Morgunblaðið - 08.07.2009, Síða 34
34 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2009
Sudoku
Frumstig
4
2 4 5
5 3 8 6
2 8
7 9 8
3 6 1
3 1 5
9 7
5 2 7
6 4 3
4 3
7 5
4 2 7 8
8 5 1 6
9 6 1 5
4
5 9 3
4 5
3 6
9 8
5 8 7 6 3
4 7 1 5
3
2 4
2 9 4
6 1 2
5 4 6 7 2 1 3 9 8
3 7 2 9 5 8 6 4 1
8 9 1 4 6 3 2 7 5
9 3 5 1 4 6 7 8 2
7 6 8 5 3 2 9 1 4
1 2 4 8 9 7 5 6 3
2 5 7 6 1 4 8 3 9
6 1 3 2 8 9 4 5 7
4 8 9 3 7 5 1 2 6
6 7 8 1 4 5 2 9 3
2 5 1 7 9 3 6 4 8
4 3 9 6 2 8 5 7 1
8 9 3 5 7 6 4 1 2
5 4 7 2 3 1 8 6 9
1 2 6 9 8 4 7 3 5
9 1 2 4 5 7 3 8 6
3 6 4 8 1 2 9 5 7
7 8 5 3 6 9 1 2 4
1 6 9 8 7 2 4 3 5
7 8 5 1 3 4 2 9 6
4 3 2 6 5 9 8 7 1
8 2 6 4 9 3 1 5 7
5 9 1 7 6 8 3 4 2
3 7 4 2 1 5 9 6 8
6 4 7 9 8 1 5 2 3
9 5 8 3 2 7 6 1 4
2 1 3 5 4 6 7 8 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 8. júlí,
189. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Guð hefur uppvakið
oss í Kristi Jesú og búið oss stað í
himinhæðum með honum. (Ef. 2, 6.)
Skoska knattspyrnufélagið FCArbroath sigraði Aberdeen í
bikarleik með 36 mörkum gegn engu
12. september árið 1884 og skoraði
John Petrie 13 mörk. Þennan sama
dag í sömu umferð skoska bikarsins
sigraði Dundee Harp Aberdeen Ro-
vers með 35 mörkum gegn engu.
Staðreyndir á borð við þessar eru
viðfangsefni IFFHS eða Alþjóða-
sambands knattspyrnusögu og -töl-
fræði. Maðurinn á bak við sam-
bandið er dr. Alfredo Pöge og er
fjallað um hann í nýjasta tölublaði
Der Spiegel. Fótbolti er hans ástríða
og hann heldur til haga tölfræði á
borð við þá, sem nefnd er hér fyrir
ofan. Pöge er sennilega eini mað-
urinn, sem vísað hefur verið úr landi
vegna áhuga á tölfræði fótboltans.
Pöge var í góðri stöðu í Leipzig þeg-
ar hann stofnaði IFFHS árið 1984.
Pöge gekk ekkert annað til en að
safna upplýsingum um fótbolta alls
staðar að úr heiminum, en austur-
þýskum stjórnvöldum þótti það svo
tortryggilegt að útsendurum Stasi
var sigað á hann. Honum var skipað
að leysa samtökin upp og afhenda öll
gögn. Hann væri að brjóta lög.
Skyndilega var hann orðinn að and-
ófsmanni vegna áhugamálsins. Pöge
reyndi að fá leiðréttingu mála sinna,
en stöðugt syrti í álinn. Á endanum
var honum vísað úr landi og hann
hélt til Vestur-Þýskalands með 14
töskur fullar af tölfræði um fótbolta.
x x x
Pöge naut mikils meðbyrs fyrsteftir að honum var vísað úr
landi og í umfjöllun Der Spiegel eru
birtar myndir af honum, sem ná yfir
20 ára tímabil frá 1988 til 2008 og
sýna hann með Oliver Kahn, Kaká,
Franz Beckenbauer, Ruud Gullit,
Paul Breitner og Marco van Basten.
x x x
Það getur verið gaman að setjamælistiku tölfræðinnar á fót-
boltann, en merkilegast finnst Vík-
verja þó að til hafi verið ríki, sem var
svo fullt af tortryggni að þegar einn
borgaranna tók upp á því að safna
upplýsingum um fótbolta um heim
allan var hann stimplaður and-
ófsmaður og rekinn úr landi.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 bætir hvað eft-
ir annað, 8 stjórna, 9
landspildu, 10 ekki
marga, 11 álíta, 13
hlaupa, 15 reifur, 18
borða, 21 glöð, 22 hrópa,
23 fæddur, 24 heimskur.
