Morgunblaðið - 09.07.2009, Síða 16

Morgunblaðið - 09.07.2009, Síða 16
16 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 2009 Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is BÚIÐ var að veiða 16% strand- veiðikvótans í fyrradag samkvæmt upplýsingum Fiskistofu, eða 628,5 tonn af 3.955 tonna heildarkvóta. Veiðin fór rólega af stað en hefur aukist eftir því sem bátunum hefur fjölgað. Þannig var heildarafli strandveiðibátanna í fyrradag 105 tonn. Samkvæmt upplýsingum Jóns Valgeirs Guðmundssonar hjá veiði- heimildasviði Fiskistofu hafa alls verið gefin út 416 leyfi til strand- veiða. Svæði A, sem nær frá Eyja- og Miklaholtshreppi austur um að Skagabyggð, hefur algjöra sérstöðu. Þar hafa verið gefin út 165 leyfi og þar af hefur 141 bátur landað afla. Búið er að landa 423,7 tonnum á þessu svæði eða 43% af heildarafl- anum fyrir júní og júlí, sem er 987 tonn. Hver bátur má veiða 800 kg af óslægðum þorski í hverri veiðiferð og segist Jón Valgeir reikna með að kvótinn fyrir svæði A klárist á mánudag eða þriðjudag. Strand- veiðimennirnir verða svo að bíða í hálfan mánuð eða til 2. ágúst eftir því að geta byrjað að veiða ágúst- kvótann fyrir svæði A. Hann er ekki nema 263 tonn og gæti því klárast á 2-3 fyrstu dögunum í ágúst. Á svæði B, sem nær frá sveitarfé- laginu Skagafirði að Grýtubakka- hreppi, er búið að veita 62 leyfi. Á þessu svæði er búið að landa 44 tonnum, sem eru aðeins 6% júní/ júlí-kvótans. Á svæði C, sem nær frá Þingeyjarsveit að Djúpavogi, er búið að veita 74 leyfi. Þar er búið að landa 97,9 tonnum, sem eru 13% kvótans. Á svæði D, sem nær frá Hornafirði til Borgarbyggðar, er búið að gefa út 115 leyfi. Á þessu svæði er búið að landa 62,8 tonnum, 12% kvótans. Búið að veiða 16% kvótans  Strandveiðimenn á Norðvesturlandi klára fyrsta skammtinn eftir helgi  Verða síðan að bíða í hálfan mánuð og geta þá aðeins veitt í 2-3 daga Í HNOTSKURN »Strandveiðarnar hafafarið rólega af stað nema á Norðvesturlandi. Þar keppast menn við að ná kvótanum og hann mun klár- ast eftir helgi. »Á svæðinu hafa 165bátar fengið leyfi til strandveiða og dagsaflinn getur því farið mest í 132 tonn. »Einmuna veðurblíða hef-ur verið á miðunum við landið undanfarið og strand- veiðimenn hafa því getað sótt sjóinn af kappi. Morgunblaðið/RAX FRÉTTASKÝRING Sigrún Erna Geirsdóttir sigrunerna@mbl.is FYRIR liggur að landeigendur á Meðalfelli og í Káraneskoti töldu ekki ástæðu til að sækja um fram- kvæmdaleyfi þegar þeir ræstu fram milli Hurðarbakssefs og Káranes- sefs með þeim afleiðingum að vatns- yfirborðið lækkaði verulega. Ef vafi leikur á um hvort sækja þurfi um framkvæmdaleyfi til sveitarstjórnar geta tveir aðilar vísað málinu til úr- skurðarnefndar um skipulags- og byggingamál. Annars vegar fram- kvæmdaraðili og hins vegar sveitar- stjórn. Enginn pólitískur vilji ,,Við munum ekki skjóta þessu til úrskurðarnefndar,“ segir Sigur- björn Hjaltason, oddviti hrepps- nefndar. ,,Fyrir því er enginn póli- tískur vilji hér í sveitinni.“ Mikil ólga varð innan hreppsins í fyrra þegar erindi barst frá Umhverfisstofnun þess efnis að hreppsnefnd bæri að sjá til þess að votlendið yrði endur- heimt. Töldu menn að verið væri að fetta fingur út í hluti sem stofnuninni kæmi ekki við. ,,Við gerðum það sem okkur bar skylda til að gera,“ segir Sigurbjörn. ,,Við höfðum samband við landeigendur og báðum þá að taka framkvæmdina til baka. Þeir höfðu ekki áhuga á því.