Morgunblaðið - 03.07.2009, Side 31
Minningar 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 2009
✝ Linda Wendelfæddist í Reykja-
vík 10. janúar 1940.
Hún lést á Hjúkr-
unarheimilinu Skóg-
arbæ 28. júní 2009.
Foreldrar hennar
voru Andrés Wendel
verkamaður, f. 6. júní
1907, d. 1. mars 1994,
og Borghild Wendel
(fædd Stöyva) sauma-
kona, f. 26. apríl 1908,
d. 19. janúar 1994.
Linda giftist Agnari
Ingólfssyni prófessor
25. desember 1962,. Börn þeirra
eru 1) Torfi ljósmyndari, f. 14. októ-
ber 1968, kvæntur Elvu Krist-
insdóttir, f. 7. mars 1972. Börn
þeirra eru Axel Örn, f. 25. maí
1994, og Anna Cara, f. 18. apríl
2002. Áður átti Torfi soninn Gunn-
ar Pál, f. 2. janúar 1988, með And-
reu Gunnarsdóttur. 2) Ingi líffræð-
ingur, f. 11. janúar 1971, kvæntur
Laura May-Collado, f. 7. maí 1971.
Dóttir þeirra er Amelie Melkorka,
f. 20. júní 2006. Systir Lindu er
Marianna Wendel, f. 1943.
Linda ólst upp í Reykjavík. Hún
hóf nám í norsku við Háskóla Ís-
lands að loknu stúd-
entsprófi 1960, en
frá 1961 starfaði
Linda sem meina-
tæknir, með nokkr-
um hléum, lengst af
hjá Rannsóknastöð-
inni á Keldum og frá
1974 hjá Hjarta-
vernd, uns hún varð
að láta af störfum ár-
ið 2001 vegna heilsu-
brests. Um skeið
starfaði hún sem að-
stoðarmaður við
Fuglafræðideild
(Bird Division) Michigan-háskóla,
og síðar sem aðstoðarmaður við
Líffræðideild Massachusetts-
háskóla. Auk þess vann Linda af og
til sem aðstoðarmaður eiginmanns
síns, bæði á Íslandi og í rannsókn-
arleiðöngrum hans til Alaska,
Washington-ríkis, Chile, Argentínu,
Nýja- Sjálands og Ástralíu. Síðustu
árin hlaut Linda góða umönnun á
dagvistunarheimilinu Hlíðarbæ, og
frá 2007 á Hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ.
Útför Lindu fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag, 3. júlí og hefst at-
höfnin kl. 13.
Linda mín. Frá því að ég fyrst hitti
þig, fyrir níu árum, heillaðir þú mig.
Ég sá í þér bæði fegurð og glæsileika,
en meiru fannst mér skipta að ég
skynjaði hlýju sem geislaði af þér og
sást í öllu því sem þú tókst þér fyrir
hendur. Það voru jól þegar ég fyrst
dvaldi á íslandi og þá gat ég ekki hætt
að horfa á þig. Þú hlýtur að hafa hald-
ið að það væri ekki í lagi með mig! En
ég naut þess að sjá lífsgleði þína þar-
sem þú varst á handahlaupum að
dekra við okkur, að baka kökur, búa
til sælgæti, og galdra fram uppáhald-
ið mitt, ólívuostakúlurnar þínar!
Áður hafði ég aldrei upplifað neitt
sem stóð samanburð við jólin hjá þér.
Ég skildi þar og þá af hverju Ingi gat
varla hugsað sér að eyða jólum ann-
arstaðar en heima hjá þér. Ég veit að
ég upplifði aldrei nema lítinn hluta af
þér, en það var nóg – ég hreifst af þér
og ég elskaði þig. Í framtíðinni, þegar
jólin nálgast munt þú ávallt vera í
huga mér. Ég vona bara að ég geti
gert þennan tíma jafn sérstakan fyrir
börnin mín eins og þú gerðir fyrir
okkur öll. Mér finnst ég heppin að
hafa fengið að kynnast þér. Ég mun
ávallt sakna þín og elska þig, og þú átt
alltaf stað í hjörtum okkar.
