Morgunblaðið - 06.07.2009, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 06.07.2009, Blaðsíða 22
22 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 2009 Sudoku Frumstig 2 3 4 2 8 5 4 9 6 7 6 8 8 3 7 5 4 9 7 5 1 6 9 8 6 1 8 5 4 7 2 5 9 6 1 3 9 8 7 2 9 1 1 8 7 8 5 9 3 2 9 4 8 7 6 5 2 5 6 6 7 9 8 9 1 4 1 7 6 7 4 8 4 7 2 3 9 8 6 1 5 3 8 6 1 5 2 7 9 4 9 1 5 6 7 4 2 3 8 1 6 9 2 4 5 3 8 7 7 2 4 8 1 3 9 5 6 5 3 8 7 6 9 4 2 1 2 5 1 4 3 7 8 6 9 8 9 7 5 2 6 1 4 3 6 4 3 9 8 1 5 7 2 6 7 2 4 3 8 1 5 9 8 5 1 6 9 2 3 4 7 4 9 3 5 7 1 2 6 8 5 2 4 9 1 6 8 7 3 1 3 7 2 8 5 4 9 6 9 6 8 7 4 3 5 1 2 2 4 5 3 6 9 7 8 1 3 1 6 8 5 7 9 2 4 7 8 9 1 2 4 6 3 5 5 2 8 4 1 6 9 7 3 9 6 7 3 5 2 4 1 8 3 4 1 8 9 7 6 5 2 6 7 5 9 3 4 2 8 1 8 9 3 6 2 1 5 4 7 4 1 2 5 7 8 3 9 6 2 8 4 1 6 5 7 3 9 7 5 9 2 8 3 1 6 4 1 3 6 7 4 9 8 2 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er mánudagur 6. júlí, 187. dagur ársins 2009 Orð dagsins: En hann frelsar hinn bágstadda með bágindum hans og opnar eyru þeirra með þrengingunni. (Jb. 36, 15.) Víkverji var næstum því farinn aðskipta sér af uppákomu við af- greiðslukassa í matvöruverslun á dögunum af vorkunnsemi með lítilli stúlku. Hnátan, sem Víkverji telur hafa verið 5 til 6 ára, hafði tekið sellófanpappír af hulstri utan um dvd-myndband sem hún sá í rekka og heillaðist af. Móðirin æpti að ekki stæði til að kaupa diskinn og var hávær þegar hún skammaði dótturina. Eldri kona sem var meðferðis og Víkverji telur hafa verið ömmuna tók undir með móðurinni og sagði við þá stuttu að hún ætti að biðjast afsökunar. Ekki dettur Víkverja í hug að litla stúlkan hafi talið að með því að taka pappírinn utan af disknum yrði hann keyptur. Hún lét einfaldlega undan löngun sinni en var ekki að leika á kerfið. x x x Víkverji sér eftir að hafa ekkikomið til aðstoðar þegar hann sá utangarðsmann fyrir nokkrum árum á harðahlaupum út úr mat- vöruverslun með afgreiðslustúlku á hælunum. Hún skammaði manninn og skip- aði honum að skila vörunni sem hann var með innan á sér. Í ljós kom að um lítið súkkulaðistykki var að ræða. Ef til vill gat utangarðsmaðurinn ekki lagt sér neitt til munns þann daginn. Hann lét undan löngun sinni en var gómaður. Þótt Víkverji telji sig löghlýðinn skammast hann sín fyrir að hafa ekki keypt að minnsta kosti súkkulaði handa manninum. x x x Víkverji vorkennir hins vegar allsekki auðmönnunum sem fá skammir fyrir að hafa leikið á kerfið til þess að geta veitt sér enn fleira sem hugurinn girntist. Víkverji vor- kennir heldur ekki þeim sem fá skammir fyrir að hafa ekki gripið í taumana. Aðgerðirnar og aðgerða- leysið hafa leitt til þess að lífið verð- ur ekki bara enn erfiðara fyrir ut- angarðsmenn og fyrir litlar stúlkur sem langar í fallega hluti. Það verð- ur erfiðara fyrir alla sem enga sök bera. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 gimsteinn, 8 málmi, 9 slæmur, 10 haf, 11 dimmviðri, 13 hirði um, 15 reiðtygi, 18 aul- ann, 21 ótta, 22 sárið, 23 flýtinn, 24 gullhamrar. Lóðrétt | 2 talar, 3 byggi, 4 spjóts, 5 reyfið, 6 guðs, 7 stífni, 12 kven- dýr, 14 fag, 15 höfuð, 16 gamla, 17 þekktu, 18 óskunda, 19 stétt, 20 ná- komna. