Morgunblaðið - 08.07.2009, Side 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2009
Á forsíðu Morgunblaðsins í gærvar frétt þess efnis að breska
lögfræðiskrifstofan Mishcon de
Reya teldi samkvæmt trúnaðar-
álitsgerð sem unnin var fyrir Össur
Skarphéðinsson utanríkisráðherra
að Ísland hefði ekki formlega
ábyrgst skuldbindingar Trygginga-
sjóðs innstæðueigenda, hvað varðar
Icesave-innstæðurnar.
Morgunblaðiðhefur álit
lögfræðistof-
unnar undir
höndum. Á for-
síðu álitsins
stendur stórum
stöfum að um
trúnaðarskjal sé
að ræða, handa
Össuri Skarphéðinssyni. Það er
dagsett 29. mars 2009.
Samt sem áður kom utanríkis-ráðherra fram á mbl.is í gær og
sagði að um misskilning væri að
ræða. Honum hafi ekki verið af-
hentur neinn texti, hann hafi ekki
séð hann, hann hafi ekki fengið
hann. Við eftirgrennslan hafi komið
á daginn, í gærmorgun, að textinn
væri til í fjármálaráðuneytinu!
Er það ekki með talsverðum ólík-indum að álitsgerð sem er unn-
in fyrir utanríkisráðherra fyrir
næstum þremur og hálfum mánuði,
skuli enn ekki hafa komið fyrir
augu hans?!
Er það ekki líka með ólíkindum aðutanríkisráðherra skuli segja
að upplýsingarnar sem Morgun-
blaðið greindi frá í gær úr álitinu,
breyti engu um stöðu málsins?!
Í greinargerð með Icesave-frumvarpinu kemur fram að
samninganefndin hafi notið að-
stoðar Mischon de Reya, en þar er
álitsins að engu getið og það er ekki
heldur meðal þeirra fylgigagna
sem lögð voru fram með frumvarp-
inu. Hvernig skyldi standa á því?
Össur
Skarphéðinsson
Utanríkisráðherra ekki séð álitið!
Sími 555 2992 og 698 7999
Bláber
Nýtt á markaðnum frá Polargodt
Í bláberjum eru andoxunarefnin C-vítamín
og E-vítamín sem hindra myndun skaðlegra
sindurefna í frumum líkamans. Þessi efni
tengjast hrörnun og þróun ákv. sjúkdóma t.d.
krabbameins, æðakölkunar og skýs á auga.
(heimild: Landlæknisembættið , Lýðheilsustöð;
www.landlaeknir.is/pages/629)
Bláber geti m.a. haft áhrif á:
• Náttblindu - nætursjón - gláku
• Sjónskerpu • Sykursýki • Minnisleysi
• Kólesteról
Bláberin fást í apótekum,
Melabúðinni, heilsuhúsum
og Fjarðakaupum
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 13 skýjað Lúxemborg 19 skýjað Algarve 24 heiðskírt
Bolungarvík 17 þoka Brussel 18 léttskýjað Madríd 30 heiðskírt
Akureyri 12 heiðskírt Dublin 18 skýjað Barcelona 25 skýjað
Egilsstaðir 12 léttskýjað Glasgow 18 skýjað Mallorca 29 skýjað
Kirkjubæjarkl. 12 alskýjað London 17 léttskýjað Róm 29 heiðskírt
Nuuk 13 heiðskírt París 16 skúrir Aþena 31 léttskýjað
Þórshöfn 11 skýjað Amsterdam 21 léttskýjað Winnipeg 19 skýjað
Ósló 18 skýjað Hamborg 22 léttskýjað Montreal 19 alskýjað
Kaupmannahöfn 22 léttskýjað Berlín 23 skýjað New York 26 léttskýjað
Stokkhólmur 19 léttskýjað Vín 27 skýjað Chicago 23 skýjað
Helsinki 13 skúrir Moskva 19 léttskýjað Orlando 32 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
8. júlí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 1.06 0,7 7.04 3,4 13.07 0,7 19.22 3,8 3:23 23:44
ÍSAFJÖRÐUR 3.09 0,5 8.55 1,9 15.00 0,6 21.10 2,2 2:35 24:42
SIGLUFJÖRÐUR 5.34 0,2 11.48 1,1 17.30 0,4 23.43 1,3 2:15 24:27
DJÚPIVOGUR 4.04 1,9 10.14 0,5 16.37 2,1 22.49 0,6 2:41 23:24
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á fimmtudag og föstudag
Hæg breytileg átt eða hafgola,
þurrt að mestu og víða bjart
veður. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast
í innsveitum.