Laura May-Collado.
Til ömmu:
Sofðu unga ástin mín,
– úti regnið grætur.
Mamma geymir gullin þín,
gamla leggi og völuskrín.
Við skulum ekki vaka um dimmar nætur.
(Jóhann Sigurjónsson.)
Ég sakna þín rosamikið.
Kveðja, þín ömmustelpa,
Anna Cara.
Eins sárt og það er að kveðja þá
sem skilið hafa spor eftir sig í lífinu þá
er það eitt víst að við fæðumst og við
deyjum. Hvað svo þar er á milli er í
okkar höndum. Í dag kveðjum við
Lindu Wendel sem við vorum svo lán-
samar að kynnast. Lindu og Agnari
kynnumst við þegar ég tók saman við
son þeirra Torfa og eignaðist með
honum soninn Gunnar Pál. Leiðir
Torfa og Andreu skildu en það breytti
engu um hlýhug og velvild Lindu og
Agnars í okkar garð, var heimili
þeirra okkur ávallt opið og ófáar
stundirnar sem við átti hjá þeim í
góðu yfirlæti. Oftar en ekki kom mað-
ur að Keilufellinu þar sem ilmurinn af
góðum bakstri eða matseld lagði út úr
dyrum og alltaf nóg til fyrir alla.
Linda var glaðvær, jákvæð og
glæsileg kona í alla staði, með mikla
útgeislun svo allir vildu vera í nálægð
við hana eða henni líkjast. Henni var
margt til lista lagt og heyðist oft mala
í saumavélinni langt fram á kvöld þar
sem heilu dressinn urðu til og ekki
átti hún í nokkrum vandræðum með
prjóna eða heklunál, hvað þá að
sauma út. Allt sem úr þessum hönd-
um rann varð að gæðavöru, svo ótrú-
lega lagin var hún í höndunum.
Ömmuhlutverkinu sinnti hún af
fullum huga og væntumþykju því hún
var mikil fjölskyldukona og var heim-
ili hennar og Agnars þannig búið að
þú fannst hversu velkomin þú varst.
Gunnar Páll sonur/barnabarn okkar
átti ófáar gæðastundir með ömmu
sinni þar sem hún meðal annars bauð
honum á flest ef ekki öll barnaleikrit
sem sett voru upp, fór með hann í bíó
og ýmislegt fleira eða eins og við
sögðum alltaf: „Hún sér um menning-
aruppeldið“ .
Fyrir nokkrum árum kom í ljós að
Linda var með Alzheimer og var þá
vitað að hverju stefndi. Erfiðir tímar
tóku við hjá fjölskyldunni og er ekki
annað hægt en að dást að því hversu
vel þau hafa staðið við bak hennar.
Það eru margar góðar minningar með
Lindu sem renna um hugann og
geymast ævilangt. Nú kveðjum við og
þökkum fyrir þær stundir. Elsku
Agnar, Torfi, Ingi, Elfa, Laura,
Gunnar Páll, Axel Örn, Anna Cara,
Amelie Melkorka og Maríanna, inni-
legar samúðarkveðjur.
Andrea og Nína.
Það er erfitt að kveðja svo nákom-
inn ástvin. Þótt að hún amma hafi
ekki orðið bráðkvödd og ég búinn að
reyna að undirbúa mig fyrir leiðarlok-
in, þá er kveðjustundin ekki auðveld.
Þá er gott að láta margar góðar minn-
ingar reika um hugann en ég vildi að
þær hefðu getað orðið fleiri. Þess
vegna langar mig að minnast ömmu
minnar Lindu Wendel. Þessi glæsi-
lega kona sem ég hef þekkt frá því ég
fæddist var glæsileg þar til hún
kvaddi.
Amma gerði margt fyrir mig. Mér
er næst í minningunni hve hlý hún var
og alltaf tilbúin að gera okkur góðan
dag, til dæmis með leikhúsferðum.
