Morgunblaðið - 06.07.2009, Síða 9

Morgunblaðið - 06.07.2009, Síða 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2009 HAGSMUNASAMTÖK heimilanna hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau lýsa yfir miklum áhyggjum af sí- fellt versnandi stöðu íslenskra heim- ila. Segir þar að ríkisstjórnin hafi ákveðið að þyngja enn róður heimil- anna með aukinni skattbyrði og skerðingu ráðstöfunartekja um að jafnaði 90.000 krónur á mánuði. „Í ljósi þessara niðurstaðna varð- andi stöðu heimilanna krefjast Hags- munasamtök heimilanna þess að rík- isstjórnin láti útbúa hagspá heimilanna, sem nái yfir sama tímabil og endurreisn ríkissjóðs, þ.e. frá og með 2009 til 2013. Slík hagspá er nauðsynleg til að sjá hver fjárhags- staða heimilanna er og hvernig hún mun þróast á næstu árum. Samtökin vilja líka sjá til hvaða ráðstafana rík- isstjórnin hyggst grípa til að end- urreisa fjárhag heimilanna. Núver- andi skuldastaða þeirra er augljós- lega ógnvænleg og bendir ekkert til þess að það batni á komandi árum nema gripið sé til róttækra aðgerða,“ segja samtökin í yfirlýsingunni. Það sé til lítils að rétta við fjárhag ríkissjóðs og fjármálafyrirtækja, ef það verði á kostnað heimila, atvinnu- lífs og sveitarfélaga. Vilja fá hagspá heimilanna Ráðstöfunartekjur 90 þúsundum minni Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is „MÉR finnst svona ferðalag vera eins og kennslubók í ýmsu fyrir lífið. Þetta eru svo sterkar líkingar. Mað- ur þarf að gera áætlun, meta getu sína og ná ákveðnum markmiðum,“ segir Gísli H. Friðgeirsson, eðlis- fræðingur og kajakræðari. Hann er nú staddur við Öxarfjörð eftir að hafa róið þangað sem leið liggur rétt- sælis í kringum landið frá Reykjavík. Hann ákvað að hvíla sig um helgina en rær aftur af stað í dag, áleiðis fyr- ir Melrakkasléttu. „Það er mjög skemmtilegt að velta því fyrir sér, að lífið verður í þessari mynd eitt ferðalag. Maður verður alltaf feginn að sjá til lands, þegar það er þoka. Maður þarf líka stund- um að meta hvort maður fer með fyrra eða seinna fallinu. Það er margt svona sem verður lifandi í huganum, sem annars eru bara dauð orðatiltæki hjá mönnum.“ Miðnætursólin sem ferðafélagi Gísli hefur síðustu daga róið yfir Húnaflóa, Skagafjörð, Eyjafjörð og Skjálfanda. Veðurskilyrði hafa verið best á nóttunni og Gísli því róið í miðnætursólskini á spegilsléttum sjó, þegar hvað best hefur látið. „Ég, sem er maður kominn á efri ár og vanur að fara að sofa á mínum fasta tíma, hélt ég gæti ekki breytt þessu, en nú hef ég snúið sólar- hringnum við. Eins og Íslendingar vita sér vart mun dags og nætur hér fyrir norðan núna.“ Gísli hefur róið heilu næturnar og sest upp í fjöru af og til, hvílt sig og horft á miðnæt- ursólina. „Það er ógleymanlegt,“ segir hann. Sjö klukkustundir í svartaþoku Sólin skín þó ekki alltaf. Til dæmis reri Gísli í sjö tíma í svartaþoku, þeg- ar hann fór yfir Skagafjörð. Þá kom sér vel að vera með GPS-tæki en yf- irleitt siglir Gísli eftir hefðbundnum áttavita og korti, sem hann hefur plastað á dekkið á bátnum fyrir framan sig. Hann kíkir svo af og til á tækið til að sjá hvort hann rekur mikið af leið, vegna vinda eða strauma. Tækið sendir líka frá sér skilaboð á nokkurra mínútna fresti, með upplýsingum um staðsetn- inguna, svo aðrir geti fylgst með því hvar hann er. „Svo þykist maður