Morgunblaðið - 03.07.2009, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 03.07.2009, Qupperneq 36
36 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 2009 Allir kærastar mínir eru skyldugir til þess að hafa að minnsta kosti eitt húðflúr.43 » SKÁLDSAGA Auðar Övu Ólafsdóttur, Afleggjarinn, hef- ur vakið mikla athygli í Dan- mörku en bókin hlaut menn- ingarverðlaun DV og Fjöruverðlaunin á síðasta ári auk þess að vera tilnefnd til Norrænu bókmenntaverð- launanna. Í dagblaðinu Politi- ken sagði m.a. að bókin væri „eins og gullaldarmálverk“ og í annarri gagnrýni danskri er talað um fegurð, þéttofinn texta, ljóðrænu og frumlega ástarsögu. Útgáfurétturinn að Afleggj- aranum hefur verið seldur til þýska forlagsins Su- hrkamp Verlag og forlagið Salka hefur gengið frá samningi um útgáfurétt bókarinnar í Fakklandi. Bókmenntir Afleggjarinn lof- aður í Danmörku Afleggjarinn á dönsku, Stiklingen KÓR Vor Frelsers Kirke frá Álaborg heldur tónleika í Landakirkju, Vestmanna- eyjum, í dag kl. 17. Á efnisskrá tónleikanna er fjögurra til átta radda norræn tónlist, bæði gömul og ný. Kirkjukórinn er skipaður átta söngvurum sem syngja við allar guðsþjónustur safnaðarins en kórinn heldur auk þess 2-3 tónleika á ári, í eigin kirkju sem og annars staðar. Á tónleikum er gjarnan fjölgað í kórnum og í þessari tónleikaferð eru 11 konur og karlar sem stunda tónlistarnám á háskólastigi. Þar af eru fimm í námi í klassískum söng. Stjórnandi er Solveig Brandt Særkjær. Tónlist 4-8 radda norræn tónlist í Eyjum Solveig Brandt Særkjær HRÖNN Axelsdóttir opnar á morgun ljós- myndasýningu í Listasal Mosfellsbæjar kl. 14. Sýningin ber yfirskrift- ina Huldufólk og álaga- blettir. Hrönn hefur unnið að þessu verkefni í mörg ár, ferðast um landið, talað við fólk og tekið ljós- myndir af álagablettum og híbýlum huldufólks. Á sýningunni verða valdar ljósmyndir frá verk- efninu til sýnis. Hrönn notaði svokallaða Pinhole- myndavél við myndatökurnar og segir áhrifin þau að myndirnar sýni viðfangsefnið á annan hátt en þann sem við sjáum alla jafna. Ljósmyndirnar voru teknar á filmu. Myndlist Huldufólk og álaga- blettir í Mosfellsbæ Ein af ljósmyndum Hrannar Axelsdóttur Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „ÞAÐ er gaman að geta kynnt á Íslandi eðal-sönghópinn UniCum Laude frá Ungverjalandi. Þetta er yndislegur hópur sem svipar um margt til King’s Singers. Þeir hafa mikla breidd í verkefnavali og syngja allt frá elstu kirkjutónlist til bítlalaga,“ segir Steinunn Birna Ragn- arsdóttir, listrænn stjórnandi Reykholtshátíðar, sem haldin verður dagana 22. - 26. júlí. Sönghópurinn Uni- Cum Laude heldur tvenna tónleika á hátíðinni, miðviku- dags- og fimmtudagskvöld með gjörólíkri dagskrá hvort kvöld; miðaldatónlist fyrra kvöldið, en madrigölum, gospel og léttari tónlist á fimmtudagskvöldið. Lífsglaður og fjölhæfur æringi „Þótt mikið verði um karlaraddir á hátíðinni í ár vegur St. Christopher-hljómsveitin frá Vilnius upp á móti því. Hljómsveitin sló heldur betur í gegn þegar hún kom síð- ast á hátíðina og gaman að geta boðið henni að koma aft- ur með sínum lífsglaða og fjölhæfa stjórnanda Donatas Katkus. Hann er stundum kallaður Kaktus vegna mis- læsis en hefur sjálfur húmor fyrir því. Hann er æringi, en ákaflega flinkur og fær tónlistarmaður sem hefur gaman af lífinu og það er ekki slæmur eiginleiki í dag.