Minnist ég vel fyrstu leikhúsferðar-
innar af mörgum en þá sáum við Dýr-
in í Hálsaskógi. Hún kynnti mig fyrir
Star Wars myndunum sem hún einn-
ig fór með pabba og Inga frænda á
þegar þeir voru yngri. Við fórum á
fyrri myndirnar saman þegar þær
komu út í endurútgáfu og þegar veik-
indi hennar byrjuðu þá fór ég með
hana á seinni myndirnar. Þetta var
okkar stund, „Star Wars“, þótt skrýt-
ið sé. Þegar það þurfti að láta sauma
eitthvað á mig var amma ekki lengi að
verða spennt fyrir því, hún saumaði
skírnarfötin mín og öll spariföt á
yngri árum. Eftir að ég var orðinn
eldri saumaði amma nokkra grímu-
búninga á mig, þar á meðal svarta slá
og flókið takkaborð sem áttu að vera
klæði Svarthöfða úr Star Wars mynd-
unum. Einu sinni fékk ég hana til að
horfa á myndband af uppáhalds gít-
arleikaranum mínum, Wes Borland,
til að sauma nákvæma eftirlíkingu af
hans klæðum og það gerði hún glöð
fyrir mig. Það var það síðasta sem
hún saumaði á mig og hjálpaði afi
henni að hanna búninginn eftir að þau
horfðu á myndbandið dögum saman.
Þvílík kona.
Alltaf gastu treyst á góðan mat
þegar maður kom að dyrum að Keilu-
felli 16. Mitt uppáhald voru Lindu-
kökur sem voru einungis gerðar á jól-
unum, þó ég hefði viljað þær oftar. Ég
hef margreynt að endurgera þetta
góðgæti en það jafnast ekkert á við
baksturinn hennar ömmu. Amma var
mikið í eldhúsinu og töfraði ávallt
fram veislumat, eplabökur og bestu
lambalæri svo dæmi séu nefnd og
aldrei varstu svikinn. Garðyrkja var
ömmu mjög mikilvæg og fór ég oft
með henni og afa í garðinn til að njóta
góðra stunda í fallegasta garðinum í
bænum sem þau höfðu hlúð að svo
lengi. Mannganginn í tafli lærði ég
hjá henni og hún kenndi mér ófá spil-
in.
Það er svo margt sem ég hef lært af
ömmu sem hefur nýst og mun nýtast
mér. Ég mun alltaf geyma þær minn-
ingar sem amma hefur gefið mér,
þessi frábæra kona sem gaf allt af sér
svo óeigingjarnt. Með þessum orðum
kveð ég ömmu mína og þakka henni
fyrir allt.
Þinn
Gunnar Páll.
Lindu Wendel mágkonu og svil-
konu okkar var margt til lista lagt.
Hún skreytti og saumaði hvort sem
það var til að fegra híbýli sín eða búa
föt á sig og sína. Ellegar að hún færði
upp vef eins og hún hafði lært af
tengdamóður sinni. Þegar örlögin
tóku að svipta hana vitsmunum barð-
ist hún á móti og saumaði út eins og
hún ætti lífið að leysa. Þó var Linda
mestur listamaður í þeim lystauka
sem hún galdraði fram í eldhúsinu.
Þar fór saman hollusta, bragð og
smekkvísi. Hún var listakokkur löngu
áður en það komst í tísku, á meðan
síld var enn ekki fiskur og matreiðslu-
bók Helgu Sigurðardóttur þótti fram-
úrstefnuleg! Þótt Linda hafi einkum
eldað fyrir vini og vandamenn spurð-
ist til snilli hennar á þessu sviði svo að
hún hlaut verðlaun fyrir. Fjölfróður
maður sagði í útvarpinu um daginn að
þegar við segjum að heimskur sé
heimaalinn segi þeir í Afríku þann
ekki vera víðförlan sem haldi móður
sína vera bestu eldabusku í heimi.
Linda á tvo gjörvulega syni sem hafa
farið um víða veröld, en ég hygg að
þeir hafi þó ekki fundið betri matselju
en hana móður sína – að eiginkonum
þeirra ólöstuðum.