Lóðrétt | 2 snjáldur, 3
jarða, 4 óðar, 5 dugleg-
ur, 6 ármynnum, 7 duft,
12 tangi, 14 sprækur, 15
verkfæri, 16 styrkti, 17
fugl, 18 staut, 19 matn-
um, 20 kvenmannsnafn.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 dynts, 4 gisin, 7 lútan, 8 álkur, 9 nýr, 11 rúmt,
13 orri, 14 ókind, 15 fólk, 17 drós, 20 ána, 22 mókar, 23
geyma, 24 lærir, 25 arinn.
Lóðrétt: 1 dílar, 2 notum, 3 senn, 4 gjár, 5 sekur, 6
narri, 10 ýkinn, 12 tók, 13 odd, 15 fámál, 16 lokar, 18
reyfi, 19 stafn, 20 árar, 21 agga.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 Rf6 4. Bg5 Be7
5. e3 Bd7 6. Bxf6 Bxf6 7. cxd5 exd5 8.
Rxd5 c6 9. Rxf6+ Dxf6 10. Df3 De7 11.
a3 Be6 12. Bd3 Rd7 13. Re2 O-O 14.
Rf4 Bb3 15. O-O Rf6 16. Dh3 g6 17.
Hfc1 Hac8 18. Hc3 Bd5 19. Dh4 Dd6
20. Dh6 Rg4 21. Dg5 Rf6 22. Dh6 Re4
Skákáhugamaðurinn Eyjólfur Ár-
mannsson hefur verið iðinn við kolann
að slá inn skákir frá íslenskum skák-
mótum og nýverið færði hann í tölvu-
tækt form skákir frá helgarmóti Tíma-
ritsins Skákar sem haldið var í
Bolungarvík/Ísafirði árið 1980. Næstu
daga verða birtar nokkrar skákir frá
þessu móti en þessi staða kom upp í
skák Ómars Jónssonar, hvítt, og Ás-
geirs Bollasonar. 23. Bxe4! Bxe4 24.
Rh5! og svartur gafst upp enda hótar
hvítur máti og eftir 24. …gxh5 25.
Dxd6 verður svartur drottningu undir.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Djúpsálarfræði.
Norður
♠ÁKD10
♥KDG6
♦G5
♣ÁKG
Vestur Austur
♠G65 ♠42
♥Á2 ♥73
♦ÁK1084 ♦D932
♣D53 ♣87642
Suður
♠9873
♥109854
♦76
♣109
Suður spilar 4♥.
Með hörkunni neyðir norður makker
sinn til að melda hjartalitinn á eyði-
mörkina og þjösnar honum svo í geim:
Vestur opnaði á 1♦, norður doblaði og
austur lyfti í 2♦. Sú sögn gekk til norð-
urs, sem doblaði aftur og píndi suður í
2♥. Sem norður hækkaði í fjögur.
En norður á vel fyrir sínu og ekki
ber á öðru en að spilið sé skothelt –
vörnin á bara tvo slagi á tígul og einn á
tromp. Við skulum sjá. Vestur hafði
verið að lesa The Bridge World og sá
þar grein um djúpsálarhernað. Hann
skipti yfir í spaðagosa í öðrum slag!
Suður túlkaði ♠G sem augljóst ein-
spil – tók því fram skærin, spilaði ♣ÁK
og laufgosa og henti tígli heima.
