Morgunblaðið - 08.07.2009, Síða 8

Morgunblaðið - 08.07.2009, Síða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2009 NEFNDASTÖRF Alþingis halda áfram í dag og á morgun verður aðildarumsókn Íslands að ESB til umræðu þar. Ásta Ragnheið- ur Jóhann- esdóttir, forseti Alþingis, segir stefnt að þinglok- um eftir næstu helgi en vill ekki festa niður dagsetningu þar um. Það fari eftir því hversu hratt gangi. Annars er Icesave-málið áfram fyrirferðarmest. Á morgun og á föstudag komast líklega á dagskrá mál sem bíða þriðju umræðu, svo sem mál sem varða endurreisn bankanna og embætti sérstaks saksóknara. Fundað verður stíft dagana fyrir helgi, frá morgni fram á kvöld og kemur til greina að funda þannig á laugardag líka, að sögn Ástu Ragn- heiðar. onundur@mbl.is Stefnt er að þinglokum eftir næstu helgi Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is ELLILÍFEYRISÞEGI sem nýverið lækkaði starfshlutfall sitt niður í 50% telur sér ekki annað fært en að fara aftur í fullt starf vegna breytinga á frítekjumarki sem samþykktar voru á Alþingi í síðustu viku. Konan segist engan fyrirvara hafa fengið um skerðingu ellilífeyris síns heldur varð fyrst vör við hana í heimabankanum um síðustu mánaðamót. Guðrún Norberg var stærsta hluta starfsævinnar heimavinnandi enda fæddi hún og ól upp sjö börn. Eftir að börnin urðu fullorðin starfaði hún sem leikskólakennari, en í apríl síð- astliðnum náði hún 67 ára aldri. „Þá hugsaði ég með mér að nú væri upp- lagt fyrir mig að minnka við mig vinnu svo ég sagði upp mínu fulla starfi og fór í hálfa vinnu frá og með 1. maí og fékk ellilífeyri á móti. Þann- ig gat ég haft það ágætt og var með 180 – 200 þúsund krónur til ráðstöf- unar á mánuði.“ Tekjurnar skiptust þannig að fyrir sitt hálfa starf fékk hún útborgaðar um 105 þúsund krónur mánaðarlega og 20 þúsund krónur komu úr lífeyr- issjóði. Afgangurinn, um 60 þúsund krónur útborgaðar, fékk Guðrún sem ellilífeyri og tekjutryggingu eftir að búið var að skerða greiðslurnar vegna vinnunnar. Frekar dónaleg framkoma Um síðustu mánaðamót brá svo við að þegar Guðrún fór í heimabankann sinn sá hún að ellilífeyririnn var að- eins um 40 þúsund í stað 70 þúsund króna sem hún átti að fá útborgaðar þennan mánuðinn, en upphæðin átti að vera hærri en venjulega vegna sumaruppbótar. „Og það munar um það þegar maður er búinn að gera sínar áætlanir. Ég var reyndar búin að fylgjast svolítið með umræðunni inni á Alþingi en mér fannst það óskaplega furðulegt að það var engar upplýsingar að finna á TR eða neitt slíkt heldur birtist þetta bara svona, í heimabankanum, án fyrirvara. Mér fannst það frekar dónaleg framkoma. Maður hefur alltaf heyrt um fram- komuna við ellilífeyrisþegana en það er svolítið skrýtið að upplifa það svo sjálfur, svona stuttu eftir afmælis- daginn.“ Nýsamþykktar breytingar fela m.a. í sér að frítekjumark ellilífeyr- isþega er nú lækkað úr 1.315.200 kr. á ári í 480.000 kr. á ári eða 40.000 kr. á mánuði. „Forsendur eru því ger- breyttar svo það borgar sig engan veginn fyrir mig að gera þetta svona. Ég er bara ótrúlega heppin að geta sótt um fullt starf aftur.