Morgunblaðið - 28.05.2009, Page 15

Morgunblaðið - 28.05.2009, Page 15
Fréttir 15ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2009 Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is ÞEGAR litlar þjóðir eiga stór ríki að granna er alltaf um þrýsting að ræða, þetta á við um Norðurlöndin og Rússland og þetta á við um Bandaríkin og Kanada,“ segir Thor- vald Stoltenberg, fyrrverandi utan- ríkis- og varnarmálaráðherra Nor- egs. Hann segist þó ekki óttast árás af hálfu Rússa vegna deilna um norðurslóðir. „En ég hef áhyggjur af því að ef við gætum ekki núna hags- muna okkar á svæðinu muni fara svo að Rússar verði af hálfu um- heimsins taldir eins konar yfirum- sjónarmenn með þessum slóðum.“ Hann sagði að sjálfsagt væri að eiga gott samstarf við Rússa um þessi mál en Norðurlöndin yrðu að sinna vel eigin hagsmunum. Um- mælin féllu á opnum fundi sem Al- þjóðamálastofnun H.Í., utanríkis- ráðuneytið og norska sendiráðið efndu til í gær í hátíðarsal Háskól- ans. Umræðuefnið var skýrsla Stol- tenbergs frá því í febrúar um nor- rænt samstarf í utanríkis- og öryggismálum næstu 10-15 árin. Stoltenberg fékk það hlutverk í fyrra að gera umrædda skýrslu en þar leggur hann meðal annars til Norðurlöndin taki í sameiningu að sér gæslu loftrýmis við Ísland. Einnig að ríkin efli með sér sam- starf á sviði öryggis- og varnarmála, við uppbyggingu friðar og við frið- arumleitanir og vinni saman að því að tryggja öryggi og hagsmuni sína gagnvart öðrum ríkjum sem gera tilkall til ítaka á norðurslóðum. Stoltenberg sagði aðstæður breytast hratt, ef hann hefði verið spurður um tillögur af þessu tagi fyrir tveim eða þrem árum hefði hann talið að þær kæmu of seint fram. En nú væri hann mjög bjartsýnn. Hnattvæðing ýtti undir og hvetti til staðbundins samstarfs, stækkun bæði ESB og NATO gerði náið sam- starf Norðurlandabúa í reynd enn mikilvægara en fyrr. Hlýnun á norð- urslóðum og bráðnun íssins gæti innan fárra ára valdið því að hægt yrði að sigla yfir svæðið milli Kyrra- hafs og Atlantshafs. Umskiptin myndu hafa geysimikil áhrif á stöðu Norðurlanda sem væru öll hags- munaðilar með einhverjum hætti á þessum slóðum. Varnarbandalag Norðurlanda? Eitt af því sem væri mjög brýnt væri að efla viðbúnað vegna slysa sem menn yrðu að búa sig undir þegar siglingar stórra skipa yfir heimskautssvæðið færu að aukast og jafnframt yrði að tryggja að um- hverfinu yrði ekki spillt. Hann var spurður hvort tillögur hans um aukna samstöðu Norður- landanna væru ísmeygileg tilraun til að koma á varnarbandalagi Norð- urlanda en hugmyndir af því tagi runnu út í sandinn skömmu áður en NATO var stofnað 1949. „Nei en þetta er eins konar yf- irlýsing til annarra Norðurlanda um að ef þau þurfi aðstoð vegna nátt- úruhamfara eða annarra áfalla eða þurfi til dæmis varahluti muni þau fá slíka hjálp,“ svaraði Stoltenberg. „Það er ekki neitt í þessum tillögum um stofnun norræns varnarbanda- lags en auðvitað er ekki útilokað að til slíkra hluta geti komið. Þessar hugmyndir myndu ekki skaða á nokkurn hátt starf sumra norrænu ríkjanna í NATO eða ESB. Öðru nær, þær myndu efla það.“ Sameiginlegir hagsmunir í húfi  Stoltenberg bjartsýnn á að norrænt samstarf í öryggismálum verði eflt  Ríkin verði að tryggja að Rússar verði ekki allsráðandi á norðurslóðum Morgunblaðið/Eggert Samstarf Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkis- og varnarmálaráð- herra Noregs: „Þessar hugmyndir myndu ekki skaða á nokkurn hátt starf sumra norrænu ríkjanna í NATO eða ESB. Öðru nær, þær myndu efla það.