Morgunblaðið - 08.07.2009, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2009
Ör þróun samskiptavefja hefur
gert það að verkum að leyndarmál-
unum fækkar óðum og flestallt
mannanna dútl liggur á glámbekk
netsins. Twitter-rás Sundlaug-
arinnar, mosfellska hljóðversins,
gerði heyrinkunnugt í gær að
furðurokksveitin Dr. Spock sé þar
gengin í eina sæng með söngdív-
unni Ragnheiði Gröndal. Meira er
ekki sagt en víst er að útkoman úr
þeim gerningi verður forvitnileg.
Fríða og Dýrið svamla
saman í Sundlauginni
Fólk
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
TVEIR þriðju hljómsveitarinnar
Dynamo Fog, sem hefur legið í
dvala eftir að slettist upp á vinskap
söngvaranna tveggja, sitja ekki
auðum höndum þrátt fyrir von-
brigðin. Gítarleikarinn og söngv-
arinn Jón Þór (sem var áður í Lödu
Sport) og trommarinn Arnar Ingi
hafa dustað rykið af sveitinni Isidor
sem þeir mönnuðu hér áður fyrr og
standa fyrir tónleikum í kvöld á Ja-
cobsen. Sveitin gaf út plötuna Betty
Takes a Ride árið 2004 en lagðist í
dvala þegar tveir liðsmenn fóru ut-
an í nám. „Þeir eru núna á landinu
og við ákváðum að halda tónleika
eins og við höfum gert árlega,“ út-
skýrir Arnar sem segir einnig enga
lausn vera í sjónmáli fyrir Dynamo
Fog. „Við eigum sæmilegan áhang-
endahóp af okkar kynslóð. Við er-
um að vonast til þess að það fólk
mæti núna líka.“
Kemur úr dvala fyrir eina tónleika
Isidor Einu tónleikar ársins í kvöld.
Aðstandendur Perunnar, nýs
skemmtistaðar sem verður opnaður
von bráðar í gamla Sirkús-kofanum,
hafa orðið varir við mikinn áhuga
fólks á opnun staðarins. Hafa þeir
þurft að girða af gamla Sirkús-
portið vegna stöðugs gestagangs
fólks sem reynir jafnvel að komast
inn til að sjá hversu langt fram-
kvæmdir séu komnar. Ekki er búið
að ákveða opnunardag en seina-
gangur í borgarráði hefur að sögn
kunnugra valdið töfum á opnuninni.
Peran pikkföst
í borgarráði
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÞANN 1. apríl síðastliðinn birtist
auglýsing frá Karli Berndsen um
svokallað Beauty Camp Weekend,
þar sem átti að fara ofan í saumana á
öllu því sem viðkæmi líkamlegri um-
hirðu, tísku, förðun o.s.frv. En bíddu
við … svo var þetta ekkert Karl
Berndsen, umsjónarmaður hinna
snilldarlegu þátta Nýtt útlit. Nei,
þetta var mynd af Snorra Ásmunds-
syni listamanni, sem reynist alveg
sláandi líkur dagskrárgerðarmann-
inum góðkunna. Auglýsingin var
gabb en Morgunblaðið hefur heim-
ildir fyrir því að þónokkrir hafi bitið
hressilega á agnið og í snatri hafið
undirbúning fyrir Fegurðarbúð-
irnar. Harmatárin geta þeir nú þerr-
að, því að Fegurðarbúðirnar verða
standsettar næstu helgi í Ný-
listasafninu og er það sjálfur Snorri
Ásmundsson sem stýrir.
Ég var leiddur hingað
Yfirskriftin er „Uppbyggingin er
hafin!“ og er yfirlýst markmið helg-
arinnar að byggja upp nýja og betri
sjálfsmynd fyrir íslensku þjóðina.
Búðirnar verða opnaðar með fyr-
irlestri á föstudeginum kl. 17 þar
sem „blásið verður á smekkleysuna
sem ríkt hefur í landinu“. Snorri hef-
ur fengið til liðs við sig tvo af efnileg-
ustu stílistum landsins, þær Dagnýju
Berglindi og Önnu Sóleyju en saman
mynda þau „færasta tríó samtímans í
framkomu og almennri snyrtingu“.
„Auglýsingin góða, þann 1. apríl,
kallaði á eitthvað meira,“ segir
Snorri, sem má varla vera að því að
ræða við blaðamann þar sem nef
hans er á kafi í snyrtiskræðum af öll-
um stærðum og gerðum.
„Maður fíflast ekkert með fegurð,“
segir Snorri við greinarhöfund og
hlær ekki.
„Þetta er alvöru námskeið og það
var eitthvað sem leiddi mig í þessa
átt. Eitthvert ástand. Ég vonast til
þess að vekja fólk til umhugsunar og
hvað er betur til þess fallið en „Ext-
reme Makeover“?“ spyr Snorri en
áhugasamir um slíkt geta haft sam-
band við hann í síma 692-9526. Sá
gjörningur hefst kl. 13 á laugardeg-
inum.
