Morgunblaðið - 28.05.2009, Side 33

Morgunblaðið - 28.05.2009, Side 33
Menning 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2009 Það er sniðug stikla á You-Tube er ber söguþráð nýj-ustu Star Trek-mynd- arinnar saman við fyrstu Stjörnustríðsmyndina. Skjánum er skipt í tvennt og sýnt úr báðum myndum á meðan ungæðisleg rödd þylur eftirfarandi söguþráð: „Myndin byrjar á því að lítið geim- skip verður fyrir árás stærra geimskips. Næst kynnumst við ungum og uppreisnargjörnum sveitapilti er hefur búið með stjúp- foreldrum sínum og dreymir um ævintýri í geimnum. Svo hittir pilturinn eldri vitring sem þekkti föður hans sem reynir svo að lokka hann með sér í glæfralega geimför. Næst er skemmtileg sena þar sem sveitapilturinn fer á bar troðinn geimverum. Seinna fer hann svo í björgunarleiðangur með persónu sem hann fyrst þolir ekki … en verður svo hans besti vinur. Saman sprengja þeir hið illa, risavaxna geimskip er getur rústað heilum plánetum. Myndin endar svo á glæsilegri verðlauna- athöfn.“ Glöggir lesendur, er hafa séð fyrrnefndar myndir, sjá að þessi lýsing getur átt við þær báðar. Þó svo að tónn og yfirbragð nýju Star Trek sé nær Stjörnustríði en áður eru þær í kjarna sínum afar ólík- ar.    Undirritaður þorir að fullyrðaað það sé beinlínis hættulegt að rugla þessum tveimur heimum saman vilji menn ekki blóðug átök „trekkara“ og „Jedi-riddara“ á bílaplaninu fyrir utan Nexus við Hverfisgötu. Í áraraðir hefur nefnilega ríkt eins konar „Duran Duran gegn Wham“-pirringur á meðal hörðustu aðdáenda þessara fylkinga. Eins og við sáum í Kast- ljósi um daginn hittist fólk í Reykjavík á laun, uppklætt í bún- inga Stjörnuflotans, til þess að lesa upp úr biblíunni á tungumáli Klingona … (í alvöru … svaðilfarir Jesú voru gefnar út á klin- gónsku!). Hugmyndafræði Jedi- riddaranna úr Star Wars hefur svo verið gerð að opinberum trúarbrögðum í Bandaríkjunum! Það er því óhætt að fullyrða að báðar fylkingar hafi haft afger- andi áhrif á líf dagdreymandi fólks víðs vegar á plánetunni jörð.    En hver er helsti munurinn áallri þessari vitleysu og af hverju rekast hóparnir á? Rökin hljóða yfirleitt eins: Jedi- riddarar kvarta yfir öllu háfleyga tækniþvaðrinu í Star Trek („prep- are the Red-matter!“) og þeirri staðreynd að allar verur í geimn- um eru í laginu eins og mann- skepnan og tala ensku. Trekkarar kvarta yfir tilfinningalegum flækj- um („Luke, I … am your father!“) og notkun galdra („Use the force, Luke!). Þegar allt kemur til alls má þess vegna skrifa þennan ágrein- ing á árekstur tveggja andstæðra póla; hins huglæga og hins áþreif- anlega. Trekkarar laðast að röð og reglu, trúa á yfirburði manns- ins og að allt megi útskýra (ensk- an er t.d. þýdd með litlum tölvum í eyrum fólks ) með vísindum. Þannig er sjálf tilvist Guðs út- skýrð á afar áþreifanlegan og vís- indalegan hátt í kvikmyndinni Star Trek V: The Final Frontier. Þema Star Wars er fyllt meiri dulúð. Jedi-riddarar kjósa að trúa á æðri mátt framar mannlegum yfirburðum. Þeir lúta kaótískum lögmálum náttúrunnar og með andlegri iðkun geta þeir öðlast hugarró er gefur þeim dýpri skiln- ing til þess að nýta sér hinn óá- þreifinlega og óútskýrða kraft er býr í öllu. Svart og hvítt er hægt að sjá þetta þannig: Guðlaus rök- hyggjan ræður ríkjum í Star Trek en Guð (æðri „máttur“ – the force – eða hvað sem þú vilt kalla hann) í Stjörnustríði. biggi@mbl.is Munurinn á Star Trek og Star Wars AF LISTUM Birgir Örn Steinarsson » Þegar allt kemur tilalls má þess vegna skrifa þennan ágreining á árekstur tveggja and- stæðra póla; hins hug- læga og hins áþreif- anlega. Star Trek Spock er birtingarmynd hins rökræna og áþreifanlega. Star Wars Yoda er birtingarmynd hins huglæga og óáþreifanlega. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is Ó, þú aftur - afmælissýning leikhópsins Hugleiks (Smíðaverkstæðið) Frida... viva la vida (Stóra sviðið) Vínland - athyglisverðasta áhugaleiksýningin 08/09 (Stóra sviðið) Dreams 2009 - alþjóðleg döff leiklistarhátíð (Kassinn) Kardemommubærinn (Stóra sviðið) Fim 28/5 kl. 20:00 Fös 11/9 kl. 20:00 Frumsýn. Lau 12/9 kl. 20:00 2. sýn. Fös 18/9 kl. 20:00 3. sýn. Fös 12/6 kl. 20:00 Fim 28/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00 Lau 30/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00 Lau 19/9 kl. 20:00 4. sýn. Fös 25/9 kl. 20:00 5. sýn. Lau 26/9 kl. 20:00 6. sýn. Fös 2/10 kl. 20:00 7. sýn. Lau 3/10 kl. 20:00 8. sýn. Lau 6/6 kl. 14:00 U Lau 6/6 kl. 17:00 U Sun 7/6 kl. 14:00 U Sun 7/6 kl. 17:00 U Lau 13/6 kl. 14:00 U Fös 29/5 kl. 18:00 U Lau 30/5 kl. 14:00 U Lau 30/5 kl. 17:00 U Fim 4/6 kl. 18:00 U Fös 5/6 kl. 18:00 U Lau 13/6 kl. 17:00 U Sun 14/6 kl. 14:00 U Sun 14/6 kl. 17:00 U Sun 30/8 kl. 14:00 Sun 30/8 kl. 17:00 Í samstarfi við Draumasmiðjuna Aðeins ein sýning, tryggið ykkur sæti í tíma Snarpt sýningatímabil - miðaverð aðeins 1.500 kr. 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Söngvaseiður (Stóra sviðið) Sannleikurinn (Stóra sviðið) Lau 20/6 kl. 19:00 stóra svið Lau 27/6 kl. 19:00 stóra svið Fös 3/7 kl. 19:00 stóra svið Lau 11/7 kl. 19:00 stóra svið Lau 18/7 kl. 19:00 stóra svið Ökutímar (Nýja sviðið) Fim 28/5 kl. 20:00 10kort U Fös 29/5 kl. 19:00 Ö Síðustu sýningar. Við borgum ekki – frumsýning 6. júní Við borgum ekki (Nýja sviðið) Uppsetning Nýja Íslands. Fös 5/6 kl. 20:00 fors. Lau 6/6 kl. 19:00 frums.U Mið 10/6 kl. 20:00 Fim 11/6 kl. 20:00 Fös 12/6 kl. 20:00 Lau 13/6 kl. 20:00 Sun 14/6 kl. 20:00 Fim 18/6 kl. 20:00 Fim 28/5 kl. 20:00 U Fös 29/5 kl. 20:00 U Lau 30/5 kl. 20:00 U Mán 1/6 kl. 16:00 ný aukaU Mið 3/6 kl. 20:00 U Fim 4/6 kl. 20:00 U Fös 5/6 kl. 20:00 ný aukasU Lau 6/6 kl. 16:00 U Lau 6/6 kl. 20:00 U Sun 7/6 kl. 16:00 U Fim 11/6 kl. 20:00 U Fös 12/6 kl. 20:00 ný aukasU Lau 13/6 kl. 14:00 U Sun 14/6 kl. 16:00 U Fös 4/9 kl. 19:00 aukas Lau 5/9 kl. 19:00 aukas Sun 6/9 kl. 19:00 aukas Fim 10/9 kl. 19:00 aukas Fös 18/9 kl. 20:00 aukas Lau 19/9 kl. 19:00 Ö Söngvaseiður. Sala hafin á sýningar í haust. Djúpið (Litla sviðið) Fös 5/6 kl. 20:00 frums. Lau 6/6 kl. 16:00 Fim 11/6 kl. 20:00 Fös 12/6 kl. 20:00 Fim 18/6 kl. 20:00 Fös 19/6 kl. 20:00 Munið afslátt fyrir viðskiptavini Vodafone! Leikfélag Akureyrar Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is Fúlar á móti ATH! sýnt í Íslensku Óperunni Sími 511 4200 Takmarkaður sýningafjöldi Fim 28/5 kl. 20:00 Ný sýnU Fim 4/6 kl. 20:00 Ný sýn U Fös 5/6 kl. 20:00 Ný sýn Ö Lau 6/6 kl. 20:00 Ný sýn Ö Sun 7/6 kl. 20:00 Ný sýn Ö Menningarmiðstöðinni Gerðubergi Fimmtudaginn 28. maí kl. 17 Laugardaginn 30. maí kl. 14 Dans og söngleikur fyrir börn á öllum aldri Miðapantanir á lydveldisleikhusid@gmail.com Miðar einnig seldir við innganginn Nánari upplýsingar á www.this.is/great TÆPUM þremur árum eftir að James Brown dó er loksins búið að deila út dánarbúi hans. Fyrir tveimur árum hófst mikil lagadeila á milli eig- inkonu hans og sex barna úr fyrri samböndum um hver ætti rétt á hverju en dæmt var í málinu í gær. Samkvæmt dómnum fer um helmingur eigna Brown í sjóð sem ætlaður er til góðgerðamála. Fjórðungur fer til eig- inkonu hans og sonar þeirra en restin skiptist jafnt á milli hinna barna hans. Einnig kom fram í dómnum að fjölskyldu Browns beri skylda til þess að koma uppi safni eða annars konar minnisvarða sem heiðrar minningu soul- konungsins látna. Hugmyndir eru uppi um að opna hús hans fyrir almenn- ingi og gera það að eins konar safni eins og Graceland varð eftir dauða Elvis Presleys. Eiginkona Browns, Tomi Rae Hynie Brown, kemur til með að hafa um- sjón yfir sjóðnum. Hún segir að markmið hans verði að veita börnum fá- tækra fjölskyldna styrki til menntunar. Dæmt um dánarbú Browns James Brown Myndin er tekin á tónleikum Browns í Laugardalshöll. , ,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.