Morgunblaðið - 06.07.2009, Page 18
18 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2009
✝ Árni JóhannesHallgrímsson
fæddist í Látravík í
Eyrarsveit 16. desem-
ber 1926. Hann lést á
hjartadeild Landspít-
alans við Hringbraut
sunnudaginn 28. júní
síðastliðinn. Hann
var sonur hjónanna
Guðrúnar Jak-
obsdóttur, f. 25. októ-
ber 1892, d. 25. febr-
úar 1989 og
Hallgríms Sigurðs-
sonar, bónda og verk-
stjóra, f. 29. september 1891, d. 15.
september 1981. Systkini Árna Jó-
hannesar eru: 1) Sigurður, f. 25.
maí 1920, kvæntur Ragnheiði
Thorarensen. 2) Sigríður, f. 6.
mars 1922, d. 29. febrúar 2000. 3)
Ragnhildur, f. 23. febrúar 1924, d.
2. maí 2009. 4) Jens Jakob, f. 9. maí
1932, kvæntur Ingveldi G. Ágústs-
dóttur. 5) Fósturbróðir þeirra var
Sigurður Sigurðsson, f. 16. ágúst
1935, d. 16. desember 2000, kvænt-
ur Ernu Lárentsíusdóttur.
Árni Jóhannes kvæntist 31. des-
ember 1949 Ásdísi Ásgeirsdóttur,
f. 4. júlí 1927 og eiga þau sjö börn.
Þau eru: 1) Ása, f. 30. desember
1945, gift Sigurdór Friðjónssyni, f.
22. nóvember 1944. Þau eiga fjórar
dætur. 2) Kristjana Vilborg, f. 28.
júní 1950, gift Hann-
esi Friðsteinssyni, f.
20. október 1946. Þau
eiga tvö börn en
Kristjana á dreng
fyrir sem Hannes
hefur gengið í föður
stað. 3) Guðrún, f. 20.
október 1951, gift Ás-
geiri Óskarssyni, f.
10. júní 1949. Þau
eiga tvö börn. 4) Ás-
geir Þór, f. 14. maí
1956, kvæntur Karl-
ottu Jónu Finns-
dóttur, f. 1. maí 1959.
Þau eiga tvær dætur en Ásgeir á
þrjú börn fyrir. 5) Hallgrímur, f.
30. júní 1958. Hann á þrjú börn. 6)
Sigurður, f. 1. apríl 1960, kvæntur
Kari Anne Østby, f. 21. nóvember
1969. Þau eiga eina dóttur en Sig-
urður á eina dóttur auk fóst-
ursonar. 7) Dagný, f. 13. janúar
1968, gift Hafsteini Hróbjarti Haf-
steinssyni, f. 15. janúar 1970. Þau
eiga eina dóttur. Afkomendur
Árna Jóhannesar og Ásdísar eru
63, 7 börn, 21 barnabarn, 31 barna-
barnabarn og barnabarnabarn-
börnin eru orðin 4.
Útför Árna Jóhannesar fer fram
frá Grafarvogskirkju í dag, 6. júlí,
og hefst athöfnin kl. 13.
Jarðsett verður í Gufunes-
kirkjugarði.
Elsku pabbi minn, minning mín
um þig er mér ómetanleg. Ég minn-
ist þess þegar ég var lítil að ég ætlaði
að giftast þér og við ætluðum að hafa
karamellur í hádegismat og súkku-
laði í kvöldmat. Ég minnist ferðar
okkar niður á bryggju að skoða
bátana og alls þess sem þú hefur
kennt mér í gegnum tíðina og mun
fylgja mér um ókomin ár.
Elsku hjartans pabbi minn, það
var mér mikið áfall þegar þú veiktist
fyrir þremur mánuðum. Maður eins
og þú sem aldrei varst veikur. Það
var sárt að sjá þig veikan. Ég var hjá
þér á hverjum degi og sá að hverju
stefndi. Þú varst hetja, elsku pabbi
minn og þín verður sárt saknað. Ég
mun hjálpa mömmu eins og ég get.