Klippti á tígulsamganginn. Vestur
drap og spilaði (óvænt) aftur spaða. Og
nú var kominn farvegur fyrir raun-
verulega spaðastungu.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Vinsældir þínar hafa verið með
mesta móti upp á síðkastið. Reyndu að
velja þá úr sem þurfa raunverulega á
hjálp þinni að halda.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Gerðu sjálfum þér eitthvað til góða
í dag því það er fyrir öllu að þú sért
glaður með sjálfan þig. Fylgdu eðlisávís-
uninni varðandi ákveðið mál í dag.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ekki vera of upptekin af því
sem aðrir á vinnustaðnum eru að segja
eða gera. Samþykktu ekkert – bíddu um
stund.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú nýtur óvenju mikillar athygli
og ættir því að huga að því hvernig þú
kemur fyrir. Athugaðu hversu mikil al-
vara fylgir máli og afgreiddu það svo
eftir ástæðum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú finnur til mikillar þarfar fyrir
að sleppa undan rútínu hversdagsleik-
ans. Fagurfræðin hefur líka sitt að
segja.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Haltu mjög fast um pyngjuna,
það þarf ekki mikla óaðgæslu til þess að
aurarnir fljúgi of frjálslega. Hættu að
redda öðrum og reyndu að einbeita þér
að eigin málum.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Við sönkum svo oft að okkur ýms-
um hlutum sem við höfum enga raun-
verulega þörf fyrir. Einbeiting þín er
með mesta móti núna.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Samræður við vini og vanda-
menn afhjúpa nýjar aðferðir við að gera
hlutina. Sem betur fer þekkir þú vin
sem gjarnan vill hjálpa þér.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er ekki ýkja tímafrekt að
hafa allt sitt á þurru, og gerir hlutina
svo miklu auðveldari viðfangs. Vandaðu
orðfæri þitt.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þeir sem leita ráða hjá þér
hafa stundum á orði að þú ættir að ger-
ast launaður ráðgjafi. Hafðu þó ekki
miklar áhyggjur af þessu, þetta er ein-
ungis tímabundið.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Stundum getur hugurinn verið
of langt á undan líkamanum og þá er
nauðsynlegt að leita sér einveru til íhug-
unar.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú þarft að ganga úr skugga um
að ekki sé verið að ganga á rétt þinn.
Allt á sér sinn stað og sína stund.
Stjörnuspá
8. júlí 1922
Ingibjörg
H. Bjarna-
son, 53 ára
skólastjóri,
var kjörin á
þing, fyrst
kvenna.
Hún tók
sæti á Al-
þingi í febrúar 1923.
8. júlí 1965
Blue Angels, frægasta flug-
sveit bandaríska flotans, sýndi
listir sínar yfir Fossvogi.
Morgunblaðið sagði að áhorf-
endur hefðu skipt tugum þús-
unda. „Undrun, hrifningu og
aðdáun mátti lesa úr hverju
andliti,“ sagði í Vísi.
8. júlí 1996
Queen Elizabeth II, eitt þekkt-
asta skip heims, kom til
Reykjavíkur. Farþegar voru
1.545 og í áhöfn voru um 1.000
manns.
8. júlí 2006
Björgunarsveitarmennirnir
Haraldur Haraldsson og Sam-
úel Albert Ólafsson sigu niður
Glym, hæsta foss landsins (198
metrar), fyrstir manna svo vit-
að sé.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Alda Marín Jóhannsdóttir, Birta
Hannesdóttir, Aðalbjörg og Brynj-
ar söfnuðu flöskum og færðu Rauða
krossinum ágóðann, 2.556 krónur.
Hlutavelta
GUÐRÚN Magnúsdóttir, ein tveggja varafor-
manna Fjölskylduhjálpar Íslands, fagnar 85 ára
afmæli sínu í dag. Spurð hvernig hún ætli að halda
upp á daginn stendur ekki á svörum. „Ég ætla að
vera með kaffi handa vinum og vandamönnum frá
kl. 17 til 21 í Austurbrún 2, í salnum á 13. hæð,“
segir hún. Að sögn Guðrúnar hefur hún alltaf
haldið veislur þegar hún fagnar stórafmæli en
aðrir afmælisdagar hafi ekki síður verið eftir-
minnilegir. „Ég hef alltaf átt yndislega afmæl-
isdaga,“ segir hún.
Guðrún segir eitt helsta áhugamál sitt vera að
styðja við þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu en hún er einn stofn-
enda Fjölskylduhjálpar Íslands. Þar áður starfaði hún hjá Mæðra-
styrksnefnd um tíu ára skeið. Hún segir uggvænlegt hversu mikið
fólki, sem óskar eftir aðstoð Fjölskylduhjálparinnar, hefur fjölgað síð-
ustu mánuði. „Það er alveg skelfilegt ástand í þjóðfélaginu. Það kem-
ur svo mikið inn af ungu fólki sem er að missa vinnuna,“ segir hún.
Guðrún á sex börn, 16 barnabörn, 16 langömmubörn og tvö langa-
langömmubörn og því verður eflaust fjölmenni hjá henni í dag. „Ég er
æðislega stolt af þessu,“ segir hún. ylfa@mbl.is
Guðrún Magnúsdóttir 85 ára
Allir afmælisdagar yndislegir
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is