Morgunblaðið - 28.05.2009, Page 16
16 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2009
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
Fæstir hafa hugmynd umhvað það er mikið líf írannsóknum í stærðfræði.Ég tek eftir því þegar ég
er að kenna að nemendur eru oft
undrandi að það sé eitthvað til ennþá
sem hægt sé að rannsaka, þeir halda
að þetta hafi allt verið gert um 1800,“
segir Gestur Ólafsson, doktor í
stærðfræði.
Gestur hefur verið prófessor við
Louisiana State University í Banda-
ríkjunum frá árinu 1996 og hlaut nú í
maí heiðursverðlaun fyrir rannsóknir
sínar og kennslu við skólann. Í rök-
stuðningi fyrir verðlaununum kemur
fram að Gestur sé meðal fremstu
stærðfræðinga í heiminum, hafi gefið
út yfir 70 ritrýndar greinar í fagtíma-
ritum og stundað þýðingarmiklar
rannsóknir sem víða sé vitnað til.
Hugmyndaflug nauðsynlegt
Sjálfur segir Gestur stærðfræðina
ekki alla tíð hafa verið sína köllun.
Eftir útskrift úr Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1972 hafi hann tekið
sér árs frí til að velta næsta skrefi
fyrir sér.
„Ég var að dunda við að mála og
hafði líka áhuga á heimspeki,“ segir
Gestur sem setti m.a. upp myndlist-
arsýningu í Menntaskólanum, en eft-
ir að hann skráði sig í háskóla fann
hann sig fljótt í stærðfræðinni.
Algengt er að dregin sé upp mynd
af raungreinum og húman- ískum
fögum sem höfuðandstæðum en
þetta er einföldun að mati Gests.
„Það er gjörsamlega ómögulegt að
stunda stærðfræði án þess að hafa
sköpunargáfu. Þetta er mjög skap-
andi fag og þú þarft að hafa hug-
myndaflug til að finna hvert á að leita
í rannsóknum. Annars kemstu ekk-
ert áfram.“ Sjálfur stundar Gestur
rannsóknir af miklu kappi um allan
heim þótt hann hafi líka gaman af
kennslunni. Hans helstu viðfangsefni
eru á sviði sem kallast sveiflugrein-
ing á íslensku.
Margir sjá kannski stærðfræðina
fyrir sér sem heldur þurra fræði-
mennsku en lýsing Gests á eigin
starfi er á allt öðrum nótum.
„Það eru alltaf ný vandamál sem
koma upp og maður ferðast um,
skrifar með öðrum og sér heiminn í
leiðinni. Stærðfræðin er mjög al-
þjóðlegt tungumál í vísindum, jafnvel
þegar maður lítur japanskan texta
eru formúlurnar þær sömu.“
Þótt hann hafi komið sér vel fyrir á
landareign sinni í Louisiana segir
Gestur ólíft þar á sumrin fyrir hita,
og þá nýtir hann einmitt tímann til að
„fara á flæking“ og sinna rann-
sóknum í Evrópu og Japan.
Heilinn tekur völdin
Tískusveiflur ráða stundum för í
stærðfræðinni eins og annars staðar
að sögn Gests. Ákveðin fræðileg
vandamál séu mjög vinsæl á tímabili
en svo ýmist leysist þau eða áhuginn
dofni og það eigi m.a. við um hans
sérsvið sem hafi notið hvað mestra
vinsælda um 1970-80.
„Til þess að vera góður stærðfræð-
ingur þarf að hafa gaman af því að
glíma við vandamál, því stundum er
maður árum saman að komast að nið-
urstöðu. Það þarf þolinmæði og
þrautseigju,“ segir Gestur, en bætir
því þó við að stundum taki heilinn
völdin og haldi áfram að vinna þótt
andinn gefist upp.
„Oft situr maður og kemst ekkert
áfram, klórar sér í höfðinu, bölvar og
verður skapillur. Svo hættir maður
að hugsa um það og þá gerist það oft
að einn góðan veðurdag vaknar mað-
ur með lausnina.“
Engin leið að hætta
Gestur segir viðfangsefnin óþrjót-
andi enda fái stærðfræðingar yfirleitt
auðveldlega vinnu. „Fólk hefur jafn-
vel ekki hugmynd um að það sé
stærðfræði sem liggur að baki far-
símum og öllu mögulegu sem það
leikur sér með í dag.“
Hann segist líklega aldrei hætta
jafnvel þótt aldur færist yfir. „Þótt ég
færi á ellilífeyri, þá héldi ég áfram.
Þú hættir ekki í stærðfræði, hún
verður svo stór hluti af manni.“
Gaman að glíma við vandamál
Heiður Gestur, til hægri, tekur við heiðursverðlaunum við Louisiana-skóla.
Oft situr maður og kemst
ekkert áfram, klórar sér í
höfðinu, bölvar og verður
skapillur. Svo einn góðan
veðurdag vaknar maður
með lausnina.
Hún er spennandi, lífleg,
krefst mikillar sköp-
unargáfu og hugmynda-
flugs. Þannig lýsir Gestur
Ólafsson, heiðurspró-
fessor í Bandaríkjunum,
faginu sem á hug hans
allan í rannsóknum og
kennslu, stærðfræðinni.