“ Guðrún segist ekki heldur geta leyft sér að hætta að vinna því það myndi færa henni um 157 þúsund krónur í ráðstöfunartekjur á mánuði, sem hún treystir sér ekki til að lifa af, enda búin að gera áætlanir miðað við hærri tekjur fram til áramóta. Hún mun því fara í fullt starf á ný í haust. „Þeir segja á tr.is að þessi skerðing sé „vegna þess mikla atvinnuleysis sem þjóðin stendur frammi fyrir en gríð- arlegur fjöldi atvinnufærra manna og kvenna þarf að lifa af atvinnuleysis- bótum einum saman.“ Hugsunin er sú að fá ellilífeyrisþegana heim aftur svo það losni um störf. Þetta finnst mér ekki rétt. Ég get ímyndað mér að töluvert af fólki á mínum aldri vilji vinna eitthvað með og það er líka heil- brigðismál, því fólk hrörnar hraðar ef það hefur ekkert fyrir stafni.“ Lífeyririnn skertur fyrir- varalaust um mánaðamót Ellilífeyrisþegi þarf að snúa aftur til fullrar vinnu vegna nýrra lagabreytinga Morgunblaðið/Eggert Á leikskólanum Þótt Guðrún vildi minni vinnu eru krakkarnir í Sælukoti alsælir með að fá hana í fullt starf á ný. RÖSKUN á Hurðarbakssefi og Káranessefi í Kjós hefur ekki verið lagfærð eftir að landeig- endur ræstu þar fram úr gömlum skurðum. Vafi leikur á hvort landeigendum bar að sækja um framkvæmdaleyfi. Umhverfisstofnun óskaði eftir því að hreppurinn framfylgdi því að skurðirnir væru fylltir á ný en málið situr fast í kerfinu. Grátt svæði Umhverfisstofnun óskaði eftir því í fyrra að Kjósarhreppur gripi þegar til aðgerða og beitti sér fyrir því að náttúruminjarnar Káranessef og Hurðarbakssef, yrðu endurheimtar. Landeig- endur höfðu þá ræst fram að nýju skurði sem tengja sefsvæðin með þeim afleiðingum að vatns- yfirborð þeirra lækkaði um tugi sentimetra, í þeim tilgangi að þurrka tún. Í aðalskipulagi hreppsins frá 2007 segir að forðast skuli að raska stöðuvötnum og tjörnum sem eru stærri en 0,1 ha og þegar talin sé hætta á að vistkerfi raskist skuli í öllum tilvikum leita umsagnar Umhverfisstofn- unar áður en framkvæmdir hefjast. Framræs- ingin var hins vegar gerð áður en skipulagið tók gildi og töldu þeir sig því ekki þurfa að sækja um sérstakt framkvæmdaleyfi. Málinu skotið til úrskurðarnefndar Kjósarhreppur áleit að lagaheimild til þess að knýja fram endurheimtina væri óskýr og þess vegna væri nauðsynlegt að skjóta málinu til úr- skurðarnefndar um skipulags- og byggingarmál. Var þessu komið á framfæri til UST. Síðan hefur ekkert gerst. Sefsvæðin tvö njóta sérstakrar verndar sam- kvæmt Náttúruverndarlögum þar sem þau eru talin afar mikilvæg sökum fjölbreytts fuglalífs. Ekki síst vegna flórgoðans sem þar verpir en sá fugl er á válista. Að jafnaði hafa verpt þar 6-7 pör en eftir raskið í fyrra sáust þar tvö pör og tókst hvorugu að koma upp ungum. Að sögn Fugla- verndarfélags Íslands hafa tvö pör verið þar í sumar en hvorugt hefur enn verpt. Hafa samtökin miklar áhyggjur af ástandinu enda er flórgoði nánast útdauður á Suður- og Vesturlandi. ,,Það er ekkert sem við getum gert fyrr en UST hefur far- ið yfir málið. Við ráðlögðum þeim síðastliðið sum- ar að skjóta málinu til úrskurðarnefndar og síðan höfum við ekkert heyrt. Boltinn er hjá þeim,“ seg- ir Sigurbjörn Hjaltason, oddviti hreppsnefndar. Á meðan liggja sefsvæðin óbætt hjá garði. sigrunerna@mbl.is Ekki búið að lagfæra rask við minjar Raskið Ræst var fram að nýju við friðaðar náttúruminjar í Kjós.  