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 þraut, 4 þylur, 7 kofar, 8 raust, 9 tap, 11 rýrt, 13 ótta, 14 ógnun, 15 þarm, 17 nóta, 20 hin, 22 felli, 23 ómyrk, 24 rautt, 25 tætir. Lóðrétt: 1 þokar, 2 aðför, 3 tært, 4 þorp, 5 laust, 6 rotta, 10 agnúi, 12 tóm, 13 ónn, 15 þefur, 16 rellu, 18 ólykt, 19 arkar, 20 hitt, 21 nótt. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6. He1 b5 7. Bb3 d6 8. c3 O-O 9. h3 Bb7 10. d4 He8 11. Rbd2 Bf8 12. d5 Rb8 13. Rf1 Rbd7 14. R3h2 Rc5 15. Bc2 c6 16. b4 Rcd7 17. dxc6 Bxc6 18. Bg5 Dc7 19. Bxf6 Rxf6 20. Rg4 Rxg4 21. hxg4 a5 22. Re3 Db7 23. g5 axb4 24. cxb4 Ha3 25. Hc1 Hxa2 26. Bb3 Hb2 27. Bd5 Bxd5 28. Rxd5 Hc8 29. He3 Hxc1 30. Dxc1 Ha2 31. Dd1 Da7 32. Df3 Dd4 33. Hc3 Dd2 34. He3 Ha1+ 35. Kh2 Ha2 36. Dg4 Dxf2 Staðan kom upp á Karpov-mótinu sem lauk fyrir skömmu í Poikovsky í Rússlandi. Þýski stórmeistarinn Arka- dij Naiditsch (2700) hafði hvítt gegn kollega sínum Zahar Efimenko (2682) frá Úkraínu. 37. Rf6+! Kh8 38. Hf3 Dc2 39. Rxh7! og svartur gafst upp enda yrði hann mát eftir 39… Kxh7 40. Dh5+ Kg8 41. Dxf7+. Hvítur á leik Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Athyglisverð sniðganga. Norður ♠K943 ♥9762 ♦D94 ♣96 Vestur Austur ♠ÁDG10876 ♠52 ♥G ♥KD108543 ♦652 ♦-- ♣D7 ♣K1084 Suður ♠-- ♥Á ♦ÁKG10873 ♣ÁG532 Suður spilar 6♦. Laufstaðan er athyglisverð: nían önnur á móti ÁG smátt fimmta. Þenn- an lit þarf að fría og fyrirfram er vand- séð hvernig nían getur komið að gagni. En það gerir hún svo sannarlega. Byrjun á réttum enda: Suður opnar á tígli og vestur hindrar með 3♠. Sú sögn skilar sér til suðurs og hann stekkur í 5♣. Norður breytir í 5♦ og suður hækkar í slemmu. Útspilið er eitrað tromp. Nú kemur til kasta níunnar í laufi. Sagnhafi tekur fyrsta slaginn heima og spilar litlu laufi að blindum. Fái austur slaginn getur hann ekki trompað út og þá verður hægt að stinga lauf tvisvar í borði. Vestur neyðist því til að hoppa upp með ♣D og spila tígli. En því mæt- ir sagnhafi á þann einfalda hátt að svína ♣G og þarf þá aðeins að trompa lauf einu sinni. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það eru ýmis teikn á lofti um breytingar í starfi. Ekki halda að vin- urinn brotni saman við það að missa af þínum upplífgandi ráðum. (20. apríl - 20. maí)  Naut Spennandi tímar eru framundan. Gakktu ekki alveg fram af þér og gefðu þér líka tíma til að rækta sjálfan þig. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Tækifærin eru allt í kringum þig og þú þarft bara að grípa þau. Leggðu þig síðan fram um að gera þær breytingar sem þú vilt sjá í lífi þínu. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Foreldrar ættu að reyna að forð- ast valdabaráttu við börn sín í dag. Ein- hver þér eldri og reyndari kann að hjálpa þér. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú nýtur þess að ræða vonir þínar og framtíðardrauma við vin þinn. Frá- bær tímasetning gerir fjarræna hug- mynd mögulega. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú stendur frammi fyrir þeim valkosti að geta tekið á þig aukna ábyrgð. Gættu þess því að leita ekki langt yfir skammt því lykillinn liggur nær þér en þú heldur. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Notaðu hvaða tækifæri sem gefst til að verða ástfangnari af sjálfum þér. Vonin er það sem heldur öllu gangandi. Farðu vel með þig. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það er mikið að gerast í við- skiptum hjá þér í dag. Farðu í aðrar búðir eða á annað kaffihús en venjulega og aðra leið heim úr vinnunni. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það er ósiður að svara ekki skilaboðum. Kannski er um að ræða bók sem þig hefur alltaf langað til þess að lesa, nýjan vin eða gönguferð úti í nátt- úrunni. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú ert upp á þitt besta og getur nánast samið um hvað sem er því þú færð fólk svo auðveldlega á þitt band. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Athygli annarra beinist mjög að þér um þessar mundir en athugaðu að ekki er verið að setja upp hindranir þér til höfuðs. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Stundum er eins og tækifærin bíði þín, en stundum er eins og að hafa þurfi mikið fyrir hlutunum. Rómantíkin blómstrar. Stjörnuspá 6. júlí 1958 Eyjólfur Jónsson, 33 ára lög- regluþjónn, synti frá Reykjavík til Akraness, 22 kílómetra, á rúmum þrettán klukkustundum. Ári síðar synti hann frá Vest- mannaeyjum til lands og frá Kjalarnesi til Reykjavíkur. Einnig synti hann tvívegis Drangeyjarsund. 6. júlí 1987 Sænska rokkhljómsveitin Eu- rope hélt tónleika í Laug- ardalshöll í Reykjavík. Á sjötta þúsund ungmenni sóttu tónleikana. 6. júlí 2000 Metsöluhöf- undurinn Michael Chrichton áritaði bæk- ur sínar í verslun Pennans/ Eymunds- sonar við Austurstræti. Löng biðröð myndaðist. 6. júlí 2004 Davíð Oddsson forsætisráð- herra átti fund með George W. Bush Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu í Washington. Framtíð Varnarliðsins var til umræðu. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Eva María Oddsdóttir, Amanda Líf Pétursdóttir og Vala Birna Árnadóttir héldu tombólu við Nettó í Foldahverfi og söfnuðu 4.727 kr. sem þær færðu Rauða krossinum. Hlutavelta „ÉG er þakklátur lífinu og fyrir lífið,“ sagði séra Valgeir Ástráðsson, sóknarprestur í Seljakirkju í Breiðholti. Hann fagnar 65 ára afmæli í dag. Val- geir fæddist skömmu eftir stofnun íslenska lýð- veldisins 17. júní 1944 og er því „gullmódel“, eins og sumir hafa nefnt árganginn. Í dag ætlar Valgeir að sinna embættisverkum en verja kvöldinu í faðmi fjölskyldu sinnar í sum- arbústað. Þangað koma bæði börn hans og systk- ini til að samgleðjast afmælisbarninu. „Ég er hress og ætla að njóta íslenskrar náttúru og hafa það gott,“ sagði Valgeir. „Annars eru afmæli enginn sérstakur merkisviðburður hjá fullorðnu fólki.“ Valgeir var spurður hvort einhverjir fyrri afmælisdagar væru hon- um meira minnisstæðir en aðrir. Hann sagði svo ekki vera en bætti við: „Mér finnst gott að eiga afmæli og nýt þess. Ég er þakklátur fyrir hvern afmælisdag.“ En hefur hann tileinkað sér lífsmottó? „Það er að vera þakklátur. Lífið hefur gefið mér mörg tilefni til þess að vera þakklátur. Ég held að þakklætið sé lykill að ákaflega mikilli gleði í lífinu. Það að geta þakkað Guði og náunganum fyrir hvað manni er margt gefið.“ gudni@mbl.is Séra Valgeir Ástráðsson er 65 ára í dag „Ég er þakklátur“ Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.