Á laugardag
Norðaustlæg átt, skýjað en
þurrt að kalla norðan- og aust-
anlands en annars bjartviðri.
Hiti 8 til 20 stig, hlýjast suð-
vestantil.
Á sunnudag og mánudag
Norðaustlæg átt, þokusúld
norðan- og austanlands en
annars bjartviðri. Hiti 8 til 20
stig, hlýjast suðvestantil.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Hægur vindur eða hafgola.
Skýjað eða skýjað með köflum
SV- og V-lands og þurrt að kalla
en annars víða bjartviðri að
deginum. Þokuloft eða smásúld
við ströndina, einkum að næt-
urlagi. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast
inn til landsins.
MIKIÐ glæsiskip, Queen Victoria, kemur til hafn-
ar í Reykjavík á föstudaginn og leggst að Skarfa-
bakka í Sundahöfn. Skipið er 90.049 brúttótonn og
um borð eru um 2000 farþegar.
Queen Victoria er til þess að gera nýtt skip, en
það var tekið í notkun í desember 2007. Þetta er
fyrsta heimsókn þess til Íslands. Skipið er í eigu
Gunard-skipafélagsins breska og kom það í stað
Queen Elisabeth, hins fornfræga skemmtiferða-
skips, sem selt var til Arabíu. Queen Elisabeth
kom hingað til lands í nokkur skipti.
Nokkur skemmtiferðaskip hafa komið hingað
það sem af er sumri en nú fara stóru skipin að láta
sjá sig. Á fimmtudaginn kemur til Reykjavíkur
skip sem heitir Oriana, og er 69.153 brúttótonn.
Enn stærra skip kemur hingað 13. júlí. Það heitir
Costa Magica og er 102.587 tonn. Um borð í skip-
inu eru um 3.500 farþegar. Stærsta skipið, Crown
Princess, 113.651 tonn, er væntanlegt 8. ágúst.
Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri Faxaflóahafna,
segir að vel hafi gengið að taka á móti skemmti-
ferðaskipunum og farþegum þeirra í sumar. Segir
Ágúst það miklu skipta hvað veðrið hefur verið
hagstætt það sem af er sumri. sisi@mbl.is
Queen Victoria kemur í vikulokin
Stóru skemmtiferðaskipin fara að koma til hafnar í Reykjavík eitt af öðru
ALLS hafa veiðst 24 langreyðar á
vertíðinni það sem af er, að sögn
Kristjáns Loftssonar, forstjóra Hvals
hf. Tveir bátar stunda veiðarnar sem
kunnugt er, Hvalur 8 og Hvalur 9.
Bátarnir stunda veiðarnar vestur
af landinu og hafa þær að mestu
gengið vel að sögn Kristjáns, nema
hvað þoka hefur verið að angra hval-
veiðimennina. Blástur hvalanna sést
ekki í þokunni og því er ekki hægt að
finna hvalinn.
Alls er heimilt að veiða 150 lang-
reyðar á vertíðinni. Ef ekki tekst að
klára kvótann er leyfilegt að geyma
20% hans yfir á næsta veiðiár. Hval-
urinn er skorinn í Hvalstöðinni í Hval-
firði. sisi@mbl.is
Búið að veiða 24 hvali