“ Í HNOTSKURN »Eftir seinni heimsstyrjöldræddu fulltrúar Norður- landanna hugmyndir um sam- starf á sviði varnar- og örygg- ismála. Þær runnu út í sandinn og svo fór að þrjú ríkjanna, Noregur, Danmörk og Ísland, urðu stofnaðilar NATO 1949. »Rússar hafa fært sig mjögupp á skaftið á Norð- urslóðum síðustu árin og virð- ast oft herskáir, bæði í tali og aðgerðum. »Gert er ráð fyrir að mikilauðæfi, olía, gas og ýmsir málmar, séu á hafsbotni á svæðinu og verði hægt að vinna þau ef ísinn bráðnar. FIMM ára, rússnesk stúlka, sem bjó hjá frændfólki sínu, getur ekki talað en geltir eins og hundur og borðar án þess að nota hendurnar. Talið er að stúlkan hafi aldrei fengið að fara út úr íbúðinni þar sem hún bjó með frændfólki sínu og fjölda hunda og katta í Tsíta í austurhluta Síberíu. Barnaverndaryfirvöld segja að litla stúlkan hafi flaðrað eins og hvolpur upp um fulltrúa þeirra er þeir komu á staðinn. Þá stekkur hún geltandi á hurðina þegar hún er skil- in ein eftir í herbergi. Stúlkan er sögð skilja rússnesku en hún talar hana ekki. Hún nýtur nú umönnunar lækna og sálfræð- inga, er sögð við góða heilsu og hafa góða matarlyst en henni gengur ekki vel að læra að nota hnífapör. Dmítrí Medvedev Rússlandsforseti hvatti nýlega til þess að áhersla yrði lögð á að koma í veg fyrir illa með- ferð á börnum í landinu. kjon@mbl.is Fyrirmyndir Hundar og kettir geta stundum verið góðir vinir. Geltir eins og hundur Lítil stúlka nánast alin upp af dýrum Ef þú ert að íhuga að ferðast innanlands í sumar þá ættir þú að nýta þér sértilboð Norrænu og koma við í Færeyjum. Það tekur aðeins 14.5 tíma að sigla til Færeyja og á leiðinni upplifir þú á hversu hrífandi hátt eyjarnar rísa úr hafinu. Það er enginn staður á jörðinni líkur eyjunum. Menningararfur og náttúrufegurð eru við hvert fótmál. Stórfengleg fjöll og björg skera eyjarnar í kynleg mynstur, endalausir litir og ilmur, einstök birta og sérstakt dýralíf sem er skemmtilegt að sjá og heyra. Færeyjar er alveg einstakur staður sem býður upp á að tengja saman ró og frið ásamt náttúru- og menningarupplifun. FÆREYJAR -DANMÖRK -EVRÓPA B E T R IS TO FA N Verð frá k r. 32.000 á mann m .v. fjóra í 4m. klef a/inn á m iðannatím abili ásam t bíl aðra leið . Verð frá k r. 69.200 m .v. einn í 4m. klefa / inn á mið annatím abili ásam t bíl aðra leið. 32.000 DANMÖRK ÓDÝRT SUMARFRÍ MEÐ NORRÆNU AKTU HRINGVEGINN MEÐVIÐKOMU ÍFÆREYJUM! Verð frá 10 .400 á ma nn í klefa. Verð miða st við að 4 ferðist sam an með bí l og gisti í k lefa. Gildir aðe ins í eftirtö ldum brot tförum: Frá Seyðis firði 20/5, 27/5 og 3/ 6 Frá Færey jum 25/5,1 /6 og 8/6 10.400 FÆREYJAR SÉRTILBOÐ Ferðaskrifstofa &?S@CMB;@C ?LÊ;G»F;MNI@O Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík · Sími: 570 8600 Fax: 552 9450 · info@smyril-line.is www.smyril-line.is Smyril Line Ísland NORRÆNANjóttu danska vorsins eða sumarsins í notalegum akstri um Danmörku. Leigðu þér sumarhús eða gistu á einhverju af þeim fjöldamörgu tjaldsvæða sem eru í boði um alla Danmörku. Fyrir þá sem ætla að gista á tjaldsvæðum er gott að skoða tengla okkar á heimasíðu smyril-line.is Breytt áætlun Norrænu skilar styttri siglingartíma -sjá www.smyril-line.is DANMÖRK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.