Morgunblaðið - 08.07.2009, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 08.07.2009, Qupperneq 31
verður sárt saknað af mér og mín- um. Hann á stórt hólf í hjarta okkar og ég treysti því að hann muni áfram taka undir með okkur í söngnum frá öðrum stað. Anna Ragnhildur. Afi minn var skemmtilegur mað- ur. Hann var einstaklega jafnlyndur – hann var einfaldlega alltaf í góðu skapi. Afi naut þess að segja sögur. „Var ég búinn að segja þér söguna af því þegar …“ og svo fylgdi ein af mörgum sögum hans. Sögurnar fjölluðu oftast um einhvern í fjöl- skyldunni, oftar en ekki viðmæland- ann sjálfan, þó að það kæmi stund- um ekki í ljós fyrr en í sögulok. Sumar sögurnar hafði ég aldrei áður heyrt, en aðrar var ég farin að þekkja mjög vel. „Veistu það að ég á hundrað stelpur?“ sagði hann iðu- lega þegar hann tók mig í fangið þegar ég var lítil. Eftir að ég varð stærri sagði hann mér stundum að þegar ég hefði verið lítil hefði ég bara brosað góðlátlega að þessari spurningu hans, eins og ég vildi leyfa honum að halda að hann ætti í raun og veru hundrað stelpur þó að ég vissi sjálf betur. Önnur saga sem hann sagði mér oft var af því þegar ég vildi ekki kyssa hann. Ég var nokkurra ára og mamma sagði mér að heilsa afa með kossi. Þá sagði ég, að afa sögn, hátt og snjallt: „Ég vil ekki kyssa hann!“ Þetta fannst afa einkar skondið þó að reyndar fylgdi sögunni að ég hefði skömmu seinna séð mig um hönd og gefið honum koss. Þetta er kannski lýsandi fyrir afa, hann móðgaðist ekki yfir svona nokkru en kunni að meta spaugilegu hliðarnar á hlutunum. Afi var líka mjög víð- sýnn og umburðarlyndur. Hann söng árum saman í kirkjukór, þrátt fyrir að hann væri trúlaus. Hann reyndi ekki að troða skoðunum sín- um upp á aðra – hann trúði ekki sjálfur á guð en bar virðingu fyrir trú annarra. Afi var ekki bara skemmtilegur, heldur líka mikill spekingur. Hann velti fyrir sér ótrú- legustu hlutum, t.d. hvenær stríðs- málaráðherra breyttist í varnar- málaráðherra og hvort hund- í hundgamall hefði nokkuð með hunda að gera, enda yrðu hundar ekki svo ýkja gamlir. Hann hefði án efa getað orðið góður fræðimaður, hann var til dæmis ótrúlega naskur á áhugaverð atriði í íslensku máli, sem hann ræddi gjarnan við mig, málfræðinemann. Það er mikill sjónarsviptir að afa og ég mun sakna hans sárt. Hlíf Árnadóttir. Ég var svo heppin að vera ein af hundrað afastelpunum hans afa. Því hann átti allar stelpur sem hann gat með einhverju móti eignað sér, ef það kom ný kærasta í hópinn var hún orðin ein af hundrað stelpunum hans. Eitt af því sem stendur upp úr eru bíltúrarnir hans, og þá munaði hann ekkert um að skreppa í sunnudags- bíltúr frá Reykjavík til Akureyrar. Oft fór maður líka með honum á milli og voru þær bílferðir ekki leið- inlegar því alltaf var nóg að spjalla um eða syngja og söng hann oft „Litla Stína“ með manni ásamt fleiri lögum. Ferðirnar tóku oft langan tíma þar sem hann stoppaði á leið- inni til að leggja sig á meðan maður hafði náttúrufegurðina til að dást að á meðan hann svaf og svo átti að vekja hann eftir einhvern ákveðinn tíma og þá var hægt að halda áfram. Þó að 6 ára dóttir mín hafi í raun verið svo feimin við langafa sinn að hún kom ekki nálægt honum fyrr en eftir dúk og disk, þá sagði hún samt um hann eftir fyrri heimsóknina til hans á Landakot um miðjan maí, „Já, hann er svo skemmtilegur“, sem mér finnst eitthvað svo lýsandi fyrir það hvað afi var alltaf hress og skemmtilegur. Það sem ég sakna þó mest er „afafaðmlagið“ því þegar maður hitti hann fékk maður alltaf gott knús. Takk fyrir allar samverustund- irnar, afi minn, og vonandi líður þér vel á nýjum áfangastað. Þorbjörg Ólafsdóttir. Það er einkum tvennt sem mér dettur í hug þegar ég hugsa