Morgunblaðið - 03.07.2009, Side 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
REIKNA má með því að algengt verð á 500
gr. kaffipakka muni hækka úr 498 kr. í 533 kr
úti í búð þegar vörugjöldin taka gildi þann 1.
september, skattbreytingin sem upphaflega
hét sykurskattur.
Ekki er þó hægt að segja að mikinn sykur
sé að finna í kaffipakka, enda virðist upp-
haflegt sjónarmið skattabreytinganna ekki
lengur ráða för.
Tillaga heilbrigðisráðherra um sykurskatt
sem settur væri fram „af heilsufarsástæðum
og í fullu samræmi við óskir Lýðheilsustöðv-
ar“ tók miklum breytingum í meðförum efna-
hags- og skattanefndar.
Í mars 2007 voru vörugjöld afnumin af
flestum matvælum til að stuðla að lækkuðu
matvælaverði. Þær breytingar sem verða á
skattinum nú fela í sér að þessi vörugjöld
verða nú tekin upp aftur, og það tvöfalt hærri
en þau voru áður.
Niðursoðin maískorn og te
Þetta þýðir m.a. að innflutt te mun nú fá á
sig 70 kr vörugjald, en þegar það var fellt
niður 2007 var vörugjald á te 35 kr. Nið-
ursoðnar matvörur, s.s. ananas og maís, fá nú
á sig 24 kr vörugjald pr. kg. en það var 10 kr.
árið 2007.
„Þetta kemur manni alveg í opna skjöldu,“
segir Haraldur R. Jónsson framkvæmdastjóri
heildverslunarinnar Innnes ehf. „Þetta kemur
náttúrulega ekki til með að lenda í neinu öðru
en auknum álögum á almenning með því að
veltast út í verðlagið. Allt í einu er tann-
verndarskatturinn bara orðinn að matar-
skatti.“
Það kaldhæðnislegasta í þessum skatta-
breytingum er sennilega auknar álögur á
sykurlaust tyggigúmmí, sem fer nú úr núlli í
130 kr. á kílóið. Þetta er vara sem sýnt hefur
verið fram á að verndi tennur og hefur því
verið liður í átaki Lýðheilsustöðvar til að
bæta tannheilsu fólks. Sykrað tyggigúmmí
fær einnig á sig vörugjald, en það er 10 kr
lægra en á ósykruðu, 120 kr.
Áætlað er að tekjur ríkissjóðs aukist um
2,5 milljarða kr á ári vegna breytinganna.
„Sykurskattur“ á ýmsar matvörur
Hinn svokallaði sykurskattur hefur nú vikið fyrir vörugjöldum á ýmsar matvörur sem ekki eru allar
sykraðar Lýðheilsusjónarmiðin sem lagt var upp með virðast hafa dottið upp fyrir á miðri leið
Sykurskattur var nýlega kynntur sem liður
í efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar.
Vísað var m.a. til lýðheilsu til rökstuðn-
ings en síðan hefur tillagan tekið breyt-
ingum og kallast tæplega sykurskattur
lengur, heldur einfaldlega matarskattur.
Í HNOTSKURN
»Vörugjald er nú tekið upp eftir 2ára hlé, tvöfalt hærra en það var
2007 þegar það var afnumið.
»Sem dæmi um vörur sem fá nú ásig gjald má nefna sojamjólk og
te en sem fyrr eru mjólkurvörur und-
anskildar. Ekki er því lengur um
sykurskatt að ræða.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
„VIÐ gerum þetta fyrir ánægjuna. Það er gott
að slappa af á sjó,“ segir Alfreð Jónsson fyrr-
verandi vegaverkstjóri á Sauðárkróki. Hann
er að verða 88 ára og var að koma af sjó ásamt
tveimur bræðrum sínum, Svavari 78 ára og
Baldvini sem er 75 ára. Þeir voru úti á firði á
litlum vatnabát með utanborðsmótor og er
meðalaldur áhafnarinnar sjálfsagt með því
hæsta sem þekkist.