„Annars hefur síminn ekki stopp-
að síðan þetta var tilkynnt,“ segir
Snorri. „Ég hef varla undan. Við-
brögðin hafa verið ótrúleg. Nú þegar
hafa 130 manns skráð sig á Face-
book.“
Snorri segir að „eitthvað“ hafi
gerst er hann kynntist þeim Dagnýju
og Önnu.
„Mér var í raun afhent þetta verk-
efni,“ segir hann. „Þær munu að-
stoða mig þarna í faglegri ráðgjöf og
svara í símann fyrir mig og svona.“
Snorri bauð upphafsmanni alls
þessa, sjálfum Karli Berndsen, að
taka þátt en hann hefur ekki svarað
skilaboðum hans.
„Ég hef aldrei hitt þennan mann,“
segir Snorri. „Og horfði ekki einu
sinni á þættina hans, sem mér skilst
þó að séu hrein snilld. Vinir hans
hafa hins vegar haft samband við mig
og haft af því áhyggjur að ég væri að
gera grín að honum. Ég vil nota
tækifærið hér og segja þeim að sú er
ekki raunin.“
„Aldrei hitt Karl Berndsen“
Snorri Ásmundsson stendur fyrir Fegurðarbúðum um helgina í Nýlistasafn-
inu Sótti sér fróðleik til Parísar og vinnur með færustu stílistum landsins
Lausgirtur Eins og glögglega má sjá vefst snyrti- og framkomutæknin ekki fyrir Snorra Ásmundssyni.
Nánar á Facebook: „Uppbyggingin
er hafin – Beauty Camp Weekend“
LÍNUR eru orðnar afskaplega skýr-
ar hvað varðar næstu breiðskífu
múm, Sing Along to Songs You
Don’t Know, en þessi fimmta hljóð-
versplata sveitarinnar kemur út 24.
ágúst undir hatti Morr-útgáfunnar
þýsku í Evrópu en aðrar útgáfur sjá
um að dekka restina af heiminum.
Síðasta plata, Go Go Smear The Poi-
son Ivy, kom út árið 2007 á vegum
bresku útgáfunnar Fat Cat sem
múm hefur nú sagt skilið við.
Stærð múm í alþjóðaheimi fram-
sækinnar tónlistar er slík að helstu
miðlar í þeim fræðunum eru farnir
að slá upp fréttum af plötunni og
þannig henti helsta tónlistarblogg
New York, Brooklynvegan, inn væn-
um fréttapakka fyrir stuttu.
Það er svo í kvöld sem múm hefur
umfangsmikið tónleikaferðalag um
heim allan og eru fyrstu tónleikarnir
í Bologna, Ítalíu, í kvöld. Sveitin
verður svo í Evrópu fram á haust og
í Ameríku fram í nóvember. Fleiri
tónleikaraðir eru svo áætlaðar eftir
áramót og m.a. verður farið til Jap-
ans. arnart@mbl.is
Syngdu með í múmlögum …
Litríkt Umslag nýjustu plötu múm.
Múm á túr út árið vegna nýrrar plötu
„Ég heyrði að Karl Berndsen
hélt að 1. apríl-myndin væri af
honum – „fótósjoppuð“,“ seg-
ir Snorri. „Ég var svo í flugvél
á dögunum og þá spurði kona
ein, alveg grandvaralaus,
hvort ég væri til í að klippa
manninn hennar. Það er stór-
merkilegt að eiga svona tví-
fara!“
Snorri Berndsen?
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Sannleikurinn (Litla sviðið)
Djúpið HHHHH JVJ, aftur í haust
Við borgum ekki (Nýja sviðið)
Uppsetning Nýja Íslands.
Munið afslátt fyrir viðskiptavini Vodafone!
Lau 11/7 kl. 19:00 Ö
Fim 9/7 kl. 20:00
Sun 4/9 kl. 19:00 U
Sun 5/9 kl. 19:00 Ö
Sun 6/9 kl. 19:00 Ö
Mið 9/9 kl. 19:00 U
Fim 10/9 kl. 19:00 Ö
Fös 11/9 kl. 19:00
Fös 18/9 kl. 19:00 Ö
Lau 19/9 kl. 19:00 U
Sun 20/9 kl. 14:00 Ö
Lau 26/9 kl. 14:00 Ö
Söngvaseiður. Sala hafin á sýningar í haust.
Reykholtskirkja
8. júlí kl. 20.30
Háskólakór Árósaháskóla
Stjórnandi: Carsten Seyer Hansen
Á tónleikunum í Reykholtskirkju verða flutt verk
eftir Stefán Arason, Jón Leifs, F. Mattiassen, Carl
Nielsen og Per Skriver og ýmis dönsk sumarlög.
www.snorrastofa.is
Jón Baldvinsson listmálari
opnar sýningu í Perlunni
miðvikudaginn 8. júlí.
Á sýningunni eru tvennskonar verk,
Fljúgandi fyrirbæri og
landslagsstemmningar.
Engin boðskort eru send út að
þessu sinni, en Jón vonast til þess
að sjá sem flesta.
Sýningin stendur til 31. júlí.
SUMARSÝNING: