Morgunblaðið - 08.07.2009, Side 27
Minningar 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2009
hönd Kvenfélagasambands Íslands.
Hún átti sæti í útgáfustjórn Hús-
freyjunnar, sem er tímarit sam-
bandsins og um leið kvenna um allt
land, sem heldur nú upp á 60 ára af-
mæli sitt á þessu ári. Hún var forseti
Kvenfélagasambands Íslands 1971-
1979 og formaður Nordens kvinde-
forbund NKF árin 1976-1980. Hún
átti auk þess sæti í ýmsum nefndum
og ráðum fyrir hönd Sambandsins
og sótti fjölmörg þing og ráðstefnur
bæði innanlands og utan. Hún var
mikil kvenfélagskona og naut mik-
illar virðingar annarra kvenfélags-
kvenna.
Með störfum sínum innan Kven-
félagasambands Íslands lagði Sigríð-
ur sitt af mörkum við uppbyggingu
kvenfélagsstarfsins sem landsmenn
allir og kvenfélagskonur víðs vegar
um land allt njóta enn þann dag í
dag. Á 50 ára afmæli Sambandsins
árið 1980 ritaði hún bókina Margar
hlýjar hendur, sem er ágrip af sögu
sambandsins frá stofnun þess 1930
til 1980 og var það jafnframt afmæl-
isrit.
Hún var kjörin heiðursfélagi
Kvenfélagasambands Íslands árið
1980 í þakklætisskyni fyrir hennar
óeigingjarna og farsæla starf og
munum við ætíð minnast hennar sem
mætrar og dugmikillar konu sem
sem lagði samborgurum sínum lið í
sjálfboðaliðastarfi og án annarra
launa en þeirra að njóta með þeim
sem nutu.
Nú að leiðarlokum þökkum við
Sigríði samfylgdina og fórnfúst starf
í þágu Kvenfélagasambands Íslands
og vottum ástvinum hennar innileg-
ustu samúð.
F.h. Kvenfélagasambands Íslands
Sigurlaug Viborg, forseti.
Glæsileg kona, sem setti svip sinn
á umhverfið, er látin. Hún hafði lifað
langa ævi og komið miklu í verk um
dagana. Það sópaði að Sigríði
Thorlacius hvar sem hún fór og hún
vakti fólk til umhugsunar um ýmiss
þjóðþrifamál bæði í ræðu og í riti, því
að á hana var hlustað, enda flug-
mælsk og skýr ræðumaður. Á hana
hlóðust trúnaðarstörf á hinum ýmsu
sviðum, bæði í félags- og heilbrigð-
ismálum og einnig í ýmiskonar
fræðslumálum, en drýgst var hún í
ritstörfum. Eftir hana liggur fjöldi
greina í blöðum og tímaritum, ís-
lenskar bækur og einnig þýðingar á
bókum úr mörgum tungumálum. Við
framsóknarkonur, sem erum í eldri
kantinum, munum eftir formennsku
hennar í Félagi framsóknarkvenna á
sjöunda áratugnum og um svipað
leyti var hún einnig varaborgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins. Einn-
ig minnumst við vel útvarpsþáttar-
ins: „Við sem heima sitjum“, sem
hún annaðist. Sigríður var einnig í
blaðstjórn Tímans um alllangt skeið,
en ritaði jafnframt greinar í blaðið
um árabil. Hún sat í kvennaársnefnd
sem ríkisstjórnin skipaði 1975 og
sótti ráðstefnur um réttindamál
kvenna í Mexíkó 1975 og var fulltrúi
Kvenfélagasambandsins á alþjóð-
legri ráðstefnu í Naíróbí 1976.
Sigríður var í stjórn Kvenfélaga-
sambands Íslands um fjórtán ára
skeið, þar af formaður í átta ár. Hún
var einstaklega mikilvirk félagskona
og skráði 50 ára sögu í afmælisrit
Kvenfélagasambands Íslands
„Margar hlýjar hendur“. Einnig
skráði hún sögu héraðssambanda og
félaga sem það mynda. Hún skráði
meðal annars sögu Bandalags
kvenna í Reykjavík 1913-1977. Við
framsóknarkonur sem kynntumst
framgöngu og virkni Sigríðar
Thorlacius í baráttunni fyrir bættum
kjörum bæði barna og aldraðra,
kvenna sem karla, munum um alla
tíð minnast skörungsskapar hennar
og framsýni. Fáguð framkoma henn-
ar, öryggi og yfirlætisleysi vöktu
virðingu og traust allra þeirra sem
voru svo lánsamir að vera með henni.
Hún var sú kona sem öllum var kær
og allir litu upp til og dáðu og erum
við þakklátar að hafa unnið með
henni. Blessuð sé minning hennar.
Við sendum ættingjum hennar
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
F.h. framsóknarkvenna í Reykja-
vík,
Áslaug Brynjólfsdóttir og
Sigrún Sturludóttir.
