Morgunblaðið - 06.07.2009, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 06.07.2009, Qupperneq 19
Minningar 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2009 ✝ Þorvaður Guð-mundsson fædd- ist í Vallanesi á Fljótsdalshéraði 19. október 1917. Hann lést á Landspít- alanum í Reykjavík 28. júní sl. Þorvarð- ur fluttist ungur með foreldrum sín- um, Guðmundi Þor- björnssyni og Aðal- björgu Stefánsdóttur, á Seyðisfjörð þar sem hann ólst upp. Systkini Þorvarðar eru: Þorbjörn sem lifir systkini sín, Magnús, Guðríður, Ingibjörg og Ragnar, öll látin. Eiginkona Þorvarðar var Sig- ríður Sigbjörnsdóttir ættuð frá Hjartarstöðum í Eiðaþinghá, f. 6.4. 1922, d. 20.6. 2006. Börn þeirra eru: 1) Anna Sigurbjörg kennari, maki Valur Þórarinsson. Dætur þeirra eru Sigríður Birna og Vala Björg. 2) Guðmundur Jens, viðskiptafræðingur og löggiltur endur- skoðandi, maki Svava Haraldsdóttir. Börn þeirra eru: Elsa Sif, maki Birgir Bragason. Synir þeirra eru Matthías og Markús. Dóttir Birgis er Gunn- hildur. Þorvarður Gísli, maki Hildur Ólöf Péturs- dóttir. Haraldur Jens, í sambúð með Elínu Kristjánsdóttur. 3) Stefán Ragnar bifreiðarstjóri. Börn hans eru: a) Elísabet Lilja, í sambúð með Tryggva Her- mannssyni. Dóttir þeirra er Elín Lára. Þórður Yngvi, Alda Kristín og Bergur Björn. 4) Aðalbjörg hjúkrunarfræðingur, maki Tryggvi Aðalsteinsson. Börn þeirra eru Anna Rún, sonur hennar er Flóki Hrafn Sigurðs- son. Sigríður og Aðalsteinn. Dótt- ir Þorvarðar og Guðrúnar Sig- urgeirsdóttur er Sigurbjörg, í sambúð með Sólmundi Mar- íussyni. Dóttir hennar er Harpa Melsted, í sambúð með Birgi Erni Birgissyni. Dóttir Hörpu er Thelma Melsted Björgvinsdóttir. Þorvarður lauk prófi frá Iðn- skólanum í Reykjavík í plötu- og ketilsmíði og var eitt ár í fram- haldsnámi í Svíþjóð. Hann starf- aði sem leigubílstjóri frá 1950, lengst af hjá Hreyfli. Einnig rak hann um tíma ljósmyndastofu og bílasölu. Árið 1972 var félags- heimili Hreyfils stofnað og var hann forstöðumaður þess frá upphafi þar til hann lét af störf- um fyrir aldurs sakir. Þorvarður og Sigríður bjuggu allan sinn bú- skap í Kópavogi og Reykjavík og síðustu árum ævinnar eyddu þau í þjónustuíbúðum aldraðra á Dal- braut. Þorvarður verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, 6. júlí, kl. 13. Elsku pabbi minn. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Í lífinu ferðast þær saman gleðin og sorgin. Þegar náinn ástvinur deyr fyllist hugurinn af gleðilegum minning- um sem valda manni sorg, en á endanum verður gleðin aftur sterkari en sorgin. Þú varst orðinn þreyttur og vildir fá að sofna, það hefði ekki verið þinn stíll að vera upp á aðra kominn. Þegar ég kom að heimsækja þig á spítalann fyrir mánuði síðan varstu að stimpla númer á símann og ég spurði: „Þarftu ekki að nota gleraugu til að sjá þetta?“ Þú svaraðir: „Nei nei, en ég þarf víst að fara til augnlæknis þegar ég losna héðan út, ég þarf nefnilega að fara að endurnýja ökuskírteinið mitt.