Morgunblaðið - 06.07.2009, Page 14

Morgunblaðið - 06.07.2009, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2009 Óskar Magnússon. Ólafur Þ. Stephensen. Útgefandi: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Samningurinnum greiðsluvegna Ice- save-reikninga Landsbankans á Bretlandi og í Hollandi hefur vakið harðar umræður á Al- þingi, enda er mikið í húfi. Stóru orðin hafa ekki verið spöruð. Steingrímur J. Sig- fússon fjármálaráðherra sagði á þingi fyrir helgi að yrði samningurinn ekki sam- þykktur kæmi „október aft- ur“. Í viðtali í Morgunblaðinu í gær sagði Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri og forsætisráðherra, að með samningnum yrði þjóðin dæmd til ævarandi fátæktar. Í Icesave-málinu er enginn kostur góður. Ekki er ljóst hvort samningurinn um Ice- save verður samþykktur á þingi. Hins vegar virðist sem þingheimur skiptist fremur eftir því hvort menn styðja samninginn eða vilja semja að nýju, fremur en að semja alls ekki og láta reyna á dóm- stóla – en þá leið eru hvorki Bretar né Hollendingar reiðubúnir til að fara. En hvað myndi það þýða að ákveða að borga ekki Ice- save-skuldirnar? Eins og rakið var í Reykjavíkurbréfi 14. júní væri það ekki aðeins ákvörðun um að láta reyna á lagalegar hliðar málsins, heldur um að einangra Ísland frá alþjóðasamfélaginu og hafna þeirri aðstoð, sem það- an kemur. Áhrifin, t.d. á samninga við erlenda kröfu- hafa, alþjóðlega greiðslu- miðlun bankanna og aðgang Íslands að alþjóðlegum láns- fjármarkaði, væru ófyr- irsjáanleg. Íslensk stjórnvöld segðu þar með að ekkert hefði verið að marka það, sem var margítrekað bæði bréflega og munnlega við ná- grannaríki okkar áður en bankarnir hrundu; að Ísland myndi standa við þær skuld- bindingar gagnvart inni- stæðueigendum sem það hafði undirgengizt með EES- samningnum. Slík ákvörðun myndi ennfremur setja EES- samninginn í uppnám. Samningurinn um Icesave kveður á um gríðarlegar skuldbindingar og engin leið er að átta sig á því hvað sala á eignum úr þrotabúi Lands- bankans mun skila miklu upp í þær. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær þyrfti að greiða tæplega 370 millj- arða króna á átta árum ef endurheimtur á lánasafni bankans yrðu 95% af upp- hæðinni, en rúmlega 690 milljarða ef endurheimturnar yrðu 60%. Þessi upphæð bætist ofan á ýmsar aðrar skuldbindingar, sem falla á ís- lenska ríkið vegna hruns bankanna í októ- ber. Gylfi Magnússon við- skiptaráðherra sagði í um- ræðum á Alþingi fyrir helgi að þessi upphæð væri hvorki óviðráðanleg fyrir ríkið né þjóðina, en ljóst er að hún mun hafa mikil áhrif á lífs- kjör á Íslandi næstu árin. Það er því skiljanlegt að samningurinn standi í þing- mönnum og ekki hefur bætt úr skák hvað upplýsingagjöf um innihald hans og umfang var treg þótt nú hafi verið bætt úr því að miklu leyti. Þá eru Íslendingar fórn- arlömb vanhugsaðrar reglu- setningar Evrópusambands- ins um innlánstryggingar, sem ekki gerði ráð fyrir því að lítið land þyrfti að ábyrgj- ast risavaxið bankakerfi og líklegt er að nú verði endur- skoðuð. Í febrúar kom út skýrsla sem hópur undir for- ustu Jacques de Larosiere gerði fyrir framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins um framtíð regluverks og eftirlits með fjármálamörk- uðum í Evrópu. Þar er meðal annars fjallað um hættuna á því með vísun til Íslands að banki í einu landi stofni útibú í öðru landi, sem síðan bólgni út án þess að upprunaríkið hafi bolmagn til að standa undir skuldbindingunum. Er lagt til að einhvers konar leið verði búin til þannig að miðla megi málum í slíkum til- fellum. Endurskoðun og breyting á reglunum væri í raun viðurkenning á því að fyrirkomulagið, sem gerði Landsbankanum kleift að raka fé inn á Icesave- reikningana, er ekki eðlilegt. Samningurinn um Icesave hefur verið hvað harðast gagnrýndur vegna