„Sjóferðin er jafnvel mikilvægari en aflinn,“
segir Svavar. Bræðurnir segjast ekki falla inn í
nein fiskveiðikerfi, hvorki kvótakerfi né
strandveiðikerfi. Þeir voru þó að landa nokkr-
um fiskum. „Það er miklu skemmtilegra að
stelast,“ segir Svavar og bætir við: „Síðast
þegar ég vissi mátti maður veiða sér í soðið en
það getur hafa breyst, það veit enginn hvað
má og hvað ekki.“ „Það hefur ekki verið gefin
út ákæra á Ásmund í Sandgerði og varla fara
þeir að kæra okkur á meðan,“ segir Alfreð.
Bræðurnir sögðu auðvelt að koma aflanum á
fjölskylduna og svo dugi hann kannski í soðið í
fleiri daga.
Aldursforsetinn Alfreð hefur sótt á sjóinn
frá unga aldri þótt aðal-starfsvettvangurinn
hafi verið inni í landi. Þegar hann hætti sem
vegaverkstjóri var hann vel undirbúinn. Hafði
keypt sér hraðfiskibát og fiskaði víða fyrir
Norðurlandi og Vestfjörðum í dagakerfinu.
Sjóferðin mikilvægari en aflinn
Bræður Baldvin, Alfreð og Svavar Jónssynir eru allir búsettir á Sauðárkróki en ætt-
aðir úr Fljótunum. Þeir hafa mikla ánægju af því að veiða fisk í soðið.
Bryggjuspjall Alfreð Jónsson er búinn að landa einum bala. Baldvin bróðir hans er kominn upp á bryggju og
Svavar er á leiðinni eftir að hafa spúlað litlu bátsskelina sem liggur utan á tveimur trillum í smábátahöfninni.
Þrír bræður á áttræðis- og níræðisaldri segjast ekki falla inn í nein fiskveiðikerfi
enda sé skemmtilegra að stelast „Síðast þegar ég vissi mátti maður veiða sér í soðið“
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Eftir Halldóru Þórsdóttur
halldorath@mbl.is
AF rúmlega tuttugu þúsund ríkisstarfsmönnum
eru 402 með hærri heildarlaun en forsætisráð-
herra. Þau eru 935 þúsund krónur. Starfsmenn í
hlutastarfi eru undanskildir og miðað er við 90%
starfshlutfall að lágmarki. Þetta kemur fram í
svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Skúla
Helgasonar alþingismanns. Til heildarlauna telj-
ast mánaðarlaun, yfirvinnulaun og svokölluð önn-
ur laun, svo sem vaktaálag af ýmsu tagi. Fram
kemur í svari ráðherra að af tölum Fjársýslu rík-
isins megi dæma að margir forstöðumenn hafi að
eigin frumkvæði breytt vinnufyrirkomulagi eða
samsetningu heildarlauna á annan hátt, sem hefur
leitt til lækkunar.
Ætla má að árlegur sparnaður ríkissjóðs yrði
1,5 milljarðar ef laun þessara starfsmanna væru
lækkuð til jafns við laun forsætisráðherra. Við
slíkar aðgerðir þyrfti þó að líta til samsetningar
heildarlauna. Dagvinnulaun svara til 54% heildar-
launa þessa hóps, en önnur laun 35%.
Langflestir hálaunamannanna eru læknar eins
og sjá má í töflunni hér til hliðar. Einstaka eru í
stéttarfélögum á borð við Félag háskólamennt-
aðra starfsmanna stjórnarráðsins, Félag íslenskra
flugumferðarstjóra og Stéttarfélag verkfræðinga,
svo dæmi séu tekin.
Myndi spara 1,5 milljarða króna
Tveir af hverjum hundrað ríkisstarfsmönnum eru með hærri heildarlaun en forsætisráðherra
Yfirvinna er lítill hluti þessara launagreiðslna eða 11% Önnur laun, svo sem vaktaálag, eru 35%
» Heildarlaun forsætisráðherra eru 935 þúsund krónur á mánuði.
» Þá er ekki tekið tillit til mögulegra greiðslna samkvæmt reglum
um þingfararkostnað eða afnota af ráðherrabifreið.
!
"
#
""" $
%
%