En lífskúnst Lindu var síður en svo
bundin við matargerð eða skæði og
klæði. Hún unni allri list. Hún var víð-
lesin í bókmenntum, erlendum jafnt
sem innlendum, sem endurspeglaðist
í kjarnyrtu málfari hennar. Myndlist
dáði hún og prýddi heimili sitt lista-
verkum og tónleika sóttu þau hjónin
af ástríðu hvort sem það var hjá Sin-
fóníunni eða í Skálholti og allt þar á
milli. Þau Linda og Agnar voru víðfö-
rul. Skyldu margir Íslendingar hafa
ekið sjálfir frá austurströnd Banda-
ríkjanna fyrst um álfuna þvera og síð-
an endilanga alla leið til Alaska? Og
bar þó Linda frumburðinn Torfa und-
ir belti. Linda var ekki aðeins lærður
meinafræðingur heldur einnig ötull
náttúrurannsakandi, dyggur aðstoð-
armaður náttúrufræðingsins manns
síns hvort sem það var á Íslandi, á
syðsta odda Ameríku eða Nýja-Sjá-
landi.
Þannig var líf Lindu ríkt, ekki að-
eins henni sjálfri en ekki síður fjöl-
skyldunni, svo og vinum og öðrum
vandamönnum. Við þökkum fyrir að
hafa fengið að njóta lífsgleði hennar.
En enginn má sköpum renna: Sein-
ustu árin glímdi Linda við þann sjúk-
dóm sem sveipar sálina gleymsku-
hjúp og að lokum allri skynjun. En
minningar um glæsilega, lífsglaða
konu ylja okkur um hjartarætur þeg-
ar leiðir skiljast.
Helga Ingólfsdóttir,
Þorkell Helgason.
Á haustdögum árið 1957 tíndist
tugur ungra kvenna inn í kennslu-
stofu í Menntaskólanum í Reykjavík.
Þar voru mættar til leiks konur sem
hugðust leggja til atlögu við stærð-
fræði- og raunvísindagreinar skólans.
Hópurinn sem sótti inn í þetta karla-
vígi skólans var í þetta sinn óvenju-
stór. Til þess að standa af sér hvassar
tungur sem að sóttu sneri hópurinn
bökum saman til að standa af sér
óveðrið. Saman mynduðu þær flokk-
inn „Sínus“, nefndan eftir þekktu
hugtaki á sviði þess aðalfags sem þær
glímdu við næstu þrjú árin – stærð-
fræðina.
Ein þessara ungu kvenna var
Linda Wendel, sem við kveðjum nú
hinstu kveðju. Hún var dóttir
hjónanna Borghildar og Andrésar
Wendel, sem bæði voru af erlendu
kyni, hún norsk en hann þýskur í föð-
urætt. Linda hóf að loknu stúdents-
prófi vinnu á Tilraunastöðinni að
Keldum en seinna starfaði hún sem
meinatæknir hjá Hjartavernd. Á jóla-
dag árið 1962 giftist hún Agnari Ing-
ólfssyni, líffræðingi, sem þá var við
framhaldsnám í Ann Arbor í Mich-
iganríki í Bandaríkjunum. Hélt hún
síðan með eiginmanni sínum til
Bandaríkjanna og bjuggu þau þar uns
Agnar hafði lokið doktorsprófi í nátt-
úruvísindum. Syni sína, þá Torfa og
Inga, eignuðust hjónin 1968 og 1970,
þann eldri í Bandaríkjunum en hinn
hér heima, eftir að námi Agnars lauk.
Báðir hafa þeir hlotið menntun í
Bandaríkjunum, annar sérlærður
varðandi ljósmyndun bifreiða en hinn
náttúrufræðingur eins og faðir hans
og föðurafi. Agnar gegndi prófessors-
stöðu við raunvísindadeild Háskóla
Íslands frá heimkomu þeirra frá
Bandaríkjunum og starfar enn við
deildina. Barnabörn þeirra eru fjög-
ur, tveir drengir og tvær telpur.
