Morgunblaðið - 06.07.2009, Side 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2009
Bankahrunið hér er stærra en En-ron-málið, sem árið 2001 var
stærsta gjaldþrotið í sögu Banda-
ríkjanna. Það er líka stærra en
WorldCom-málið, sem árið 2002 var
stærsta gjaldþrotið í sögu sama
lands.“
Þessi orð blöstu við á forsíðuMorgunblaðsins á föstudag. Þar
var vitnað í Helge Skogseth Berg,
norskan sérfræð-
ing, sem Eva Joly,
ráðgjafi sérstaks
saksóknara í
rannsókn á
bankahruninu,
hefur fengið til
aðstoðar við
rannsóknina.
Reyndar varekki ljóst af orðum hans hvaða
skilning bæri að leggja í þau.
Var hann að tala um þá fjármuni,sem töpuðust í hruninu?
Eða átti norski sérfræðingurinnvið umfang þeirra brota, sem
framin voru?
Í bók Jóns F. Thoroddsens, Íslenskaefnahagsundrið, flugelda-
hagfræði fyrir byrjendur, er birtur
listi Moody’s yfir helstu gjaldþrot
sögunnar.
Þar eru Lehman Brothers í efstasæti. Það var 120.483 milljarða
dollara gjaldþrot. Næst kemur
Worldcom. Þar fóru 33.608 millj-
arðar dollara í súginn. Kaupþing er í
fjórða sæti (20.063 milljarðar doll-
ara) og Glitnir í því sjötta (18.773
milljarðar dollara). Enron er hins
vegar aðeins í níunda sæti (13.852
milljarðar dollara) á listanum og síð-
an kemur Landsbankinn í því 11.
(12.162 milljarðar dollara).
Hafi Berg verið að tala um fjár-muni var hann síst að ýkja.
Helge Skogseth
Berg
Engar ýkjur
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 14 skýjað Lúxemborg 25 skýjað Algarve 32 heiðskírt
Bolungarvík 15 skýjað Brussel 23 skýjað Madríd 30 heiðskírt
Akureyri 19 léttskýjað Dublin 14 skúrir Barcelona 28 léttskýjað
Egilsstaðir 13 skýjað Glasgow 19 léttskýjað Mallorca 30 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 12 alskýjað London 24 heiðskírt Róm 27 léttskýjað
Nuuk 11 heiðskírt París 25 heiðskírt Aþena 28 skýjað
Þórshöfn 14 skýjað Amsterdam 24 léttskýjað Winnipeg 21 skýjað
Ósló 13 skýjað Hamborg 23 léttskýjað Montreal 21 léttskýjað
Kaupmannahöfn 22 skýjað Berlín 24 léttskýjað New York 23 heiðskírt
Stokkhólmur 18 heiðskírt Vín 23 skýjað Chicago 24 léttskýjað
Helsinki 13 skýjað Moskva 10 skúrir Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
6. júlí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5.53 3,2 11.58 0,8 18.16 3,7 3:18 23:48
ÍSAFJÖRÐUR 2.02 0,7 7.48 1,8 13.54 0,7 20.10 2,1 2:24 24:52
SIGLUFJÖRÐUR 4.10 0,3 10.40 1,1 16.21 0,5 22.24 1,3 2:03 24:38
DJÚPIVOGUR 2.50 1,7 9.00 0,6 15.30 2,1 21.41 0,7 2:36 23:29
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á þriðjudag
Hæg austlæg átt, skýjað með
köflum og smáskúrir S-lands.
Hiti 10 til 20 stig, hlýjast vest-
antil.
Á miðvikudag og fimmtudag
Hæg breytileg átt eða hafgola,
þurrt að mestu og víða bjart
veður, en stöku skúrir suðvest-
antil. Hiti 10 til 22 stig, hlýjast í
innsveitum.
Á föstudag og laugardag
Útlit fyrir svipað veður áfram.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Austlæg eða breytileg átt, 3-10
m/s, en austan 10-15 allra
syðst. Skýjað með köflum eða
léttskýjað, en þokubakkar eða
súld af og til við suður- og aust-
urströndina. Hiti 10 til 22 stig,
hlýjast NV-lands.