“ Lítur hreppurinn svo á að það sé eftirlits- aðilans, í þessu tilfelli UST, að ganga úr skugga um að reglum sé fylgt. Þeir hafi því lagt það til við UST að stofnunin vísaði málinu til úrskurð- arnefndar. Vantar lagaheimildir Samkvæmt lögum hefur stofnunin hins vegar ekki heimild þess. UST segist hafa búist við að hreppurinn gripi til þeirra úrræða sem laga- heimildir veittu honum. Það lægi nú fyrir að stofnunin þyrfti að endur- meta stöðuna. Í aðalskipulagi kæmi fram að nauðsynlegt væri að leita álits UST ef hætta væri talin á veru- legum umhverfisspjöllum. Ef það er ekki gert er lítið um lagaákvæði sem UST getur gripið til. Lagaheimildir stofnunarinnar til þvingunarráðstaf- ana væru óljósar. Hreppurinn krefst ekki álits Morgunblaðið/Andrés Fljótandi hreiður Tvö flórgoðapör eru nú í sefinu. Fuglinn er á válista. Hreppsnefnd Kjósarhrepps mun ekki biðja úrskurðarnefnd að skera úr um nauðsyn fram- kvæmdaleyfis. Það sé hlutverk eftirlitsaðila að ganga úr skugga um að reglum sé fylgt. TIL að verða góður knapi er ekki nóg að geta haldið jafnvægi, heldur er nauðsynlegt að til- einka sér ýmsa tækni og læra að umgangast hrossin rétt og af virðingu. Krakkarnir sem sækja námskeið hjá Reiðskóla Reykjavíkur eru vafalaust með þetta allt saman á hreinu því ef marka má einbeitingarsvipinn á andliti þeirra taka þau reiðmennskuna alvarlega. Reið- námskeið fyrir börn eru víða í boði í allt sumar. Morgunblaðið/Eggert TILEINKA SÉR TAUMHALDIÐ BÚIÐ er að sprengja og grafa um 75% Bolungarvíkurganga eða um 3.800 metra. Lengd ganganna í bergi verður 5.156 metrar. Rúnar Ágúst Jónsson, staðarstjóri Ósafls, segir að stefnt sé að því að slá í gegn í fyrstu viku nóv- ember. Opna á göngin næsta sumar. Rúnar sagði gangagerðarmenn hafa lent í mjög miklum setlögum Bolungarvíkurmegin. „Við erum komnir í gegnum þau núna en eigum nú von á að lenda í setlagi aftur Hnífsdalsmegin,“ sagði Rúnar. Hann segir mun lengur verið að brjótast í gegnum setlög- in en önnur jarðlög. Hvort þeim takist að slá í gegn í nóvember ráðist af því hversu setlögin verða erfið viðureignar. Unnið verður af fullum krafti við gangagerðina í allt sumar. Ósafl gerir jarðgöngin milli Bolungarvíkur og Hnífsdals. Ósafl er dótturfyrirtæki Íslenskra aðalverktaka (ÍAV) og svissneska verktakafyrirtækisins Marti Cont- ractors. Fjórðung- ur eftir af göngunum Erfið setlög í Bolung- arvíkurgöngum  Samkvæmt skipulags- og byggingarlögum eru meiriháttar framkvæmdir, sem ekki eru háðar byggingarleyfiskyldu, háðar framkvæmdaleyfi og að framkvæmdir teljast meirihátt- ar þegar þær vegna eðlis eða umfangs hafa áhrif á umhverfið og breyta ásýnd þess.  Eftirfylgnisákvæði þurfa að skýrast og vonast UST til þess að þau verði endurskoðuð í haust með endurskoðun nátt- úruverndarlaga.  Í aðalskipulagi fyrir Kjós- arhrepp segir að forðast skuli að raska stöðuvötnum og tjörn- um sem eru stærri en 0,1 ha og þegar talin sé hætta á að vist- kerfi raskist skuli í öllum til- vikum leita umsagnar Umhverf- isstofnunar fyrirfram. Lög og reglur GÍSLI H. Frið- geirsson kajak- ræðari gerði í gær ráð fyrir að róa frá Raufar- höfn að Heiðar- nesi á Langa- nesi. Gísli stefnir á að verða fyrsti Ís- lendingurinn til að róa kajak um- hverfis landið og setja í leiðinni aldursmet á þessari róðrarleið en Gísli verður 66 ára síðar á þessu ári. Gísli hefur að langmestu leyti róið leiðina einsamall. Hægt er að fylgjast með ferðum hans á www.kayakklubburinn.is. runarp@mbl.is Gísli kom- inn að Langanesi Gísli H. Friðgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.