Morgunblaðið - 08.07.2009, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.07.2009, Blaðsíða 28
28 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2009 ✝ Þórhallur Stein-grímsson fæddist í Reykjavík 21. júlí 1955. Hann lést á gjörgæslu Landspít- alans í Fossvogi 23. júní síðastliðinn. For- eldrar hans eru Þóra Kristín Kristjáns- dóttir, f. 1922, og Steingrímur Bjarna- son, f. 1918, d. 1994. Systkini Þórhalls eru: 1) Ólína Kjartans Óla- dóttir Ermert, f. 1941. 2) Bára Steingríms- dóttir, f. 1943. 3) Bárður Árni, f. 1945. 4) Kristján, f. 1946. 5) Bjarni Jón, f. 1947, d. 1968. 6) Laufey, f. 1948. 7) Erlingur, f. 1949. 8) Stein- þór, f. 1951. 9) Kristín Salóme, f. 1954. 10) Gunnar Örn, f. 1956. 11) Hörður, f. 1957, d. 1984. 12) Lilja, f. 1960. Eiginkona Þórhalls er Þorgerður K. Halldórsdóttir, f. 1. nóvember 1958. Foreldrar hennar eru Jó- hanna Friðriksdóttir, f. 1923, d. 1992, og Halldór Þ. Bjarnason, f. 1923, d. 1975. Þórhallur og Þor- gerður eignuðust fjórar dætur og Skarði í Landsveit þar sem hann var m.a. vetrarmaður. Seinna byggði hann sumarhús á næsta bæ, Krókt- úni. Á næstu árum stundaði Þórhall- ur ýmis störf til lands og sjávar. Má þar nefna landbúnaðarstörf, steypu- vinnu við Sigöldu og sjómennsku, ásamt því að reka fiskbúðina í Grímsbæ um tíma. Á yngri árum var Þórhallur virkur í starfi JC hreyf- ingarinnar og í ungliðasveit Sjálf- stæðisflokksins. og sat m.a. í stjórn Byggung í Reykjavík. Þórhallur var kaupmaður í Matvörubúðinni í Grímsbæ og Plúsmarkaðnum frá 1983 til 1998 og síðan í Bláa turn- inum við Háaleitisbraut. Hann átti og rak fyrirtækið Catco sem m.a. sá um markaðssetningu á íslensku lambakjöti og bleikju í Bandaríkj- unum. Þórhallur gegndi marg- víslegum trúnaðarstörfum fyrir matvörukaupmenn, m.a. var hann lengi í stjórn Félags matvörukaup- manna og var formaður um tíma ásamt því að vera formaður IMA um tíma. Þá var hann var lengi í full- trúarráði Kaupmannasamtakanna og sat í stjórn samtakanna. Hann gaf nafn og stofnsetti ásamt fleiri kaupmönnum samstarfsvettvang matvörukaupmanna Þín verslun. Útför Þórhalls verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 11. Jarðsett verður frá Skarðskirkju í Landsveit kl. 15. Meira: mbl.is/minningar barnabörnin eru orðin sjö: 1) Þóra Kristín, f. 18. janúar 1979, gift Árna Steinarssyni, f. 29. júlí 1979, þau eiga þrjá syni, Andri Þór, f. 18. febrúar 2002, Jóel Orri, f. 4. ágúst 2005 og Arnar Breki, f. 19. febrúar 2009. 2) Rakel Ósk, f. 7. ágúst 1980, maki Elmar Sigurðs- son 8. ágúst 1977, þau eiga Tristan Marra, f. 21. nóvember 2004, Rakel á Þórhall Darra, f. 13. apríl 1998, með Þór Sigurðssyni, f. 18. apríl 1978. 3) Berglind Björk, f. 2. júní 1985, maki Sigurður Árnason, f. 12. mars 1982, þau eiga Viktor Val, f. 18. apríl 2007. 4) Helga María, f. 18. maí 1987 maki Ívar Daníelsson, f. 11. apríl 1986, þau eiga Karitas Klöru, f. 29. júlí 2008. Þórhallur fæddist á Sogaveginum þar sem hann ólst upp og bjó mestan hluta ævinnar. Þórhallur gekk í Breiðagerðisskóla og síðan Rétt- arholtsskóla. Eftir unglingapróf 1970 gerðist hann vinnumaður á Elsku hjartans pabbi minn, það er svo sárt að þú sért farinn frá okkur, og það allt, allt of fljótt. Ég á enda- laust af góðum minningum um þig, þú varst alltaf svo góður við allt og alla. Það er svo mikið búið að taka frá okkur, elsku besti pabbi minn. Ég er svo heppin að þú náðir að leiða mig upp að altarinu og að Andri, Jóel og Arnar fengu allir að knúsa afa Tobba sinn. Þú knúsaðir öll 7 afabörnin þín. Það er svo margt sem ég, Addi og strákarnir eigum eftir að sakna og af mörgu er að taka því þú varst alltaf svo yndislegur. Við eigum eftir að sakna þess að koma í lúguna til þín þar sem strákarnir fengu alltaf afa- ópal (rauðan strumpaópal), vera með þér í Veiðivötnum eða fá hringingu frá þér; „hæ Vóla mín, viljið þið ekki koma að borða með okkur“. Þau voru ófá skiptin sem þú hringdir í mig upp úr þurru bara til að segja mér fyndna brandara sem þú hafðir heyrt, því þú vissir að við vorum með sama húmor og gátum hlegið saman í símann. Þú varst besti pabbi í heimi. Ég man þegar ég gekk með Arnar Breka, þá fékk ég svo mikið af bólum og þoldi það ekki. Eitt kvöldið þegar ég kem heim þá er gjafapoki á borð- inu og ég spyr Adda hvað þetta sé. Þá segir hann mér að þú hafið komið með þetta handa mér og í pokanum var andlitsmaski og krem fyrir ból- urnar mínar. Hver annar en þú hefði gert svona krúttlegt fyrir dóttur sína. Við vorum svo samrýnd fjölskylda og skal ég gera mitt besta til að halda því. Við systur skulum passa mömmu, ömmu, Króktún og hver aðra fyrir þig. Guð og englarnir passa þig fyrir okkur, elsku besti pabbi minn. Elska þig endalaust, þinn frumburður, Þóra Kristín Þórhallsdóttir. Elsku besti yndislegi pabbi minn, ég trúi því ekki að þú sért farinn frá okkur svona fljótt. Ég á eftir að sakna þín svo rosa- lega mikið, pabbi minn. Þegar ég lít yfir farinn veg get ég ekki annað en fyllst þakklæti yfir að hafa notið þín í þessi 28 ár. Yndislegri pabba er ekki hægt að hugsa sér. Þú gerðir allt fyr- ir alla, varst með stærsta og falleg- asta hjarta sem fyrir finnst – opið öll- um. Þú máttir ekkert aumt sjá og hljópst til bjargaðir öllum þeim sem þörfnuðust þín. Þú hugsaðir um stelpurnar þínar eins og gimsteina. Ekki erum við nú fáar prinsessurnar – mamma, amma Stína og fjórar dætur. Við elskum þig óendanlega mikið og vitum að sú ást var gagn- kvæm. Við vorum svo dugleg að tjá þá væntumþykju, sem er ómetanleg á tímum sem þessum. Mér hlýnar um hjartarætur þegar ég rifja upp allar yndislegu stund- irnar okkar. Vá, þær voru ófáar og skemmtilegar. Það er ekki lengra síðan en í febrúar sem við fórum tvö saman til New York að versla fyrir Central í tæpa viku. Það var ynd- islegt. Þar sagðist þú ætla í stuttan göngutúr og komst eftir hálftíma með tvo miða á Mamma Mia sýn- inguna á Broadway og bauðst mér út að borða. Þetta lýsir þér, elsku pabbi, góðmennsku þinni og hlýju. Það var svo gaman hjá okkur – hlæj- andi út í eitt. Svo var það tveggja daga London ferðin okkar sem er jafnvel enn eftirminnilegri. Þar hlóg- um við bókstaflega allan tímann og vorum sannfærð um að ónæmiskerf- ið okkar hefði eflst til muna við allan hláturinn. Það er fátt skemmtilegra en að hlæja með þér. Við mæðgurnar erum svo lánsamar að hafa átt þig. Þú lagðir þig ávallt fram við að gera eitthvað skemmtilegt með okkur eins og þegar þú sagðir við mig fyrir nokkrum dögum, þegar þú varst hér hjá mér í Hvassaleiti: „Rakel mín, farðu inn á netið fyrir mig og bókaðu fyrir okkur öll í leikhús.