til afa. Annað er að hann kynnti sig alltaf sem „afi“, jafnvel ef hann var að kynna sig fyrir einhverjum utan fjölskyldunnar, svo sem vinum barnabarnanna eða nýjum kærasta/ nýrri kærustu: „Ég heiti afi“ og tók í hönd viðkomandi. Hitt er að hann hélt því alltaf fram að hann ætti hundrað stelpur. Ég nefndi þetta við hann eitt skiptið sem við heimsótt- um hann á spítalann og að ég vissi þó ekki hvað hann ætti marga stráka. Hann svaraði um hæl „hundrað stráka“. Hvort tveggja finnst mér lýsa vel hversu hlýr hann var. Einu sinni þegar ég var lítil og bjó í Barmahlíðinni ákváðum við Laufey vinkona að reyna að „týnast“. Við gengum af stað um götur sem við vorum ekki vanar að fara og eftir heilmikið labb fannst okkur við vera loks komnar á ókunnar slóðir. Skömmu síðar fór mín þó að kann- ast við sig aftur, við vorum þá komn- ar á Barónsstíginn – götuna hans afa. Við bönkuðum upp á og afi tók að sjálfsögðu vel á móti okkur og fengum við m.a. að skoða orgelið hans. Þegar við gerðum honum grein fyrir ferðum okkar útskýrði hann fyrir okkur muninn á því að „týnast“ og að „villast“ og átti hið síðarnefnda víst við í þessu tilfelli. Síðan keyrði hann okkur heim. Afi hafði alltaf nægan tíma fyrir okkur og það var algengt að fólk fengi far hjá honum hingað og þang- að. Hann hafði alltaf mjög gaman af því að keyra og munaði ekkert um að skutlast með okkur barnabörnin frá Reykjavík til Akureyrar eða í hina áttina ef okkur vantaði far. Það voru afslappaðar ferðir. Við syst- urnar áttum það til að vera bílveikar í hvert sinn sem við fórum eitthvað akandi, en þrátt fyrir að það væri vel heitt í bílnum hjá afa þá man ég ekki eftir að það hafi verið vandamál þegar við keyrðum með honum. Í minningunni sungum við nefnilega alltaf alla leiðina, sem mér þótti ægi- lega gaman. Það voru lög eins og Litla Stína og Maístjarnan og kenndi afi okkur að syngja þessi lög raddað. Í seinni tíð man ég varla eft- ir að hafa heyrt Litlu Stínu annars staðar, en ég man þó alltaf lagið (og textann) og þykir sérlega vænt um það, enda minnir það mig bara á afa og þessar söngferðir. Við gátum ekki mætt í veisluna þegar afi hélt upp á áttræðisafmæl- ið, en hann fyrirgaf okkur það þar sem við gáfum honum nýjan langaf- astrák í staðinn. Mér finnst gaman að þeir eigi þennan dag saman. Þetta eru nokkrar af þeim minn- ingum sem standa upp úr, en ég minnist afa míns fyrst og fremst með hlýju og væntumþykju. Hvíl í friði, elsku afi minn, og takk fyrir minningarnar. Brynja Ásdís Einarsdóttir. Í minningu minni eru engin ein- stök atvik sem standa upp úr frekar en önnur þegar mér verður hugsað til afa, heldur bara skýrar tilfinn- ingar. Ég hafði alltaf á tilfinning- unni að hann væri til staðar, að hon- um þætti vænt um okkur og fylgdist með, alveg án þess að hann skipti sér af eða setti sig í dómarasæti. Nærvera, þolinmæði og væntum- þykja – og litlar sögur af börnum og barnabörnum, þau voru einkenni afa eins og ég upplifði hann sterkast. Jú, og ég mun reyndar alltaf sjá hann fyrir mér í gamla rauða skód- anum, bjóðandi far hvert á land sem var. Fyrir mér eru það og verða allt- af afabílar – og það var of heitt í þeim! Síðasta minning mín af afa var heimsókn til hans á líknardeild Landspítalans. Hann fékk þar frá- bæra aðhlynningu og ég sá ekki bet- ur en að hann væri sprækasti og mest heimsótti maðurinn á gangin- um. Við áttum langt samtal um allt og ekkert, aðallega ferðalög. Að því loknu fylgdi hann mér út ganginn og kvaddi. Vera má að ég hafi hitt á hann á góðu augnabliki, en það breytir því ekki að síðasta tilfinning sem afi skildi eftir hjá mér var aðdáun. Ég mun telja mig heppinn ef mínir síð- ustu dagar einkennast af jafn mikilli reisn og hlýju og hans hafa gert. Mig