þekkja sitt land og vita hvar maður er um leið og maður sér kennileiti,“ segir Gísli. Það sama gildi þegar róið er fyrir firði eins og þegar farið er yfir ár. Maður ætti að hafa vaðið fyrir neðan sig og gæta þess að fara ekki of tæpt til að ná á ystu nes hinumegin. Gísli reri yfir Eyjafjörð aðfaranótt fyrsta júlí, í 64 kílómetra löngum legg frá Fljótavík í Fljótum í Skaga- firði, í Hvalvatnsfjörð í Fjörðum. Ég fékk skilaboð frá félaga mínum um veðrið um nóttina. Það var þvílík blíða að ég fór framhjá Siglufirði í Héðinsfjörð, hvíldi mig í fjörunni fyrir neðan Hvanndalabjörg, setti upp prímusinn, hallaði mér upp að bjarginu og hofði á miðnætursólina. Svo fékk ég mér vel að borða áður en ég fór yfir Eyjafjörðinn. Gísli var fimm tíma yfir fjörðinn sjálfan, en þá var eftir góður spotti inn í Fjörður. Steinsofnaði í fjörunni „Ég var mjög heillaður að koma þar upp á fjörukambinn og horfa inn í þá fegurð, en ég var orðinn lúinn eftir róðurinn. Þegar ég ætlaði að fara að tjalda dró ský frá sólu. Það var heitt og það eina sem ég sá var svefnpokinn minn. Ég lagðist í gras- ið og sofnaði með allt draslið í kring- um mig. Öllum formsatriðum var sleppt. Þetta var nú nánast ný reynsla, að líða svona út af í móanum og sofa svo lengi og vel.“ Gísli segir að afköstin hjá honum í róðrinum séu ekki alveg jafnmikil og hann hafði vonast til. Spurningin sé hins vegar hvort hann hafi farið yfir sín þolmörk. Hafi hann gert það muni úthaldið byrja að minnka, en annars muni það aukast. Það sé ákveðinn línudans hvað hann geti boðið sjálfum sér upp á. Línudansinn heldur áfram á Öxarfirðinum í dag. „Eins og kennslubók fyrir lífið“  Gísli H. Friðgeirsson hefur róið hálfa leiðina í kringum landið á kajak  Tók sér hvíld um helgina  Leið út af og steinsofnaði í fjörunni í Fjörðum eftir langan róður  „Sleppti öllum formlegheitum“ Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson Á sjó Gísli hefur róið mikið á nóttunni, enda oft betra veður þá. Það sjást hvort eð er ekki skil á degi og nóttu. Í HNOTSKURN »Gísli lagði upp í ferðina fráGeldinganesi þann 1. júní. »Almennt hefur ferðingengið vel en Gísli kveðst vera örlítið á eftir áætlun, ekki síst vegna veðurtafa, til dæmis á Húnaflóa en einnig í Ísafjarðardjúpi. »Hann hefur nú lagt að bakimeira en 1.000 kílómetra og á annað eins eftir. »Gísli er fyrsti Íslending-urinn til að reyna hring- ferð um landið á kajak. Gísli er ekki eini ræðarinn sem ætlar sér hringinn í ár. Hin bandaríska Margaret Mann afréð að róa ein í kringum landið, eftir að félagi hennar Marcus De- muth hætti við. Marcus reyndi að róa hringinn í fyrra en varð að játa sig sigraðan eftir tveggja vikna róður. Margaret lagði upp frá Geld- inganesi 6. júní og hafði lagt að baki um 500 kílómetra fyrir helgi, þegar hún tók land í Drangavík. Takist Margaret ætlunarverk sitt, verður hún reyndar ekki fyrsta konan til þess að róa hring- inn, því Þjóðverjinn Freya Hoff- meister lauk sömu þrekraun sum- arið 2007, ásamt öðrum ræðara, Greg Stamer að nafni. Að sögn Magnúsar Sigurjóns- sonar, sem fylgst hefur með ferð- um Margaretar, er hún stödd ein- hvers staðar við Húnaflóann sem stendur, en hún lætur vita af stað- setningu sinni um það bil tvisvar í viku. Bandarískur ræðari fylgir fast á hæla Gísla Margaret Mann

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.