Morgunblaðið - 08.07.2009, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 189. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
SKOÐANIR»
Staksteinar: Utanríkisráðherra ekki
séð álitið!
Ljósvakinn: Rás tvö eldist – Rás eitt
yngist
Forystugreinar: Braskarar frelsaðir
|Kínversk stjórnvöld söm við sig
Pistill: Er matur framleiddur í búð-
um?
UMRÆÐAN»
Fyrirgef oss vorar skuldir
Óvissan er versti óvinurinn
Breytingar á lögum um
almannatryggingar
!
"
# $
%
%
"
&' ("'
" )
*+,-.
+./-/*
*.0-/*
+1-2+,
*0-/22
*3-+++
**3-21
*-11+4
*03-.1
*,,-4/
5 675 ,# 89: +..0
*+,-1
+.3-.*
*.0-21
+1-20,
*0-343
*3-+,
**,-*3
*-1131
*03-3*
*,,-0/
++0-243
&;<
*+,-3
+.3-/*
**.-*/
+1-03,
*0-,.4
*3-1*2
**,-40
*-14.+
*0,-*0
*,2-4/
Heitast 20° C | Kaldast 10° C
Hægur vindur eða
hafgola, skýjað með
köflum SV- og V-lands
en annars bjartviðri að
deginum. » 10
Hljómsveitin Jagúar
leikur undir á Mich-
ael Jackson-hátíð
Páls Óskars á Nasa
næstkomandi laug-
ardagskvöld. »38
TÓNLIST»
Jagúar leik-
ur Jackson
KVIKMYNDIR»
Tískulöggan Brüno er
loksins komin. »38
Blúsarinn Honeyboy
Edwards varð fimur
í að féfletta fólk með
merktum spilum og
„lagfærðum“ ten-
ingum. »39
BÆKUR»
Með ás í
erminni
TÓNLIST»
Hljómsveitin múm gefur
út plötu í ágúst. »37
AF LISTUM»
Natasha Khan býður upp
á bragðgott popp. »40
Menning
VEÐUR»
1. Farþegi gerði við flugvélina
2. Erfðaskrá dæmd gild
3. Lilja og Baltasar fá ekki land
4. Raðmorðinginn skotinn til bana
Íslenska krónan veiktist um 1,5%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
VART er hægt að deila um að mikið hefur farið
fyrir neikvæðum fréttum í miðlum landsins und-
anfarna mánuði. Til að bregðast við þessu hafa
krakkar frá frístundamiðstöðinni Kampi ákveð-
ið að halda sýningu á jákvæðum fréttum í gler-
skálanum í Háteigsskóla milli kl. 12 og 13 í dag
og milli kl. 16 og 19 á fimmtudag.
Á sýningunni má finna yfir 100 úrklippur af
fréttum, góðum tilboðum, líflegum auglýsingum
og skemmtilegum myndum sem krakkarnir hafa
klippt úr dagblöðum og tímaritum síðan 15. júní.
Að auki söfnuðu krakkarnir, sem eru á aldrinum
15-16 ára, jákvæðum sögum úr eigin lífi.
Að sögn Hrefnu Guðmundsdóttur, verk-
efnastjóra félagsmiðstöðvarinnar 105, var mark-
mið starfsins í sumar að auðga nærsamfélagið
og börnin. Fyrr í sumar heimsóttu krakkarnir
félagsmiðstöð eldri borgara þar sem þeir buðu
upp á bakkelsi, ljóðaupplestur og hljóðfæraleik
og héldu að auki skemmtun á Miklatúni fyrir
elstu börnin í leikskólum hverfisins.
Starfinu lýkur á morgun með Esjugöngu og
við tekur sumarfrí hjá krökkunum. „Við ætlum
að hætta á toppnum,“ segir Hrefna. ylfa@mbl.is
Einblína á jákvæðu fréttirnar
Morgunblaðið/Ómar
Eftir Svanbjörgu H. Einarsdóttur
svanbjorg@mbl.is
„ÞAÐ eru líklega fá börn í heiminum sem eiga
þriggja hjartna og þriggja nýrna pabba,“ segir
Helgi Einar Harðarson með nýskírða dóttur sína í
fanginu og hlær hjartanlega.