“ Þar hlógum við með þér eins og vitleysingar. Við áttum svo margar yndislegar stund- ir, fórum í árlegar veiðiferðir og á landsmót, í Króktún og til Bolung- arvíkur. Við áttum dýrmætar stund- ir í okkar vikulega sunnudagsmat, um jól, á afmælunum og á humar- kvöldunum okkar – og svona mætti lengi telja allar þær skemmtilegu stundir sem við áttum, elsku pabbi minn. Það er mér ómetanlegt hversu góð fyrirmynd þið mamma voruð mér í gegnum mín uppvaxtarár, hvort sem litið er til uppeldis, vinskapar, ömmu- og afahlutverks eða sem hjón. Þetta geymi ég allt í hjarta mínu og finnst ég rík. Þær eru ykkur mömmu að þakka allar fallegu stundirnar. Takk enn og aftur fyrir að vera yndislegasti pabbi í heimi. Ég geymi þig í hjartanu og segi börnunum mínum hvað þau áttu yndislegan afa með hjarta úr gulli. Elsku pabbi, ekkert sem ég segi hér getur lýst því hversu mikið ég elska þig eða hversu ég sakna þín í einu og öllu. Mig er búið að langa hringja í þig 100 sinnum þessa daga til að segja þér svo margt og láta þig vita að við pössum bláa, Central, mömmu og ömmu Stínu. Ég elska þig pabbi, kveðja, litla telpan þín Rakel Ósk. Elsku hjartans fallegi pabbi minn, þetta er svo óraunverulegt. Ekki bjóst ég við því á fimmtudeginum að þetta yrði síðasta skipti sem ég sæi þig, þar sem þú hefur alltaf verið heilsuhraustur enda kom þetta eins og þruma úr heiðskíru lofti. Ég veit að þú veist að ég elska þig svo ótrú- lega mikið. Þú varst besti maður sem fyrirfannst þótt víða væri leitað, þú máttir aldrei vita af neinum sem átti bágt þá varst þú fyrsti maðurinn til að hjálpa. Ég var svo heppin að eiga ykkur mömmu sem foreldra og hvað við höfum alltaf verið samrýnd. Sumrin voru okkar tími, þá fórum við í okkar árlegu ferð upp í veiðivötn. Þar varst þú aðalmaðurinn, hjálpaðir öllum með stangirnar og hafðir svo gaman af því að kenna barnabörn- unum hvernig ætti að kasta og varst alveg jafn spenntur og við þegar við fengum fisk. Ég á svo margar góðar minningar um þig eins og t.d. þegar við fórum til Benidorm þegar ég var 13 ára, þar fengum við ekki að vera á svölunum nema helst í bandi því þú varst svo hræddur um að við mynd- um detta niður þó svo að handriðið hafi verið mjög hátt. Ég er mikið bú- in að hlæja að þessu eftir á. Þú varst alltaf að passa að krakkarnir klemmdu sig ekki á hurðunum eða fengju ekki flís í sig. Umhyggja þín snerti alltaf svo marga eins og þegar ég fékk að sitja hjá þér og stýra bíln- um þegar við keyrðum upp afleggj- arann á leiðinni á uppáhaldsstaðinn þinn Króktún sem þú ert búinn að vera svo duglegur að stækka og betrumbæta. Við munum sjá vel um Króktún fyrir þig. Þú varst svo skemmtilegur maður, hafðir alveg sérstakan húmor, gast mikið hlegið og skírðir fólk oft upp á nýtt, gafst því einhver gælunöfn sem engum hefði dottið í hug nema þér. Mikið á ég eftir að sakna þess að vera með þér, elsku pabbi, þetta hefur verið erfiðasta vika lífs míns því ég er ekki bara að missa þig sem pabba heldur mikinn vin. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og Viktor Val. Við munum passa mömmu og ömmu fyrir þig. Þín pabbastelpa Berglind Björk. Elsku pabbi minn, núna ertu far- inn, farinn frá okkur. Ég get ekki lýst því hvað ég sakna þín mikið. Ég á rosalega margar og góðar minn- ingar um þig sem ég geymi í hjart- anu og mun segja Karítas frá því hversu yndislegan og frábæran afa hún átti og hvað þið tvö voruð í raun miklir vinir, hún vildi alltaf koma til þín og kúra. Ég man alltaf eftir því þegar við systurnar vorum litlar og þú varst að þurrka okkur eftir bað þá bléstu allt- af hita í handklæðið svo okkur yrði ekki kalt. Þú varst yndislegur maður sem vildir öllum svo vel, ef eitthvað