Morgunblaðið - 06.07.2009, Síða 11

Morgunblaðið - 06.07.2009, Síða 11
Fréttir 11VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2009 ● FJÖLMIÐLAFÓLK sækir fund í Þjóð- menningarhúsinu í hádeginu í dag þar sem þeir, sem koma að endurreisn bankakerfisins, ætla að kynna hvernig starfinu miðar áfram. Erindi Sveins Haralds Öygards seðla- bankastjóra ber nafnið „Lausn banka- kreppunnar á Íslandi, verkefni og alþjóð- leg fordæmi“. Einnig mun Helga Valfells, aðstoðarmaður iðnaðarráðherra, fjalla um samninga við kröfuhafa gömlu bank- anna. Gunnar Andersen, forstjóri Fjár- málaeftirlitsins, fjallar um lokahnykkinn í endurfjármögnun bankakerfisins. Að endingu ætlar Mats Josefsson, sem er ríkisstjórninni til ráðgjafar í þessum efn- um, að fjalla um stjórnarhætti, starfsemi og hlutverk eignarhaldsfélaga og eigna- umsýslufélaga. Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra flytur stutt ávarp í upphafi fundarins. Í fundarboði segir að markmið fund- arins sé að veita fjölmiðlum góða innsýn í þá vinnu sem nú stendur yfir og hefur verið unnin við endurreisn bankakerf- isins. Fjallað verði um skipulag, hindranir, alþjóðleg viðmið, skipulag á ríkisfyr- irtækjum, eignamat og samninga við kröfuhafa. bjorgvin@mbl.is Fjölmiðlum kynnt end- urreisn bankakerfisins Þetta helst ... FRÉTTASKÝRING Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is GRÁI markaðurinn svokallaði með gjaldeyri hér á landi er mun umfangs- meiri en verið hefur látið í umræð- unni. Hafa menn látið þau orð falla að aðeins sé um að ræða handfylli fólks, sem kaupi gjaldeyri fyrir 500.000 krónur þegar það fer utan og því sé vandinn ekki mikill. Veltan er reynd- ar mjög sveiflukennd, en hleypur, samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins, á milljörðum króna. Hafa gjald- eyrishöftin reynst mikil gósentíð fyrir fjölda „haftamiðlara“. Viðskipti með gjaldeyri eru með mismunandi hætti á þessum tímum gjaldeyrishafta. Er mikilvægt að gera greinarmun á viðskiptum, sem greini- lega eru innan ramma laganna og þeirra, sem vafasamari eru. Gildandi reglum um gjaldeyrishöft er ætlað að tempra flæði gjaldeyris úr landinu, en við þær aðstæður, þar sem tvö gengi eru á krónunni, er í raun óhjákvæmilegt að ákveðnir að- ilar nýti sér þær aðstæður. Gengin tvö eru annars vegar gengi seðlabanka Íslands og hins vegar gengi krónunnar erlendis. Fyrir hverja evru, sem keypt er á seðla- bankagenginu, eru greiddar um 175 krónur, en erlendis er gengi evrunnar í kringum 210 krónur. Fyrir mann sem kaupir erlendan gjaldeyri hér á landi, flytur hann út og skiptir fyrir krónur, er ágóðinn því umtalsverður. Hefur Morgunblaðið heimildir fyrir því að einstakir aðilar hafi hagnast um hundruð milljóna með þessum hætti á tiltölulega skömmum tíma með því að nýta sér glufur í gjaldeyr- ishöftunum. Færa má fyrir því rök að slík við- skipti, „að taka hringinn“, eins og þau hafa verið kölluð, séu mun skaðlegri en tregða útflutningsfyrirtækja við að skipta erlendum gjaldmiðli í krónur. Gengi Seðlabankans er jú niður- greitt af skattgreiðendum og með gjaldeyrisfléttunum er óneitanlega verið að hafa fé af Seðlabankanum og þar með ríkinu. Með þessum hætti eru haftamiðlararnir hægt og býtandi að leiða gjaldeyri almennings til út- lendinga til að græða á mismuninum. Skipti útflutningsfyrirtæki erlend- um gjaldeyri sínum ekki í krónur tap- ar Seðlabankinn hins vegar ekki gjaldeyri. Vissulega mun gengi krón- unnar seint styrkjast fyrr en slík skipti verða algengari. Styrking krón- unnar á innlenda markaðnum myndi hins vegar auka enn það bil sem er á milli gengis krónunnar hjá