Morgunblaðið - 09.07.2009, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 09.07.2009, Qupperneq 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 2009 Hátekjuskattur 8% sérstakur tekjuskattur Á tímabilinu júlí-desember skulu launagreið- endur halda eftir 8% sérstökum tekjuskatti (hátekjuskatti) af stofni sem er umfram kr. 700.000 á mánuði, þ.e. tekjur að frádregnu ið- gjaldi í lífeyrissjóði. Skattinum skal skila með annarri afdreginni staðgreiðslu til innheimtu- manns. Halda skal eftir staðgreiðslu vegna hátekju- skatts miðað við tekjur í hverjum mánuði óháð því hverjar þær eru í öðrum mánuðum. Sjómannslaun o.fl. Laun sjómanns fyrir veiðiferð sem hefst í júní, má telja til júnílauna þó afla sé landað eftir mánaðamót, enda hafi a.m.k. 1/2 veiðiferðar- innar verið í júní og uppgjöri lokið 14. júlí. Sjá nánar á rsk.is um aflahlut og önnur laun sem ekki koma til uppgjörs innan tekjumánaðar. Vikulaun Þegar laun eru greidd vikulega skal halda eftir 8% hátekjuskatti af stofni umfram kr. 161.096*. Séu vikulaun ýmist innan þessara marka eða yfir þeim, má jafna launum milli vikna innan mánaðarins, en ekki milli mánaða. * (700.000 kr. x 12/365) x 7= 161.096 kr. Fjármagnstekjuskattur 15% staðgreiðsla Frá 1. júlí 2009 skulu bankar og aðrar fjár- málastofnanir reikna og halda eftir stað- greiðslu af vaxtatekjum ársfjórðungslega. Skal skattur þessi vera 15%. Sama gildir um arð sem greiddur er til eigenda af eignarhlut- um í félögum. Af fjármagnstekjum sem til falla fyrir 1. júlí reiknast 10% skattur. Uppgjör við álagningu Við álagningu ákvarðast 15% skattur á fjár- magnstekjur sem til falla á tímabilinu júlí- desember 2009 og eru umfram kr. 250.000 (eða 500.000 hjá hjónum). Á tekjur undir þeim mörkum, svo og á allar fjármagnstekjur á tímabilinu janúar-júní er lagður 10% skattur. Aðrar fjármagnstekjur Sem fyrr eru tekjur af söluhagnaði skattlagðar eftirá, sem og leigutekjur. Frá 1. júlí gilda sér- stakar reglur um leigutekjur, en frá þeim tíma mynda 70% þeirra skattstofn en 30% eru skattfrjálsar. Breytingar í staðgreiðslu ICELANDAIR mun auka ferðir til Manchester og Glasgow næsta vet- ur og fljúga þangað fjórum sinnum í viku. Jafnframt verður sú breyt- ing gerð á að flug til borganna tveggja verður sameinað; fyrst verður flogið til Manchester og síð- an höfð viðkoma í Glasgow á leið- inni til Íslands. Flug Bretlands Í sýningarsal í Sjóminjasafninu Víkinni á Grandagarði hafa 18 kon- ur úr Íslenska bútasaumsfélaginu hengt upp 24 ný veggteppi. Efnt var til keppni innan félagsins síð- asta vetur og var þemað „hafið og allt sem því tengist“. Litaval var frjálst nema hvað blár litur varð að vera í öllum verkum svo að tenging og heildarsvipur mætti vera á sýn- ingunni. Sýningin stendur til 30. ágúst. Bútasaumsteppi FYRSTA plantan í nýj- um uppeld- isreit í Esju- hlíðum var gróðursett í fyrradag. Trjá- ræktarklúbb- urinn í sam- vinnu við Rannsókn- arstöð skóg- ræktar á Mó- gilsá og Skóg- ræktarfélag Reykjavíkur stendur að uppeldisreitnum. Þar er ætlunin að safna saman og prófa sem flestar tegundir trjáa og runna og kanna hvernig þær spjara sig við íslenskar aðstæður. Uppeldisreitur í Esjuhlíðum GENGIN verður pílagrímaganga frá Þingvöllum að Skálholti helgina 18.-19. júlí nk. Gangan hefst kl. 10 að laugardegi við Þingvallakirkju. Gengið verður að Laugarvatni og gist í Grunnskólanum í Reykholti og verður lagt aftur að stað kl. 9 daginn eftir. Pílagrímaganga STUTT Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is HÓPUR fólks er að reyna að bjarga gömlu vélsmiðjunni í Neskaupstað frá niðurrifi. Þar verður opin lista- smiðja á Eistnaflugi um helgina og allt iðar af lífi. Hús vélsmiðjunnar er á Eyrinni, elstu byggðinni á Norðfirði. Þar hefur sveitarfélagið tekið hraust- lega til hendinni við niðurrif húsa, ekki síst sl. vetur vegna áforma um að byggja þar nýjan grunnskóla. „Þessi niðurrifsstefna er hræðileg og búið að rífa margar fallegar byggingar á Eyrinni. Þetta hús er næst á listanum,“ segir Hákon Guð- röðarson, sem rekur kaffihúsið Frú LúLú. Hann beitti sér fyrir því að bæjaryfirvöld gæfu húsinu grið í bili og fékk jafnframt vilyrði fyrir því að húsið fengi að standa áfram ef vel tækist til við að laga til. Hákon segir að mikil stemmning sé fyrir þessu verkefni og fjöldi bæjarbúa hefur síðustu daga að- stoðað við að laga húsið og mála og fyrirtæki styrkt framtakið. Vélsmiðjuhúsið er stórt stein- steypt hús, byggt um 1930. Við hlið- ina á því er elsta hús bæjarins, Gamla Lúðvíkshúsið, sem bærinn hefur enn ekki fengið leyfi til að láta rífa. Hin húsin hafa verið rifin. Um helgina verður opin smiðja í vélsmiðjunni þar sem listafólki er boðið að koma með efni og tæki til að skapa. Hákon sér það fyrir sér að þarna verði áfram listasmiðja með þremur vinnustofum og sýn- ingarsölum. Reyna að bjarga gömlu vélsmiðjunni Framtakssamir Norðfirðingar gera vélsmiðjuna að listamiðstöð Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Björgunarstarf Allt á fullu í málningarvinnu. Veraldarvinir tóku í gær þátt í að mála vélsmiðjuna að utan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.