Morgunblaðið - 28.05.2009, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2009
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
„ÞETTA hefur verið algjör bylt-
ing. Maður verður aftur þátttak-
andi í lífinu og á sér líf eftir vinnu,“
segir Bergþóra Bergsdóttir um lyf-
ið tysabri sem hún tekur ásamt 42
öðrum Íslendingum sem greindir
hafa verið með MS (multiple scle-
rosis).
Bergþóra tók í gær þátt í
hátíðarhöldum á fyrsta alþjóða
MS-deginum. Voru hátíðarhöldin
hluti af fyrsta samræmda al-
þjóðaátakinu til að vekja athygli á
útbreiðslu MS og baráttumálum
MS-félaga í rúmlega 50 löndum.
Bergþóra á ennfremur heiðurinn
af óformlegri símakönnun sem MS-
félagið lét gera á meðal 29 þeirra
MS-sjúklinga sem eru á lyfinu ty-
sabri. Þar kom fram að 93% þeirra
einstaklinga sem neyta lyfsins og
rætt var við sögðu sér líða betur.
72% höfðu ekki fengið MS-kast frá
því að þeir fóru að nota lyfið og
93% töldu lífsgæði sín hafa aukist.
Þeir þurfi nú á minni þjónustu að
halda en áður.
Væri ekki á vinnumarkaði
Þetta segir Bergþóra end-
urspegla sína eigin líðan, en hún
greindist með MS 2004 og hefur
verið á lyfinu í rúmt ár.
„Ef ég hefði ekki farið á tysabri
þá væri ég líklega ekki á vinnu-
markaði í dag,“ segir hún. „Þetta
hefur verið algjör bylting í mínu lífi
og ég er farin að gera aftur hluti
sem ég var hætt að láta mig
dreyma um.“ Þannig séu útilegur
nú aftur komnar á dagskrá, auk
þess sem hún geti stundað hjólreið-
ar og sinnt heimilinu. Hlutir sem
flestum þyki sjálfsagðir, en séu það
síður en svo fyrir alla. „Nú metur
maður þessa hluti líka enn meira.“
Könnun MS-félagsins er einnig
samhljóma nýlegum dönskum,
þýskum og bandarískum rann-
sóknum á virkni lyfsins.
„MS-fólk veit vel að tysabri
læknar ekki MS, heldur er það
hamlandi lyf sem hindrar fram-
gang sjúkdómsins um 80%,“ segir
Sigurbjörg Ármannsdóttir, for-
maður MS-félagsins, og Bergþóra
bendir á að ný sænsk könnun hafi
þó sýnt tysabri gera við skaða á
míelíni, slíðrinu sem umlykur
taugaenda miðtaugakerfisins.
8-10 manns greinast með MS ár
hvert og eru 75% þeirra sem það fá
undir 35 ára aldri er þeir greinast.
„Maður verður aftur
þátttakandi í lífinu“
Morgunblaðið/Golli
MS-dagurinn haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn Bergþóra segir að fyrir til-
stilli tysabri geti hún gert hluti sem hún var hætt að láta sig dreyma um.
93% þeirra MS-sjúklinga sem taka tysabri telja lífsgæði
sín aukast Könnunin samhljóða erlendum rannsóknum