Morgunblaðið - 06.07.2009, Síða 21

Morgunblaðið - 06.07.2009, Síða 21
Minningar 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2009 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Raðauglýsingar Dýrahald Am. Cocker Spaniel hvolpar til sölu Tilb. til afhendingar. Einn rakki og ein tík eftir. Ættbók frá HRFÍ. www.eldhuga.com, sími 845-6678. Nudd Temple Massage Whole Body Healing Massage based on Tantric principles. For men, women and couples. Tel. 698 8301. www.tantra-temple.com Atvinnuhúsnæði Til leigu rúmlega 400 fm atvinnuhúsnæði með mjög góðri aðstöðu og nægum bílastæðum, með frábæru auglýs- ingagildi á besta stað á Smiðjuvegi 2. Stórar innkeyrsludyr og 5 metra lofthæð. Uppl. í s: 659 -1380. Bæjarlind 14-16 Til leigu verslunar- eða skrifstofu- húsnæði í Bæjarlind 14-16 á jarðhæð (neðstu) – norðurendi (Tekk-plássið), 400 m². Innkeyrsludyr, næg bílastæði og góð aðkoma. Hagstæð leiga. Upplýsingar í síma 895-5053. Sumarhús Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum til sölu Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Tómstundir Plastmódel í miklu úrvali. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600, www.tomstundahusid Til sölu www.verslun.is Pöntunarsími: 5351300 Stubbahús VERSLUNARTÆKNI KAUPI GULL ! Ég, Magnús Steinþórsson gull- smíðameistari, kaupi gull, gull- peninga og gullskartgripi af fólki og veiti ég góð ráð. Kaupi allt gull nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns. Upplýsingar á demantar.is , í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13. Verið velkomin. Þjónusta MÓÐUHREINSUN GLERJA Er komin móða eða raki á milli glerja? Móðuhreinsun ÓÞ. Sími 897-9809. Myndatökur Ljósmyndastofa Gunnars Ingimarssonar. Málarar Málningarvinna Þaulvanur málari getur bætt við sig verkefnum. Inni og úti. Vönduð og öguð vinnubrögð. Sanngjarnt verð. Uppl. í síma 897 2318. Ýmislegt Teg. 42027 - Frábær BH sem styður vel í CDE skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950,-. Teg. 17047 - Glæsilegur og það má taka hlýrana af, fæst í BC skálum á kr. 3.950,- boxerbuxur í stíl á kr. 1.950,-. Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18, Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Glow & blikkvörur fyrir útisamkomur í sumar, farðu inn á www.hafnarsport.is og skoðaðu úrvalið. Dömuskór í fjölbreyttu úrvali. Allt leðurskór. Stærðir: 36 - 40 Litir: brúnt, svart, grænt, vínrautt Verð: 9.685.-- Stærðir: 36 - 40, Litir: svart Verð: 8.685.- Sstærðir: 36 - 40 Litir: Svart og grænt. Verð: 9.685.- Sérlega þægilegir á lágum hæl og með opna tá. Stærðir: 36 - 40 litir: svart. Verð:12.950.- Mjúkar mokkasíur með lágum hæl. Stærðir: 36 - 40 Litir: svart. Verð: 10.950.- Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070, opið: mán. - fös. 10 - 18. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Bátar Óska eftir að kaupa notaðan plastbát, trébát og utanborðsmótor. Upplýsingar í síma: 697-5850. Strandveiðimenn Fiskiker gerðir 300, 350, 450 og 460. Línubalar 70 og 80 l. Allt íslensk framleiðsla í hæsta gæðaflokki. www. borgarplast.is Völuteig 31, Mosfellsbæ, s: 561 2211. Bílaþjónusta Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, FWD. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '08. 8924449/5572940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 8637493/5572493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Snorri Bjarnason BMW 116i ´07. Bifhjólakennsla. 8921451/5574975. Visa/Euro. Húsviðhald Tökum að okkur að leggja PVC dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands- byggðinni einnig. Erum líka í viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598. Varahlutir www.bilapartar.is Bílapartar ehf. Við erum þjónustu- aðilar Úrvinnslusjóðs. Þú kemur með bílinn til okkar og færð skilavottorð. Við erum í Grænumýri 3, Mosfellsbæ. Óska eftir Kaupum gull Höfum keypt og selt gull í 38 ár. Vantar nú gull til að smíða úr. Sanngjarnt verð. Fagmenn meta skartgripina þér að kostnaðarlausu. Aðeins í verslun okkar, Laugavegi 61. Jón og Óskar - jonogoskar.is - s. 552-4910. Atvinnuauglýsingar Umboðsmaður Umboðsmann vantar á Patreksfjörð Upplýsingar veitir María Viðarsdóttir í síma 669-1306 Fyrir allt þetta er ég þakklát. En þakklátust er ég fyrir þau sérstöku tengsl sem við deildum. Þá hlýju og væntumþykju sem þú gafst mér. Þá hlýju og væntumþykju sem ég veitti þér. Amma mín í rauða sloppn- um, ég hlakka til þeirra stundar þeg- ar við kúrum og syngjum saman næst. Þangað til lúri ég undir bleiku silkisængurfötunum þínum og