Hópurinn „Sínus“ sem til varð í
Menntaskólanum í Reykjavík á sjötta
tug fyrri aldar hittist áfram öðru
hverju, eftir því sem meðlimir hans
dvöldu hér á landi. Frá árinu 1985 eða
frá því við fögnuðum 25 ára stúdents-
afmæli höfum við hist reglulega og
viðhaldið gömlum kynnum. Vorið
2002 fórum við saman til Stavangurs í
Noregi að heimsækja Elsu Maríu og
Per, bónda hennar, sem eru þar bú-
sett. Í þeirri ferð merktum við í fyrsta
sinn breytingar í fari Lindu. Hún var
fyrir stuttu hætt störfum hjá Hjarta-
vernd. Hafði hún þá greinst með sjúk-
dóminn alzheimer sem nú hefur orðið
henni að aldurtila.
Linda var myndarkona í útsjón og
sópaði af henni hvar sem hún fór. Var
orð á haft hve smekklega hún var
jafnan búin og vandaði vel bæði efnis-
og litaval fata sinna. Hún var snill-
ingur í öllu handbragði og hannaði
gjarnan og vann fatnað sinn sjálf. Var
vandfundin fallegri handavinna en
hennar. Hún hneigðist til alls sem að
listum sneri og sótti mjög málverka-
sýningar og tónlistarviðburði. Við
starfslok fór hún að vinna muni úr
steinum, stráum og jurtum, sem hún
sótti í nágrenni heimilis síns. Kom þar
vel fram meðfædd smekkvísi, fallegt
handbragð og frumleiki sem alls stað-
ar gætti í verkum hennar.
Linda er fyrst okkar stallsystra til
að kveðja þennan heim. Við munum
sakna hennar af fundum okkar í „Sín-
us.“ Minningar sumra okkar um hana
sem vinkonu ná allt til þriggja ára ald-
urs. Agnari, Torfa og Inga sendum
við samúðarkveðjur. Megi minningin
um trausta og góða móður ylja börn-
um Lindu og barnabörnum hvar sem
þau fara um veröldina. Fyrir hönd
bekkjarsystra úr MR,
Halldóra Sigurðardóttir.
Til þín, Linda.
Þakka þér fyrir allt.
Þú veittir stuðning, því þannig
varst þú.
Þú hvattir áfram, því þú vissir að
þess þurfti.
Þú kenndir og aðrir njóta enn góðs
af því.
Þú gafst og gjöfin gefur enn.
Þú veittir innblástur með því einu
að vera þú.
Þú vaktir athygli, enda stórglæsi-
leg.
Þú elskaðir og varst elskuð marg-
falt.
Þú varst og verður ávallt mín fyr-
irmynd, en þín er saknað.
Hlátur þinn er þagnaður, sem hann
gerði fyrir þónokkru.
Þú ert nú á góðum stað, þar sem við
munum sjást aftur.
Þín tengdadóttir,
Elfa Sif.
Linda Wendelbrann, bjuggum við þar nokkrir nem-endur menntaskólans, þar á meðal
bjuggu þar Jón Ísberg og bróðir
hans. Þeir sýndu þá ótrúlegu fyrir-
hyggju að hafa tilbúinn tunnusekk,
sem þeir settu allt sitt dót í og forðuðu
frá því að brenna.
Ég trúi að þessi ótrúlega fyrir-
hyggja hafi fylgt Jóni gegnum lífið og
hafi oftar komið sér vel heldur en í
brunanum.
Í efri bekkjum skólans sátum við
nokkrar bekkjarsystur á fremsta
bekk í skólastofunni. Þar sat Jón líka.
Mér finnst að við höfum haft skjól af
honum.
Ég var í nokkrum sýslumannssam-
kvæmum. Þar hélt Jón skemmtileg-
ustu ræðurnar og lyfti upp stemming-
unni.