Ég elska þig og þakka þér fyrir að
hafa átt þig að.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.
(Ásmundur Eiríksson.)
Elsku mamma, systkin og aðrir
aðstandendur, ég votta ykkur samúð
mína. Guð blessi ykkur.
Guðrún Árnadóttir.
Lífshlaup okkar pabba hófst 14.
maí 1956 á fæðingardeild Landspít-
alans við Hringbraut þegar ég leit
fyrst augum þennan heim. Ekki man
ég neitt eftir því en man vel söguna
sem mamma sagði mér þegar þú
komst í fyrstu heimsóknina færandi
mömmu blóm og konfektkassa með
mynd af ungum dreng að sparka fót-
bolta.
Stærstan hluta ævinnar varst þú
sjálfstætt starfandi húsasmíðameist-
ari með þitt eigið verkstæði. Þar
smíðaðir þú innréttingar, húsgögn
og fl. og var afar mikill metnaður hjá
þér að skila öllum verkum óaðfinn-
anlega.
Marga náðargáfuna hafðir þú,
pabbi minn. Þú samdir ljóð, spilaðir á
harmonikku og hljómborð. Þú varst
alltaf að gera eitthvað, s.s. við skrift-
ir í tölvunni, að smíða fallega muni,
úti að ganga eða út á Geldinganesið
til að spila á harmonikkuna því nær-
gætni þín við nágrannana var slík að
þú gast ekki hugsað þér að trufla þá
með því að spila heima.
Þið mamma hafið verið órjúfanleg
heild og ávallt komið fram við okkur
systkinin, tengdabörn, börn okkar,
barnabörn og barnabarnabörn af
mikilli væntumþykju og hlýju og allt-
af reiðubúin að aðstoða okkur í stóru
sem smáu og fyrir það færi ég þér og
mömmu mínar hjartans þakkir.
Þegar þú veiktist hastarlega 15.
mars sl., pabbi minn, þá tók hjartað í
okkur kipp. Það kom í ljós að illkynja
krabbamein hafði hreiðrað um sig of-
arlega í maga og skurðaðgerð ráð-
lögð. Við trúðum því að þessi aðgerð
gæti læknað þig og að þú fengir að
vera lengur hjá okkur. Fimm vikum
eftir aðgerðina, þann 11. maí sl.,
fékkst þú að fara heim af sjúkrahús-
inu og var sá dagur nokkuð erfiður
því Ragnhildur systir þín hafði and-
ast 2. maí og útförin hennar fór fram
þann sama dag. Heima var allt gert
til að hjálpa þér að styrkjast en þrátt
fyrir það þá náðir þú aldrei þeim
bata sem við vonuðumst eftir og
varst lagður inn á hjartadeildina við
Hringbraut þann 22. júní sl. Þá daga
sem þú dvaldir á hjartadeildinni vor-
um við fjölskyldan mikið hjá þér.
Ekki þurfti mikið að tala en augun
þín fallegu voru farin að gefa til
kynna að þú værir tilbúinn að fara
yfir til allra ættingjanna sem biðu við
himnahliðið með aðgöngumiðann
þinn inn í ríki Guðs. Kallið kom að
morgni sunnudagsins 28. júní. Þegar
síminn hringdi hjá mér sá ég að þetta
var hjá Landspítalanum og hélt ég
að þú væri að fara en sagt var að þú
hefðir sofnað svefninum langa
nokkrum mínútum áður án þrauta og
þá þakkaði ég Guði fyrir að hafa tek-
ið þig í faðm sér á þann hátt sem þú
vildir, þ.e.a.s. án mikils tilstands.
Þegar fjölskyldan kom saman við
rúmið þitt á hjartadeildinni hafði
starfsfólk deildarinnar gert allt til að
létta okkur þá stund sem við fengum
með þér þarna um nóttina.