„ÞETTA er tvímælalaust
heiður og traust sem manni er
sýnt. Það er líka spennandi að
takast á við það verkefni að
efla EWLA og samvinnu
kvenlögfræðinga í Evrópu,“
segir dr. Herdís Þorgeirsdótt-
ir sem var kjörin forseti Evr-
ópusamtaka kvenlögfræðinga
(EWLA) á aðalfundi samtak-
anna á árlegri ráðstefnu
þeirra sem haldin var í Þjóð-
menningarhúsinu í Reykjavík og lauk nú um
helgina. Um 150 manns sátu ráðstefnuna, þar af
lögfræðingar frá aðildarríkjum Evrópusam-
bandsins, yfirmenn stofnana þess, þingmenn
Evrópuþings og Evrópuráðsþings og forseti
stærsta kvenlögfræðingasambands Bandaríkj-
anna. Eva Joly var aðalfyrirlesari á þinginu en
auk hennar voru um 35 innlendir og erlendir fyr-
irlesarar með framsögu.
Dr. Herdís Þorgeirsdóttir er þriðji forseti Evr-
ópusamtaka kvenlögfræðinga sem stofnuð voru
árið 2000 og eru skráð í Brussel. EWLA er sam-
starfsvettvangur kvenlögfræðinga í Evrópu en
markmið samtakanna er að hafa áhrif á löggjöf
og stjórnmál í aðildarríkjum Evrópusambands-
ins og EES-ríkjunum á grundvelli jafnréttis
kynjanna. Aðild að EWLA eiga samtök kvenna í
lögmennsku, félög lögfræðinga, lögfræðingar og
laganemar. Samtökin starfa náið með aðildar-
félögum kvenna í lögmennsku, lagadeildum há-
skóla, stofnunum Evrópusambands og Evrópu-
ráðs og stjórnvöldum í aðildarríkjum. Samtökin
senda frá sér ályktanir og vinna að fræðilegum
rannsóknum í vinnuhópum. sigrunrosa@mbl.is
„Tvímælalaust heiður og traust“
Herdís Þorgeirsdóttir kjörin forseti Evrópusamtaka kvenlögfræðinga
Herdís
Þorgeirsdóttir
ÚRSLIT hafa verið tilkynnt í sam-
keppni um nýtt hjúkrunarheimili á
Seltjarnarnesi sem á að rísa við hlið-
ina á Seltjarnarneskirkju, neðan
Valhúsahæðar.
Alls óskuðu 25 teymi eftir þátt-
töku og voru 5 valin til að taka þátt í
lokaðri samkeppni um hönnun bygg-
ingarinnar. Jónmundur Guðmarsson
fyrrverandi bæjarstjóri Seltjarn-
arness og formaður dómnefnd-
arinnar, veitti Arkís ehf., Hniti hf. og
Landark verðlaun fyrir bestu tillög-
una á Bókasafni Seltjarnarness mið-
vikudaginn 1. júlí sl.
Rökstuðningur dómnefndar fyrir
bestu tillögunni var meðal annars að
hönnuðir hefðu haft að leiðarljósi að
endurspegla heimilislega en jafn-
framt örvandi umgjörð utan um
hjúkrunarheimili sem falli vel að
nánasta umhverfi. Þetta markmið
hafi tekist með ágætum. Öll „heim-
ilin“ séu á efri hæð byggingarinnar.
„Með markvissri hliðrun rýma
hefur höfundum tekist að skapa
mjög áhugaverða og líflega umgjörð
um dvalarstaði íbúanna. Sameig-
inleg rými heimilanna og flestar
íbúðanna eru ýmist í mikilli nánd við
náttúru Valhúsahæðar eða skemmti-
lega útfærða garða sem teygja sig
nokkuð langt inn í bygginguna,“ seg-
ir m.a. í rökstuðningi dómnefndar.
Tillögur teymanna 5 sem tóku
þátt í samkeppninni verða til sýnis í
Eiðisskeri á Bókasafni Seltjarn-
arness til 1. ágúst nk.
Ljósmynd/Ellen Calmon
Verðlaun afhent Verðlaunahafar ásamt dómnefnd í samkeppninni.
Úrslit í samkeppni um
nýtt hjúkrunarheimili