syng fyrir þig Maístjörnuna. Katla Rut. Það er hásumar á okkar ástkæra landi, sem á þessum tíma skartar sín- um fegursta skrúða, sólargangur er sá lengsti er gerist á voru landi. Lilj- ur vallarins breiða út faðm sinn mót vermandi sól eða þess á milli fagna silfurtærum daggardropum, er þeim fellur í skaut, undirstaða alls lífs á jörðinni. Þessi tvö öfl, líf og dauði, togast á í okkar tilveru og endar að lokum með sigri þess síðarnefnda, hann er miskunnarlaus, spyr hvorki um árstíð né aðstæður, ávallt napur og sár, en segja má að hann sé ásætt- anlegur þegar í hlut á öldruð kona og lúin eftir langan og strangan ævidag. Halla systir var fædd 11.02.1920 í Óspaksstaðaseli sem var innsti bær í Hrútafirði, sannkallað heiðarbýli. Þarna voru léleg húsakynni og fá- tækt eins og altítt var á þeim árum. Þarna var lífsbaráttan æði hörð og dauðinn knúði dyra óvæginn og mis- kunnarlaus. Móðir okkar ól 8 börn, en við vorum aðeins fjögur er náðum fullorðinsaldri. Ég var svo ungur að árum er þess- ar hörmungar gengu yfir að ég skynj- aði varla sorgina. Minningarnar frá þessum tíma eru í mínum huga afar óljósar og þokukenndar. Móðir okkar andaðist 25.02.1933. Heimilinu var haldið saman þar til á fardögum vorið 1935. Þá fóru allir burt að heiman, Björn fór til móðursystur er hét Guð- rún og bjó á Kolbeinsá, Halla og Jón- as fóru að Grænumýrartungu til Ingveldar og Gunnars. Þar var æv- inlega opið hús ef vanda bar að hönd- um. Þau þrjú voru orðin það stálpuð að þau voru álitin geta unnið fyrir sér, en ég sem þessar línur rita var bæði ungur og smár, gat enga björg mér veitt, fékk að halda í höndina á ömmu Þuríði og ferðinni heitið í Kvíslasel. Halla naut sinna ung- lingsára í Grænumýrartungu. Þar var stórt og myndarlegt heimili og þar hafa hennar starfskraftar komið að góðum notum. Ung stúlka nam hún fræði í Kvennaskóla á Blönduósi. Því næst lá leiðin til Reykjavíkur og vinna hófst í Smjörlíkisgerðinni Ljóma. Hún kynntist manni er hét Ólafur Ingi- marsson, þau gengu í hjónaband og stofnuðu heimili, er lengst af var í Eikjuvogi 24. Hún var afar myndar- leg húsmóðir, bjó til góðan mat og pönnukökur í sérflokki. Hún var enn- fremur handlagin, saumaði talsvert á sín börn. Þangað var notalegt að koma og minnumst við hjón margra og glaðværra stunda frá þeim tíma. Gestagangur var töluverður og veit- ingar frábærar. Þeim hjónum varð fjögurra barna auðið sem öll eru vel gerð og mannvænleg. En hamingja þessa heims er afar fallvölt. Hún varð fyrir þeirri djúpu sorg að missa sinn elskulega mann 27.03.1971 og hann þá rétt innan við fimmtugt. Þetta var mikið áfall og ótímabært. Hún tók þessu með ótrúlegri sálarró, kom upp sínum börnum og þau fóru öll í nám. Elsku systir, þú skilur eftir mikinn auð, þín fjögur öndvegisbörn, fjölda barnabarna og röskan tug barna- barnabarna. Við hjónin kveðjum þig með trega og þakklæti fyrir liðna tíð. Við kveðjum ennfremur þessa konu með aðdáun fyrir kjark, hugrekki og dáð, láta aldrei bugast er naprir stormar næddu á hennar æviskeiði. Ég bið þess, Drottinn vor, að þú varðveitir sálu þessarar framliðnu systur og gefir öllum eftirlifandi syrgjendum huggun og styrk. Gef þú dánum ró, hinum líkn sem lifa. Bróðir, Ingimar Einarsson. Látin er ljúf kona og raungóð, Halla í Eikjuvoginum. Fyrir liðlega 40 árum bankaði ég upp á hjá henni á miðhæðinni, kynnti mig og mína konu sem nýju eigend- urna að risíbúð í mjög snotru 3ja íbúða húsi með einkar fallega rækt- aða lóð. Við vorum að hefja búskap, þau hjón á manndómsárum sínum með þrjú börn. Hún og maður hennar Ólafur, lát- inn fyrir mörgum árum og börn þeirra, tóku okkur strax vel og alla tíð síðan. Það var okkur hollt veganesti að upplifa nægjusemi þeirra hjóna, fyrirhyggju og alúð, sem gerðu sam- veruna bæði eftirminnilega og kæra. Þau veittu okkur ungu hjónunum holl ráð og liðsinntu á marga lund. Í hönd fóru glaðar stundir og góðar í leik og starfi og sú vinátta sem skapaðist hefur varað fram á þennan dag. Í þessu nábýli bjuggum við í sjö góð ár. Þessi tryggð og góðvilji hefur nært okkur og gefið lífinu aukið inntak og fyllingu. Hönd Höllu var gríðar-hög, saumaskapur og öll húsverk fóru henni vel úr hendi, svo þeim búnaðist vel og börnin þeirra fengu góða menntun og gott veganesti. Nú að leiðarlokum þökkum við kynnin góð og órofa vináttu, biðjum henni blessunar Guðs og vottum börnum hennar, tengdabörnum, af- komendum og vinum öllum dýpstu samúð. Drottinn, gef þú dánum ró, hinum líkn er lifa. Margrét og Kristján Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.