“ St. Christopher-hljómsveitin frumflytur á laugardags- kvöldinu fiðlukonsert eftir Anatolijus Šenderovas sem Steinunn Birna segir vera um það bil að skipa sér í fremstu röð litháískra tónskálda. Á þeim tónleikum leik- ur sveitin einnig verk eftir Suk og Haydn, en á tónleikum á sunnudag leikur hún verk eftir Sjostakovits, Elgar og Nielsen og Steinunn Birna leikur með þeim. Söngtónleikar eru fastur liður á Reykholtshátíð. Þeir verða nú á föstudagskvöldinu, og það er Auður Gunn- arsdóttir sem syngur með Steinunni Birnu. „Svo eru það bræður mínir í Fóstbræðrum. Tónleikar þeirra verða skemmtilegur lokahnykkur á hátíðinni. Hljómsveitin leikur með þeim og ég, og Auður syngur einsöng. Þetta verður grand finale og kórinn frumflytur nýjar útsetningar á íslenskum lögum eftir stjórnanda sinn, Árna Harðarson, í léttri og blandaðri dagskrá. Upplýsingar um dagskrá eru á reykholtshatid.is. Karlar og einn Katkus  Ungverskur sönghópur sem flytur allt frá elstu kirkjutónlist til bítlalaga og hljómsveit frá Litháen verða meðal gesta á Reykholtshátíð í lok júlímánaðar Yndislegir UniCum Laude frá Ungverjalandi syngur miðaldamúsík jafnt sem bítlalög. NÝRÆKTARSTYRKJUM Bókmenntasjóðs var úthlutað í gær. Nýræktarstyrkjum er ætl- að að styðja við útgáfu á nýjum íslenskum skáldverkum sem hafa takmarkaða eða litla tekjuvon en hafa ótvírætt menningarlegt gildi, og er þetta í annað sinn sem styrkjunum er út- hlutað, en þeir nema 200 þúsund krónum hver. Sex nýræktarverkefni hlutu styrki. Þorgerður Agla Magnúsdóttir, fram- kvæmdastjóri Bókmenntasjóðs, segir að í fyrra hafi níu sótt um styrki en 27 í ár. „Aukningin er umtalsverð og töluvert af frambæri-legu og fínu efni. Það er hefð fyrir því á Íslandi að fyrstu verk höfunda séu ljóða- bækur, og ljóðabækur voru drjúgur hluti um- sókna. Þótt flestar umsóknir væru frá yngri höfundum, þá eru líka innan um eldri nýrækt- endur sem gaman er að sjá. Styrkirnir eru hugsaðir sem útgáfustyrkir, því margir gefa sjálfir út sín fyrstu verk eða hjá höfunda- forlögum eins og Nykri og Nýhil, en höfund- arnir geta líka farið með peninginn í rassvas- anum í stærri forlögin.“ Styrki hlutu: Svuntustrengur, örsögur og smásögur eftir Sigurlín Bjarneyju Gísladóttur; Tónlist hamingjunnar, örsagnasafn eftir Völu Þórsdóttur; Loðmar, barnabók eftir Emblu Vigfúsdóttur og Auði Ösp Guðmundsdóttur; Tími hnyttninnar er liðinn, ljóð, prósar og teikningar eftir Berg Ebba Benediktsson; ónefnd ljóðabók eftir Gunnar Má Gunnarsson og Myndir úr skilvindunni, ljóðabók eftir Arn- grím Vídalín. Loðmar minnir á tungumálið „Berg Ebba þekkja margir sem söngvara Sprengjuhallarinnar. Gunnar Már er Akureyr- ingur, hefur áður gefið úr ljóðakverið Skimað út og stendur fyrir Litlu ljóðahátíðinni á Ak- ureyri. Arngrímur hefur áður gefið út ljóða- bókina Enduróm upphafsins og hefur fengið ljóð sín birt hér og þar. Sigurlín Bjarney, höf- undur Svuntustrengs, gaf út Fjallvegi í Reykjavík og hefur fengið verðlaun fyrir sögur og birt efni sitt víða. Vala Þórsdóttir hefur komið víða við en hefur ekki gefið neitt út áð- ur. Það stendur til að gefa bók hennar sam- tímis út á Íslandi og í Tyrklandi. Loks er það Loðmar eftir ungu stúlkurnar tvær. Þetta er metnaðarfullt og skemmtilegt verkefni og þær fengu vinnustyrk frá Rannís til að vinna að verkinu í sumar. Bókinni er ætl- að að efla málskilning og fjölbreytileika í orða- notkun.