Seðla- bankanum og gengisins erlendis. Vandinn er því, eins og áður segir, sú staða að yfirhöfuð séu tvö gengi á gjaldmiðlinum og svo lengi sem sú staða viðgengst má búast við því að viðskipti sem þessi haldi áfram. Græða háar fjárhæðir á því að „taka hringinn“ Morgunblaðið/Ómar Krónur Fljótlega eftir hrunið í haust tók að bera á gjaldeyrisskorti. Með því að nýta sér mun á gengi krónunnar hér á landi og í út- löndum geta braskarar grætt mjög á kostnað Seðlabankans STÆRSTI banki Þýskalands, Deutsche Bank, réð einkaspæjara til að njósna um starfsfólk bankans, þar á meðal framkvæmdastjóra, samkvæmt þýska tímaritinu Der Spiegel. Einnig var njósnað um hlut- hafa. Í lok maí var sett af stað innan- hússrannsókn á málinu og hvort lög um friðhelgi einkalífsins hefðu verið brotin, samkvæmt grein í Spiegel í dag. Fylgst var með hver hitti hvern vegna gruns um leka til fjölmiðla. Bankastjóri bankans, Josef Ac- kermann, hét því á aðalfundi að komast að hinu sanna í málinu. Létu njósna um hluthafa og starfsfólk Deutsche Bank réð einkaspæjara EFNAHAGSBROTADEILD bresku lögreglunnar (Serious Fraud Office) rannsakar þrot breska bílaframleið- andans MG Rover. Fyrirtækið fór í þrot fyrir fjórum árum síðan. Við það misstu um sex þúsund starfsmenn Rover vinnuna og talið er að 9 þúsund störf tengd fyrirtækinu hafi einnig glatast. Rov- er var eitt stærsta einkafyrirtæki Bretlands þegar það fór í þrot. Í kjölfarið voru helstu eigendur þess sakaðir um að hafa skotið öllum eignum félagsins undan. Rannsaka undanskot Þrot Rover til rann- sóknar í Bretlandi um 1% í byrjun júní, en hélt innláns- vöxtum óbreyttum,“ segir Agnar Tómas Möller, sérfræðingur hjá GAM Management. Er svo komið að ávöxtunarkrafa á lengstu ríkis- skuldabréfin, þau sem koma á gjald- daga árin 2019 og 2025, er 8,9-8,95%. Samkvæmt útreikningum fjár- málaráðuneytisins mun hallarekstur ríkissjóðs í ár nema tæpum 180 millj- örðum króna og ríflega 160 milljörð- um samtals árin 2010 og 2011. Þetta bil verður ekki brúað nema með lán- töku á innlendum markaði. Lækki ávöxtunarkrafa lengstu rík- isbréfanna ekki er útlit fyrir að ríkið standi frammi fyrir því að þurfa ann- aðhvort að sætta sig við gríðarlega háa vexti á skuldum sínum, eða að taka skemmri lán. Fjármögnun á 6% nafnvöxtum, eins og krafan á skemmri bréfum er nú, yrði líklega hagstæð þar sem reikna má með nokkurri verðbólgu á næstunni. Ómögulegt er hins vegar að meta það nú hver vaxtakostnaðurinn verð- ur fyrir ríkið, enda fer það allt eftir því hvenær viðkomandi skuldabréf verða gefin út og hver ávöxtunar- krafan verður. Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is MIÐAÐ við núverandi ávöxtunar- kröfu á ríkisskuldabréfum verður fjármögnun á hallarekstri ríkisins afar dýr. Í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðla- bankans á fimmtudag hækkaði ávöxtunarkrafa á skuldabréf ríkis- sjóðs, sem þýðir m.ö.o. að verð bréf- anna lækkaði. „Hefur krafan reynd- ar verið að hækka stöðugt um nokkurt skeið, eða frá því að Seðla- bankinn ákvað að lækka stýrivexti Fjármögnunarkostnaður ríkisins eykst Vextir Markaðurinn tók vaxta- ákvörðun Seðlabanka illa. Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is VIRÐI HS Orku er 41,3 milljarðar króna samkvæmt verðmati ráðgjafa- fyrirtækisins Arctica Finance sem er dagsett 12. desember 2008. Miðað við það ætti virði 34,7 prósenta hlut- ar Reykjanesbæjar í fyrirtækinu að vera um 14,3 milljarðar króna. Bærinn hefur hins vegar sam- þykkt að selja hlutinn til Geysis Green Energy (GGE) fyrir 13,1 milljarð króna. Um 2,5 milljarðar króna af þeirri upphæð greiðast með reiðufé en restin greiðist með skuldabréfi til sjö ára (6,3 milljarðar króna) og framsali á 32 prósenta hlut GGE í HS Veitum (4,3 milljarðar króna). Virði skuldabréfsins er miðað við að heimsmarkaðsverð á áli verði 2.700 dalir á tonn árið 2016, en það er rúmlega 1.600 dalir í dag. Því gæti það lækkað töluvert. Þá segir verðmat Arctica Finance að heildarvirði HS Veitna sé um 4,9 milljarðar króna. Samkvæmt því mati ætti sá þriðjungshlutur sem Reykjanesbær fær framseldan á 4,3 milljarða króna að vera rúmlega 1,5 milljarða króna virði. Miðað við það mat er Reykjanesbær að greiða um 2,8 milljörðum króna of mikið fyrir hlutinn. Kaupsamningur bæjarins og GGE miðar hins vegar við tvö eldri verð- möt sem framkvæmd voru sumarið 2007 og í október 2008, þegar innri og ytri aðstæður fyrirtækja á Íslandi voru allt aðrar en í dag. Í minnisblaði sem Deloitte vann fyrir Reykja- nesbæ um tilboð GGE kemur fram að fyrirtækið treysti sér ekki til að leggja mat á það vegna þessarra miklu breytinga. Verðmat sýnir að virði HS Orku er hærra en kaupin miða við Virði HS Orku meira en Geysir Green mun borga Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Orka Verðmöt sem hafar verið gerð á HS Orku sýna mismunandi verð. TIL að geta „tekið hringinn“ þarf viðkomandi að mega kaupa gjald- eyri á gengi Seðlabankans. Í sinni einföldustu mynd hefst hringurinn með kaupum á erlendum gjaldeyri hér. Hann er fluttur út og skipt fyrir krónur á hagstæðara gengi og svo eru krónurnar fluttar heim aftur. Miðað við núverandi gengi getur hagnaður numið 20% og með því að taka hringinn ítrekað er hægt að hagnast mikið og hratt. Hart lagt að námsmönnum Algengt er að menn fái heimild til kaupa á gjaldeyri vegna þess að þeir vilja eiga viðskipti erlendis. T.d. kaupa bifreið, fasteignir eða aðrar dýrar vörur, sem Seðlabankinn gæti gefið leyfi fyrir.. Í sumum tilfellum er fénu strax skipt fyrir krónur þeg- ar til útlanda er komið, en aðrir fara lúmskari leiðir. Málamynda- viðskipti, þar sem viðkomandi kaup- ir vöruna á pappírnum, eða þykist hafa greitt hærra verð fyrir hana en hann gerði í raun og veru. Aðrar leiðir geta verið farnar til að fela slóðina og ástæðu viðskiptanna. Önnur leið, sem farin hefur verið, er að safna saman fjölda greiðslu- korta Íslendinga og fara með þau til útlanda. Þau eru svo notuð til að taka háar fjárhæðir í erlendri mynt út úr hraðbanka - á Seðla- bankagengi - og þeim skipt fyrir krónur. Samkvæmt heimildum hafa aðilar lagt hart að námsmönnum erlendis að nýta rétt sinn til að taka út fé á gengi Seðlabankans og fá honum skipt fyrir krónur í útlöndum. Hagnaðurinn verður til nær sam- stundis og getur numið 20%. Viðskipti til málamynda fela slóðina Gjaldeyrishöftin komu strax illa við glæpamenn, einkum þá sem stunda eiturlyfjaviðskipti. Þau fara fram í reiðufé og millifærslum þurftu þeir að fá evrur til að geta greitt fyrir efnin erlendis. Þeir hafa keypt umtalsvert af þeim evr- um, sem til voru í landinu eftir hrun, en þær munu nær upp urnar nú. Sú mikla aukning í kannabis- ræktun, sem varð í upphafi árs, var einnig afleiðing haftanna, en ætlunin var að skipta á grasinu fyrir harðari efni erlendis. Vís- bendingar eru hins vegar um um- svif glæpamanna og annarra, sem tilbúnir eru að fara á svig við lögin, í gjaldeyrisviðskiptum séu að aukast og að þeir líti jafnvel á þau sem sjálfstæða tekjulind. Greiningardeild Ríkislög- reglustjóra hafði varað við aukinni hættu á peningaþvætti í kjölfar bankahrunsins og að umsvif glæpahópa geti aukist. Aukin umsvif skipulagðra glæpahópa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.