Það lífshlaup sem hófst fyrir rúm-
um 53 árum á Landspítalanum við
Hringbraut endaði einnig á Land-
spítalanum við Hringbraut.
Ferðalagið þar á milli þekkjum við
báðir og þakka ég þér hjartanlega
fyrir samfylgdina, auðmjúkur, og bið
góðan Guð að vernda minningu þína
um leið og ég votta móður minni,
systkinum og öllum ættingjum mína
innilegustu samúð vegna fráfalls ást-
kærs föður míns.
Þinn sonur
Ásgeir Þór Árnason.
Elsku pabbi. Ég vil minnast þín í
örfáum orðum við þessi lífsins leið-
arlok.Þegar ég læt hugann reika til
baka þá er margt sem kemur í hug-
ann. Í bernsku fannst mér þú æv-
inlega vera að vinna enda fyrir
stórum hóp að sjá. Þau eru ófá skipt-
in sem ég fékk að fara með þér í
vinnu og þú fannst leið til þess að láta
mér líða eins og ég væri að gera eitt-
hvað gagn. Þær stundir sem þú áttir
til frístunda á þeim tíma voru
kannski ekki svo margar en þeim
mun eftirminnilegri eru þær t.d.
þegar þú og mamma byggðuð með
okkur eskimóasnjóhús eða kassabíl-
inn sem leit út eins og alvöru willys-
jeppi, í það minnsta í mínu minni og
mikið var ég stoltur. Þegar kom að
því að ákveða með nám ákvað ég að
læra húsasmíði eins og þú. Seinna
áttum við eftir að verða vinnufélagar
um nokkurra ára bil. Þá fékk ég að
kynnast þér uppá nýtt og urðum við
miklir vinir sem gátum talað um allt
og oft lékum við okkur í þrætubók-
arlist sem við báðir höfðum gaman af
en á því vil ég meina að ég hafi þrosk-
ast töluvert.
Þú varst að mörgu leyti mjög
þversagnakennd persóna, annars
vegar með ótrúlega mikinn metnað,
kepptir í íþróttum, spilaðir á hljóð-
færi, samdir lög og ljóð, smíðaðir
listmuni, hinsvegar mátti helst aldrei
neinn vita að það væri eftir þig eða
heyra þig spila, slíkt var lítillæti þitt
og hlédrægni.
Engum manni hef ég kynnst sem
hefur verið eins stoltur af og elskur
að öllu sínu fólki, frændgarði,
tengdafólki og vinum og máttir þú
aldrei heyra á neinn þeirra hallað. Í
veikindum þínum sýndir þú aftur
þennan ótrúlega baráttuvilja til að
yfirvinna sjúkdóminn en þegar útséð
var um að um bata væri að ræða,
sýndir þú ótrúlegt æðruleysi. Þá er
ég þakklátur fyrir að þú leyfðir mér
að sjá, heyra og finna hversu mikið
þú elskaðir mömmu og okkur öll.
Með ást, virðingu og stolti, þinn
sonur
Hallgrímur Árnason.
Mikið fannst mér gott að lauma
höndum mínum í mjúku lófana þína,
finna hlýjuna, umhyggjuna og ást
þína. Þú varst mér góður faðir sem
sýndir mér að lífið á bæði sína kosti
og galla og að best væri að fara eftir
sannfæringu sinni og trú. Ég á
margar góðar minningar um sam-
verustundir okkar, bæði á ferðalög-
um innanlands sem erlendis. Þú
hafðir mikla unun af tónlist og spil-
aðir ósjaldan á harmónikkuna og
orgelið. Ljóðalistin var þér hugleikin
og skilur þú eftir þig tugi ef ekki
hundruð ljóða. Mér fannst alltaf svo
notalegt þegar þú kallaðir á mig og
baðst mig um að lesa ljóðin þín, ég
fylltist stolti að vera ein þeirra fáu
sem það fékk. Smiður varstu vand-
virkur og á ég nokkra hluti eftir þig
sem ég er hreykin af enda eru þeir í
miklu uppáhaldi hjá mér og verða
þeir varðveittir vel.