ÍSLENDINGAR hafa getið sér
gott orð í stærðfræði víðar í
Bandaríkjunum en við LSU.
Sigurður Helgason prófessor
við MIT hefur t.d. verið fram-
arlega á sínu sviði um áratuga-
skeið og störf hans vel þekkt.
„Svo eru fleiri Íslendingar sem
maður heyrir getið um af og til,
miðað við hvað landið er lítið
hafa Íslendingar mjög fólk gott í
ýmsum greinum,“ segir Gestur.
Hann segist sjálfur búa að
grunnnáminu í MR og Háskóla
Íslands, áður en hann fór í meist-
ara- og doktorsnám til Þýska-
lands.
„Að mörgu leyti er gott að
byrja námið á Íslandi þar sem
maður hefur persónulegra sam-
band við kennarana. Á Íslandi
lærði ég oft mun meira á því að
tala við prófessorana, þeir sögðu
mér sögur úr stærðfræðinni. Í
stóru háskólunum er þetta alveg
horfið, maður er upp á sjálfan sig
kominn og prófessorarnir fjar-
lægir.“
Gott orðspor Íslendinga
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 Re y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | s í m i : 5 6 8 6 8 8 0 | w w w. h e y r n a r t a e k n i . i s
Pantaðu tíma í fría
heyrnarmælingu í síma
568 6880
Allt frá árinu 2001 hefur Heyrnartækni boðið upp á mikið úrval vandaðra
heyrnartækja frá Oticon. Í dag er útlit heyrnartækja frá Oticon þannig að þau eru
nánast því ósýnileg bakvið eyrun og tæknin svo fullkomin að hún kemur notendum
nær eðlilegri heyrn en nokkrun tímann fyrr.
Heyrnartækni er leiðandi fyrirtæki í þjónustu við heyrnarskerta á landsbyggðinni.
Auk daglegrar þjónustu í Reykjavík þá bjóðum við reglulega upp á heyrnarmælingar
og heyrnartækjaþjónustu á 18 stöðum á landsbyggðinni.
Bjóðum upp margar gerðir heyrnartækja í ólíkum verðflokkum.
Heyrðu betur
með vönduðu
heyrnartæki
www.heyrnartækni . is
ÞRETTÁN stærstu bæir Noregs
hafa sameinast um aðgerðir sem
leiða munu til 35% samdráttar í los-
un gróðurhúsalofttegunda fyrir ár-
ið 2030, miðað við það sem var
1991. Bæirnir þrettán taka þátt í
verkefninu „Framtidens byer“, sem
norska umhverfisráðuneytið
hleypti af stokkunum á síðasta ári í
samstarfi við bæina. Verkefnið
stendur til ársins 2014 og snýst um
að finna leiðir til að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda. Þegar
áhrif aðgerðanna voru kynnt ný-
verið kom m.a. fram að með þessu
næðu bæirnir enn betri árangri en
stefnt er að í norsku loftslagssátt-
inni (Klimaforliket). Einnig kom
fram að þegar tekið væri tillit til
spár um fjölgun íbúa í bæjunum,
samsvaraði árangurinn í raun allt
að því 60% samdrætti í losun á
hvern íbúa. Um leið myndu lífsgæði
í bæjunum aukast, þar sem aðgerð-
irnar fælu m.a. í sér fjölgun hjól-
reiðastíga, minni bílaumferð, betri
lausnir í fráveitu- og endurnýting-
armálum, auðveldari aðgang að
endurnýjanlegri orku og aukna
hæfni til að aðlagast loftslagsbreyt-
ingum.
Bæir
sameinast
um losun
Morgunblaðið/Ómar
Losun Mikil loftslagsmengun
kemur frá bílaflotanum.
ÞEIR sem drekka úr flöskum úr
svokölluðu pólýkarbónatplasti hafa
mun hærri styrk af efninu bisfe-
nól-A (BPA) í þvagi en þeir sem
ekki drekka úr slíkum flöskum.
Þetta kemur fram í nýrri rannsókn,
sem sagt er frá í vísindatímaritinu
Environmental Health Per-
spectives. BPA-styrkur í þvagi
þeirra sem þátt tóku í rannsókninni
hækkaði um 69% á einni viku. Vik-
una á undan forðuðust þátttak-
endur að drekka úr plastflöskum,
en í rannsóknarvikunni notuðu þeir
pólýkarbónatflöskur undir nær alla
kalda drykki sem þeir innbyrtu.
BPA er grunneiningin í pólý-
karbónatplasti, sem hefur það fram
yfir flest annað plast að hægt er að
framleiða úr því glæra, sveigj-
anlega og nær óbrjótanlega hluti á
borð við drykkjarflöskur.
Hormónatruflandi efni
Slíkar flöskur eru einkar vinsæl-
ar undir íþróttadrykki. Pólý-
karbónat er einnig notað í pela fyr-
ir ungbörn o.fl. Í Kaliforníu og
Minnesota eru pelar með BPA
bannaðir, en í löndum Evrópusam-
bandsins eru þeir taldir hættulaus-
ir. BPA er þó á lista sambandsins
yfir hormónatruflandi efni.
Efni úr
plastflösk-
um í þvagi
Vinsælar flöskur
undir íþróttadrykki