Morgunblaðið - 08.07.2009, Blaðsíða 4
Tempur – 15 ár á Íslandi
Frábær afmælistilboð í júlí
Te
m
pu
r 15 ár á Ísland
i
Te
m
pur 15 ár á
Ísl
an
d
i
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2009
„VIÐ erum á leiðinni á American Style og reiknum með
að fá okkur einn hamborgara eða svo,“ sagði Arnaldur
Birgir Konráðsson sem í félagi við sex aðra lauk róðrar-
átakinu 7x7 í líkamsræktarstöðinni Boot Camp klukkan
13 í gær. Átakið fólst í því að sjömenningarnir skiptust á
um að róa í róðrarvél, viðstöðulaust í sjö sólarhringa. Róið
var í klukkustund í senn þannig að hver ræðari fékk sex
klukkustunda hvíld á milli róðra. „Það slokknaði aldrei á
vélinni þannig að menn urðu að standa vaktina dag sem
nótt og vera duglegir,“ sagði Arnaldur og játaði fúslega
að hann væri svolítið „soðinn“ og jafnframt svangur.
Tilgangurinn með þessari langvinnu þrekraun var að
safna fé til styrktar Sveinbirni Sveinbjörnssyni og Annie
Mist Þórisdóttur sem í gær flugu áleiðis til Kaliforníu í
Bandaríkjunum þar sem þau taka þátt í heimsleikum
Crossfit en Crossfit er blanda af ýmiss konar þrek- og
styrktaræfingum. Samtals safnaðist ríflega hálf milljón
króna og rennur helmingurinn af þeirri fjárhæð til Um-
hyggju, stuðningsfélags langveikra barna.
Þeir sem reru voru auk Arnalds Birgis: Arnar Sigurðs-
son, Ágúst Guðmundsson, Gunnar Dór Karlsson, Ómar
Ágústsson, Stefán Drengsson og Steinar Sigurðarson.
Reru 2.300 km
á einni viku
Morgunblaðið/Ómar
Koma svo Ágúst (í rauðum bol) rembist við róðurinn. Meðan á átakinu stóð reru um 100 manns sjömenningunum til samlætis.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
ÁREKSTURINN varð um miðjan
dag, um 150 metra inni í göngunum
norðanverðum. Tildrög slyssins eru
að ýmsu leyti óljós en lítilli Toyota
Yaris-fólksbifreið var ekið fyrir flutn-
ingabílinn og rákust þeir harkalega
saman. Hámarkshraði í göngunum
er 70 km á klukkustund. Klippa
þurfti 28 ára konu út úr flaki fólks-
bílsins en þrátt fyrir að illa liti út í
fyrstu slapp hún með minniháttar
líkamleg meiðsli.
Atli Rúnar Halldórsson, almanna-
tengill hjá Athygli, ritaði bók um
sögu Hvalfjarðarganganna, Undir
kelduna, og þekkir þau því eins og
lófann á sér. Hann segist telja að
slysið sé það alvarlegasta sem orðið
hefur í göngunum frá því þau voru
vígð 11. júlí 1998. Í göngunum hafa
bílar og hjólhýsi oltið, bílum hefur
verið keyrt utan í veggi og úr þeim
rokið. Þrátt fyrir það hafa slys á fólki
aldrei verið alvarleg og aldrei eins
harður árekstur og á mánudag.
Öflugt eftirlit og æfingar
Líkt og ávallt þegar slys verða í
göngunum vakna upp spurningar um
öryggi ökumanna. Sigurður Ingi
Jónsson, verkefnastjóri hjá Speli,
sem rekur Hvalfjarðargöng, segir
eftirlitskerfi ganganna gríðarlega
öflugt og æfingar þeirra sem vinna
við eftirlit og björgun afskaplega um-
fangsmiklar. „Það eru vídeóvélar um
þver og endilöng göngin, slökkviliðs-
tæki og neyðarsímar. Öll þessi tæki
eru beintengd við Neyðarlínuna,
þannig að ef einhver rífur upp
slökkvitæki þá fer viðbragðsáætlun í
gang.“
Eitt helsta öryggisatriðið væri þó
ef gerð yrðu önnur göng við hlið
þeirra sem fyrir eru, eins og um hef-
ur verið rætt. Þá yrði komið fyrir
tengingu á milli ganganna, s.s. eld-
föstum hurðum. „Þá myndi til dæmis
aukast aðgengi neyðarþjónustu,
enda hægt að loka einum megin og
fara niður hinum megin með þjón-
ustuna. Það eru raunar alls konar
möguleikar sem opnast,“ segir Sig-
urður.