“ Þótt ég hafi ekki alist upp með þér varst þú alltaf stór hluti af lífi mínu. Minnisstætt er mér þegar ég var að kaupa mína fyrstu íbúð, og þú leyfðir mér að vinna hjá þér í Hreyfilshúsinu þar sem þú varst umsjónarmaður í mörg ár, ég viðurkenni það að ég var nú svolítið þreytt eftir kvöldið, þar sem ekki var farið heim fyrr en salurinn var orðinn hreinn út að dyrum. Ógleymanlegt þegar við Sólmundur komum og gistum hjá ykkur Siggu á Skógum í Seyð- isfirði, og þú fræddir mig um, þeg- ar þú ólst upp á Vestdalseyrinni. Síðan hefur Seyðisfjörður verið mér ofurkær og erum við Sól- mundur einmitt að fara í húsið 10. júlí, og það verður það fyrsta sem ég geri að fara út á Vestdalseyri og rifja upp stundirnar með þér þar. Elsku pabbi, með þessum fáu orðum vil ég þakka alla þá ást, al- úð, umhyggju og hlýju, sem þú sýndir mér og minni fjölskyldu. Þegar æviröðull rennur, rökkvar fyrir sjónum þér, hræðstu eigi, hel er fortjald, hinum megin birtan er. Höndin, sem þig hingað leiddi, himins til þig aftur ber. Drottinn elskar, – Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (Sigurður Kristófer Pétursson.) Þín dóttir Sigurbjörg. Æðruleysi kemur í hugann er ég sest niður og rita minningarorð um föður minn, Þorvarð Guð- mundsson, sem var kallaður Bói af mörgum. Ósk pabba um að halda reisn og sjálfstæði fram á síðasta dag rætt- ist. Þriðjudaginn 23. keyrði hann bílinn og fór að spila og munaði einum að hann yrði efstur. Á mið- vikudeginum fær hann heilablóð- fall, lamast og á erfitt með mál en gerði sig skiljanlegan um að verst þætti honum að missa af spilunum þann daginn. „Þú vinnur bara kaffipakkann fyrir mig næst, pabbi minn,“ sagði ég. Hann sá alltaf já- kvæðu hliðarnar í lífinu og kímnin var aldrei langt undan. Hægt og sígandi dró af honum og sofnaði hann sunnudaginn 28. júní, en þá voru 3 ár síðan mamma var jarð- sett. Var eins og að hann vissi að hverju stefndi, því undanfarið var hann búinn að ræða við okkur systkinin ýmislegt í sambandi við útfarir og annað tengt dauðanum. Tjaldútilegur voru ríkur þáttur í mínum uppvexti og verð ég að við- urkenna að þorstinn í þekkingu á uppruna mínum var ekki kvikn- aður þá. Seinni ár nutum við fjöl- skylda mín þess að rölta um gaml- ar húsatóftir á Vestdalseyrinni með pabba og heyra sögur og jafn- vel renna veiðistöng í ána sem nánast hafði runnið við bæjardyrn- ar. Veiðibakterían tók sér djúpa bólfestu í pabba og voru veiðitúr- arnir ófáir í gamla daga og hafi ég lært að læðast og hafa hljótt þá var það á hinum ýmsu árbökkum landsins, ekki alltaf jafn auðvelt. Þessi kunnátta kom sér vel í mínu starfi sem hjúkrunarfræðingur og þá sérstaklega á næturvöktum. Það eru ekki mörg ár síðan pabbi naut þess að fara í lax með bróður mínum og nafna sínum. Nýtnin var í fyrirrúmi og ekki mátti henda neinu, það gæti ein- hverntíma einhver haft not fyrir það. Fast að níræðu fór hann á smá- bát með vini sínum og syni mínum, þá 13 ára, út á Seyðisfjörð og kom fullur bátur af þorski til baka. Gummi bróðir slægði fiskinn úti á túni og slegið var upp veislu. Pabbi fór til rjúpna áður fyrr og voru hlíðar Skjaldbreiðar vinsælar. Ekki hefur hann grunað þá að fjörutíu árum síðar stæði hann á toppi Skjaldbreiðar eftir jeppa- og vélsleðaferð. Hans kynslóð hefur lifað ótrúlegar breytingar. Sagt er að þolinmæðin þrautir vinni allar, og þannig var pabbi, ekki málið að gera hlé á vinnunni og skutlast með okkur eða eftir okkur. Atvinnutæki pabba var bíll- inn sem oftast var amerískur kaggi, en var ekki heilagur og seinna meir hef ég oft undrað mig á því hvað hann var fús til að lána okkur bílinn, aldrei neitt mál. Þegar Hreyfilshúsið var byggt varð pabbi húsvörður þar og um- sjónarmaður „Hreyfilssalarins“. Þar sameinuðu hann og mamma krafta sína. Pabbi var í þessu fram á níræðisaldur og var hann liðtæk- ur á moppur og tuskur og hvað það sem til féll. Á sextugsaldri