Hinn 14. júní árið 2004 var grætt nýtt hjarta í
Helga. Nákvæmlega fimm árum síðar, upp á dag,
fæddist honum lítil dóttir sem var skírð í Álfta-
neskirkju á Mýrum á mánudaginn.
Stendur vel undir stóru nafni
„Það hvarflaði ekki að mér þegar ég lagðist
hundveikur og þjakaður undir hnífinn að ég ætti
eftir að standa með litla prinsessu, mína eigin
prinsessu, í fanginu fimm árum síðar. Að eignast
barn var draumur sem ég efaðist oft um að myndi
rætast. En kraftaverkin gerast og með þriðja
hjartanu kom kærastan mín, hún Sunneva, og svo
dóttirin. Hjarta mitt slær í gleðitakti alla daga.“
Litlu dótturinni var gefið stórt og mikið nafn,
Sigurbjörg Brynja, eftir báðum ömmum sínum.
Mikið uppgerður og því yngri!
Saga Helga er allt í senn hörmunga-, krafta-
verka- og gleðisaga! Sextán ára gamall fékk hann
slæma flensu sem ekki vildi batna. Í ljós kom að
Helgi hafði fengið veiru sem réðst á hjartað og lá
hann lengi milli heims og helju. Björgunin fólst í
nýju hjarta sem var grætt í hann árið 1989.
„Hjartað dugði þokkalega í um fimmtán ár en
var óneitanlega farið að „hökta“ undir það síðasta,“
segir Helgi. Árið 2004 var grætt í hann nýtt hjarta,
það þriðja sem slær í brjósti hans. Einnig var
grætt í hann þriðja nýrað. „Það tekur á nýrun að
þurfa að taka lyf í tuttugu ár. Nýrun í mér voru
orðin ansi slöpp en við að fá félagsskap þriðja nýr-
ans hresstust þau við og nú er bara blússandi gang-
ur í þeim. Ég er búinn að átta mig á að þótt ég sé í
árum talið orðinn 36 ára hef ég svo oft og mikið ver-
ið gerður upp að ég er í raun miklu yngri!“
Hjartað slær í gleðitakti
Í brjósti Helga Einars Harðarsonar hafa slegið þrjú hjörtu því tvisvar hefur
verið grætt í hann nýtt hjarta Eignaðist nýverið litla dóttur sem er nýskírð
Prinessan skírð Helgi Einar og Sunneva með
litlu prinsessuna, hana Sigurbjörgu Brynju.
Sjóvá skuldaði í bótasjóð
Sjóvá átti ekki fyrir vátrygg-
ingaskuld sinni og því þurfti að
leggja félaginu til fé svo það gæti
staðið við skuldbindingar sínar. Það
er helsta ástæða húsleitanna í gær.
»forsíða
Fái einn þá fái allir
Formaður Hagsmunasamtaka
heimilanna segir að allir verði að
sitja við sama borð þegar komi að
niðurfellingu skulda, líka Björgólfs-
feðgar. »2
Harðasti árekstur til þessa
Umferðarslysið í Hvalfjarðar-
göngunum í fyrradag er það alvar-
legasta frá vígslu ganganna. Gunnar
Gunnarsson, aðstoðarvega-
málastjóri og stjórnarmaður í Speli,
segir umferð ekki nægilega mikla
um göngin til að réttlæta ný göng.
»4
Flýjum ekki Icesave-vexti
Engar líkur eru á því að hægt
verði að greiða Icesave-skuldina,
segir Sigurður Hannesson stærð-
fræðingur sem reiknaði út kostn-
aðinn við Icesave-samninginn fyrir
InDefence-hópinn. »12