Morgunblaðið - 03.07.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.07.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 2009 Verð aðein s 3.990 kr. bók og kor t Handhægt ferðakort fylgir bókinni Vegahandbókin sími: 562 2600 STYRJUNNI sem sleppt var í tjörnina í verslun Sævars Karls er ekki ætlað að framleiða hrogn fyrir kúnnana. Enda væri það ekki skemmtileg sjón fyrir búðargesti því styrjan er skorin upp, náð í hrognin og hún svo saumuð saman á ný. Styrjan í búðinni er á barnsaldri, ekki nema fjögurra eða fimm ára gömul. Styrjur eru lang- lífar með afbrigðum, geta orðið hátt í 200 ára gamlar, og stærstu styrjur geta orðið 3 til 5 metra langar. Styrjan býr ekki ein í tjörninni því með henni eru japanskir koja-fiskar sem eru afar gæfir og hafa yndi af að láta klappa sér og kjassa. Ljóst er að ef fiskunum er vel sinnt munu þeir allir lifa okkur því elsti koja- fiskur sem um er vitað er 226 ára gamall. Þeim sem langar í styrju eða fisk í tjörn er bent á að hafa samband við Gunnar Helgason hjá gæludýrabúðinni Dýragarðinum. Styrjan syndir sæl í tjörninni í verslun Sævars Karls Morgunblaðið/Heiddi Furðufiskar sem munu lifa okkur öll Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is RÍFLEGA þriðjungur þeirra sem hafa verið ráðnir sem faglegir að- stoðarmenn ráðherra hefur farið út í pólitík. Þetta er ein margra for- vitnilegra niðurstaðna Gests Páls Reynissonar sem lauk BA-námi í stjórnmálafræði frá HÍ í sumar. Í gær fékk Gestur verkefnastyrk Fé- lagsstofnunar stúdenta fyrir verk- efni sitt: „Aðstoðarmenn ráðherra – bakgrunnur, hlutverk og frami“. Leiðbeinandi Gests Páls var Ómar H. Kristmundsson, dósent í opin- berri stjórnsýslu við HÍ. Aðstoðarmannakerfið var tekið upp í kjölfar stjórnarráðslaga sem sett voru 1969. Ráðherrar vinstri stjórnarinnar 1971 urðu fyrstir til að ráða sér aðstoðarmenn. Rannsókn Gests Páls náði til allra aðstoðar- manna ráðherra frá 1971 til ársloka 2008 en þeir voru 109 talsins. Meðal þess sem rannsóknin leiddi í ljós var að starf aðstoðarmanns ráðherra hefur reynst vel á frama- brautinni, hvort heldur aðstoðar- mennirnir hafa síðar reynt fyrir sér á stjórnmálsviðinu, í einkageiranum eða sótt um embætti. Gestur Páll segir að þrátt fyrir að hópur aðstoðarmanna ráðherra á 37 ára tímabili hafi verið mjög fjöl- breyttur virðist framavonir hópsins hafa verið fremur einsleitar. Þannig höfðu 35% að- stoðarmanna reynt fyrir sér í pólitík, boðið sig fram til þings og/ eða sveitar- stjórnar. Um 10% aðstoðarmann- anna fóru beint inn á þing að loknu aðstoðarmannsstarfi og höfðu tæp 20% fyrrverandi aðstoðar- manna boðið sig fram til þings. Það hlutfall mun að öllum líkindum hækka því dæmi eru um löngu hætta aðstoðarmenn sem fara í framboð. Um 80% aðstoðarmanna ráðherra áttu bakgrunn í sama stjórn- málaflokki og ráðherrann, en mörg dæmi voru einnig um óflokksbundna aðstoðarmenn. Gestur Páll sagði að mörg dæmi hefðu verið um að ráð- herrar réðu sér aðstoðarmenn í krafti sérþekkingar þeirra á til- teknum málaflokki ráðuneytisins. Jafnvel voru þeir úr öðrum flokki en ráðherrann. Rannsóknin leiddi einnig í ljós að með nýrri ríkisstjórn árið 2007 hækkaði hlutfall faglegra aðstoð- armanna á kostnað pólitískra að- stoðarmanna. Einnig hækkaði hlut- fall kvenna í aðstoðarmannahópnum til muna. Sömu þróunar virðist einn- ig gæta í þeim tveimur ríkis- stjórnum sem myndaðar hafa verið síðan rannsóknin var unnin. Gestur Páll kvaðst ætla að nýta styrk FS til að vinna betur