langar að verða eins og afi þeg- ar ég verð stór. Bjarni Rúnar Einarsson. Kjartan frændi minn er látinn. Mér er sagt að margir hafi frekar litið á okkur sem bræður en frænd- ur. Samband mæðra okkar var mjög náið og við vorum næstum jafn- aldra. Við sátum saman í barnaskóla, en Kjartan var heilsuveill og komst ekki alltaf í skólann. Því var það venja hjá okkur þegar hann lá veik- ur heima, að ég fór fyrst til hans þegar skóla lauk til þess að segja honum hvað við hefðum gert þann daginn, áður en ég fór heim. Þessar heimsóknir mínar voru ekki alltaf auðveldar, því þegar ég hélt að ég væri að koma með fræð- andi upplýsingar frá skólanum sner- ust málin gjarnan upp í það að hann hlýddi mér yfir sögu, landafræði o.fl. sem hann hafði aflað sér með lestri góðra bóka liggjandi sjúkur í rúminu heima hjá sér. Svo virðist sem að allt sem hann las, hafi hann varðveitt í minninu. Þann hæfileika hafði mér ekki áskotnast, svo að við lá að ég sæti uppi með minnimáttarkennd eftir hverja heimsókn að sjúkrabeð Kjartans. Vinátta okkar og náin tengsl biðu þó engan skaða. Ekki heldur þó að framhaldsnám okkar yrði af allt öðr- um toga, Hann fór í verslunarnám og garðyrkju en ég í tónlist. Nú sit ég eftir og sakna náins vin- ar og frænda og bið allar góðar vættir að vaka yfir rúmlega 30 af- komendum og þá sérstaklega sálu Kjartans, vinar míns og bróður. Ingvar Jónasson. Minningar 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2009 Hörður Arinbjarnar ✝ Hörður Ar-inbjarnar fæddist í Reykjavík 21. des- ember 1937. Hann lést á heimili sínu 2. júní síðastliðinn. Herði var sungin sálumessa í Dóm- kirkju Krists konungs í Landakoti 12. júní sl. Meira: mbl.is/minningar Minningar á mbl.is ✝ Móðursystir okkar, MARGRÉT HALLDÓRSDÓTTIR, dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, lést föstudaginn 26. júní. Útförin verður gerð frá Höfðakapellu fimmtudaginn 9. júlí kl. 13.30. Kolbrún Matthíasdóttir, Guðný Matthíasdóttir, Jón Matthíasson, Halldór Matthíasson. ✝ Ástkær faðir okkar, sonur og bróðir, GUÐNI ELÍS HARALDSSON viðskiptafræðingur, sem lést miðvikudaginn 1. júlí, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 9. júlí kl. 15.00. Rakel Birta Guðnadóttir, Thelma Rut Guðnadóttir, Diljá Sif Guðnadóttir, Haraldur Bjarnason, Þuríður Vigfúsdóttir, Ólafur Árnason og systkini hins látna. ✝ Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, HERMANN BALDVINSSON frá Jarlsstöðum, Bárðardal, verður jarðsunginn frá Lundarbrekkukirkju fimmtudaginn 9. júlí kl. 14.00. Steingerður Ingimarsdóttir, Einar Ingi Hermannsson, Jón Geir Hermannsson, Sigrún Hermannsdóttir, Árni Hermannsson. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN ÓSKARSSON, Garðarsvegi 20, Seyðisfirði, varð bráðkvaddur laugardaginn 4. júlí. Útförin fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju laugardaginn 11. júlí kl. 11.00. Aldís M. Kristjánsdóttir, Sigrún Björg Guðjónsdóttir, Árni Gunnar Ingólfsson, Hrafnhildur Guðjónsdóttir, Bergur Jónsson og barnabörn. ✝ Okkar innilegustu þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HALLDÓRU JÓNSDÓTTUR, Melagötu 15, Neskaupstað. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki lungna- deildar Landspítalans í Fossvogi og Fjórðungssjúkrahúss Neskaupstaðar. Gunnar Jónsson, Jón Gunnarsson, Sigurbjörg Gunnarsdóttir, Steinar Gunnarsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ELÍSABET HANNESDÓTTIR íþróttakennari, Kópavogi, verður jarðsungin frá Digraneskirkju fimmtudaginn 9. júlí kl. 13.00. Anna Björg Sveinsdóttir, Ingólfur Sigmundsson, Ingveldur Sveinsdóttir, Þóra Sveinsdóttir, Sveinn Ingimar Sveinsson, Linda Margrét Arnardóttir, ömmubörn og langömmubarn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.