Þrátt fyrir bágt efnahagsástand
hefur sú hugmynd ekki verið slegin
út af borðinu. Frumrannsóknir hafa
farið fram og yrðu göngin ofar en nú-
verandi göng. Gunnar Gunnarsson,
aðstoðarvegamálastjóri og stjórnar-
maður í Speli, segir stöðuna þannig í
dag að umferð sé ekki nægilega mikil
um göngin til að það réttlæti að fara
út í ný göng. „En við hjá Speli höfum
talað um að árið 2015 væri heppilegt
ef umferðarþróun verður svipuð og
hún hefur verið.“
Ef farið er eftir umferðarspá þyrfti
að hefja framkvæmdir á árinu 2012
eða 2013. Á síðasta ári var áætlað að
ný göng kostuðu 7-8 milljarða króna.
Morgunblaðið/Júlíus
Heppin Toyota Yaris-bifreið konunnar er gjörónýt eftir áreksturinn. Hún slapp öllu betur; með skrámur og mar.
Alvarlegasta slys frá
vígslu Hvalfjarðarganga
Öryggi stóreykst með tilkomu nýrra ganga Aðstoðar-
vegamálastjóri telur umferðartölur ekki réttlæta þau nú
„ÞAÐ er óneitanlega dapurlegt að
það hafi þurft þjóðargjaldþrot til að
breyta áherslunum,“ segir í umfjöll-
un Neytendastofu um „bankaböl
góðærisins,“ sem birt var í gær.
Neytendastofa rifjar þar upp
ásækna markaðssetningu bankanna
sem beindist sérstaklega að ungu
fólki og námsmönnum og virtist
markmiðið „einna helst vera að
skuldsetja þjóðina“.
Sem dæmi má nefna að auglýsing-
ar sem sýndu ungt fólk fagna því
hvernig yfirdráttur hafi „reddað“
þeim gallabuxunum og gáfu í skyn að
fullkomlega eðlilegt væri fyrir nema
að fjármagna tölvu- og bílakaup og
útskriftarferðir með lánum.
Sölumönnum bankanna hafi jafn-
an verið hleypt gagnrýnilaust inn í
framhaldsskóla og þeir hafi jafnvel
sést á rölti um kirkjugarðana til að
telja unglinga í garðyrkjustörfum á
að skrifa undir flókna samninga um
séreignalífeyrissparnað.
Breki Karlsson, forstöðumaður
Stofnunar um fjármálalæsi, segir
það íhugunarefni að eina fjármála-
kennslan sem flestum unglingum
hafi staðið til boða hafi verið á vegum
hagsmunaaðila, þ.e.a.s. bankanna.
Bæði foreldrar og yfirvöld hafi
brugðist í því að fræða börn og ung-
linga um fjármál, bæði hafi skort til
þess þekkingu sem og námsefni.
Breki segir hinsvegar sem betur
fer mikla vitundarvakningu vera og
hefst skipuleg kennsla á framhalds-
skólastigi með námsefni sem hann
hefur m.a. þróað í vetur. una@mbl.is
„Markmiðið
virtist að skuld-
setja þjóðina“
Markaðssetning banka sögð vafasöm
Morgunblaðið/RAX
Hagstæð lán? Íslensk ungmenni
hafa litla fjármálafræðslu fengið.
STJÓRN Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) skorar á ríkisstjórn-
ina, samgönguráðherra og þingmenn Norðvesturkjördæmis að fylgja eft-
ir án tafar tillögum og hugmyndum um tvöföldun Vesturlandsvegar á
Kjalarnesi og tvöföldun Hvalfjarðarganga. Stjórn SSV ályktaði um sam-
göngumál á mánudag.
Í ályktuninni bendir stjórnin á að „liðlega tvær milljónir ökutækja fara
um Kjalarnes og Hvalfjarðargöng árlega og einsýnt að mæta þarf eðlileg-
um kröfum um umferðaröryggi með nauðsynlegum framkvæmdum.“
SSV skorar á ríkisstjórnina að tvöfalda
Með ólíkindum þykir að ekki fór
verr þegar fólksbifreið og stór
flutningabifreið með eftirvagn
rákust saman í Hvalfjarðar-
göngum á mánudag. Áreksturinn
vekur upp spurningar um öryggi í
göngunum.