Morgunblaðið - 03.07.2009, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 2009
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
SÁ sem þyngstan dóm hlaut í Arn-
arnesmálinu svonefnda, hinn 31 árs
gamli Kristján Víðir Kristjánsson,
var dæmdur í tveggja og hálfs árs
fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær. 23 ára gamall samverkamaður
hans, Hlynur Ingi Bragason, hlaut
tveggja ára fangelsi fyrir sinn þátt í
málinu. Hann var einnig sviptur öku-
réttindum ævilangt. Þá var tvítug
kona sem einnig átti hlut að máli
dæmd í 15 mánaða fangelsi, auk þess
sem 17 ára gamalt barnabarn fórn-
arlambanna var dæmt í fimm mán-
aða skilorðsbundið fangelsi.
Voru fjórmenningarnir ákærðir
fyrir rán, húsbrot og frelsissviptingu
og þóttu hafa brotið af mikilli harð-
ýðgi gegn fórnarlömbum sínum.
Barnabarnið benti á verðmætin
Málavextir voru þeir að mennirnir
tveir ruddust inn á heimili roskinna
hjóna á Arnarnesi að kvöldi laugar-
dagsins 25. apríl síðastliðins, eftir að
hafa fengið ábendingar frá barna-
barni þeirra um að þar væri mikil
verðmæti að finna. Á meðan biðu
konan og stúlkan úti í bíl annarrar
þeirra, en öll tóku þau þátt í ákvörð-
uninni um að fremja brotið.
Öll voru þau undir áhrifum ýmist
fíkniefna eða áfengis og var einnig
ákært fyrir brot gegn umferðarlög-
um vegna aksturs undir áhrifum. Til-
gangur húsbrotsins var sá að afla
þýfis til að kaupa fíkniefni.
Hrottaleg árás á roskið fólk
Dómara þótti sannað að þegar
komið var inn í húsið hefði Kristján
Víðir tekið fyrir vit konunnar með
báðum höndum og snúið hana niður í
gólfið, skipað henni að taka af sér tvo
hringa og slegið hana þremur þung-
um höggum í höfuðið, þegar hún
reyndi að komast á fætur. Síðan lét
Kristján Víðir hana liggja á grúfu á
gólfinu.
Konan hlaut stórt mar í hársverði
á hnakkanum og upp á höfuð, mar-
bletti vinstra og hægra megin á hálsi
og kinnum, á vinstra handarbaki, á
baki, bringu og kringum munn, auk
eymsla í öxlum og vöðvum.
Á sama tíma fór Hlynur Ingi á
neðri hæð hússins og fann manninn
þar. Skipaði hann honum að fara upp
og rak hann á undan sér. Þá létu of-
beldismennirnir hann leggjast á
gólfið við hlið konunnar á grúfu, og
stóð Hlynur Ingi yfir þeim með hníf.
Stöðugar morðhótanir
Á meðan fór Kristján Víðir ráns-
hendi um heimilið. Alls taldi dóm-
urinn sannað að þeir hefðu haft upp
úr krafsinu seðlaveski með 50.000
krónum, debetkorti og ökuskírteini.
Einnig fartölvu, farsíma og vegg-
síma auk skartgripa fyrir rúmlega
eina milljón króna.
Hótaði Hlynur Ingi því stöðugt að
stinga hjónin ef þau horfðu ekki nið-
ur í gólfið. Áður en mennirnir höfðu
sig á brott skáru þeir í sundur síma-
snúrur og hótuðu að skjóta hjónin á
færi ef þau bærðu sig næstu mín-
úturnar. Alls stóð þessi ofbeldisfulla
innrás á heimili hjónanna yfir í 20-30
mínútur. Fólkið hélt svo á brott í bíl
konunnar.
Hin ákærðu voru einnig dæmd til
að greiða málsvarnarlaun upp á
350.000 til 450.000 krónur hvert. Þeir
Kristján Víðir og Hlynur Ingi hafa
báðir margoft áður verið dæmdir
fyrir lögbrot á síðustu árum. Dóminn
kvað upp Pétur Guðgeirsson héraðs-
dómari.
Tvö og hálft ár
í Arnarnesmáli
Morgunblaðið/Þorkell
Hrottaleg innrás á heimili í Garðabæ
Barnabarn þolenda fékk fimm mánuði
365 MIÐLAR, fyrrverandi útgáfu-
félag DV, var í gær dæmt til að
greiða Orra Haukssyni, fyrrverandi
stjórnarformanni Skjás eins, 300.000
krónur í miskabætur vegna æru-
meiðandi ummæla í umfjöllun blaðs-
ins í september árið 2006. Birti blað-
ið þá grein undir fyrirsögninni
„Skilnaðarfaraldur skekur Skjá
einn.“ Í greininni var fjallað um vel-
gengni sjónvarpsstöðvarinnar og
einkalíf stjórnenda hennar.
Þau ummæli voru dæmd dauð og
ómerk að allt væri „í tómu tjóni“ í
einkalífi yfirmanna stöðvarinnar,
þar á meðal Orra, en einnig að yf-
irmönnum stöðvarinnar gengi illa að
fóta sig í einkalífinu. Þá voru 365
miðlar dæmdir til að greiða honum
120.000 krónur í málskostnað og
120.000 krónur vegna kostnaðar við
að birta niðurstöðu dómsins og for-
sendur hans í fjölmiðlum.
Bæturnar voru nokkru lægri en
krafist var. Krafðist Orri 600.000
króna í skaðabætur og 240.000 króna
vegna birtingarkostnaðar. Kemur
fram í forsendum dómsins að lög-
menn 365 hafi boðið 400.000 króna
bætur áður en málið fór fyrir dóm.
Hæstiréttur hafði áður dæmt um-
mælin dauð og ómerk að kröfu
Magnúsar Ragnarssonar, fyrrver-
andi framkvæmdastjóra Skjás eins.
DV dæmt
í héraði
Skil Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn „Senda inn efni“ veljið „Senda inn minningargrein“ þar sem
fram koma nánari leiðbeiningar.
Skilafrestur Minningargrein sem á að birta á útfarardegi verður að berast
fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi
eða þriðjudegi). Birting getur dregist þó greinin berist innan skilafrests þar
sem pláss er takmarkað. Sami skilafrestur er á greinum vegna útfarar í kyrr-
þey. Allar greinar birtast jafnframt á vefnum www.mbl.is/minningar
Lengd Hámark 3.000 slög. Engin lengdarmörk eru á greinum sem birtast á
vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, „Hinstu kveðju“, 5–15 línur.
Formáli Nánustu aðstandendur skulu rita formála og senda inn, skv. leið-
beiningum á mbl.is
Undirskrift Minningargreinahöfundar noti skírnarnöfn sín undir greinunum.
Minningargreinar og skil
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skoðið leiðbeiningar
á mbl.is
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
Ermar 4.900 kr.
Kjóll 7.900 kr.
Leggings 1.990 kr.
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík,
sími 568 2870 – www.friendtex.is
ÚTSALA
Opið mán.-fös. frá kl. 11.00-18.00
Lokað á laugardögum
Mikið úrval af eldri fatnaði á
1.000 og 2.000 kr.
Bara snilld
Kynnum sumarlínu
LÍN DESIGN
Úrvalið hefur aldrei verið meira af íslenskri hönnun.
Full búð af nýjum vörum
Lín Design Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið.
Sími 533 2220 www.lindesign.is
25