Á skólaárunum bindast þau vin-
áttubönd sem ekki slitna. Jón var
traustur félagi, glaðsinna og
skemmtilegur. Hann átti líka við-
kvæman streng, stundum eilítið
sáran en flíkaði því ekki.
Heiðursmaður hefur kvatt. Ég
minnist hans með söknuði og þakk-
læti fyrir ánægjulegar samveru-
stundir.
Þórhildi og fjölskyldu sendi ég inni-
legar samúðarkveðjur.
Sigríður Jónsdóttir.
Jón Ísberg fyrrverandi sýslumaður
Húnvetninga skilur eftir sig mikinn
og merkilegan lífsferil. Jón var ekki
bara sýslumaður hann var einnig for-
ustumaður héraðsins sem oddviti
sýslunefnda og sveitarstjórnarmaður
á Blönduósi í áraraðir og þátttakandi í
pólitísku starfi, bæði í héraði og á
landsvísu. Auk þess var hann mikill
félagsmálamaður og tók þátt virkan
þátt í starfi fjölmargra félaga og
klúbba. Jóns er oft minnst sem sýslu-
manns og slíkt er vel. En hér í um-
dæminu má sjá að ævistarf hans var
svo miklu, miklu meira en embættis-
starfið. Málefnin sem hann vann að
eru fjölmörg og má sjá merki um þau
víða enda hafði Jón bæði kjark og þor
og hann var maður framkvæmda og
nýjunga á öllum sviðum. Hann hafði
óbilandi trú á framtíðina og getu
mannsins til að nýta sér auðlindir og
þekkingu allri þjóðinni til heilla. Ég
hef engum manni kynnst sem hafði
eins glögga framtíðarsýn og Jón og
sýn hans á þróun og framgang byggð-
ar við Húnaflóa var bæði björt og
metnaðarfull. Þar sem aðrir sáu í
verkum og framkvæmdum lokatak-
mark og leiðarenda sá hann ávallt að-
eins skref að enn betra mannlífi og
betri framtíð. Það er þakkarvert að
hafa fengið að starfa með Jóni Ísberg,
ekki síst vegna þess að hann hafði
brennandi áhuga á málefnum lögregl-
unnar og uppbyggingu hennar og var
mjög áhugasamur yfirmaður.
Hann vildi að menn hefðu frum-
kvæði og gerðu hlutina sjálfir í stað
þess að miðstýring og aðsent boðvald
væri að ráðskast með hlutina, enda
tjóaði lítt að ráðskast með hann og
fékk hann stundum bágt fyrir en
hann afgreiddi það ávallt með bros og
gamanyrði á vör. Öll þau ár sem ég
vann með Jóni sá ég hann aldrei
skipta skapi og hann gekk í öll verk
með sama hugarfari og yfirleitt með
bros á vör.
Og tilsvör hans komu snöggt og
voru oft glettin. Ég man að eitt sinn á
fyrstu árum mínum hjá honum sagði
ég við hann að mér væri sagt að hann
réði einn öllu í hreppsnefndinni á
Blönduósi. Svarið kom eldsnöggt eins
og hans var vani og var einfalt. „Því
miður er það nú ekki rétt“. Þá þurfti
ekki að ræða það meira. Jón var allt í
senn afar notalegur yfirmaður,
skemmtilegur félagi og frábær leið-
beinandi í mannlegum samskiptum.
Hann lét sér afar annt um þá sem
höllum fæti stóðu í samfélaginu og
sáust þess víða merki í embættisverk-
um hans.
Jón og eiginkona hans Þórhildur
Ísberg voru mjög samhent og heimili
þeirra afar hlýlegt og notalegt. Þar er
skarð fyrir skildi að Jóni brott gengn-
um en systkinahópurinn er stór og
barnabörnin orðin mörg.
Þórhildi, börnum þeirra Jóns og
barnabörnum votta ég samúð mína en
ég veit líka að í öllum frábæru minn-
ingunum mun eiginmaðurinn, faðir-
inn, afinn og samferðamaðurinn, Jón
Ísberg, lifa um ókomna tíð.
Kristján Þorbjörnsson.