Morgunblaðið - 03.07.2009, Side 17

Morgunblaðið - 03.07.2009, Side 17
Fréttir 17ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 2009 AIRBUS-farþegaþotan, sem fórst fyrir mánuði með 228 manns um borð, brotnaði ekki upp í lofti, heldur sundr- aðist er hún lenti í sjónum á miklum hraða. Kemur þetta fram í rannsóknarskýrslu franskra sérfræðinga, sem birt var í gær. Er um bráðabirgðaniðurstöðu að ræða en allt er enn á huldu um það hvað slysinu olli. Air France-þotan hvarf af ratsjárskjánum 1. júní er hún var á leið frá Rio de Janeiro í Brasilíu til Parísar. Komst enginn lífs af. „Þotan brotnaði ekki upp á flugi,“ sagði Alain Bouill- ard, talsmaður slysarannsóknastofnunarinnar BEA. „Flugvélin virðist hafa lent í sjónum í flugstöðu en á mjög hraðri niðurleið.“ Sagði hann, að hraðamælarnir og hugs- anleg bilun í þeim kunni að hafa komið við sögu, verið einn þáttur af mörgum, en þeir hefðu þó ekki valdið slysinu. Tókst ekki að tengjast Dakar Bouillard sagði, að flugstjórnarmiðstöðin í Dakar í Senegal hefði átt að taka við af brasilísku flugstjórninni en það hefði þó ekki gerst. Sagði hann, að flugstjórar Air France-þotunnar hefðu þrisvar sinnum reynt að tengjast tölvukerfinu í Dakar en alltaf án árangurs, augljóslega vegna þess, að Dakar hafði aldrei tekið við flugáætlun- inni. „Það er eitthvað undarlegt við það,“ sagði Bouillard og bætti við, að verið væri að kanna hvernig á því stæði, að sex klukkustundir liðu frá því þotan hvarf af ratsjám þar til lýst var yfir neyðarástandi. svs@mbl.is Þotan brotnaði ekki í lofti Í HNOTSKURN » Slysið er það mesta í söguAir France og raunar það mesta í franskri flugsögu. Þá er það fyrsta slysið, sem veld- ur dauða í farþegaflugi, í 16 ára sögu A330. » Tekist hefur að finna 51lík en formlegri leit hefur verið hætt. Í bráðabirgðaskýrslu um Air France-þotuna, sem fórst fyrir mánuði með 228 manns, segir að bilaðir hraðamælar hafi ekki verið meginástæða slyssins ÞAÐ þykir mikið sport í Sviss að taka þátt í hinu árlega sundi yfir Zürich-vatn en það var þreytt á miðvikudag, 1. júlí. Að þessu sinni voru þátttakendur um 1.800 og komust allir yfir á bakkann hinum megin. Á þessum stað er vatnið heldur ekki mjög breitt eða tæplega hálf- ur annar kílómetri. svs@mbl.is Reuters Sundkappager í Zürich-vatni Keppikeflið að komast yfir NÆSTUM tveim- ur af hverjum þremur Banda- ríkjamönnum finnst að fjöl- miðlar og frétta- stofur hafi farið langt út yfir öll mörk í umfjöllun sinni um andlát poppstjörnunnar Michaels Jack- son. Það var skoðanakannanastofn- unin Pew Research Center, sem kannaði málið, og niðurstaðan var, að 64% fannst fárið í kringum dauða Jacksons allt of mikið en 29% töldu það vera í hófi. Þremur pró- sentum fannst aftur, að umfjöllunin hefði mátt vera meiri. Þrjátíu prósent allra sögðust hafa fylgst vel með þessum fréttum en heil 80% þegar kom að blökku- mönnum. svs@mbl.is Bandaríkjamenn telja Jackson-fárið vera úr hófi fram Jackson Á æf- ingu í júní. ARNOLD Schwarzen- egger, ríkisstjóri í Kaliforníu, hef- ur lýst yfir neyð- arástandi í fjár- málum ríkisins og kallað ríkis- þingið saman til að ræða um ástandið. Nú stefnir í, að fjár- lagahallinn á næstu