Morgunblaðið - 08.07.2009, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.07.2009, Blaðsíða 18
18 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2009 Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is G estir geta sett sig inn í hina fornu heimsmynd norrænna manna á sýningunni Urð- arbrunni á Iðavöllum í Hveragerði. Á staðnum sem er bet- ur þekktur sem Eden og hefur verið einn helsti viðkomustaður ferða- fólks hefur verið komið upp setri norrænnar goðafræði. Sýningin Urðarbrunnur er hryggjarstykkið í starfseminni og hún verður opnuð formlega á morgun, fimmtudag. Iðavellir eru eitt stærsta verk- efnið í uppbyggingu menning- artengdrar ferðaþjónustu sem unn- ið er að hér á landi í ár. Á sýningunni Urðarbrunni er brugðið upp mynd af þeim hug- myndaheimi sem forfeður okkar lifðu og hrærðust í, þeirri mynd sem þeir höfðu af veröldinni og sköp- unarverkinu, guðshugmyndum þeirra og átrúnaði. „Þessu er lýst á nútímalegan og óhefðbundinn hátt,“ segir Guðbrandur Gíslason, fram- kvæmdastjóri Iðavalla. Á sýningunni eru myndir af helstu goðum ásatrúarinnar og at- burðum sem Snorri Sturluson lýsir í Snorra-Eddu, hlutverki þeirra í heiminum og örlögum. Leiðsögn um þennan heim fá gestir á tónhlöðu ásamt tónlist og áhrifahljóðum. „Fólk á að geta fengið nokkuð glögga mynd af meginþáttum þess- ara fornu trúarbragða á þeim 15 til 18 mínútum sem það tekur að skoða sýninguna,“ segir Guðbrandur. Námskeið kynnt erlendis Veitingasala er á Iðavöllum, eins og var í Eden, en matseðillinn er breyttur og nöfn réttanna tengjast öll goðafræðinni. Enn er þó ekki bú- ið að finna fornt nafn á ísinn sem svo vinsæll hefur verið í sunnudags- ferðum höfuðborgarbúa austur fyrir fjall. Þá hefur minjagripaversl- uninni verið breytt. Sérstök áhersla er lögð á listhönnun og innlenda framleiðslu, í samvinnu við listafólk á Suðurlandi og víðar um landið. Á veturna, þegar minna er að gera í ferðaþjónustunni, verða í boði sérsniðin námskeið í norrænni goðafræði. Salurinn Völuspá sem skreyttur hefur verið með tilliti til ljóðsins verður notaður til að fræða grunnskólabörn og þar verða haldin lengri námskeið með kvöldvöku fyr- ir eldri borgara. Þá verður boðið upp á námskeið fyrir erlenda gesti og er þegar byrjað að kynna þau er- lendis, meðal annars í Þýskalandi. Á þeim verður jafnframt efni um jarð- fræði Íslands. „Við höfum trú á að starfsemin höfði til fólks í öðrum löndum, ekki síst Norðurlandabúa og Þjóðverja,“ segir Guðbrandur. Íslendingar gefast ekki upp Guðbrandur og Elías Einarsson veitingamaður hafa í mörg ár unnið að undirbúningi fræðslu- og skemmtigarðs um norræna goða- fræði. Þeir fengu lóð í Hveragerði og undirbúningur er vel á veg kom- inn. Hins vegar hefur ekki verið hægt að ráðast í framkvæmdina vegna erfiðleika í efnahagslífinu. „Okkur bauðst að fá Eden til að gera þetta og tókum því. Við teljum að grundvöllur sé fyrir rekstri þessa staðar. Við erum stutt frá höf- uðborgarsvæðinu og við Gullna hringinn sem flestir erlendir ferða- menn fara um. Við gerum þetta líka til að sýna að á þessum erfiðu tím- um gefast Íslendingar ekki upp. Ekki þýðir að leggjast í sorg og sút. Við hugsum ekki þannig,“ segir Guðbrandur. Verkefnið er dýrt en sýningin hefur verið styrkt af Menningarráði Suðurlands og iðnaðarráðuneytinu auk þess sem Atvinnuþróun- arsjóður Suðurlands hefur tekið þátt í því. Verður eftirminnilegt Iðavellir voru opnaðir í lok febr- úar í höndum nýrra rekstraraðila, Suttungs ehf. Undirbúningur og uppsetning sýningarinnar hefur staðið litlu lengur þannig að margt hefur þurft að gera á stuttum tíma. Ingunn Ásdísardóttir þjóðfræð- ingur er hugmyndahöfundur sýn- ingarinnar, Kristín Ragna Gunn- arsdóttir teiknari, gerði myndirnar, Hilmar Örn Hilmarsson samdi tón- list og Páll Ragnarsson lýsir sýn- inguna. „Allir sem að sýningunni hafa unnið hafa lagst á