vaxtanna, sem þar er kveðið á um. Haldið hefur verið fram að með harðsnúnara samn- ingaliði hefði mátt knýja fram betri niðurstöðu. Hins vegar má ekki gleyma því að verði samningnum hafnað og gengið til samninga á ný við Breta og Hollendinga mun það ekki aðeins þýða endur- upptöku á þeim þáttum samningsins, sem Íslend- ingar eru óánægðir með, heldur samningnum í heild sinni. Niðurstaðan af því að semja upp á nýtt gæti orðið betri – en hún gæti líka orðið verri. Niðurstaðan af að semja upp á nýtt gæti orðið betri – en líka verri} Klemman vegna Icesave Þ að er fráleitt að Alþingi Íslendinga hafi engin tök á því, að hafna samningnum um Icesave. Þegar Alþingi veitti umboð til samninga í desember síðastliðnum byggðist það á sameiginlegum viðmiðum sem ákveðin voru í nóvember og Bretar og Hollendingar skrifuðu undir. Ef Alþingi er þeirrar skoð- unar að þeim hafi ekki verið fylgt, þá eru for- sendur samningsins einfaldlega brostnar. Litið var á þessi viðmið sem upphafspunkt nýrra viðræðna af hálfu fyrri ríkisstjórnar og miklar vonir bundnar við þau. Þegar rýnt er í samninginn, þá virðist hinsvegar tillitið til „hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna“ aðeins vera fólgið í lánum sem bera 1,25% álag á viðmiðunarvexti OECD, og vaxtaber- andi kúlulán til sjö ára eiga að mæta þeim „knýjandi nauðsynjum“ að „gera Íslandi kleift að end- urreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt“. Það er Alþingis að meta hvort viðmiðunum hafi verið mætt með trú- verðugum hætti í samningnum sem lagður hefur verið fram. Mörgum var gróflega misboðið þegar viðtal birtist við Svavar Gestsson, formann samninganefndarinnar, þar sem fram kom að enginn þrýstingur hefði verið á að ljúka samningum á þessum tíma, en þar sagði hann: „Ég var nú eiginlega bara orðinn leiður á því að hafa þetta hangandi yfir mér.“ Svo hló hann. Ef hann hefði dokað við og náð vöxtum niður um hálft prósent, þá hefði það líklega munað um 40 milljörðum fyrir íslenskt þjóðarbú. Og Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra hefur gefið í skyn að Íslendingar séu óreiðu- fólk ef þeir taki ekki á sig þessar skuldbind- ingar, sem eru tilkomnar vegna innbyggðs galla í innstæðutryggingakerfi Evrópu; áhættan við bankakerfið var alþjóðavædd með frjálsu flæði fjármagns, en ábyrgðin sat eftir hjá einstökum ríkjum (lesist Íslandi). Á þetta er bent í ársskýrslu bankanefndar Frakklands árið 2000, sem Jean Claude Trichet bar ábyrgð á, en hann var þá seðla- bankastjóri Frakklandsbanka, og er nú bankastjóri Seðlabanka Evrópu. Þar segir að þótt tilgangurinn með því að koma upp kerfi tryggingasjóða, í Frakklandi og flestum öðrum löndum, hafi verið að ýta undir stöðugleika bankakerfisins, þá hafi kerfinu ekki verið ætlað að glíma við kerfisbundið hrun. Í því tilfelli þyrfti að grípa til annarra aðgerða. Það kom fram í máli Svavars Gestssonar, aðalsamn- ingamanns þjóðarinnar, að ef reikningarnir hefðu ekki verið gerðir upp hefði allt innstæðutryggingakerfið í Evrópu hugsanlega hrunið. Eftir þessa samninga um Icesave þurfa þjóðir Evrópu ekki að hafa áhyggjur ef marka má orð hans: „Við erum í rauninni að bera burt syndir heimsins, eins og sagt var um Jesú Krist.“ Sættir þjóðin sig við að bera þann kross? Hvernig væri að spyrja? pebl@mbl.is Eftir Pétur Blöndal Pistill Ísland tekur á sig syndir heimsins Hvaða breytingar fylgja persónukjöri? FRÉTTASKÝRING Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is Þ að að búa til persónukjör er örlítið svipað því að blanda kokteil. Það er hægt að blanda sterkt og veikt og áhrifin verða auðvitað eftir því. Ef persónukjörið er haft mjög sterkt þá veikir það flokkana en ef það er haft mjög veikt, verða flokkarnir í aðalhlut- verki. Persónukjörið sem verið er að stinga upp á hér, er tilraun til þess að veita flokkunum aðhald, passa upp á að þeir verði ekki alveg ráðandi en jafnframt er viðurkennt að flokkar eru grundvallarstofnanir í öllum lýðræðiskerfum,“ segir Gunnar Helgi Kristinsson, stjórn- málafræðingur, um nýtt frumvarp til laga um persónukjör. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum þann 26. júní síðastliðinn frumvarp dómsmálaráðherra um persónukjör í kosningum til Alþing- is og sveitarstjórna. Í samstarfsyfir- lýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs frá því í maí, var kveðið á um að leggja slíkt frumvarp fram. Möguleikar á persónukjöri hafa löngum verið takmarkaðri hér á landi en í nágrannalöndum. „Spurning hver breytingin er“ Í frumvarpinu er lagt til að per- sónukjör verði mögulegt fyrir jafn- mörg sæti og eru í boði í hverju kjördæmi. Hins vegar er enn gert ráð fyrir að flokkarnir velji hvaða frambjóðendur skipa þann hluta listans sem verður persónukjörinn, t.d. með hefðbundnu prófkjöri. „Mér finnst frumvarpið, eins og það hefur verið kynnt, ekki mjög skýrt og ég sé ekki beint hvað það er sem bendir til að vilji kjósenda muni endurspeglast betur með þessum hætti. Hvað sjálfa mig varðar hef ég áhyggjur af því hvernig þetta kerfi gæti komið við hlutföll kynja í kosn- ingum. Það eru til ýmsar leiðir í þeim efnum en það er ekkert minnst á þær. Auðvitað vitum við ekki hvernig framkvæmdin mun koma út en það er spurning hversu miklu þetta kerfi breytir,“ segir Silja Bára Ómarsdóttir, stjórnmála- fræðingur. „Það er sagt að þetta sé byggt á írska kerfinu en þar er hreint persónukjör þar sem fólk getur valið þvert á flokka í kosning- um. Þetta virðist vera skrýtin blanda af íslensku flokkaleiðinni og þeirri írsku þar sem persónukjör er mögulegt aðeins að hluta.“ Verði frumvarpið að lögum verða framboðslistar í raun tvískiptir á kjörseðlum. Á efri hluta framboðs- lista verða nöfn þeirra sem boðnir eru fram til persónukjörs og skal fjöldi þeirra vera sá sami og fjöldi þingsæta í kjördæminu. Neðri hluta listanna skipa þá frambjóðendur sem boðnir eru fram með hefð- bundnum, röðuðum hætti í „heið- urssæti“ listanna sem aldrei ná að verða þingsæti en gætu í und- antekningartilvikum orðið vara- mannssæti. „Mér finnst þetta vera nokkuð áhugaverð leið sem er valin. Þessi tilraun er byggð á því að auka rétt- indi almennings til þess að ráða því hvernig fólk velst inn úr flokkunum. Hún er jafnframt byggð á mikilvægi stjórnmálaflokka við stjórnun lands- ins. Þetta er samspil þessara sjón- armiða,“ segir Gunnar. Nöfn Á efri hluta framboðslista verða nöfn þeirra sem boðnir eru fram til persónukjörs og skal fjöldinn vera sá sami og fjöldi þingsæta í kjördæminu.                          !"  #" $     % ! & "' ( ) *"   *  +  # *   , -" .  #/    0 & ! -    "   1-    +     Frumvarp til laga um persónukjör er nú til afgreiðslu hjá stjórnar- þingflokkunum. Verði frumvarpið að lögum verður persónukjör mögulegt í aðalsæti en flokkarnir munu áfram ráða för. UPPGJÖR persónukjörsins er mjög flókið en hér verður gerð tilraun til að útskýra það. Uppgjörið hefst í raun á því að ákvarða svonefndan sætishlut. Hann er í raun atkvæða- magn sem hver frambjóðandi þarf að ná til að setjast í eitt af sætum síns lista í kosningum. Þeim fram- bjóðendum sem náð hafa sætishlut eða meiru að fyrsta vali kjósenda er strax úthlutað þingsæti. Þau at- kvæði sem þeir hljóta umfram sæt- ishlutinn eru þá færð til þeirra sem tilnefndir voru sem annað val við- komandi kjósenda og svo koll af kolli. Er að því kemur að enginn fram- bjóðandi sem á eftir að úthluta sæti hefur náð sætishlutnum eru at- kvæði þess, er þá hefur minnst atkvæðamagn, flutt yfir til þeirra frambjóðenda sem kjósendur hans völdu að öðrum kosti. Þá er aftur aðgætt hvort einhver hafi við það náð upp í sætishlutinn, sem þetta allt snýst um. UPPGJÖR FLÓKIÐ ››

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.