úr gögn- um og bæta við rannsókn sína. „Já, ráðherra“ - ávísun á frama  Rúmlega þriðjungur fyrrverandi aðstoðarmanna ráðherra hefur reynt að hasla sér völl í pólitík  Flestir aðstoðarmenn hafa verið flokksbundnir en hlutfall faglega ráðinna hefur verið að hækka Gestur Páll Reynisson Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is UNNIÐ er að því að styrkja holuna sem boruð var í grennd við Kröflu í sumar með því að tvöfalda stálfóðr- ingu í henni. Á rúmlega tvö þúsund metra dýpi var komið niður á kviku og er ólíklegt að haldið verði áfram með djúpborunarverkefnið fyrir norðan. Hins vegar eru taldir möguleikar á að virkja holuna og að hún geti hugsan- lega gefið yfir 10 megavött. Ráðgert var að bora niður á 4-5 kílómetra dýpi í Vítismó við Kröflu í þessu alþjóðlega verkefni og bora síð- an tvær aðrar slíkar holur á Hellis- heiði og á Reykjanesi á vegum OR og HS. Að sögn Bjarna Pálssonar, verk- fræðings hjá Landsvirkjun Power, eru mörg ljón á veginum áður en hægt verður að virkja aflið í holunni. Hann nefnir að súrar lofttegundir hafi verið í nálægum borholum, sem tæri stálfóðringar og því sé unnið að því að tvöfalda fóðringarnar. „Það hefur reynst vandasamt að virkja þessar holur, en þó hefur það tekist þegar orkuríkur vökvinn bland- ast vatni ofar í holunni. Við erum komin í mikla nálægð við hitagjafann og dælum stanslaust vatni ofan í hol- una. Vonandi verður hægt að hleypa holunni upp í sumar til að sjá hennar rétta eðli,“ segir Bjarni. Kostnaður við verkefnið er orðinn á annan milljarð króna. Reynt að styrkja og virkja kvikuholuna við Kröflu Í mikilli nálægð við hitagjafann og vatni stanslaust dælt í holuna Ljósmynd/Gunnar Svanberg Annir Í nógu hefur verið að snúast hjá starfsmönnum Jarðborana. UM 1.700 manns fá ekki greiddar atvinnuleysisbætur um þessi mán- aðamót vegna samkeyrslu Vinnu- málastofnunar við RSK. Þar á með- al er fólk sem hefur kosið að fá greiddan hluta séreignarlífeyr- issparnaðarins en hann á ekki að hafa áhrif á atvinnuleysisbætur. Hefur Vinnumálastofnun fryst greiðslur til þessa fólks á meðan beðið er skýringa á tekjum sem ekki komu fram í umsóknum um at- vinnuleysisbætur, líkt og kom fram í Morgunblaðinu í gær. Gissur Pét- ursson, forstjóri Vinnumálastofn- unar, sagði að unnið væri að leið- réttingum og stefnt að því að fólk fengi leiðréttingu um leið og það hefði upplýst um tekjur sínar. Séreign hefur áhrif á atvinnu- leysisbætur SJÓVÁ mun tryggja nýju Dash 8 flugvél Landhelgisgæslunnar, sam- kvæmt upplýsingum frá Ríkis- kaupum. Ríkiskaup auglýstu eftir til- boðum í tryggingar á flugvélinni. Tvö tilboð bárust og voru þau opn- uð 22. júní síðastliðinn. Annað til- boðið reyndist vera ógilt og var til- boði Sjóvár tekið. Tilboð Sjóvár hljóðaði upp á rúm- lega 211 þúsund Bandaríkjadali á ári, eða tæplega 27 milljónir ís- lenskra króna. Hin nýja vél kom til landsins í fyrradag. gudni@mbl.is Sjóvá tryggir nýju vélina Auk Gests Páls hlutu styrki FS þær Kristrún Guðmundsdóttir og Ragnheiður Erla Eiríksdóttir fyrir BS verkefni í hjúkrunar- fræði „Mótorhjólaslys á Íslandi á árunum 2003 til 2007“. Anna Hinriksdóttir fékk styrk fyrir meistaraverkefni í hagnýtri menningarmiðlun „Ástin á tím- um ömmu og afa. Bréf og dag- bækur aldamótamanns.“ Sigríður Klara Böðvarsdóttir fékk styrk fyrir doktorsverkefni í líf- og læknavísindum „Litn- ingaóstöðugleiki og gallar í litn- ingaendum í brjóstaæxlum.“ Verkefnastyrkir FS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.