Morgunblaðið - 03.07.2009, Síða 2

Morgunblaðið - 03.07.2009, Síða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Ævisaga Sigurðar prests Stefánssonar rituð af honum sjálfum LOKSINS KOMIN! ÆVISAGAN SEM BEÐIÐ HEFUR VERIÐ EFTIR Í 85 ÁR Eftir Önund Pál Ragnarsson og Skapta Hallgrímsson BANASLYS varð í Selárdal skammt frá Vopnafirði á fimmta tímanum í gær, þegar fjögurra sæta flugvél af gerðinni Cessna 180, með skráning- arnúmerið TF-GUN, brotlenti stein- snar frá veiðihúsinu Hvammsgerði. Tveir voru í vélinni, sem var smíð- uð árið 1963, þegar slysið varð. Ann- ar þeirra, karlmaður um fimmtugt, lést. Ekki er hægt að greina frá nafni hans að svo stöddu. Hinn, karlmaður á sextugsaldri, slasaðist alvarlega og var sendur með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Ekki fengust upplýs- ingar um líðan hans í gærkvöldi. Vélin var nýlögð af stað frá Vopna- firði og gerði flugáætlun ráð fyrir lendingu á Tungubakkaflugvelli í Mosfellsbæ klukkan sex í gærkvöldi. Fljótlega eftir að flugvélin fór í loftið bárust flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík þær upplýsingar frá Neyðarlínu að hún hefði brotlent. Tildrög slyssins voru þau að vélin flaug á rafmagnsvír rétt hjá veiði- húsinu. Björgunarsveit og slökkvilið voru kölluð út frá Vopnafirði, ásamt lög- reglunni í umdæmi sýslumannsins á Eskifirði. Fulltrúar rannsóknar- nefndar flugslysa komu á vettvang á níunda tímanum og rannsökuðu slys- ið ásamt lögreglu. Lét lífið í flugslysi  Einn lést og annar slasaðist mikið í flugslysi í Vopnafirði  Vélin flaug á vír í námunda við veiðihús við Selá í Selárdal           KRÍUUNGAR klekjast nú óðum út, en næstu daga ráðast örlög margra þeirra. Að sögn Frey- dísar Vigfúsdóttur, líffræðings og doktorsnema, hefur orðið vart við ungadauða við innanverðan Breiðafjörð en varpið gengur betur við sunnan- vert Snæfellsnes. Of snemmt er þó að segja al- mennt til um hvernig varpið gengur. Hornsíli hafa fundist í hreiðrum dauðra unga, sem bendir til skorts á sandsíli, helstu fæðu þeirra. HEYR LÍFSBARÁTTUNA Í ERFIÐU ÁRFERÐI Morgunblaðið/Ómar ÞJÓÐARFJALLIÐ Herðubreið virðist eiga sér systur- fjall í landgrunni Íslands – á hafsbotni. Nokkur ný fjöll hafa nú fundist á hafsbotni að því er fram kemur hjá Haf- rannsóknastofnun. Þar á meðal eru svokölluð eðjueldfjöll sem finnast nú í fyrsta skipti hér við land. Rannsóknarskipið Árni Friðriksson hefur nýlokið kortlagningarleiðangri og fundust fjöllin á 900–1.300 metra dýpi við rætur landgrunnsins um 100 sjómílur vestsuðvestur af Snæfellsnesi, en keilurnar eru um 40– 200 metra háar og reglulegar að lögun. Systurfjallið hlýtur heitið Mardöll Á norðanverðu mælingasvæðinu fannst annað fjall sem er um 450 metra hátt, reglulega lagað með flötum gíg á toppinum. Samkvæmt upplýsingum Hafró er það að lög- un nánast eins og smækkuð mynd af Herðubreið og hefur það fengið heitið Mardöll eftir hinni björtu hafgyðju. Leiðangur rannsóknarskipsins var frumkönnun á nýju hafsvæði með fjölgeisladýptarmælingum. Á vefsíðu Hafró segir að markmið verkefnisins sé að kortleggja þekktar og mögulegar veiðislóðir, en alls voru kortlagðir um 2.700 ferkílómetrar af hafsbotninum í þetta sinn. Þótt fjöllin hafi fyrst verið kortlögð nú hafði þeirra áð- ur orðið vart því skipstjóri á frystitogaranum Þerney RE-101 lét á sínum tíma Hafró vita af einhverju óvenju- legu sem sást á dýptarmæli. Reyndist skipið hafa siglt yf- ir leirkeilu sem nú er nefnd Litla-Keila. una@mbl.is Ný fjöll finnast á hafs- botni á Íslandsmiðum Hafrannsóknarstofnun Systur Sjávarfjallinu Mardöll svipar til Herðubreiðar Leirkeilur og smækkuð mynd af Herðubreið á miklu dýpi REYKJAVÍKURBORG er enn í ábyrgð fyrir um 45 prósenta hlut í Landsvirkjun sem seldur var til rík- isins um áramót- in 2006/2007 fyrir um 27 milljarða króna, sam- kvæmt samningi sem gerður var við ríkið. Gildir ábyrgðin til árs- ins 2012. Ak- ureyrarbær seldi einnig sinn hlut, sem var um 5 prósent, en samtals greiddi ríkið rúmlega 30 milljarða fyrir, 3,4 millj- arða við gildistöku eigendaskiptanna en eftirstöðvarnar með skuldabréfi til 28 ára. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, lagði fram fyrirspurn um ábyrgðina í borgarráði í gær og óskaði eftir því að fá nákvæmar upplýsingar um upphæðir ábyrgða borgarinnar vegna lána Landsvirkjunar Einnig spurðist Dagur fyrir um hverjar væru líkurnar á því að lækk- að lánshæfismat Landsvirkjunar, frá því fyrr í vikunni, hefði áhrif á lánakjör borgarinnar, og þar með fyrirtækja hennar, og við hvaða að- stæður ábyrgðir gætu fallið á borg- arsjóð. Þá var óskað eftir ítarlegum upp- lýsingum um fjármagnsstöðu Landsvirkjunar, með tilliti til lang- tíma og skammtíma fjármögnunar. magnush@mbl.is Borgin ábyrgist enn 45% Dagur B. Eggertsson Ábyrgð borgarbúa á Landsvirkjun REIÐHJÓL hafa víða verið tekin ófrjálsri hendi á höfuðborgarsvæð- inu síðustu daga. Þrjár slíkar til- kynningar bárust lögreglunni í gær og fimm í fyrradag. Ekki er að sjá að eitt hverfi verði meira fyrir barðinu á reiðhjólaþjófum en önnur því hinir óprúttnu aðilar eru jafnt á ferðinni í miðborginni sem úthverfunum og nágrannasveitarfélögunum. Vegna þessa beinir lögreglan því til fólks að það gangi eins tryggilega frá reiðhjólum sínum og kostur er. Reiðhjóla- þjófar á ferð ÞAÐ óhapp varð á markrílmiðunum djúpt suður af landinu í fyrradag að Birtingur NK sigldi á Súluna EA. Engan sakaði við áreksturinn en gat kom á hvalbak Súlunnar. Hún er komin til hafnar í Neskaupstað. Súlan hefur að undanförnu verið notuð til að flytja makríl af miðunum til lands. Þegar óhappið varð var verið að dæla makríl úr Berki NK í Súluna. Svartaþoka var á miðunum þegar óhappið varð. Bæði skipin eru í eigu Síldarvinnslunnar í Neskaup- stað. Súlan lenti í árekstri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.