tveimur árum verði 24 milljarðar dollara. Schwarzenegger sagði, að lausa- fjárskorturinn yrði kominn í 6,5 milljarða dollara í september ef þingið samþykkti ekki víðtækan niðurskurð á öllum sviðum. Nú þegar hefur verið ákveðið, að margar opinberar skrifstofur verði lokaðar fyrstu þrjá föstudagana í hverjum mánuði og verða starfs- mönnum þeirra ekki greidd laun þá daga. Demókratar vilja ekki skera jafn- mikið niður og Schwarzenegger og flokksbræður hans, repúblikanar, sem taka hins vegar ekki í mál að hækka skatta. svs@mbl.is Kaliforníuríki á gjaldþrotsbrún Ósátt Mikið mót- mælt í Kaliforníu. ÍSRAELSKIR hermenn drápu hundruð óbreyttra borgara á Gaza, börn jafnt sem fullorðið fólk, og gerðust sekir um stríðsglæpi. Kem- ur þetta fram í afar harðorðri skýrslu frá Amnesty International, sem einnig sakar Hamas-hreyf- inguna og önnur herská, palestínsk samtök um að hafa framið stríðs- glæpi með því að skjóta flugskeytum á Ísrael. „Mörg hundruð óbreyttra borgara voru drepin í árásum úr lofti, með flugskeytum eða skriðdrekaskothríð og aðrir, þar á meðal konur og börn, voru skotnir á færi þótt þeir ógnuðu ekki ísraelsku hermönnunum á neinn hátt,“ segir í skýrslunni. Þar segir einnig, að Ísraelar hafi beitt óbreyttum borgurum fyrir sig sem skildi. Skýrsla Amnesty Internation- al kemur á hæla skýrslu sem nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna birti í maí og er niðurstaða beggja sú sama. Vill sjálfstæða rannsókn AI krefst þess, að hvorirtveggja, Ísraelar og Palestínumenn, leyfi sjálfstæða rannsókn á átökunum á Gaza en Ísraelar hafa í raun hafnað öllu samstarfi við SÞ um það. Í yfirlýsingu frá Ísraelsher var niðurstöðunum í skýrslu Amnesty International hafnað og samtökin sökuð um að hafa látið Hamas-sam- tökin villa sér sýn. Saka Ísraelar þau um að nota óbreytta borgara sem skjöld en AI segist ekki hafa fundið þess nein dæmi. Donatella Rovera, sem starfar hjá AI, segir ljóst, að Ísraelar ætli sér að hunsa alþjóða- samfélagið í þessu máli. svs@mbl.is Saka Ísraela um stríðsglæpi AI segir hundruð óbreyttra borgara drepin á Gaza Reuters Ógæfa Palestínskur drengur grætur í rústum heimilis síns. ATVINNULEYSI á evrusvæðinu og í Bandaríkjunum er nú það sama eða 9,5%. Hefur það ekki verið meira á evrusvæðinu síðan 1999 og ekki meira í Evrópusambandinu öllu síð- an 2005. Í Bandaríkjunum fækkaði störfum um 467.000 í júní en greinendur höfðu spáð því, að þeim myndi fækka um 365.000. Hafa þessi tíðindi dregið mjög úr vonum um skjótan bata á vinnumarkaði vestra. Á evrusvæðinu fækkaði störfun- um um 273.000 í maí þótt framleiðsla sé farin að aukast nokkuð á ný og meiri bjartsýni gæti nú en áður. Að- haldsaðgerðum og endurskipulagn- ingu í fyrirtækjum er hins vegar hvergi nærri lokið og því er talið, að atvinnuleysið muni halda áfram að aukast enn um hríð. Er því spáð, að það fari í 12% á næsta ári. Eurostat, evrópska hagstofan, áætlar, að 21,5 milljónir manna hafi verið án atvinnu í Evrópusambands- ríkjunum í maí síðastliðnum og þar af 15 milljónir manna á evrusvæðinu einu. svs@mbl.is Atvinnu- leysi kom- ið í 9,5% Á enn eftir að aukast

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.