eitt um að láta þetta ganga upp. Við ætlum okkur að gera eitthvað eft- irminnilegt í menningartengdri ferðaþjónustu og íslenskri menn- ingu,“ segir Guðbrandur Gíslason. Þar eiga goðin dómstað sinn  Sýning um forna heimsmynd norrænna manna verður senn opnuð í Hveragerði  Eitt stærsta verkefni í menningartengdri ferðaþjónustu í ár  Í vetur verður boðið upp á námskeið goðafræði Morgunblaðið/RAX Félagsskapur Kristín Ragna Gunnarsdóttir, höfundur myndanna, og Ingunn Ásdísardóttir, hugmyndahöfundur sýningarinnar, í góðum félagsskap í Urð- arbrunni. Á milli þeirra er mynd af Nirði sem ræður fyrir göngu vinds og stillir sjá og eld. Á hann skal heita til sæfara og til veiða. Í HNOTSKURN »Þriðja rót asksins stendurá himni og undir þeirri rót er brunnur sá er mjög er heil- agur og heitir Urðarbrunnur. Þar eiga goðin dómstað sinn. »Óðinn er æðstur og elsturásanna. Hann ræður öllum hlutum og svo sem önnur goð- in eru máttug þá þjóna honum öll svo sem börn föður. En Frigg er kona hans og veit hún örlög manna þótt hún segi eigi spár. »Þór er þeirra fremstur, sáer kallaður er Ásaþór eða Ökuþór. Hann er sterkastur goðanna og manna. Upphaf Askur og Embla eru upphafið í sköpunarsögu goðafræðinnar. Þetta á mikið erindi núna, hringrásinsem endar með ragnarökum og hefstá ný með upprisunni. Það virðist eitt- hvað svipað vera að gerast hjá okkur,“ segir Kristín Ragna Gunnarsdóttir, myndlistar- maður og bókmenntafræðingur, sem gerði myndverkin í sýningunni Urðarbrunni. Með þessum orðum vísar hún til átta veggmynda sem eru í salnum Völuspá á Iðavöllum. Kristín Ragna og Ingunn Ásdísardóttir, hugmyndahöfundur sýningarinnar Urð- arbrunns, gerðu saman barnabók með sög- um úr norrænni goðafræði, Örlög guðanna, sem kom út á síðasta ári. Ingunn skrifaði sögurnar og Kristín Ragna gerði mynd- irnar. Áður hafði Kristín Ragna gert barna- bók um Völuspá með Þórarni Eldjárn rithöf- undi þannig að hún hefur unnið með goðafræðina frá 1994. Þessi vinna nýtist vel í sýningunni Urðarbrunni. Útlit goðanna er það sama og í Örlögum guðanna en þeir eru oft í öðruvísi aðstæðum. Ingunn hefur ekki síður sökkt sér í goða- fræðina. Hún skrifaði til dæmis um rætur ásynjanna Friggjar og Freyju í meist- araritgerð í þjóðfræði og vinnur nú að dokt- orsritgerð um jötna. „Það er sérstakt við goðsögurnar að þær höfða til undirmeðvit- undar okkar og hafa þannig áhrif á okkur án þess að við getum skýrt það út rökrænt,“ segir Ingunn. Hún segir að goðsögur trúarbragða hafi orðið til á mjög löngum tíma. Þær taki til grundvallarþátta í vitund mannanna og þess vegna lifi þær á öllum tímum. „Við eigum okkar goðsagnir í dag, við búum þær til með stjörnudýrkun og Superman, verum sem við náum ekki til,“ segir Ingunn. Samfélög manna og goða Vinnan við sýninguna Urðarbrunn hefur verið snörp og stundum tekið á. Álagið á höfundana hefur því verið mikið. „Það er skemmtilegt að fá að skapa þessa sýningu frá grunni og sjá hana verða að veruleika,“ segir Ingunn. Ingunn hefur skipt sýningunni upp í sex þætti og eru hverjum gerð skil í sérstöku rými. Samfélagi og umhverfi manna á þess- um tíma eru gerð skil í fyrsta þætti, síðan goðum hins norræna átrúnaðar og loks helgisiðum og blótum mannanna. Kristín Ragna hefur verið að móta per- sónurnar í langan tíma vegna bókanna sem hún hefur gert. „Ég kalla myndirnar fyrst fram í huganum, liti og form og í hvaða samhengi þær eiga að vera. Þegar ég fer svo að teikna reyni ég að ná þessu fram,“ segir Kristín Ragna. Eitt verkefnið til við- bótar á þessu sviði bíður því hún er að gera teiknimynd um Völuspá. „Ég er búin að gera handritið en varð að leggja þetta frá mér á meðan ég vann að sýningunni,“ segir hún. helgi@mbl.is Hugmyndahöfundur og teiknari Urðarbrunns gerðu barnabókina Örlög guðanna Goðsögurnar lifa á öllum tímum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.