Þegar þú veikist pabbi minn þá á
átti ég erfitt með að sætta mig við
það að þú hrausti maðurinn sem
fórst út að ganga með mömmu á
hverjum degi væri veikur. Baráttan
þín við veikindin stóð ekki lengi yfir
eða rétt rúma 3 mánuði.
Elsku pabbi ég þakka þér af alhug
fyrir allt, þú varst mér kær og minn-
ing þín mun lífa. Ég elska þig.
Elsku mamma, systkin og aðrir
aðstandendur ég votta ykkur samúð
mína og megi algóður Guð varðveita
ykkur.
Dagný Árnadóttir.
Elsku tengdapabbi. Þá ertu farinn
í ferðina miklu sem við öll þurfum að
leggja í fyrr eða síðar. Mig langar í
örfáum orðum að þakka þér sam-
fylgdina þessi rúmlega 20 ár sem við
höfum þekkst. Þú varst ekki marg-
máll maður að eðlisfari en þegar þú
talaðir þá hlustaði ég. Í gegnum árin
hefur þú staðið með okkur fjölskyld-
unni í gegnum gleði og sorgir. Þú
gladdist með okkur þegar dætur
okkar fæddust, þegar við keyptum
fyrstu íbúðin, bílana okkar og annað
sem við gerðum okkur til ánægju. Þú
huggaðir okkur þegar áföllin urðu,
þegar Ásgeir veiktist, þegar Ásdís
greindist þroskaheft, þegar Guðný
lenti í bílslysinu, þegar Finnur bróð-
ir dó og þegar ég greindist með
krabbameinið. Þá huggaðir þú okkur
oft með ljóði. Þau ljóð eru geymd hjá
okkur um aldur og ævi og verða lesin
þegar söknuðurinn til þín hellist yfir.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri
enda hefðir þú ekki viljað hafa mörg
orð um þetta frekar en annað. Ég
þakka þér samfylgdina, elsku vinur,
og þakka Guði fyrir að hafa tekið þig
til sín áður en þú þurftir að líða enn
verr.
Elsku Ásdís og þið öll systkinin,
megi góður Guð vera hjá ykkur í
sorginni. Hafðu þökk fyrir allt og
allt.
Þín tengdadóttir
Karlotta.
Á þessum sorgartíma þegar Árni
afi minn hefur kvatt þennan heim
leikur bros um varir mínar þegar ég
hugsa til baka um allt það sem afi
hefur gefið mér. Mig langar að deila
örfáum minningum með ykkur um
þennan frábæra afa minn.
Ég man enn þegar ég fékk að fara
með ömmu og afa í hringferð um
landið og það í tvígang. Afi gekk með
mig ýmist hönd í hönd eða á háhesti
og sýndi mér merkilega staði.
Ég man eftir því að hafa elt afa á
verkstæðinu og horft á hann smíða
og lakka, ávallt með mikilli ná-
kvæmni og rólegu yfirbragði. Ég
man enn eftir Barbie-húsinu sem
hann smíðaði handa mér og var ég
öfunduð í öllu hverfinu af þessu
tveggja hæða teppalagða Barbie
húsi.
Þegar ég loka augunum sé ég jóla-
boðin hjá ömmu og afa í Kópavogi
sem voru ætíð skemmtileg, Afi sat í
rauða ruggustólnum og tottaði pípu
og svo var jólatréð dregið fram og afi
spilaði á harmonikkuna. Þá var hleg-
ið dátt.
Takk fyrir tónlistina og vísurnar,
afi minn, og þann tónlistararf sem þú
hefur búið börnunum mínum.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig,
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér.
Því veit mér feta veginn þinn
og verðir þú æ Drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson.)
Elsku ömmu, pabba og öllu mínu
fólki nær og fjær votta ég mína
dýpstu samúð.