bját- aði á hjá einhverjum þá varst þú allt- af fyrstur til að hjálpa, þú opnaðir alltaf faðm þinn. Þegar ég var í skólanum að taka stúdentinn þá elskaði ég að koma heim með frábærar einkunnir því þú varst alltaf svo stoltur og sýndir það með ást og alúð, gott dæmi til að mynda hversu yndislegur þú varst, að í hvert skipti sem við Ívar vökn- uðum með Karítas til að borða þá varst þú búinn að búa til hafragraut í tvo potta, einn fyrir Karítas og einn fyrir ömmu Stínu. Þú passaðir svo vel upp á ömmu Stínu, m.a.s. það seinasta sem þú sagðir þegar þú tal- aðir við mömmu í símann í sjúkra- bílnum var að passa upp á að amma tæki lyfin sín og myndi borða kvöld- mat þar sem við vorum upp í Krók- túni. Ég þakka guði fyrir hversu sam- rýnd fjölskylda við erum. Á hverju sumri förum við saman öll í Veiðivötn og til Bolungarvíkur og eigum ynd- islegar stundir saman. Það verður svo erfitt að fara núna án þín. Ég vil þakka þér fyrir matarboðið og leik- húsferðina sem þú bauðst allri fjöl- skyldunni upp á þann 5. júní. Það er mér minnisstætt þegar ég var að fara í afmæli nokkrum dögum áður en þú kvaddir okkur og þú kysstir mig aftan á hálsinn og tókst utan um mig og sagðir: „Ohh þú ert svo falleg.“ Það verður svo skrýtið að jólin verða án þín, þú hefur alltaf lesið á pakkana, hver gerir það núna? Mér finnst svo erfitt að hugsa til þess að þú eigir ekki eftir að leiða mig inn kirkjugólfið þegar sá dagur rennur upp og erfitt að hugsa til þess að yngstu barnabörnin eigi ekki eftir að muna eftir þér. Svona get ég haldið endalaust áfram en hef ákveðið að láta allar þær góðu minningar rísa hærra heldur en allar þessar hugsanir. Elsku besti pabbi minn, takk fyrir að leyfa okkur að búa hjá ykkur mömmu og takk fyrir allt það sem þú hefur gert fyrir okkur, það er ómet- anlegt! Sjáumst síðar. Þín dóttir, Helga María. Elsku Þórhallur. Þá ertu farinn frá okkur allt of fljótt og maður get- ur ekki trúað því að heyra ekki rödd þína né hjartahlýju aftur. Þeir deyja ungir sem guðirnir elska og þá hefur svo sannarlega vantað sterkan mann í þetta skiptið. Ég mun sakna þín mikið og er svo ánægður með allar góðu minningarnar sem koma upp í huga manns og munu fylgja manni alltaf þegar manni verður hugsað til þín. Ég veit að þér líður betur núna, kominn á stað þar sem allt er betra og nærvera þín mun fylgja manni í hjarta og sál. Það er alltaf erfitt að horfa á eftir góðu fólki fara en með tímanum lærir maður að lifa með því og minningarnar halda hamingjunni góðri. Ég mun aldrei gleyma Veiði- vatnaferðunum með þér sem þú hélst gangandi og skildir eftir sem fallega arfleið til komandi ættliða. Í ferðina fór öll fjölskyldan og skemmti sér vel og þú fékkst að stjórna allan tímann og það þótti þér ekki leiðinlegt, núna fer maður og það vantar skipstjórann (kaptein- inn). Minning þín mun lifa um langan tíma og sérstaklega um alla hlutina sem þú fannst nýtt nafn á og gælu- nöfnunum sem þú settir á flesta sem þú þekktir. Þú varst góður maður og góður faðir og þín verður sárt sakn- að. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er jörðin. Einir fara og aðrir koma í dag, því alltaf bætast nýir hópar í skörðin. Þá verður oss ljóst, að framar ei frestur gefst né færi á að ráðstafa nokkru betur. Því alls, sem lífið lánaði, dauðinn krefst – í líku hlutfalli og Metúsalem og Pétur. (Tómas Guðmundsson.) Sigurður Árnason. Elsku Tobbi. Hugsunin sú að þú sért farinn frá okkur svona ungur er hrikaleg, 54 ára er enginn aldur til að kveðja. Það veit hver einn og einasti maður sem þekkti þig að guð fangaði þig vegna þess að honum hefur verið farið að leiðast á einhvern hátt, hann hefur vantað einhvern til að redda málun- um. Ég kynntist þér fyrir um rúm- lega fimm árum þegar ég var svo heppinn að næla mér í hana Helgu, yngstu dótturina, og var ég ekkert svakalega spenntur fyrir því að fá að hitta þig þar sem ég hafði heyrt svona ýmsar sögur um það hversu hress þú tækir á móti kærustum dætra þinna, en svo bara þegar ég hitti þig fyrst sá ég ekki bara þennan harða nagla heldur líka þennan ynd- islega mann sem bjó inni í þér. Fyrir tæplega ári eignuðumst við Helga María okkar fyrsta barn og urðuð þið strax miklir vinir, þú og Karítas, það sást langar leiðir að hún fann alveg hvað afi hennar var mjúk- ur og yndislegur maður sem vildi öll- um allt það besta, ekki skrítið að henni fannst gott að kúra hjá afa sín- um. Tobbi, þú skilaðir svo aldeilis því sem þú ætlaðir þér, ólst upp fjórar dætur ásamt Toggu þinni og eign- aðist heilan helling af barnabörnum sem öllum þótti og þykir svo vænt um afa sinn og finnst sárt að horfa á eftir honum en öll vita þau að afi Tobbi er á góðum stað þar sem hon- um líður rosalega vel og er algerlega áhyggjulaus. Þessar síðustu tvær vikur hafa verið ansi strembnar og erfiðar, ef það væri ekki fyrir þessa sterku samheldnu fjölskyldu, væri þetta mun erfiðara en fjölskyldan er það sem drífur mann áfram á stundum sem þessum. Tobbi, þú varst maður sem gafst meira en þú áttir í raun, máttir ekki sjá neinn bágstaddan þá varstu nán- ast búinn að kippa öllu í liðinn, og þegar maður fer að hugsa til baka fer maður að sjá það hvað maður gat og getur virkilega lært af þér þar sem þú varst svo miklu meira en þú í raun sýndir, eins og með Króktún, allt sem þú hefur gert þar og búið stelp- unum þínum og Toggu, það er ekki hvaða maður sem er sem leggur svona mikið á sig til að gera öðrum til geðs. Ég vill minnast þín, elsku Tobbi minn, með kvæði sem mér þykir af- skaplega vænt um og það hentar mjög vel því þú gafst mér meira en mig sjálfan grunaði. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni vekja hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svefnsins draumar koma fljótt. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Elsku vinur, hvíldu í friði og ég veit að þú ert kominn á góðan stað hjá bræðrum þínum og föður. Þinn „skemmtari“ (tengdasonur.) Ívar Þórir Daníelsson. Elsku besti afi minn, þetta er það erfiðasta sem ég hef gengið í gegn- um því ég elska þig svo mikið en það sem huggaði mig mikið var að þú ert á góðum stað og ert komin til afa Steina og bræðra þinna. Amma Stína sagði mér alltaf þegar ég var lítil frá gullenglunum á sjöunda himni svo ég veit að þú ert einn þeirra núna og þú kemur til með að passa okkur svo eigum við rosalega góðar miming- arnar af Sogaveginum, Króktúni, Veiðivötnin, Bolungavík og allt sem við gerðum saman, takk, elsku afi, fyrir að kenna mér að veiða og fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig sem var mikið. Elska þig, elsku afi. P.s. Þú manst að ég sagði við þig að ég ætlaði að verða eins og þú við mömmu, eins og þú varst við ömmu Stínu … afi, ég passa ömmu Toggu og ömmu Stínu fyrir þig. Þinn Þórhallur Darri. Þórhallur Steingrímsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.