“ Sjálfar segja höfundarnir: „Markmið okkar með bókinni er að minna á tungumálið okkar, við viljum endurvekja íslensk orð sem eru að falla í gleymskunnar dá og auka orða- forða yngstu kynslóðarinnar.“ begga@mbl.is Vöxtur í nýsköpun  6 bækur hljóta nýræktarstyrki Bókmenntasjóðs  Ljóð og örsögur og barnabók um tungumálið Morgunblaðið/Eggert Nýrækt Styrkþegarnir með menntamálaráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, í gær. ÁSLAUG Thorlacius formaður SÍM, Sambands íslenskra myndlistar- manna hefur ákveðið að láta af störf- um formanns sambandsins í kjölfar umræðu síðustu daga um val á Borgarlista- manni Reykjavík- ur 2009. Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður var valin Borgar- listamaður þessu sinni. Bókun áheyrnarfulltrúa BÍL, Bandalags íslenskra listamanna í menningar- og ferðamálaráði, þeirra Áslaugar og Ágústs Guðmundssonar kvikmyndagerðarmanns, þess efnis að listamaður hefði átt að verða fyrir valinu en ekki hönnuður hefur verið gagnrýnd af hópum listamanna. „Þetta er ákveðið. Ég hef gegnt starfi formanns SÍM í sjö ár og er al- veg tilbúin til að takast á við fólk ut- an félagsins. En þegar ég hef ekki stuðning innan félagsins og maður úr stjórn SÍM skrifar undir gagn- rýni á bókun okkar, þá finnst mér kominn tími til að einhver annar taki þetta að sér,“ segir Áslaug. Komnir út fyrir þekkingarsvið Í grein í blaðinu í dag fjallar Ás- laug enn frekar um ástæður þess að hún lætur af formennsku SÍM og segir: „Við fulltrúar listamanna töld- um rétt að gera athugasemd við þessa stefnubreytingu enda er okkar hlutverk að verja hagsmuni lista- manna. Ég tel ennfremur að fulltrú- ar stjórnmálaflokka sem tímabundið sitja í ráðinu (mannaskipti eru þar tíð, sumir sitja jafnvel aðeins einn fund) séu komnir langt út fyrir sitt þekkingarsvið með að skilgreina hvað sé list.“ Um framhaldið segir Áslaug að annað hvort taki varaformaðurinn, Katrín Elvarsdóttir, við for- mennsku, eða að boðað verði til aukaaðalfundar. „Ég er í öðru starfi á móti formannsstarfinu en þar fyrir utan hafa félagsmálin auðvitað líka tekið allan minn frítíma, kvöld og helgar. En það verður ekki vandi að finna mér annað að gera við tímann.“ Áslaug hættir Umræðan um val borgarlistamanns veldur afsögninni Áslaug Thorlacius „UPPSKRIFTIN að þessu er ómæld bjart- sýni og þrjóska,“ segir Steinunn Birna, spurð um það hvernig hún fari að því að halda svo veglega hátíð í miðri kreppu. „Ég hef þurft að standa ötullega við bak- ið á hátíðinni frá byrjun. Það hefur tekist farsællega að halda henni réttum megin við núllið. Landslagið í dag er ólíkt því sem áður var og opinber framlög aldrei mikil- vægari og skelfilegt ef þau fara undir hníf- inn. Þær fjölmörgu hátíðir sem haldnar eru um landið eru mikilvægar fyrir sjálfs- mynd og menningarlega reisn landsbyggð- arinnar. Þær skipta máli og eru atvinnu- skapandi, og þar skila styrkirnir sér til baka. Það er líka ýmisskonar atvinnuskap- andi þjónusta tengd þessum hátíðum. Því má ekki gleyma. Landkynningin í listinni vegur líka upp á móti því misheppnaða orðspori sem af okkur fer, af sökum sem við fæst eigum nokkra hlutdeild í. Ástæðurnar fyrir því að missa móðinn eru fleiri en hinar. En ánægjan sem fæst í staðinn er stórfengleg. Hún er upplifun sem veitir innblástur. Það er til annars konar næring en sú sem í munninn fer.“ Ómæld bjartsýni og þrjóska

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.