Kær kveðja,
Ásdís Hallgrímsdóttir.
Elsku afi Árni, það er skrítið að
vera að kveðja þig því í mínum huga
átti ég alltaf von á að þú yrðir til
staðar, en ég á margar góðar minn-
ingar um þig sem ég mun aldrei
gleyma.
Þú varst alltaf heilsuhraustur svo
það var skrítið að fá fréttirnar í apríl
um að þú værir orðinn veikur og
kominn á sjúkrahús, þú sem hafðir
aldrei verið á sjúkrahúsi áður. En
svona er lífið, algerlega óútreiknan-
legt. En núna veit ég að þú ert kom-
inn á góðan stað og að þér líður bet-
ur.
Mig langar að rifja upp nokkrar
minningar sem koma upp í hugann á
þessari stundu eins og til dæmis þeg-
ar ég kom í heimsókn til þín á laug-
ardögum með pabba og við horfðum
saman á enska boltann á RÚV og töl-
uðum mikið um fótbolta.
Einnig á ég margar minningar frá
verkstæðinu þínu niðri í Hlaðbrekk-
unni, þar fékk ég að smíða báta og
ýmsa aðra hluti úr afgangstimbri og
auðvitað hjálpaðir þú mér að saga
spýturnar.
Ég man alltaf eftir því þegar þið
bjugguð í Hamraborginni og þú
varst þá með verkstæðið á Dalveg-
inum, þá sótti ég þig einu sinni því
mig vantaði einhver verkfæri. Þegar
þú komst inn í bílinn minn hrósaðir
þú mér fyrir það hvað hann væri
hreinn, að ég hefði það nú greinilega
frá pabba, að hugsa vel um bílinn, en
staðreyndin var sú að ég var nýbúinn
að taka bílinn í gegn, hann var ekki
alltaf svona fínn hjá mér. Eftir þetta
hugsaði ég meira um að halda bílnum
mínum í góðu standi.
Elsku afi, ég vil þakka fyrir allar
þær stundir sem við áttum saman,
þær eru dýrmætar.
Ég bið góðan guð að vernda ömmu
Dísu og veita henni og okkur öllum
styrk.
Þinn sonarsonur,
Ásgeir Bjarni.
Árni Jóhannes
Hallgrímsson
Árni afi minn var alltaf svo
blíður og góður, með stórt
hjarta. Gerði allt fyrir mig og
hugsaði alltaf svo vel til mín.
Núna er hann á góðum stað
og horfir á okkur og verndar.
Elsku afi minn, ég mun
alltaf elska þig og hugsa til
þín.
Þín
Melkorka Líney
Hafsteinsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
KJARTAN JÓNSSON
skrifstofumaður,
Kríuhólum 4,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti þriðju-
daginn 30. júní.
Útförin fer fram frá Garðakirkju á Álftanesi
miðvikudaginn 8. júlí kl. 13.00.
Einar Kjartansson, Marcia Maren Vilhjálmsdóttir,
Árni Kjartansson, Margrét Örnólfsdóttir,
Ólafur Kjartansson, Kristín Dúadóttir,
Elín Kjartansdóttir, Agnar Kristjánsson,
Arnfríður Kjartansdóttir,
Jóhann Ragnar Kjartansson, Jónína Guðjónsdóttir,
Óttar Kjartansson, Hanna Kristín Sigurðardóttir,
Bryndís Arngrímsdóttir,
afabörn, langafabörn og systkini hins látna.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
GRETTIR SVEINBJÖRNSSON,
Skerseyrarvegi 3b,
Hafnarfirði,
varð bráðkvaddur fimmtudaginn 18. júní.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Guðrún Margrét Guðmundsdóttir,
Sveinbjörn Grettisson, Jannei Madsen,
Valur Grettisson, Hanna Ruth Ólafsdóttir,
Hrafntinna Grettisdóttir
og barnabörn.