Náttúruminjunum Káranessefi og Hurðarbakssefi var raskað  Flórgoði verpir þar og fuglalíf er fjölbreytt  Málið hefur setið fast í kerfinu í ár Óskertar greiðslur Tryggingastofn- unar til ellilífeyrisþega, þ.e. lífeyrir (29.294 kr.), tekjutrygging (92.441 kr.) og heimilisuppbót (27.242 kr.), nema samtals 148.977 krónum. Að auki getur líf- eyrisþegi fengið uppbót nái tekjur hans ekki ákveðnu lágmarks- viðmiði, sem er 180 þúsund fyrir einstakling og 153.500 ef hann býr ekki einn. Þá á eftir að draga skatt af tekjunum. Með breytingum sem sam- þykktar voru í síðustu viku minnk- ar svigrúm eldri borgara til að afla sér tekna annars staðar frá án þess að þær komi til frádráttar þessum greiðslum. Mest munar um sk. frítekjumark, sem var áður rúmar 1,3 milljónir á ári en er nú 480 þúsund krónur. Þá munu líf- eyrissjóðsgreiðslur nú reiknast til frádráttar grunnlífeyri, sem þær gerðu ekki áður, en lífeyririnn skerðist nú við tekjur yfir 215 þús- und krónum á mánuði og fellur niður þegar tekjur ná 332 þús- undum. Hins vegar er sett á 10 þúsund króna frítekjumark á mán- uði vegna tekjutryggingar. Þrengt að eigin tekjuöflun eldri borgara 27.881 fengu ellilífeyri í fyrra 417 fengu fulla tekjutryggingu 23.929 fengu skerta tekjutryggingu 121 fékk heimilisuppbót 32.408 náðu 67 ára aldri í fyrra FORMAÐUR Verkalýðsfélags Akra- ness, VLFA, segist ætla að íhuga sterklega að skrifa ekki undir kjara- samning við launanefnd sveit- arfélaga fyrr en ljóst sé hvaða áhrif breytingar á vinnutilhögun starfsmanna íþróttamann- virkja og skóla- liða Akranes- kaupstaðar hafa á launakjör þess- ara hópa. Á fundi bæjarráðs á fimmtudag voru samþykktar margvíslegar sparnaðarleiðir fyrir bæjarsjóð, m.a. að breyta tímanum sem íþrótta- miðstöðin á Jaðarsbökkum er opin, íþróttahúsið við Vesturgötu og Bjarnalaug frá 1. október. Tíminn verður styttur um eina klukkustund virka daga og tvær um helgar. Lok- að verður alla stórhátíðardaga og sérstaka frídaga. „Þessi ákvörðun þýðir það að starfsmenn íþrótta- mannvirkja Akraneskaupstaðar lækka í launum frá rúmum 10% upp í rétt tæp 15%. Ég hef dæmi um ein- staka starfsmenn sem við þetta lækka um 365.000 til 800.000 krónur á ári. Það er algjörlega óviðunandi að starfsmaður sem er með 3.379.000 krónur í árslaun, eða 281.000 á mánuði skuli lækka í laun- um niður í 3.011.000 krónur á ári eða sem nemur 31.000 krónum á mánuði. Hér er um að ræða skerð- ingu á launum sem ekki ná 300.000 krónum á mánuði,“ segir Vil- hjálmur. Vilhjálmur Birgisson Íhugar að skrifa ekki undir kjarasamning við launanefndina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.