fóru þau að ferðast til útlanda og gerðu víð- reist, í uppáhaldi varð Búlgaría, ferðirnar þangað urðu 11 og þar- lendir vinir margir. Pabbi og ég dvöldum á Kanarí í þrjár vikur 2008 og urðum sérfræðingar í – fé- lagsvist, bingó og minigolfi og skemmtum við okkur hið besta. Okkar ást og virðing fylgi þér, elsku pabbi minn. Þín Aðalbjörg. Nú, þegar mágur minn Þorvarð- ur Guðmundsson, Bói, eins og hann var ætíð kallaður, er látinn, hrannast upp minningar um allar þær mörgu ánægjustundir, sem við hjónin áttum með honum og Siggu (sem nú er látin) um langt árabil. Fyrir þær erum við mjög þakklát. Þær voru ófáar ferðirnar, sem við fórum með þeim bæði innan- lands og utan. Innanlands voru m.a. tjaldferðir með krakkana og veiðiferðir, en þar var Bói svo sannarlega í essinu sínu og kunni öll handtökin. Betri ferðafélaga var ekki hægt að kjósa sér, ekkert vesen eða vandamál, sem ekki voru snarlega leyst. Bói var sérstaklega hlýr maður og viðmótið blítt. Þá var hann hjálpsamur með afbrigðum. Var boðinn og búinn að veita þeim, sem á þurftu að halda, lið og þá var ekki skeytt um þann tíma sem í það fór. Reyndist hann þó oft furðu langur. Bói var kominn á tíræðisaldur þegar hann lést, en hann varð þó aldrei gamalmenni. Hann var mjög félagslyndur og átti sín áhugamál, sem hann lagði mikla rækt við. Auðnaðist honum þannig með já- kvæðni og léttri lund að lifa lífiinu lifandi til hinstu stundar. Börnum Bóa og fjölskyldum er vottuð samúð við fráfall hans en gott er að eiga ljúfar minningar um góðan dreng. Sigurrós Sigurðardóttir (Rósa). Þorvarður Guðmundsson Elsku Dagný frænka okkar hefur nú lagt upp í sína hinstu ferð og hefur örugglega verið vel tekið á móti henni og armar ömmu Lovísu og annarra ættingja um- vefja hana nú með sömu ástúð og umhyggju og þeir gerðu í lifanda lífi. Líf Dagnýjar var barátta frá fyrsta degi, lítil stúlka sem ekki var spáð langlífi og meðfæddur hjarta- galli átti eflaust sinn þátt í hve smágerð hún var og á ýmsan hátt öðruvísi en við hin sem teljumst eðlileg. En ljúfar minningar eigum við um litla stúlku með stóran og sterk- an vilja til að lífa sínu lífi eins og hún ákvað sjálf, fór sínu fram, óháð því hvað foreldrum og öðrum ætt- ingjum fannst um það og valdi sér, á tímbili, grýttari veg að ganga en almennt gengur og gerist. Slíkar göngur verða oft erfiðar og tor- velda samskipti við þá sem ganga greiðari leiðir eða þær sem sam- þykktar eru í okkar samfélagi. Dagný var hjá okkur nokkur sumar þegar börnin voru lítil og Dagný Sverrisdóttir ✝ Dagný Sverr-isdóttir fæddist í Reykjavík 24. apríl 1960. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 16. júní 2009 og fór útför hennar fram frá Grensáskirkju 26. júní. áttum við einkar góð samskipti og minn- umst við með hlýju þeirra samvista við hana, hún var svo þægileg, barngóð og ljúf manneskja. Oft minntist Dagný á ferðina sem hún fór til Ítalíu, með ömmu Lovísu og Valgeiri frænda sínum, sem var mikil upplifun og henni ógleymanleg. Kæra Dagný, þú lagðir þig fram við að taka þátt í sem flestu sem lífið hef- ur upp á að bjóða en valdir ekki alltaf réttu leiðirnar til þess, en þú fannst að lokum frið og sættist við sjálfa þig og aðra. Dagný með fallega brosið sitt og ljúfa viðmót er nú komin á öruggan stað í faðm ættingja sem á undan henni eru gengnir. Að öllum lík- indum lítur hún nú yfir farin veg og brosir blítt og í sátt til þeirra sem hún hitti þar