiri minningargreinar um Sig- mund Erling Ingimarsson bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Minningar 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2009 Atvinnuauglýsingar • augl@mbl.is Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Heilsa REYKSTOPP MEÐ ÁRANGRI STREITU- OG KVÍÐALOSUN. Notuð er m.a. dáleiðsla og EFT (Emotional Freedom Techniques). Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur, sérfræðingur í EFT, sími 694-5494, www.EFTiceland.com. Húsnæði í boði Til leigu þriggja herbergja íbúð á tveimur hæðum í miðbænum 101. Leiga 80.000 krónur, fyrirframgreiðsla 80.000 krónur, trygging einn mán. Hentar vel tveimur einstaklingum Meðmæli skilyrði. Upplýsingar í síma 561 4467 og 553 5124. Atvinnuhúsnæði Við Síðumúla eru til leigu tvö 100 fm skrifstofuhúsnæði sem hægt er að sameina í eitt húsnæði, í mjög góðu standi. Uppl. í síma 896-8068. Húsnæði óskast Reglusamur, reyklaus og góður leigjandi Ég er 24 ára kona sem leita að ein- staklingsíbúð í Vestur-, mið- eða Austurbænum. Hámarksleiga 90.000 (allt innifalið). Vinsamlegast hringdu í s: 695 7263 ef þér líst á þetta. Húsnæði óskast, pnr. 101 eða 107 Norðm. reyklaust par v/Háskóla Ísl. 1.8.09 - 1.7.10, vantar 3ja herb. íb. m. húsg. og sturtu. Vinsaml. sendið símanr. m. SMS í 0047-98 64 82 77 Einnig E-mail með upplýsingum á gunhildrf@hotmail.com Atvinnuhúsnæði Til leigu 416 fm atvinnuhúsnæði með 16 fm millilofti og glæsilegri aðstöðu fyrir framan, gott auglýs- ingagildi á besta stað við Smiðjuveg. Tvær stórar innkeyrsludyr og 5 metra lofthæð, 2 bílalyftur, loftpressur og fleira getur fylgt. Hentar vel undir bílaverkstæði eða þess háttar. Uppl. í s. 820 5207. Hárgreiðslustofa / verslunar- húsnæði til leigu. Staðsett í 101, góð leigukjör. Sími 588-7432 eða 848-2182. Sumarhús Sumarbústaðaland til sölu Sölusýning á laugardag kl. 13-16 í landi Kílhrauns á Skeiðum. Kalt vatn, sími og rafmagn að lóðarmörkum. Verið velkomin. Hafið samband í síma 824 3040 eða 893 4609. www.kilhraunlodir.is Rotþrær-siturlagnir Heildarlausnir - réttar lausnir. Heildarfrágangur til sýnis á staðnum ásamt teikningum og leiðbeiningum. Borgarplast, www.borgarplast.is s. 561 2211 - Völuteigi 31 - Mosfellsbæ. Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Iðnaðarmenn Pípulagningaþjónusta Jónas pípulagningameistari. S: 896-0074. Námskeið Byrjendanámskeið í tennis Skemmtileg byrjendanámskeið í tennis fyrir fullorðna í sumar. Sumar- skráning hafin. Tíu tíma námskeið. Upplýsingar í síma 564 4030 og á tennishollin.is Til sölu Tékkneskar og slóvenskar gæða gjafavörur á góðu verði. Slóvak kristall, Dalvegi 16b, Kópavogi. S. 544 4331. Verslun Freemans - póstverslun Freemanslistinn er yfir 1200 bls. Þægilegur verslunarmáti, góð verð. Pöntunarsíminn er 565 3900 eða www.freemans.is Ath. listinn er frír út júní. Óska eftir KAUPI GULL Ég Magnús Steinþórsson, gull- smíðameistari er að kaupa gull, gullpeninga og gullskartgripi og veiti ég góð ráð og upplýsingar. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Upplýsingar hjá demantar.is og í síma 699-8000, eða komið í Pósthússtræti 13. Bókhald Bókhald - Framtöl Framtals- og bókhaldsþjónusta - VSK uppgjör, stofnun EHF. erfðarfjár- skýrslur o.fl. Sanngjarnt verð. Uppl. í s. 517-3977. Ýmislegt People wanted for photographic project People wanted to pose for photo- graphy project. Must be available some weekends. Aged 21-100, everybody welcome. tony@icelandaurora.com & hanna@icelandaurora.com Blómaskór. Margir litir. Eitt par 1.000 kr., tvö pör 1.690 kr. Póstsendum. Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.