Morgunblaðið - 09.07.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 2009
Það er rétt mat Illuga Gunnars-sonar, formanns þingflokks
Sjálfstæðisflokksins, að það verður
seint fyrirgefið ef þingheimur kast-
ar til höndunum í svo stóru máli sem
Icesave-málinu til þess eins að kom-
ast nokkrum dögum fyrr í sumarfrí.
Illugi sagði í há-degisfréttum
RÚV í gær að
þingmenn hefðu
haft lítinn tíma til
að kynna sér
gögn málsins fyr-
ir fyrstu umræðu
og því skipti það
afar miklu máli
fyrir alþingis-
menn og þjóðina
alla að nefndirnar
væru búnar að
gjörkanna samn-
inginn, afleið-
ingar þess að
gangast undir
hann og þess að
gangast ekki und-
ir hann, áður en
hann yrði tekinn
fyrir aftur á þinginu.
Gunnar Bragi Sverrisson, formað-ur þingflokks Framsóknar-
flokksins, tók í sama streng og Ill-
ugi.
„Ég sé ekki hvernig þessi stóru
mál eiga að fara í gegnum þingið á
þessum tíma nema ræðutími verði
styttur og þingmenn fái ekki að tala
um þau og það finnst mér ekki koma
til greina,“ sagði Gunnar.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,forseti Alþingis, sagði í frétt hér
í Morgunblaðinu í gær, að stefnt
væri að þinglokum eftir næstu helgi,
en hún vildi ekki festa niður dag-
setningu þar um.
Forseti Alþingis ætti frekar aðbrýna fyrir þingheimi öllum að
flýta sér hægt en að reka á eftir
þinglokum. Hagsmunirnir, sem í
húfi eru, krefjast vandaðra vinnu-
bragða.
Illugi Gunnarsson
Þingheimur flýti sér hægt
Gunnar Bragi
Sverrisson
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 13 léttskýjað Lúxemborg 19 léttskýjað Algarve 23 heiðskírt
Bolungarvík 13 skýjað Brussel 15 skúrir Madríd 31 heiðskírt
Akureyri 13 heiðskírt Dublin 16 skýjað Barcelona 23 skýjað
Egilsstaðir 15 léttskýjað Glasgow 18 léttskýjað Mallorca 28 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 17 heiðskírt London 19 heiðskírt Róm 28 léttskýjað
Nuuk 14 heiðskírt París 17 skúrir Aþena 32 léttskýjað
Þórshöfn 9 skýjað Amsterdam 15 léttskýjað Winnipeg 22 skýjað
Ósló 17 skýjað Hamborg 16 skúrir Montreal 18 alskýjað
Kaupmannahöfn 22 léttskýjað Berlín 16 skúrir New York 23 heiðskírt
Stokkhólmur 21 skýjað Vín 22 léttskýjað Chicago 18 skúrir
Helsinki 20 léttskýjað Moskva 21 skýjað Orlando 32 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR ER Í FRÍI STAKSTEINAR
VEÐUR
9. júlí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 1.39 0,7 7.37 3,5 13.39 0,6 19.54 3,8 3:26 23:42
ÍSAFJÖRÐUR 3.41 0,5 9.27 1,9 15.33 0,5 21.40 2,2 2:40 24:37
SIGLUFJÖRÐUR 6.09 0,2 12.20 1,1 18.02 0,4 2:20 24:22
DJÚPIVOGUR 4.38 1,9 10.47 0,5 17.07 2,1 23.21 0,6 2:44 23:22
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á föstudag
Hæg breytileg átt eða hafgola,
þurrt að mestu og víða bjart
veður. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast
í innsveitum.
Á laugardag
Hæg norðaustlæg átt, skýjað
en þurrt að kalla norðan- og
austanlands en annars bjart-
viðri að mestu. Hiti 8 til 20 stig,
hlýjast suðvestantil.
Á sunnudag
Norðaustlæg átt, þokusúld
með köflum norðan- og aust-
anlands en annars bjartviðri.
Hiti breytist lítið.
Á mánudag og þriðjudag
Norðaustlæg átt, þokuloft
norðan- og austanlands en
skúrir suðvestanlands. Heldur
kólnandi.
.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Suðaustan 3-8 m/s suðvest-
antil, annars hæg breytileg átt.
Víða léttskýjað. Hiti 10 til 20
stig, hlýjast inn til landsins.
„ÞAÐ gerist nánast á hverju sumri að heimilis-
laust fólk kýs tjaldbúskap fram yfir önnur úr-
ræði,“ segir Stella Víðisdóttir, sviðsstjóri velferð-
arsviðs, um frétt Morgunblaðsins í gær um
heimilislausa konu sem býr í tjaldi við Ánanaust.
Margir minnast frétta af heimilislausu fólki sem
hafði vetursetu á tjaldsvæðinu í Laugardal og
stundum berast fregnir af útigangsfólki sem hefur
slegið upp tjaldi í langan eða skamman tíma í
Öskjuhlíð. Stella segir starfsmenn velferðarsviðs
þekkja mál heimilislausu konunnar i Ánanaustum
eins og flest slík mál sem koma upp í borginni
„Hinn dapri sannleikur er sá að við getum lítið
gert ef aðstoð er hafnað. Því þótt þetta fólk sé
skjólstæðingar félagsmála- og heilbrigðisyfirvalda
þá er um sjálfráða manneskjur að ræða.“
Stella segir allt kapp lagt á að sinna því fólki
sem til þeirra leiti. Ýmis úrræði séu í boði fyrir
heimilislausa í borginni, s.s. Konukot, gistiskýlið í
Þingholtsstræti, smáhýsi á Granda og heimili fyrir
heimilislausa karla á Njálsgötu og Miklubraut.
Hún segir það vera á stefnuskrá velferðarsviðs að
opna heimili fyrir heimilislausar konur. „Hugsan-
lega tekst það í haust eða síðar í vetur. Konukot er
gott en það er ekki heimili og það er brýnt að búa
konum, sem verið hafa heimilislausar lengi, sama-
stað.“
Biðlistar styttast
Það kemur hins vegar nokkuð á óvart að biðlist-
ar eftir húsnæði hjá félagslega kerfinu hafa styst
umtalsvert. Það skýrist af því að leiga á almenna
markaðnum hefur lækkað mikið undanfarið.
„Þetta þýðir að minna fé fer til íbúðakaupa. Aftur
á móti er greiðsla húsaleigubóta á okkar könnu og
útgjöld þeim megin hafa að sama skapi aukist.“
Stefnt að heimili fyrir útigangskonur
Útigangsfólk tjaldar en biðlistar eftir félagslegum íbúðum styttast
Eftir Reyni Sveinsson
Sandgerði | Tekin hefur verið í notk-
un áhorfendastúka við íþróttavöll-
inn í Sandgerði. Hún er fyrsti áfangi
í byggingu fjölnota íþróttahúss sem
byggt verður þar við í framtíðinni.
Sæti eru fyrir 350 manns í stúk-
unni. Um leið var tekinn í notkun
endurbættur grasvöllur. Völlurinn
var færður til suðurs og grasið end-
urnýjað. Stúka og völlur reyndust
vel í fyrsta leik því Reynir sigraði
Tindastól.
Heildarkostnaður við fram-
kvæmdina er um 40 milljónir kr.
Sæti fyrir 350 í
áhorfendastúkunni
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Aðstaða Stuð var í nýju stúkunni á vígsluleiknum.