Morgunblaðið - 06.07.2009, Page 32
MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 187. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Tvöfalt gengi krónunnar er
gróðaleið fyrir suma
Tími gjaldeyrishaftanna er mikil
gósentíð fyrir svokallaða „haftamiðl-
ara“, sem kaupa gjaldeyri á Íslandi
og selja fyrir krónur erlendis. Ein-
hverjir hafa hagnast um hundruð
milljóna króna svona og eru vísbend-
ingar um að glæpamenn líti á gjald-
eyrisbrask sem sjálfstæða tekjulind.
»Forsíða og 11
Ístak segir upp 270 manns
Í haust mun verktakafyrirtækið
Ístak segja upp 270 starfsmönnum.
Af þeim eru um 70 með tímabundna
ráðningu. Loftur Árnason fram-
kvæmdastjóri segir lítið annað fyrir
fyrirtækið að gera en að troða mar-
vaðann. »2
Gengur vel á Reykhólum
Þörungaverksmiðjan á Reykhól-
um er rekin með hagnaði og rætt er
um að stækka hana. Stór hluti íbú-
anna á Reykhólum starfar í verk-
smiðjunni og því er gott hljóð í fólk-
inu þar. Komið er að því að
endurnýja skip fyrirtækisins, Karls-
eyna. »8
Háir vextir á ríkispappírum
Ávöxtunarkrafa á ríkisskuldabréf
hefur hækkað mikið og nú bera
lengstu skuldabréfin kröfu upp á 8,9
til 8,95% vexti. Ákvörðun Seðla-
bankans á fimmtudag um að halda
vöxtum óbreyttum leiddi til hækk-
unar ávöxtunarkröfu. »11
Ölvun á Írskum dögum
Erilsamt var hjá lögreglunni á
Akranesi um helgina, vegna ölvunar
gesta á Írskum dögum. Almennt
tókst þó vel til með hátíðina, en
skemmtanahald var víða um land
þessa fyrstu helgi í júlí. »6
SKOÐANIR»
Staksteinar: Engar ýkjur
Forystugrein: Klemman vegna Ice-
save
Pistill: Ísland tekur á sig syndir
heimsins
Ljósvaki: Rómantík á skjánum
UMRÆÐAN»
Námsmenn er bara menn...
Icesave: Þrautalending eða brot-
lending?
Um ágæti skólanna og mikilvægi...
Heitast 22 °C | Kaldast 10 °C
Austlæg eða breyti-
leg átt, austan 10-15
allra syðst. Þokubakk-
ar eða súld af og til við
suður- og austurströndina. » 10
Snertiflötur tveggja
einstakra lista-
kvenna er viðfangs-
efni nýrrar sýningar
í Listasafni
Árnesinga. »24
MYNDLIST»
Gerður
og Nína
FÓLK»
750.000 miðar endur-
greiddir »28
Svavar Knútur
ákvað að hefja nýtt
líf og helga sig
tónlistinni um leið
og fjármálakerfið
hrundi. »26
TÓNLIST»
Listamaður
út í gegn
TÓNLIST»
Kreppan tafði fyrir
<3 Svanhvíti »29
FLUGAN»
Flugan kom víða við um
helgina. »25
Menning
VEÐUR»
1. Ósvífin og ódýr afgreiðsla...
2. Undirbúa lögsókn gegn Íslandi
3. Söderlund hetja FH-inga í Eyjum
4. 360 sagt upp í hópuppsögnum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
EFTIR drjúgan þurrviðriskafla vöknuðu höfuðborgarbúar upp við það í
gærmorgun að það hellirigndi. Ekki virtist veðrið draga úr áhuga fólks,
sem eftir var í borginni, á að stunda útiveru. Þannig var margt um mann-
inn í Sundlaug Seltjarnarness, þar sem rennibrautin hefur aðdráttarafl
sem fyrr. Veðurstofan spáir fremur hagstæðu veðri út vikuna og hún
reiknar með því að veður fari hlýnandi þegar nær dregur helginni.
Höfuðborgarbúar létu rigninguna ekki draga úr útiverunni
Morgunblaðið/Eggert
Rennibrautin hefur aðdráttarafl
„ÉG er búin að vera að vinna að þessari síðu síðan í apr-
íl og það hefur verið alveg ótrúlega gaman. Mig langar
líka með þessu að segja við þá sem eru atvinnulausir að
það er allt hægt og það má ekki gefast upp,“ segir Inga
Jessen, viðskiptafræðingur.
Inga missti vinnuna í október og leiddist það fljótt að
sitja auðum höndum. Í leit hennar að ódýrri dægradvöl
kviknaði svo hugmyndin að því að safna saman á einn
stað upplýsingum um allt það sem er ókeypis í Reykja-
vík. Í dag hefur afraksturinn litið dagsins ljós á vefsíð-
unni www.freecitytravel.com.
„Þetta er það sem ég hef verið að gera í allt sumar.
Ég er búin að taka allar myndirnar sjálf og skrifa allan
textann. Þótt maður sé atvinnulaus er nefnilega alltaf
hægt að finna sér eitthvað sniðugt að gera,“ segir Inga
sem fékk aðstoð frá mági sínum við að forrita síðuna.
Fyrsta útgáfan er á ensku og ætluð erlendum ferða-
mönnum, en síðar meir verður hún sett upp á íslensku
líka. Inga segist á endanum hafa stærra viðskiptamódel
í huga, jafnvel að opna systursíður um ókeypis hluti í
erlendum borgum, s.s. í Kaupmannahöfn.
Inga vonast til að fleiri sem eru atvinnulausir virki
framkvæmdagleðina. „Ég held að það séu mjög margir
sem sitja heima með frábærar hugmyndir í kollinum,
það er bara erfitt að byrja.“ Inga er opin fyrir ábend-
ingum um allt sem er ókeypis í Reykjavík. una@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Framtakssöm Inga fór á stúfana með myndavél og seg-
ist hissa á hversu margt sé að finna ókeypis í Reykjavík.
Fór á stúfana í atvinnu-
leysinu og bjó til ferðasíðu
Flestir eiga frábærar
hugmyndir í kollinum
GÍSLI H. Friðgeirsson, eðlisfræð-
ingur og kajakræðari, er nú hálfn-
aður í leiðangri sínum umhverfis
landið. Hann er nú staddur í Öxar-
firði eftir að hafa róið réttsælis frá
Reykjavík.
Á leiðinni fyrir Norðurland hefur
Gísli aðallega róið að nóttu til. Þarna
hefur verið bjart allar nætur og veð-
urskilyrði góð. Margar nætur hefur
hann róið í sólskini á spegilsléttum
sjó. Þess á milli hefur hann sest upp
í fjöru, hvílt sig og horft á miðnæt-
ursólina.
„Það er ógleymanlegt,“ segir
hann. En hann hefur líka lent í
svartaþoku og þá hefur komið sér
vel að hafa GPS-staðsetningartæki.
En Gísli er ekki einn um að róa í
kringum landið. Hin bandaríska
Margaret Mann hefur lagt að baki
um 500 kílómetra. | 9
Gísli ræðari
hefur róið
hálfa leið