✝ Magnea BeníaBjarnadóttir
fæddist í Reykjavík 6.
september 1922. Hún
lést á Landspít-
alanum 1. júlí sl. For-
eldrar hennar voru
hjónin Bjarni
Ámundason vélstjóri í
Reykjavík, f. í Bjólu á
Rangárvöllum 13.
apríl 1896, d. á Vífils-
stöðum 20. apríl 1935,
og kona hans Magnea
Ingibjörg Magn-
úsdóttir, f. í Hólm-
fastskoti í Innri-Njarðvíkum 4. júní
1894, d. á Hrafnistu í Hafnarfirði
29. júní 1983. Magnea átti 6 systk-
ini. Þau voru Valgerður, f. 1914, d.
1993, g. Sigurgrími Grímssyni,
Ragnar Ámundi, f. 1917, d. 1948, g.
Maríu Halldórsdóttur, Magnea
Benía, f. 1920, d. 1920, Guðmundur
Bjarnason, f. 1924, d. 2005, g. Maríu
Jónsdóttur, Erna Bjarnadóttir, f.
1925, d. 1926, og Magnús Pétur
Bjarnason, f. 1928, d. 1968, g. Krist-
ínu Lúðvíksdóttur.
Magnea giftist 22. maí 1941
Valdemar Konráðssyni bifreiða-
stjóra, f. á Ásláksstöðum á Vatns-
leysuströnd 4. október 1911, d. 13.
mars 2006. Foreldrar hans voru
Konráð Andrésson,
ættaður úr Dalasýslu,
og kona hans Guðrún
Kristjánsdóttir. Dótt-
ir þeirra er Guðrún, f.
4. maí 1939, maður
hennar var Harald
Örn Kristjánsson, d.
1982. Börn hennar
eru 1) Ásta Benía
Ólafsdóttir, f. 1957,
hennar börn Örn
Snorrason, f. 1975,
Ólafur Snorrason, f.
1977, og Kristín
Munkerup, f. 1990, 2)
Magnea Ingibjörg Ólafsdóttir, f.
1958, hennar sonur Magnús Pétur
Bjarnason Obinah, f. 1979, 3) Krist-
ján Konráð Haraldsson, f. 1961,
hans börn eru Guðrún Arna, f.
1981, hún á tvo syni Andra Snæ og
Birki Ísar, Valgerður Ása, f. 1987,
Einar Ingi, f. 1990, Harald Örn, f.
1992, Edda Sóley, f. 1996, og Hel-
ena Dröfn, f. 2000, 4) Valdemar Örn
Haraldsson, f. 1969, hans börn eru
Þóra Júlía, f. 1994, Guðrún, f. 1998,
Valdís Benía, f. 1999, Viktoría
Erika, f. 2005, Tanja Dagmar, f.
2007.
Útför Magneu fer fram frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag, 8. júlí,
kl. 15.
Nú þegar ég hugsa til föðursystur
minnar, hennar Magneu Beníu eða
Binnu eins og hún var kölluð, þá er
mér hugsað til þess er hún í boði á
Háaleitisbrautinni nú í vor náði svo
góðu sambandi við barnabörnin okk-
ar, þau Önnu Elísabetu og Stefán
Orra, en hann talaði mikið um Binnu
frænku sína sem hafði setið með hann
í fanginu og rætt við hann um fjöl-
skylduna. Ég og mín fjölskylda eigum
eftir að sakna hennar Binnu, en hún
útvegaði henni Svönu minni vinnu hjá
Nóa Síríus eftir að við giftumst og
þær náðu vel saman.
Binna átti auðvelt með að ná góðu
sambandi við börnin, hún hafði gam-
an að segja okkur frá uppvaxtarárum
sínum, hvernig bræður hennar áttu
það til að atast pínulítið í henni, ég get
líka sagt það út frá eigin reynslu en
hún kom okkur krökkunum svo oft á
óvart. Einhvern tíma spurði hún mig
hvað mig langaði í í afmælisgjöf, ætli
ég hafi ekki verið um 10 ára eða svo
og ekki stóð á svari frá mér, mig lang-
aði í reiðhjól. Reyndar átti ég ekki
von á svona gjöf frá henni en á afmæl-
isdaginn þegar hún kom í boðið kom
hún tómhent en sagði mér að kíkja út-
fyrir og viti menn, þar stóð hinn
glæsilegasti Möve-hjólhestur. Ég
stóð þarna orðlaus. Þarna tel ég henni
best lýst, hún vildi allt fyrir alla gera.
Hún var mikið fyrir að ferðast og
þau hjónin lögðust oft í ferðalög m.a.
með foreldrum mínum og síðan voru
það myndakvöldin á veturna þar sem
rætt var um ferðirnar og sýndar
myndir á tjaldi, en hann Valdi hennar
hafði mikinn áhuga á ljósmyndun.