fyrir, veikindum og þrautum síðustu ára er nú lokið og nú gengur Dagný væntanlega heil til skógar. Kæru Sverrir og Steina, systur, ættingjar og vinir við sendum ykk- ur öllum samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum. Oddný og fjölskylda. Ég trúi ekki að þú sért búin að kveðja þennan heim. Við sem áttum eftir að bralla svo margt saman. Öll skiptin sem við fórum í Kringluna að kaupa jólagjafir og ég að keyra þig um á hjólastólnum þínum. Mér fannst alltaf svo gaman að geta komið heim til þín bara til þess að spjalla um heima og geima, því að þú hafðir alltaf svör við öllu og húmorinn var alltaf á réttum stað. Maður var alltaf léttari á fæti og í hjarta þegar heimsókninni lauk og maður hlakkaði alltaf til næstu heimsóknar. Núna á ég eftir að sakna þess að geta ekki komið í heimsókn. Þú hafðir óendanlega gaman af því að hrekkja mig. Og ég eftir að sakna þess rosalega mikið. Það er svo rosalega margt sem ég á eftir að sakna í þínu fari. Þú varst stóra frænka mín og átti ég alltaf skjól hjá þér hvað sem á bjátaði. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson.) Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ókunnur.) Elsku frænka, guð geymi þig. Elska þig rosalega mikið. Þín frænka Steinunn Ósk. Þegar líf kviknar þá er það stundum eins og þegar kveikt er á kerti, loginn teygir sig í átt til frels- is og þá hefst lífsgangan og hjá sumum er hún erfiðari en hjá öðr- um. Dagný frænka (systir) mín var ein af þeim sem fengu að erfiða, hún var mjög fallegt og elskulegt barn, dóttir Sverris Halldórssonar og Steinunnar Ingvarsdóttur, og hvers manns hugljúfi sem leyfði mér að rússa með sig í kerru eins og ég nennti. Hún var alla tíð mjög smávaxin og þurfti að berjast á velli lífsins. Við Dagný erum elstar af systkinabörnum og bjó ég á tímabili á heimili hennar og sem ein af systrunum sem að auki eru Hrafn- hildur og Guðrún. Það gefur að skilja að ég á fullt af minningum sem lifa áfram, okkur þótti mjög gaman að fótbolta og fórum á Laugardalsvöllnin enda áttum við þá heima á Hofteig. Uppáhaldsleik- urinn var þó án efa þegar ég drösl- aði henni með mér á völlinn til að sjá Benfica og Val keppa í fótbolta, við lifðum lengi á því. Dagný var mikill sjúklingur, lungun, hjartað og sykursýkin voru henni erfið og var hún í mikilli baráttu við að halda sér á lífi síðustu ár. Ég segi nú oft að frekjan hafi haldið henni lifandi en meina það vel. Við rædd- um um margt síðustu vikurnar og vorum ekkert bjartsýnar á framtíð- ina. Ég sagði þá við hana: „Það er fullt af góðu fólki, Dagný mín, sem tekur vel á móti þér.“ Og hún svar- aði: „Ég veit alveg hver tekur á móti mér, hún Ásta (föðursystir) sækir mig!“ Og ég er viss um að hún hefur gert það. En nú hefur slökknað á lífskert- inu hennar Dagnýjar og við höldum áfram vitandi að henni líður vel, laus úr súrefni, laus við sykursýk- ina og laus við hjólastólinn. Ég votta Sverri, Steinu, Guðrúnu og ykkur öllum sem syrgið núna samúð, en þó sérstaklega Hrafn- hildi systur hennar sem gerði líf hennar bærilegra. Guð launi þér það. Góða ferð, elsku sys, hittumst seinna. Þín Fjóla. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku Dagný mín, takk fyrir allt. Sakna þín mikið, þín systir Hrafnhildur. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Elsku stóra sys Sofðu í guðs friði með englunum. þín litla sys, Guðrún Guðný. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.