Morgunblaðið - 06.07.2009, Blaðsíða 12
12 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2009
NÝJA stjórnin í Hondúras lét í gær
loka alþjóðaflugvellinum í Teguci-
galpa til þess að koma í veg fyrir að
útlægur forseti landsins, Manuel
Zelaya, gæti snúið aftur.
Zelaya hélt í gærkvöld með flug-
vél frá Washington. Stuttu eftir
fréttir þess efnis tilkynnti her-
stjórnin í Hondúras að flugmenn-
irnir hefðu fengið skipun um að
fljúga til El Salvador.
Þúsundir stuðningsmanna Zelaya
héldu í gær til flugvallarins þar sem
hermenn, sem umkringt höfðu völl-
inn, stóðu vörð.
Erkibiskupinn í Hondúras varaði
við blóðbaði sneri Zelaya aftur til
landsins.
Flugvelli lokað fyrir út-
lægum forseta Hondúras
Reuter
Gráir fyrir járnum Hermenn stóðu vörð við flugvöllinn.
PRESTAR hindúa á Indlandi sitja í suðupottum fylltum
vatni við bænastund. Prestarnir reyna með bænum sín-
um að blíðka regnguð sinn, Varun. Hitabylgja hefur
plagað íbúa Delhi og hafa margir kosið að vera í loft-
kældum bílum sínum að næturlagi í stað þess að reyna
að sofa í steikjandi hita innanhúss. Monsúnrigning-
anna, sem hefðu átt að vera byrjaðar, er að vænta inn-
an skamms, samkvæmt veðurspám.
Reuters
BLÍÐKA REGNGUÐINN
NOKKRIR meintir mafíuforingjar
voru í framboði í þingkosningunum í
Búlgaríu sem haldnar voru í gær.
Kjósendur virðast hafa verið orðnir
þreyttir á aðgerðaleysi Sósíalista-
flokksins gegn spillingu og kreppu því
að samkvæmt útgönguspám vann
hægri-miðjuflokkurinn GERB yfir-
burðasigur.
Meðal mafíósanna sem voru í fram-
boði og fengu þriggja vikna frí úr
fangelsi vegna þess voru Galev-bræð-
urnir sem rekið hafa bæinn Dupnista í mörg ár eins og
sitt eigið furstadæmi. Þeir hafa haft menn á sínum snær-
um innan lögreglunnar, réttarkerfisins og skattayfir-
valda. Bræðurnir, sem bíða eftir að réttað verði yfir þeim
vegna glæpastarfsemi, hafa báðir verið lögreglumenn og
eru afar vinsælir í sinni heimabyggð vegna ýmissa fram-
kvæmda fyrir bæjarbúa.
Einn mafíósanna sem buðu sig fram er Ivan Ivanov en
hann er talinn hafa fengið jafnvirði á annað hundrað
milljóna króna í landbúnaðarstyrki frá Evrópusamband-
inu með svindli.
Í fyrra stöðvaði Evrópusambandið milljarðagreiðslur
til Búlgaríu í formi styrkja þar sem yfirvöld höfðu ekki
gert nóg í baráttunni gegn spillingunni í landinu.
Boyko Borisov, formaður GERB-flokksins, sem í gær-
kvöld lýsti yfir sigri í kosningunum, hefur lofað að vinna
bug á spillingunni. Að mati margra sérfræðinga er óvíst
hvort hann er nógu hæfur til þess. Borisov er borgar-
stjóri Sofiu, en hann hefur einnig verið slökkviliðsmaður,
lögreglumaður og lífvörður. ingibjorg@mbl.is
Mafíósar buðu sig fram
Fengu þriggja vikna frí úr fangelsinu vegna framboðs síns í þingkosningunum
í Búlgaríu Hægri-miðjuflokkurinn GERB lýsti yfir sigri Þreyttir á spillingu
Í HNOTSKURN
»Samkvæmt lögum íBúlgaríu má ekki refsa
frambjóðendum og þing-
mönnum.
»Dómstóll í Búlgaríu úr-skurðaði nýlega að maf-
íósar, sem ákærðir hafa ver-
ið fyrir spillingu, nytu
friðhelgi vegna framboðs.
»Búlgaría hlaut aðild aðEvrópusambandinu 2007.
Sigurviss Boyko
Borisov
HÓPUR virtra,
umbótasinnaðra
klerka í hinum
helga bæ Qom í
Íran segir að for-
setakosning-
arnar í landinu
séu ógildar. Seg-
ir hópurinn að
klerkaráðið hafi
ekki lengur rétt
til þess að úr-
skurða í deilum vegna kosninganna
þar sem nokkrir fulltrúar þess njóti
ekki lengur trausts almennings.
Klerkaráðið er sagt hafa stutt
Ahmadinejad forseta í kosninga-
baráttunni. Samkvæmt opinberum
tölum sigraði hann í kosningunum
en hann er sakaður um kosn-
ingasvindl.
Aukinn klofn-
ingur í Íran
Forsetinn Ahmad-
inejad Íransforseti.BANDARÍSKU
landgöngulið-
unum í Afganist-
an gengur ekki
jafnvel og þeir
höfðu vonað í
sókn sinni gegn
talíbönum. And-
spyrna talíbana í
Helmand-
héraðinu hefur
verið lítil sem
engin því að þar
hafa þeir ekki verið margir. Til
harðra bardaga kom á einu svæði en
annars staðar hefur verið rólegt, að
sögn fulltrúa bandaríska hersins.