Eins og lesa má þá var þetta fyrir
tölvuvæðingu og á þeim tíma er fólk
gaf sér tíma í heimsóknir. Margar
góðar minningar frá Kirkjuteignum
koma í hugann.
Nú á síðustu árum eftir að móðir
mín og Binna misstu eiginmenn sína
urðu þær enn nánari og spjölluðu
mikið saman, ég veit að móðir mín á
eftir að sakna sárt þessara samtala
þeirra. Ég vil líka koma kveðjum á
framfæri frá Maríu okkar og hennar
fjölskyldu sem eru nýflutt til Þýska-
lands, sem og kveðjum frá Flórída frá
Jóni og Larissu og hennar fjölskyldu
og frá Sigrúnu og Pete, þau þakka öll
góða samfylgd.
Við hjónin vottum þér og fjölskyldu
þinni, elsku Gunna, okkar dýpstu
samúð.
Stefán og Svanhvít.
Það er komið að kveðjustund, elsku
Binna frænka hefur kvatt okkur. Við
komum alltaf við í kaffi hjá Binnu
þegar við komum í heimsókn til Ís-
lands. Það var alltaf svo gott að setj-
ast niður og spjalla en elsku besta
Binna reyndi nú samt alltaf að hafa
allt of mikið fyrir okkur. Þannig var
hún bara, henni fannst svo gaman að
fá gesti og gerði allt fyrir alla. Binna
frænka bjó líka til besta heita súkku-
laðið í öllum heimi, það var sko ekki
óvinsælt á yngri árunum, tala nú ekki
um þegar við fengum að heyra
óþekktarsögurnar af honum afa líka.
Við sendum okkar bestu samúðar-
kveðjur til fjölskyldunnar, við eigum
eftir að sakna Binnu sárt.
Bestu kveðjur,
Larissa og fjölskylda.
Magnea Benía
Bjarnadóttir
! "# $!% & '
(!!%
! $)
(!!*% !! +! (
(!!*% , ( '$
(!!*% - $ .! $
(!!*% / 0
(!!*% 0 1 !
(!!*% ✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
PÉTUR ÞORBJÖRNSSON
fyrrv. kaupmaður,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
fimmtudaginn 9. júlí kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð Guðmundar
Gissurarsonar til styrktar elli- og hjúkrunarheimilinu Sólvangi.
Valgerður Sigurðardóttir,
Svanhildur Pétursdóttir, Gissur Guðmundsson,
Birgir Pétursson, Hrefna Geirsdóttir,
Sverrir Pétursson, Sandra L. Pétursson,
Hrönn Pétursdóttir, Jafet E. Ingvason,
Björk Pétursdóttir, Sveinn Sigurbergsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir og fósturfaðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
GESTUR GUÐMUNDSSON
bóndi,
Kornsá,
Vatnsdal,
verður jarðsunginn frá Þingeyrarkirkju föstu-
daginn 10. júlí kl. 13.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Gunnhildur Gestsdóttir, Svanur G. Bjarnason,
Birgir Gestsson, Þórunn Ragnarsdóttir,
Guðrún Gestsdóttir,
Hjálmur St. Flosason, Sigrún María Snorradóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og
langafi,
OLAV DAVÍÐ DAVÍÐSON,
Hverahlíð 20,
Hveragerði,
lést á hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði miðviku-
daginn 1. júlí.
Útför hans fer fram frá Hveragerðiskirkju föstu-
daginn 10. júlí kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á dvalar- og hjúkrunar-
heimilið Ás.
Fjölskyldan þakkar starfsmönnum hjúkrunarheimilisins Áss fyrir góða
umönnun og hlýju.
Davíð O. Davíðson, Elín Björg Jónsdóttir,
Ástrún Sólveig Davíðson, Aðalsteinn Guðmundsson,
Betzy Marie Davíðson, Baldur I. Sveinsson,
Olav Heimir Davíðson, Guðlaug Ingvarsdóttir,
Ragnheiður Hulda Davíðson, Þórir Þrastarson,
Þórdís Skaptadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar frábæra móðir, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
INGA VALBORG EINARSDÓTTIR,
Gullsmára 5,
Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans við Hringbraut
miðvikudaginn 1. júlí.
Jarðarförin fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn
10. júlí kl. 13.00.
Soffía Sveinsdóttir,
Sveinn M. Sveinsson, Auður E. Guðmundsdóttir,
Guðmundur G. Sveinsson,
Einar Sveinsson, Arnhild Mölnvik,
Sigurður V. Sveinsson, Sigríður Héðinsdóttir,
Þórlaug Sveinsdóttir, Guðmundur Friðjónsson,
barnabörn, barnabarnabörn,
barnabarnabarnabörn og makar þeirra.