Morgunblaðið - 08.07.2009, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 08.07.2009, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2009 ÍS L E N S K A /S IA .I S /U T I 46 57 1 06 /0 9 HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500 ROSS WORLDWIDE flugustangir voru valdar Bestu Kaupin í Fly Fish America Magazine og besta stöngin í Fish & Fly Magazine 2008. Kaststangir frá hinum þekkta framleiðanda SHIMANO í mörgum verðflokkum. Gott tækifæri til að gera góð kaup. VEIÐIDAGAR Fimmtudag til sunnudags er 20% afsláttur af öllum flugustöngum, hjólum, kaststöngum og stangasettum. Veiðideildin er í Glæsibæ! FRÉTTASKÝRING Eftir Halldóru Þórsdóttur halldorath@mbl.is VAXTAGREIÐSLUR upp á 241 milljarð króna munu óhjákvæmi- lega falla á íslenska ríkið miðað við Icesave-samninginn sem nú liggur fyrir, óháð því hverjar end- urheimtur verða af eignum Lands- bankans. Miðað við að eignirnar gangi upp í 75% af höfuðstól láns- ins, eins og fjármálaráðuneytið ger- ir ráð fyrir, mun skuldastaðan hljóða upp á 415 milljarða króna ár- ið 2016. Þetta hefur Sigurður Hann- esson stærðfræðingur reiknað út fyrir InDefence-hópinn. Hann telur engar líkur á því að hægt verði að greiða skuldina, sér í lagi þar sem hún er í erlendum gjaldeyri, evrum og pundum. „Við höfum rætt við ýmsa emb- ættismenn, menn í samninganefnd- inni, viðskiptaráðherra og enginn hefur getað fært sannfærandi rök fyrir því að ríkið geti staðið við samninginn,“ segir Sigurður. Þarf jákvæðan viðskiptajöfnuð Hann bendir á að eina sjálfbæra leiðin til að fá gjaldeyri inn í landið er með jákvæðum viðskiptajöfnuði, þ.e. þegar meira er selt frá landinu en flutt inn. Síðan árið 1945 hefur viðskiptajöfnuðurinn aðeins verið jákvæður sex sinnum. Því má segja að hverfandi líkur séu á því að um- framgjaldeyrir til að greiða Ice- save-skuldina fáist með þessum hætti. Önnur leið er svo að taka lán til að greiða lánið, sem bætir ekki skuldastöðu ríkisins. Gylfi Magnússon viðskiptaráð- herra segir söguleg gögn um við- skiptajöfnuð ekki duga til að draga ályktanir um framtíðina í þeim efn- um. Innflutningur og útflutningur ræðst af aðgerðum og aðstæðum fólks og forsendur til að meta við- skiptajöfnuðinn séu allt aðrar en þær hafa verið. Undanfarna mánuði hefur viðskiptajöfnuðurinn verið já- kvæður og ekki sé útlit fyrir annað en að sú staða haldi áfram. Bæði ríki og fyrirtæki eru skuld- sett í erlendri mynt og þurfa því að afla gjaldeyris. Framboð gjaldeyris er því minna en oft áður, sem veld- ur veikingu krónunnar. Morgunblaðið/Eggert Icesave-skuldir InDefence-hópurinn er ósáttur við Icesave-samningana og telur að semja þurfi upp á nýtt. Ríkið geti ekki staðið undir skuldunum. Hundraða milljarða vaxta- kostnaður óhjákvæmilegur Talsmenn InDefence-hópsins telja engar líkur á því að ríkinu takist að greiða Icesave- skuldirnar. Þeir kynntu þing- mönnum útreikninga máli sínu til stuðnings í gær. Telja vonlaust að Icesave-skuldirnar séu í erlendri mynt en ráðherra er á öðru máli FJÁRFESTINGARSAMNINGUR vegna byggingar álþynnuverk- smiðju í Eyjafirði var undirritaður í gær af Katrínu Júlíusdóttur iðn- aðarráðherra. Samningurinn er við ítalska fyrirtækið Becromal og þró- unarfélagið Strokk Energy sem er í íslenskri eigu. Framleiðsluferli verksmiðjunnar verður hátæknilegt og mjög raf- orkufrekt og þarf um 75 MW í fyrstu. Framleiðsla hefst síðar á þessu ári og 80 manns munu starfa við verksmiðjuna. Fjárfestingar- kostnaður er um 80 milljónir doll- ara. Í síðasta mánuði var skrifað und- ir hliðstæðan samning við danska félagið Tomahawk Development sem ásamt öðrum erlendum fjár- festum fyrirhugar byggingu kísil- málmframleiðslu í Helguvík. Samningur undir- ritaður vegna ál- þynnuverksmiðju Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Verksmiðja Framleiðsla hefst síðar á árinu í álþynnuverksmiðjunni. ÞRÍR fengu samtals 3,3 milljónir króna úr Silfursjóði Reykjavík- urborgar í gær. Þetta er fyrsta út- hlutun úr sjóðnum en hann var stofnaður til heiðurs árangri ís- lenska handknattleikslandsliðsins á Ólympíuleikunum í Peking. Stjórn sjóðsins samþykkti að eft- irtaldir aðilar hlytu styrk úr Silf- ursjóðnum að þessu sinni: Handknattleikssamband Íslands vegna þátttöku yngri landsliða í handknattleiksmótum erlendis í sumar. (1.500.000). Þór Elís Pálsson til að kosta sýningu á kvikmyndinni „Gott silfur gulli betra“ fyrir nem- endur Vinnuskóla Reykjavíkur (1.200.000 kr.) Jón Gunnlaugur Viggósson til að halda þrjú hand- knattleiksnámskeið fyrir börn á aldrinum 8 til 12 ára í þremur hverfum borgarinnar í sumar (600.000). Gert er ráð fyrir annarri úthlutun úr sjóðnum í haust. Þrír fengu úthlutað úr Silfursjóði Reykjavíkurborgar 705 milljarðar sem ríkið ábyrgist vegna Icesave. 241 milljarður sem fellur á ríkið vegna vaxta, óháð því hvort höfuðstóll fæst greiddur eður ei. 415 milljarðar munu falla á rík- ið árið 2016 miðað við að eignir Landsbankans dugi fyrir 75% af kröfunum. 64 milljarðar greiddir að meðaltali á árunum 2016-2023 vegna Icesave. 3,2% af vergri landsframleiðslu verða afborganirnar að meðaltali á þessum árum. TVÆR banda- rískar konur fengu í gær að- stoð björg- unarsveitarinnar Húna þar sem þær voru strandaglópar á eyri í ánni Sveðju við Kaldakvísl- arjökul. Neyð- arbeiðni barst Landhelgisgæslunni frá neyð- arþjónustu í Bandaríkjunum sem konurnar eru í viðskiptum við. Þær höfðu einnig lagt inn upplýsingar um ferðir sínar til Landsbjargar. Hjálpað eftir að neyðarkall barst frá Bandaríkjunum Björgun Kallið var tekið alvarlega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.