Fréttamaður Al Jaziras frétta-
stofunnar segir skýringuna á dul-
arfullu hvarfi talíbanana vera þá að
þeir fari úr einum bæ í annan. Meiri-
hluti þeirra tilheyri einnig óbreytt-
um borgurum og þess vegna sé erfitt
að finna þá. Þeir taki sjaldan þátt í
bardögum, heldur geri þeir sjálfs-
morðsárásir, komi jarðsprengjum
fyrir á vegum og ráðist á óvini sína
úr launsátri.
Heimildir herma að fleiri land-
gönguliðar séu ófærir til bardaga
vegna hitans, sem er 45 gráður, en
vegna átaka við talíbana.
Hitinn
erfiðasti
óvinurinn
Bandarískir hermenn
finna ekki talíbanana
Í Afganistan
Bandarískir land-
gönguliðar.
LÖGREGLA í S-Karólínu í Banda-
ríkjunum leitar nú manns sem tal-
inn er hafa myrt fimm manns á
einni viku í bænum Gaffney.
Á fimmtudaginn voru 48 ára
karlmaður og táningsdóttir hans
skotin til bana í verslun mannsins.
Áður höfðu mæðgur, 83 ára og 50
ára, verið myrtar á heimili sínu.
Ferskjubóndi, sem var 63 ára,
fannst einnig myrtur á heimili sínu.
Ekki er vitað hvort fórnarlömbin
tengdust á einhvern hátt.
Raðmorðingi
í S-Karólínu
STARFSMENN hjá Trygginga-
stofnuninni í Svíþjóð, Försäkrings-
kassan, fá að hluta til laun í hlutfalli
við fjölda tekinna ákvarðana. Svo
mikið er einblínt á framleiðsluna að
yfirmenn hvetja starfsmenn til þess
að hafna fleiri umsóknum um bætur
vegna veikinda, að því er haft er eftir
Claes Petterson hjá stéttarfélaginu
ST.
Greint er frá því á fréttavefnum
sydsvenskan.se að starfsmenn séu
svo að segja kallaðir inn til yfirmanns
síns í hverjum mánuði. Þar er þeim
bent á hversu margar ákvarðanir
þeir hafi tekið og hversu margar um-
sóknir þeir hafa samþykkt eða hafn-
að.
Reiknað hefur verið út hversu
margar mínútur afgreiðsla tiltekinna
erinda á að taka, alveg eins og við
iðnaðarframleiðslu. Launagreiðslur
miðast að hluta til við hvernig til hef-
ur tekist.
Þeir sem vilja hækka launin sín
geta gert það með því að taka marg-
ar ákvarðanir á sem stystum tíma.
„Ég var á fundi í Malmö þegar
starfsmaður sagði frá því að yfir-
maður hans hefði í tölvupósti óskað
honum til hamingju með hversu
mörgum umsóknum hann hefði hafn-
að,“ sagði Petterson.
Hann tók það fram að það væri í
sjálfu sér ekki undarlegt þótt fylgst
væri með fjölda tekinna ákvarðana.
Hins vegar væri það alvarlegt ef
starfsmenn teldu það vera betra að
hafna umsóknum en samþykkja.
Starfsmenn hafi greint frá minni
launahækkun vegna þess að þeir hafi
hafnað of fáum. ingibjörg@mbl.is
Hamingjuósk
frá yfirmanni
Starfsmaður hafði hafnað mörgum
umsóknum til Tryggingastofnunar
DAVID Mili-
band, utanríkis-
ráðherra Bret-
lands, viður-
kenndi í gær að
persónulegar
upplýsingar um
verðandi yfir-
mann bresku
leyniþjónust-
unnar, John
Sawers, hefðu
verið settar út á
Facebook. Það var eiginkona
Sawers sem sagði á Facebook frá
sumarfríum þeirra og vinum og
meira að segja hvar þau byggju.
Utanríkisráðherrann sagði upp-
lýsingarnar ekki skaðlegar en
vefsíðu frúarinnar hefur verið
lokað.
Ekki lengur
leynilegur
Viðurkennir David
Miliband utanríkis-
ráðherra.
DANIR sem flutt hafa til Taílands
reka vændishús með hundruðum
kvenna og karla, að því er segir á
fréttavef Jyllands-Posten.
Í bænum Pattaya-Jomtien, sem
er vinsæll ferðamannastaður, reka
Danir að minnsta kosti 19 bari sem
selja Vesturlandabúum kynlífsþjón-
ustu.
Vændishúsin liggja hlið við hlið í
svokallaðri Danagötu. Ellilífeyris-
þeginn Hardy Grün frá Óðinsvéum
viðurkennir að hann græði, ásamt
taílenskri konu sinni, fé á því að
starfsmenn baranna sem hann rek-
ur fari með viðskiptavinina heim.
Danir á kafi
í kynlífsiðnaði
MARTIN Jones, sem var blindur á
öðru auganu eftir vinnuslys, er nú
búinn að fá sjónina eftir að augn-
tönn úr honum með áfastri linsu
var komið fyrir í augntóftinni.
Læknar í Brighton græddu augn-
tönnina í kinn Jones til þess að í
henni mynduðust nýir vefir og æð-
ar. Tönnin var í kinninni í 3 mánuði
en 2 vikum eftir að hún var sett í
augað sá Jones fyrst konuna sína
sem hann kvæntist fyrir 4 árum.
Fékk tönn í
augað og sjón